12.6.08
Mótorhjólamessa var eftirtektarverð
Flestir mótorhjólaklúbbar áttu fulltrúa í messunni með þátttöku sinni. Messunni stjórnuðu prestarnir sr. Gunnar Sigurjónsson, Snigill og IFMR, sr. Íris Kristjánsdóttir, Snigill og Skutla og Jón Þór Eyjólfsson aðstoðarprestur Fíladelfíu, Snigill og Trúboði.
Tónlistarmaðurinn Þorvaldur Halldórsson sá um tónlistina ásamt Meme-group sem er gospelkór unglingastarfsins í Digraneskirkju.
Leðurklæðnaður og annar öryggisbúnaður á mótorhjólum
var viðeigandi messuklæðnaður. Tilgangurinn var m.a. að minna á þær hættur sem fylgja akstri mótorhjóla og hvetja allt mótorhjólafólk til aðgætni í umferðinni í sumar.
Kópavogsblaðið júní 2008
3.6.08
Mótorkross er ekki bara fyrir stráka
Alls ekki eina
stelpan í sportinu
Mótorkross nýtur sívaxandi vinsælda á Íslandi
en nokkur sértilbúin
svæði má finna til þeirrar
iðkunar í nágrenni við
Reykjavík. Það kemur
skemmtilega á óvart að
aukningin hefur ekki síst
átt sér stað í hópi kvenna.
Hin 25 ára gamla Sigríður Garðarsdóttir starfar sem rekstrarstjóri
tískuverslananna Fókus og Smash.
En þegar vinnudegi lýkur skiptir
hún heldur betur um gír, hendir
sér í leðurgallann og heldur út fyrir bæinn til að sinna áhugamálinu:
mótorkrossi.
„Ég fékk áhuga á mótorkrossinu í fyrrasumar en ég kynntist þessu í gegnum kærastann minn,“ segir Sigríður en hún telur að flestar stelpurnar í sportinu hafi kynnst því með svipuðum hætti. „Ef það er ekki kærastinn þá er það yfirleitt einhver úr fjölskyldunni, t.d. foreldri.“ Auðvitað séu þó undantekningar á þessari reglu, en hvernig sem áhuginn kviknar þá hefur stelpunum í hópnum fjölgað töluvert upp á síðkastið, sérstaklega síðustu tvö ár. Þá séu starfandi þó nokkrir stelpuklúbbar en hún tilheyri reyndar engum slíkum.
Reddar sér alveg
Eins og við er að búast fylgir krossurunum eitthvert viðhald en Sigríður segir það ekkert sem hún ráði ekki við. „Það kemur fyrir að maður detti og það brotni hlutir, gírinn eða eitthvað slíkt. Maður reynir náttúrulega að laga það sem maður getur sjálfur, það þýðir ekkert annað! En núna er ég búin að vera ein að þessu í um það bil tvo mánuði og mér tekst yfirleitt að redda mér. Svo eru allir tilbúnir til að hjálpa manni og ég hef þegið það með þetta erfiðasta.“
Þarf ekki að vera hættulegt
Sigríður segir að það sé ekkert mál að samræma sportið og vinnuna og segist ekki eiga í vanda með skítarendur undir nöglum né marbletti. „Ef ég er mikið á hausnum þá er ég oft marin en það sést þá ekki og er allt falið af fötunum,“ segir hún og þvertekur fyrir að þessi íþrótt sé hættuleg. „Maður er mjög vel varinn á höfði og líkama – sé maður með réttan búnað og keyrir eftir getu þá ætti maður ekki að vera í mikilli hættu. En ef þú ert til dæmis að taka einhver stökk eða eitthvað sem þú kannt ekki þá geturðu lent í vondum málum.“ Að lokum segir Sigríður okkur að þótt hún geti stundað krossið á veturna sé sumarið tíminn og nú nýti hún allar frístundir í sportið. „Ég reyni að fara eins oft og ég get, helst á hverjum degi, og ætla mér að taka þátt í keppnum í sumar, þó svo að ég sé ekkert þrusugóð. Það er bara svo gaman að taka þátt og svo er félagsskapurinn líka frábær.“
Eftir Hauk Johnson haukurj@24stundir.is
2.6.08
Á mótorhjóli síðan 1950
HILMAR LÚTHERSSON: SNIGILL NÚMER EITT OG Á NÓG EFTIR
„Ég byrjaði þegar ég var tólf ára, árið 1950,“ segir Hilmar Lúthersson, snigill númer 1. Nú þegar sumarið er komið eru mótorhjól æ algengari sjón á vegum landsins. Hilmar man tímana tvenna enda tæp 60 ár síðan hann eignaðist sitt fyrsta mótorhjól. „Þá voru bara breskar skellinöðrur, níutíu kúbika, tvígengis og gíralausar. Þú þurftir ekki próf á þær fyrr en þær voru orðnar 100 kúbik, þá voru þær hestafl samkvæmt viðmiðum þess tíma,“ segir Hilmar sem eignaðist sitt fyrsta stóra mótorhjól um sextán ára aldurinn. „Það var Ariel 500, ´46 módelið,“ segir Hilmar sem hefur eignast slíkt hjól aftur. „Ég átti þetta hjól í tvö ár en svo tóku við bílar og kvennafar og síðar fjölskyldulíf. Ég byrjaði svo aftur í þessu 43 ára,“ segir Hilmar og bendir á að mikið hefur breyst síðan þá. „Þá þótti ég vera gamall kall, svona hálfgert viðundur. Nú er annað hvert hjól einhver loftpressa og á henni karl um sextugt sem er að byrja í sportinu,“ segir Hilmar.Hilmar segir mótorhjólaæðið í rénun sökum efnahagsástandsins. Sjálfur á hann þó mörg mótorhjól. „Ég er búinn að eiga um hundrað mótorhjól í gegnum tíðina og búinn að gera upp tugi,“ segir Hilmar. Hann segist hafa prófað vel flestar tegundir hjóla. „Ég er til dæmis búinn að prufa Harley, og það eru ekki mótorhjól. Þau eru bara eitthvað sem þú átt að eiga inni í skúr. Öll hin hjólin eru mikið framar í hönnun og öllu,“ segir Hilmar en viðurkennir að Harley-hjólin hafi skánað eftir að „Kaninn hætti að vera með puttana í þessu öllu“ og framleiðsla hjólanna dreifðist um heiminn. „Þeir sem ekki hafa vit á mótorhjólum segja „vá!“ þegar þeir sjá Harley.“
Síðan Hilmar byrjaði aftur hefur mótorhjólum fjölgað umtalsvert og tillitssemi ökumanna bifreiða er meiri en hún var, en þó verða mótorhjólamenn alltaf að vera með puttann á bremsunni. Hvað aksturslag mótorhjólamanna sjálfra varðar segir hann: „Það er ekkert verra í dag en það var í gamla daga. Þá var auðveldara að þekkja lögguna úti á vegi og menn höfðu því nægan tíma til að hægja niður. Það gat stundum verið gaman að bruna austur fyrir fjall því þar var malbikað alla leið,“ segir hann.
Hilmar segir að það séu til tvær flokkar af mótorhjólamönnum, þeir sem eru búnir að detta, og þeir sem eiga það eftir. Hann komst í seinni flokkinn árið 2004 þegar hross hljóp í veg fyrir hann og hann datt og brákaði nokkur rif. Hann er þó hvergi nærri hættur þótt hann fylli 70 ár í ágúst.
22.5.08
Bifhjólasýning Raftana
Mótorhjólamenn um allt land lögðu leið sína í íþróttahúsið í Borgarnesi, eða Fjósið eins og það er oft kallað, í þetta skipti ekki til að horfa á körfubolta heldur á bifhjólasýningu Raftanna.
Hin árlega bifhjólasýning Raftanna var haldin síðastliðinn laugardag. Sýningin var haldin í Íþróttahúsinu í Borgarnesi og er þetta sjötta sýningin á sjö árum, þar sem eitt árið var verið að parketleggja íþróttahúsið. Enginn sýningarstjóri er við sýningarnar þar sem allir Raftar sem koma að sýningunni vinna samán að þessu. „Öll árin sem sýningin hefur verið haldin hefur hún verið vel sótt og hafa yfirleitt um 500-600 mans mætt árlega og talið er að jafnvel fleiri hafi mætt á sýninguna nú. Þetta er bara orðið fastur liður hjá mótorhjólamönnum um mestallt land," segir Guðjón Bachmann, formaður Raftanna.
Húsnæðið of lítið
Raftarnir sýna nú um 40 hjól og svo hafa vélhjólaumboðin aíltaf komið með sinn skerf af hjólum, vélsleðum eða fjórhjólum en í þetta skiptið komu umboðin bara með hjól og annan búnað tengdan þeim. f ár voru þeir með hjól frá Heiðari Jóhannessyni sem var goðsögn í lifandi lífi meðal vélhjólamanna. „íþróttahúsið er einfaldlega orðið of lítið, ef við viljum halda alvörusýningar verðum við að hafa nægilega stórt húsnæði, við reyndum einu sinni að hafa sýninguna úti en þá týndust allir og það fór bara í vaskinn," sagði GuðjónSmitast frá foreldrum
Raftarnir voru stofnaðir árið 2001 af 32 vélhjólamönnum í Borgarfirði. Og í dag eru um 90 meðlimir í hópnum og eru allir mjög virkir. „Hópurinn er bara ein stór fjölskylda," segir Guðjón. Ekki getur maður orðið meðlimur Raftanna fyrr en við 17 ára aldur en flestir meðlimir Raftanna eiga börn og taka þau með sér á öll mót og annað sem Raftarnir halda. Krökkunum, sem eiga hjól og eru ekki með aldur til að vera í Röftunum, er velkomið að sýna hjólin sín enda var mikið af hjólum frá verðandi Röftum.Hjólið látið hanga
Á stórum Harley Davidson mótum í Bandaríkjunum hefur það verið siður að festa japanskt mótorhjól í krana svo er olían látin leka úr því og það ræst. Hjólið svo híft upp og látið bræða úr sér. Eftir að hjólið hefur brætt úr sér er það látið síga niður og þá er það barið til óbóta með hafnaboltakylfum. Raftarnir ætla ekki að taka upp þennan sið en á sýningunni nú létu þeir mótorhjól hanga í krana á Shell-planinu í Borgarnesi, sem blasti við þegar maður kom inn í bæinn.
Hugmyndina átti Helgi Sigurvin Kristjánsson, eigandi HSK krana, sem útvegaði kranann og einniger hann Raftur og á mótorhjólið sem var látið hanga.
14.5.08
Þægileg keyrsla
Regla Harley Davidson-aðdáenda er að selja aldrei fyrsta hjólið sem þeir eignast. Björn Leifsson kallar slík hjól monthjól og nýtur þess að sitja fákinn á góðviðrisdögum eins og sífellt stærri hópur Íslendinga. Þar á meðal eru hjónin Oliver Pálmason og Nanna Guðbergsdóttir sem ferðast saman á mótorhjólum. Vala Georgsdóttir fræddist um lífsstíl þessara töffara.
3.5.08
Ofursvalur Spessi á Harley
Hugsanlega kemur það einhverjum á óvart en einn fremsti ljósmyndari landsins er jafnframt forfallinn mótorhjólamaður
„Þetta er eins og að vera kúreki. Frelsi. Að vera „on the road“ er staður og stund þar sem þú ert
ósnertanlegur. Hjólar með vindinn í andlitið … lyktin af ökrunum, nálægðin við malbikið.
Það er náttúrlega engin skynsemi að vera á mótorhjóli,“ segir ljósmyndarinn Spessi og gefst upp á að lýsa því hvaða tilfinning fylgi því að vera á mótorhjóli.
Þeir eru að skríða út á malbikið með vorinu mótorhjólamennirnir. Og einnig margir sem menn tengja ekki við mótorhjól. Spessi er einn þeirra. Ofursvalur á breyttu hjóli, Cooper, en það kallast hjól sem eru með langa gaffla. Spessi segist hafa átt skellinöðru sem unglingur en svo tók alvara lífsins við eins og gengur.
Um þrítugt fékk Spessi sér Kawasaki 650, og ári síðar Yamaha sem líktist Harley Davidson. Sem var alltaf draumurinn. Svo var mótorhjólamennskan lögð á hilluna.
„Svo liðu fimmtán ár og ég var fenginn til að gera auglýsingu fyrir SS pylsur. Þar áttu að vera mótorhjólatöffarar og ég fór að leita á gömlum slóðum. Fann nokkra fúlskeggjaða Harleykarla. Tveimur dögum síðar fór ég í umboðið og keypti mér Harley, og hef átt þrjá síðan.
“ Fyrst keypti hann sér Dyna Lowrider og seinna Night Train en á því hjóli fór hann vítt og breitt, meðal annars til Noregs á stórt mótorhjólamót. „Svo í lok sumars 2006 svínaði maður fyrir mig og ég inn í hliðina á honum,“ segir Spessi og vandar sofandi sauðum í umferðinni ekki kveðjurnar. Eftir tryggingastapp fékk hann peninga út úr slysinu, keypti nýja grind á hjólið og lét sérsmíða gaffla í Svíþjóð. Þá var hjólið orðið eins og Spessi vildi hafa það.
Þegar blaðamaður bendir Spessa, sem er í Harley Davidson-klúbbnum og ritstýrir að auki tímariti samtakanna, á að oft séu mótorhjólamenn ekki til fyrirmyndar í umferðinni með því að skjótast milli akreina segir Spessi sitthvað, „racer“-hjól og svo „Harley“: „Racer er adrenalíngræja en Harley er endorfín. Þetta er eins og að vera annars vegar á spítti og hins vegar á heróíni. Allt önnur stemning –
held ég,“ segir Spessi sem hefur látið úða listaverk á bensíntank hjóls síns. „Venus úr málverki
eftir Botticelli. Engar hauskúpur á mínu hjóli heldur ástin og stemningin.
“ Spessi bendir á að hjól sitt megi skoða á sýningunni Bílar og sport í Fífunni um helgina. Sjálfur er hann svo á leið til Mekka mótorhjólamannsins, sem eru Bandaríkin. Nánar tiltekið liggur leiðin til Sturges í South Dakota. Sturges er 6.500 manna bær og á fimm dögum koma þangað hálf milljón manna á Harley Davidson. Bærinn stækkar í um tuttugu kílómetra radíus.”
25.4.08
BMW fetar troðnar slóðir
BMW hefur hins vegar unnið hörðum höndum að því síðastliðin ár að vinna gegn ímyndinni og er nú svo komið að frá BMW fæst nánast allt, „krúser“ hjól, keppnishjól, drullumallarar, fjögurra strokka hjól, eins strokka hjól, hjól með hefðbundinni fjöðrun eða óhefðbundinni BMWfjöðrun og jafnvel hjól með keðjum í stað drifskaftsins viðhaldsfría.
Í samkeppni við fleiri
BMW voru um langt skeið einráðir á markaðnum fyrir ferðamótorhjól enda vilja flestir meina að BMW hafi fundið upp þann geira mótorhjóla þó óneitanlega hafi fyrirtæki eins og Triumph verið komin á svipaðar slóðir með hjól eins og Triumph TR6 Trophy.BMW lagði mikla áherslu á að hjólin væru eins sterkbyggð og viðhaldsfrí og hægt var og þegar við þann pakka var bætt slaglangri fjöðrun, breiðara stýri og hærri ásetu var kominn pakki sem þótti prýðisgóður fyrir heimsreisur.
yrir heimsreisur. En BMW-boxer hjólin þykja í stærra lagi fyrir marga og æðiþunglamaleg. Því fór svo að BMW hannaði hjól í samstarfi við Aprilia árið 1993 og úr því samstarfi varð til hið geysivinsæla BMW F650 GS sem jafnframt var fyrsta BMW-hjólið sem ekki notaðist við drifskaft.
Það má því segja að mótorhjólið
sem hér er til prófunar sé eins konar
samruni þess nýja og gamla hjá
BMW. Hugmyndafræðin að baki hjólinu er enn sú sama, sterkbyggt og
endingargott hjól sem þó státar af
keðju frekar en drifskafti og hefur
jafnframt hefðbundna fjöðrun. BMW
hefur þó hvergi til sparað frekar en
venjulega en sökum þess hvernig hjólið er uppbyggt, á hefðbundinn máta,
þá fer hið nýja BMW F800 GS í beina
samkeppni við önnur ferðahjól eins og
Honda Varadero, Triumph Tiger, Suzuki V–Strom, Ducati Multistrada og
KTM 990 Adventure svo einhver séu
nefnd.
Alvöru ferðahjól?
Hið nýja F800 GS er útbúið nýrri vél með tveimur samhliða strokkum og er hún 800cc að stærð. Vélin er nokkuð öflug og hlýtur að hafa stóra þýska meginlandshesta því BMW gefur upp að hún sé 85–88 hestöfl en við prófanir mælist vélin iðulega 91–94 hestöfl. Hér er því um að ræða hjól sem hefur svipað afl og stóru 1200 GS hjólin en mun minni þyngd því F800 GS er aðeins 178 kíló í þurrvikt og 207 kíló með öllum vökvum.Þetta er einmitt helsti styrkur hjólsins því það smellpassar á milli F650 GS, sem í dag er með 800 vél og 71 hestafl, og 1200 GS hjólsins. BMW hefur því náð að hanna hjól sem er kraftalegt á að líta eins og 1200 GS en hefur aksturseiginleika á við léttara hjólið.
Í akstri er F800 GS afskaplega lipurt mótorhjól. Há ásetan, sem þó er ekkert í líkingu við 1200 GS, gefur gott útsýni yfir það sem fram undan er en þó er sætið ekki það hátt að fólk sem er í meðalhæð geti ekki ekið hjólinu. Stýrið er breitt og sterklegt og er hægt að koma margs konar útbúnaði fyrir á því eins og GPS-staðsetningartæki. Upphituð handföng eru kærkomin viðbót þegar haft er í huga hve stýrið er breitt því maður kólnar ansi fljótt á höndunum þegar engin er vindhlífin.
Á léttum slóða reyndist fjöðrunin vera mjög ákjósanleg fyrir ferðahjól, slaglöng og mjúk og var hjólið strax mjög traustvekjandi í akstri. Aflið er þó mikið og varð ökumaður var við að eldsneytisgjöfin væri fullnæm og því var auðvelt að missa hjólið í spól upp brattar brekkur. Þetta er þó án efa nokkuð sem mun venjast.
Bremsurnar eru verulega góðar og er mikil hjálp að hafa ABS-bremsukerfi á malbiki en við líflegan akstur er ABS-kerfið stanslaust með smáinngrip sem gefur einfaldlega til kynna að grip dekkjanna – sem eru þó meira miðuð fyrir malbik en geta tæklað smá-slóða, er takmarkað. Sem betur fer er hægt að slökkva á kerfinu þegar keyrt er í möl því þá getur verið þörf á að nota afturbremsuna mun meira en á BMW eru fram- og afturbremsurnar tengdar saman með ABS-bremsukerfinu. Það nægir því að hemla í botn þegar þarf að nauðhemla og kerfið sér um að dreifa álaginu á milli fram- og afturhjóla.
Þægindi og útbúnaður eru kjörorðin
Sætið reyndist afar þægilegt og fór einnig vel um farþega á hjólinu og má vel ímynda sér að lítið mál sé að aka um lengri leið, jafnvel á slóðum, með farþega á hjólinu. Í reynsluakstrinum var þetta prófað og var ekkert upp á hegðun hjólsins að klaga þó farþegi væri á því þegar ekið var á malarvegi.Það sem ferðalangar sækjast eftir er þó aðallega tvennt: góð langdrægni og möguleiki á því að hlaða farangri á hjólíð. Langdrægnin er helst til dræm enda bara 16 lítra bensíntankur á hjólinu. Þó er hægt að komast um 350 kílómetra á tanknum sem verður að teljast viðunandi. Hvað töskur og aukabúnað varðar mun enginn koma að tómum kofanum hjá BMW því úrvalið af töskum og aukabúnaði er gífurlegt. Fyrir þá sem vilja enn meira úrval má alltaf leita til Touratech en það fyrirtæki hefur lengi sérhæft sig í aukabúnaði fyrir mótorhjól og þá sérstaklega GS-hjólin frá BMW.
Af frágangi hjólsins má sjá að þrátt fyrir að það hafi hvorki boxervél né drifskaft fer ekki á milli mála að um BMW-mótorhjól er að ræða. Allur frágangur er til fyrirmyndar og er augljóst að efnisnotkun er skör ofar en t.d. á BMW F650 GS. Bæði eru felgur dýrari, fjöðrunin er mun vandaðri og hjólið hefur öflugri bremsur.
Það er ljóst að hvað ferðalög varðar hafa vopn þeirra sem hingað til hafa afsakað sig með sérkennilegri hönnun BMW verið slegin úr höndum þeirra – hér er komið alvöru ferðahjól sem þrátt fyrir að hafa bláa og hvíta BMW-merkið á tanknum er einfalt og hefðbundið.
19.3.08
Gunnar hansen og vespur
Gunnar Hansson hóf nýlega innflutning á ítölsku smáhjólunum Piaggo Vespa. Upphaflega ætlaði Gunnar að flytja inn eitt hjól en rataði óvart inn á skrifstofu Piaggos þegar hann fagnaði afmæli móður sinnar á Ítalíu. Vespa-hjólin flokkast undir græn farartæki og eyða litlu sem engu bensíni.
„Þetta eru sjúklega flottar græjur," segir Gunnar Hansson, leikari og umboðsaðili fyrir ítölsku bifhjólin Piaggo Vespa. „Önnur svona hjól heita yfrleitt skúter en þetta er hin eina sanna Vespa," segir Gunnar sem nýlega hóf innflutning þessara gamalreyndu smáhjóla sem hafa verið á markaði um allan heim í 60 ár.
Gamall draumur
Sjálfur hefur Gunnar alla tíð haft mikinn áhuga á vespum og þá sérstaklega hinum upprunalegu frá Piaggo Vespa. „Frá því ég var 14 ára hefur mig alltaf langað í svona hjól," en Gunnar segist alltaf hafa gert mikinn greinarmun á merkinu Vespa og öðrum svipuðum bifhjólum.
Undanfarin tíu ár hef ég verið á leiðinni að flytja inn eitt svona hjól fyrir mig," en örlögin urðu til þess að Gunnar gekk skrefmu lengra. „Ég var staddur á ftalíu til að fagna 60 ára afmæli móðir minnar þegar ég áttaði mig á því að ég væri mjög stutt frá Piaggo-verksmiðjunni. Áður en ég vissi af var ég kominn á fund með Evrópuforstjóra Piaggos," og segir Gunnar að þeir félagar hafi ekki verið lengi að koma viðskiptasambandi á.
Græn faratæki
Gunnar segir kostí vespunnar vera marga og ekki síst hversu ódýrar þær séu í rekstri. „Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum hversu dýrt bensínið er orðið. Þá er nú ekki slæmur kostur að geta fýllt á tankinn fyrir þúsund krónur," en hjólin eyða um tveimur til fjórum lítrum á hundraðið eftir stærð og aksturslagi og Gunnarsegir að þrátt fyrir bensínverðið kosti ekki meira að fylla á hjólið. „Vespa-hjólin flokkast undir græn farartæki og uppfylla alla hörðustu Evrópustaðla í þeim málum. Þannig að maður er líka að stuðla að heilbrigðara umhverfi og minni mengun."
Gunnar er í skýjunum með hjólin og segir stórglæsilega hönnun þeirra ekki síst ástæðuna. „Hjólin líta ekki bara glæsilega út heldur eru þau ótrúlega vel hönnuð og rúmgóð."
Í öllum stærðum og gerðum
Gunnar selur nokkrar týpur af hjólunum frá Vespa en þau eru til sýnis í Saltfélaginu úti á Granda og á vespur.is. „Ég er í grófum dráttum að selja fimm mismunandi hjól. Það er sem sagt litla hjólið, mið og stóra og síðan tvær 60 ára afmælisútgáfur sem eru sérstaklega glæsilegar."
Litlu hjólin sem Gunnar býður upp á eru 50cc og er verðið á bilinu 300 til 350 þúsund krónur. „Verðið á hjólunum er ekki alveg endanlegt inni á vefsíðunni og það mun því miður hækka," segir Gunnar en ástæðan er veik staða krónunnar gagnvart evru undanfarin misseri. „Stóra hjólið sem við bjóðum upp á er 250cc og það kostar um það bil 700 þúsund krónur."
Gunnar bindur þó mestar vonir við miðstærðina. „Miðhjólið er
125cc og heldur vel
í við umferðina. Það kostar í kringum 500 þúsund krónur." Nýlega var einnig byrjað að bjóða upp á sérstök ökuleyfi á 125cc hjól þannig að ekki þarf að
læra
á stór og þung vélhjól til að öðlast réttindi á þau.
asgeir@dv.is
19.3.2008 DV
12.3.08
Vetrarveisla í vetrarperlu
Þriðja ís- og snjókrossmót vetrarins á Mývatni tókst frábærlega.
Fjölgun keppenda og áhorfenda í sólskinsveðri
24 stundir 12 mars 2008
4.3.08
Ofur-rafmótorhjól til Íslands
Heimsins kraftmesta rafmagnsmótorhjól, Killacycle frá Colorado í Bandaríkjunum, verður til sýnis á ráðstefnunni Driving Sustainability ´08 sem fram fer á Hótel Nordica í dag og á morgun.
Hönnuður Killacycle-hjólsins og eigandi, Bill Dubé verður með kynningu á tækninni að baki þessu einstaka farartæki, sem sett hefur hvert hraða- og spyrnumetið á fætur öðru á síðustu árum. Í desember síðastliðnum fór það kvartmíluna í fyrsta sinn á undir átta sekúndum, en það er langbesti spyrnutími sem rafdrifið farartæki hefur nokkru sinni náð. Auk þessa ofurmótorhjóls verða öllu hversdagslegri en þó nýstárleg farartæki til sýnis og til umfjöllunar á ráðstefnunni, svo sem rafmagnsvespur og rafreiðhjól. Sú þróun sem orðið hefur í rafhlöðutækni á síðustu árum hefur nú gert rafdrif í svo léttum farartækjum að mjög hagnýtum og hagkvæmum kosti til að komast mengunar- en þó áreynslulaust milli staða innanbæjar. Þetta er í annað sinn sem alþjóðlega ráðstefnan Driving Sustainability er haldin, en rafvæðing ökutækja, stórra sem smárra, er í brennidepli dagskrár hennar í ár. Meðal annarra dagskrárliða má nefna kynningu á „i MiEV“-rafbílnum frá Mitsubishi og á tilraun til að fljúga umhverfis hnöttinn á sólarrafdrifinni flugvél. - aa
22.2.08
Hercules Wankel á safninu
Eitt af mótorhjólum safnsins er Herkules W2000 Wankel
Árið (2008) Flutti Jón Dan bróðir (Heidda) inn Herkules W 2000 Wankel mótorhjól frá Kanada.
27.10.07
Innrás mótorhjóla úr austri
MARGIR hafa velt fyrir sér auknum innflutningi bíla frá Kína til Evrópu og hugsanlegri sprengingu á markaði ódýrra bíla í kjölfarið.
Þessi sprengja er hins vegar um það bil að springa í mótorhjólainnflutningi og ekki síður hér á Fróni en á meginlandinu. Á undanförnum þremur árum hafa vel á þriðja hundrað kínversk mótorhjól verið flutt til landsins og er þá ekki talinn með fjöldi fjórhjóla. Í Kína varð sprengingin í framleiðslunni árið 2003 og hún hefur aukist töluvert síðan. Árið 2003 voru framleidd 14 milljón mótorhjól í Kína, sem var 48% af heimsframleiðslunni.
Kína flytur út mótorhjól til yfir 200 landa, og þá oftar en ekki til þróunarlanda í Asíu og Afríku. Árið 2010 er búist við að Kína og Indland verði með samanlagða framleiðslu upp á 36 milljón mótorhjól á ári. Þar sem annars staðar aukast sífellt kröfur um minni mengun farartækja sem eykur eftirspurn eftir betri eldsneytis- og kveikjukerfum.
Eitt íslenskt fyrirtæki hefur sett stefnuna á þann markað en það er fyrirtækið Fjölblendir ehf. sem hefur þróað blöndung fyrir minni vélar sem minnkar losun CO2 allt að 80% og HC+NOx allt að 35%.
Útflutningur til Ameríku og Evrópu vex líka hröðum skrefum en útflutningur þangað jókst úr 3,4 milljónum eintaka árið 2002 í 9 milljón stykki árið 2004. Þetta er aukning upp á 123% á tveimur árum og aukning á útflutningsverðmæti úr 650 milljónum dollara í 1,45 milljarða dollara.
Þessu er líkt farið í
mörgum löndum í Suðaustur-Asíu. Mikil
aukning er á framleiðslu mótorhjóla í Indlandi en þar er áætlað að framleiðslan aukist
um meira en helming á næstu þremur árum,
upp í 15 milljónir mótorhjóla á ári árið 2010.
Lönd eins og Suður-Kórea og Malasía eru
einnig á hraðri uppleið. Í Malasíu jókst framleiðslan frá 2003 úr 352.933 mótorhjólum í
472.726 mótorhjól árið 2004, eða aukning
upp á 34%. Flest þau mótorhjól sem framleidd eru í Austurlöndum fjær eru undir 200
rúmsentimetrum.
26. OKTÓBER 2007