Númeraplötur á Fornhjól

Mótorhjólasafnið hefur í nokkur ár smíðað númeraplötur á gömul hjól. Platan kostar 7000kr Til að panta plötu er best að senda póst á Gunna Möller gmoller68@gmail.com þar sem fram kemur gerð og árgerð hjóls, fast númer, skráður eigandi, á hvaða skoðunarstöð þú villt sækja plötuna og að sjálfsögðu hvaða númer á að smíða.
Áður en hægt er að afhenda plötu þarf að vera búið að sækja um númerið hjá Samgöngustofu og sækja um að mega nota fornmerki á viðkomandi hjól Við sendum svo plötuna til Samgöngustofu til samþykktar og þeir senda hana til skoðunnarstöðvar til afhendingar.
ATH. Fornbifhjól: Bifhjól er skráð í þennan notkunarflokk á grundvelli umsóknar eiganda um skráningu á notkunarflokk ( US.115 ) eða á grundvelli umsóknar um fornmerki ( US.156 ) séu skilyrði um fornbifhjól uppfyllt.  [Fornbifhjól er ekki er ætlað til almennrar notkunar, telst vera safngripur og er eða verður að minnsta kosti 25 ára á almanaksárinu.] 12 https://www.samgongustofa.is/…/3.10-serti…/3.10.6-fornmerki/