Bifhjólasamtök lýðveldisins kynntu nýja slysarannsókn í morgun:
Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar, hafa í samstarfi við Umferðarráð og rannsóknarnefnd umferðarslysa látið gera eina stærstu slysakönnun sem um getur hér á landi. Sniglar höfðu frumkvæði að verkefninu og létu skoða öll bifhjólaslys á tíu ára tímabili, frá árinu 1991 til 2000 að báðum árunum meðtöldum. Útkoma rannsóknarinnar bendir á marga athyglisverða hluti og staðfesti aðrasem haldið hefur verið á lofti af bifhjólafólki lengi.
Mikil fækkun bifhjólaslysa
Sú niðurstaða rannsóknarinnar sem vekur hvað mesta athygli er að á meðan mótorhjólum í umferð er að fjölga hefur tíðni slysa verið á niðurleið frá 1992, þegar Sniglar hrundu af stað sínu fyrsta umferðarátaki. Árið 1992 voru skráð 113 bifhjólaslys á landinu en árið 2000 aðeins 48. Sniglar fengu Skráningarstofuna til að reikna út hversu mörg hjól voru á númerum og hve lengi á hverju ári, og fengu útkomuna í einni tölu sem er kölluð er númeradagar.Yngstu oftast í slysum
Þegar öll bifhjólaslys eru skoðuð er bifhjólafólk orsakavaldur í 64% tilfella en slys verða oft þegar bifhjól er eitt á ferð. í þeim tilfellum þar em árekstur milli ökutækja á sér stað er það í langflestum tilfellum við gatnamót og þá lenda oftast saman bifhjól og fólksbíll, eða í um 80% tilfella. í þeim tilvikum eru ökumenn bifhjóla orsakavaldar í 47% tilfella. Athygli vekur einnig í niðurstöðum skýrslunnar að í rúmlega helmingi tilfella slysa eiga skellinöðrur og sporthjól þátt, en það er einmitt yngsti aldurshópurinn. Þeir sem eru 15-24 ára lenda í um tveimur þriðja slysanna eða 67,5% sem er hátt hlutfall. Einnig vekur athygli að konur lenda síður í slysum heldur en karlmenn. Hlutfall þeirra sem lenda í slysum er 6,4% á meðan 18% þeirra sem tóku bifhjólapróf árið 2001 voru konur. Það þykir einnig sláandi niðurstaða að 86% slysanna verður í þéttbýli, en það segir töluvert um það hvar fólk er að nota hjólin sín og hvar þau eru í mestri hættu. Hátt hlutfall ökumanna eru einnig réttindalausir, eða 7,3%.
Helmingur slysa á lánshjólum
Margt athyglisvert kom í ljós við vinnslu skýrslunnar sem ekki var búist við fyrirfram. Til dæmis virðist vera ákveöin brotalöm hjá tryggingafélögunum þar sem mörg hjólanna fara á gótuna aftur og lenda aftur í tjónum. Í einu tilvikanna hafði sama bifhjólið lent fimm sinnum í rjóni en fór alltaf á götuna aftin;. Skoðaður var innflutningur bifhjóla á 30 ára tímabili og þar kemur í ljós að innflutningur bifhjóla var í sögulegu lágmarki árið 1996 þegar aðeins 62 bifhjól voru flutt tillandsins. Þetta var mikil fækkun frá árinu 1974 þegar hvorki meira né minna en 729 bifhjól voru seld hingað. Innflutningur bifhjóla virðist þó vera að komast í jafnvægi, en árið 2000 voru 334 bifhjól flutt hingað.
Um helmingur þeirra sem lenda í slysum eru ekki skráðir eigendur hjólanna. Bifhjólasamtökin stóðu
fyrir herferð árið 1997-8 um að bifhjólafólk lánaði ekki hjólin sín og virðist sá áróður hafa náð til fólks ef marka má niðurstöður skýrslunnar. Slys á lánshjólum eru þó á uppleið aftur, en eflaust má líka rekja hluta þeirra til þeirrar staðreyndar að bifhjól eru oft skráð á aðra fjölskyldumeðlimi til að sneiða fram hjá dýrum tryggingum.
Hvetja til forvarna
Allir vita að það er hættulegt að keyra mótorhjól, en með þessari vinnu eru Bifhjólasamtókin að reyna að komast að því hvað það er sem hægt er að gera til þess að það verði minna hættulegt. Um 31%þeirra sem lenda í slysi á bifhjóli slasast alvarlega eða látast. Þetta er rúmlega helmingi hærri prósenta en hjá ökumönnum og farþegum bifreiða. Bifhjólasamtökin vilja hvetja til aðgerða í forvarnarstarfi fyrir bifhjól og benda á aðgerðir í þeim efnum. Að sögn Karenar Gísladóttur hjá Bifhjólasamtökunum er það hægt með bættri kennslu og námskeiðum. „Bifhjólasamtökin vilja gera það i samvinnu við tryggingafélögin og telja að það myndi vera hægt með afslætti á tryggingum sem gulrót, líkt og á námskeiðum fyrir unga ökumenn hjá VÍS og Sjóvá. Koma þarf einnig á fót átaki um notkun hjálma og hlífðarfatnaðar vegna hárrar prósentu þeirra sem ekki nota hjálm og hlífðarfatnað," segir Karen. „Ætlunin er að setja umferðarátakið okkar inn á myndbönd hjá videoleigum og koma þeim einnig i kynningar í bíóhúsum í júní og júlí." Karen bendir einnig á að Bifhjólasamtökin hafi náð miklum árangri með átaki í umferðinni á undanförnum árum og nú sé kominn tími til að tryggmgafélögin leggi við eyrun. „Það er ekki síst með endurskoðuðu tryggingarkerfi sem hyglar ekki þeim sem hafa hæstu tekjurnar í stað mestu reynslunnar, sem viö getum náð betri árangri," sagði Karen að lokum.