Þriðja ís- og snjókrossmót vetrarins á Mývatni tókst frábærlega.
Fjölgun keppenda og áhorfenda í sólskinsveðri
Með sanni má segja að betri umgjörð utan um vélsleða- og mótorkrosskeppni en á Mývatni og
umhverfi er vandfundið. Ekki
skemmdi heldur fyrir um helgina
að veðurguðir voru í afbragðsskapi
sem aftur þýddi að fleiri áhorfendur en nokkru sinni fengu séð fleiri
keppendur en nokkru sinni fyrr á
Mývatnsmóti etja kappi í einum
þrettán keppnisgreinum en þeim
fer ört fjölgandi með auknum
fjölda keppenda af báðum kynjum
og úr öllum aldursflokkum.
24 stundir 12 mars 2008