Segir Þórður R. Magnússon, sem á eitt dýrasta og flottasta Harley Davidson mótorhjól landsins.
Þórður R. Magnússon, oftast þekktur sem Tóti í Flísabúðinni, á eitt dýrasta mótorhjól landsins. Tóti átti áður ansi flott BMW 1200C mótorhjól en það er eins hjól og notast var við í James Bondmyndinni „Tomorrow never dies." Þórður söðlaði hins vegar um í vor og fékk sér nokkuð sérstakt Harley Davidson mótorhjól sem kallast V-Rod og er eina eintakið á landinu. Að sögn Tóta er V-Rod ein stakt í sögu Harley Davidson það er fyrsta vatnskælda Harley Davidson-hjólið og á sér eiginlega enga hliðstæðu þar sem það sameinar svo marga kosti. „Þetta var einfaldlega ást við fyrstu sýn," segir Tóti. „Það er allt við þetta hjól; hönnunin, nostalgían og nafnið Harley Davidson. Nafnið er náttúrulega stór hluti af Harley Davidson en þarna er búið að búa til ákveðna ímynd."
Á næsta ári verða verksmiðjurnar 100 ára og er Tóti að hugsa um að fara til Barcelona en það er hluti af afmælisferð Harley Davidson-eigenda og verður mikið um dýrðir þar sem annars staðar.

Fékk sérsmíðaðan hjálm í stíl
Hingað kom í sumar hópur úr eigendaklúbbi
Harley Davidson, HOG (Harley Owners Group), á
hjólum sínum í ferð sem var nefhd „Viking Invasion" og hjólaði Tóti hringinn með hópnum. Tóti
sagði okkur eina góða sögu um samhug allra
Harley-eigenda. Hann hafði gefið sig á tal við Ameríkana sem hann hitti á hjóladegi Snigla. Sagði
hann honum að hann ræki Harley-verslun í Bandaríkjunum. Tóti hafði verið að reyna að ná í
, hjálm í stíl við hjólið sem var aðeins til í
örfáum eintökum og sagðist Kaninn
ætla að redda því. Kvöddust þeir svo
með þessu og lét Tóti hann hafa
VISA númer sitt. Nokkrum vikum
seinna hafði náunginn grafið upp
hjálminn og kom hann til Tóta í
pósti. Tóti segir hjólið komið til að vera. „Ég ætla mér að eiga
þetta hjól," sagði hann að
lokum. -NG
DV
19.09.2002