Harley Davidson 95 ára
Goðsagnablær bandarísku mótorhjólanna
Harley-Davidson jaðrar við klisju.
Geir Svansson komst þó að því að hún
er ekki innantóm og að á Íslandi er til
fólk sem lifir sig inn í hana.
MÓTORHJÓL eru ekki
bara eitt helsta karlmennskutákn aldarinnar
heldur líka og einkum
tákn fyrir frelsi og uppreisn gegn
borgaralegum gildum. Ímynd ístöðulausa uppreisnarmannsins á 6. og 7.
áratugnum, t.d. í holdgervingu
James Deans (Rebel Without a
Cause), Marlon Brando (The Wild
One), og Peter Fonda og Dennis
Hooper í Easy Rider, er ekki fullkomin án mótorhjólsins. Hjólið er
andstæða fasteignarinnar og allra
skuldbindinga, lykill að frelsinu en
líka afsökun og ávísun á eirðarleysi.
En útlaginn getur ekki setið hvaða
hjól sem er. Hvort sem ofantaldir
kappar hafi setið sömu gerð mótorhjóla eða ekki er samt víst að í goðsögninni og í hugum flestra er það
ein tegund sem kemur upp í hugann
þegar á þá er minnst: Harley-Davidson, erkitákn amerískrar einstaklingshyggju.
Ern öldungur
Harley-Davidson mótorhjólið er
næstum jafnaldra öldinni og á 95 ára
afmæli í ár. En-Davidson-bræðurnir,
William D, Walter og Arthur og vinur þeirra, William S. Harley settu
saman fyrsta mótorhjóiið árið 1903, í
skúr í bakgárði Davidson fjölskyldunnar tMilwaukee.
Öldungurinn er ern þrátt fyrir
aldur og hefur frægðarljómi hans sjaldan verið sterkari en einmitt í
dag. Hann hefur reynt ýmislegt um
dagana. Uppgangur í árdaga var
mestur í fyrri heimsstyrjöldinni en
kreppan mikla, á fjórða áratugnum,
reið honum næstum að fullu. Af yfir
eitthundrað fyrirtækjum lifðu aðeins
tvö: Harley-Davidson og Indian mótorhjólafyrirtækið.
Annað uppgangstímabil varð í
seinna stríði en Harley-Davidson
framleiddi meira en 90 þúsund hjól
fyrir bandamenn. Árið 1953 lagði
Indian fyrirtækið upp laupana og
var þá Harley-Davidson eini mótorhjólaframleiðandinn á bandarískum
markaði. Upp úr þessu varð HarleyDavidson hjólið óumdeildur konungur götunnar og heldur þeim titli enn.
Vinsældir myndarinnar The Wild
One, með Marlon Braindo í hlutverki
mótorhjólatöffara sem setur allt á
annan endann í litlu þorpi ásamt
mótórhjólagengi sínu, kom þeirri
hugmynd inn hjá venjulegu fólki að
mótórhjólafólk væri „útlagar" og illvirkjar upp til hópa. Svarti leðurjakkinn og buxurnar urðu á sama
tíma ekki eingöngu tískumerki heldur órækt tákn ákveðins lífsstíls.
Þessar hugmyndir hafa loðað við
síðan og hefur íslenskt mótorhjóiafólk ekki farið varhluta af því. Atök
Heljarengla og Bandíta á Norðurlöndum og einkum í Danmörku hafa
svert önnur mótorhjólasamtök í álfunni og einnig hér heima.
Ógrundaðar sögusagnir um tengls
og ítök Heljarengla hérlendis koma
upp annað veifið og slíkar getgátur
hafa jafnvel birst í blöðum. En hvað
sem meintum tengslum einstakhnga
við erlend glæpasamtók líður þá eru
viðlíka vangaveltur, alhæfingar og
sleggjudómar afar óréttlátir gagnvart heiðvirðu hjólafólki lýðveldisins.
Goðsagnir og staðreyndir
Ekki verður fram hjá því litið að
ofangreind atriði, útlegð, uppreisn,
eirðarleysi og andfélagsleg hegðun,
eru þættir í goðsögninni sem fylgir
mótorhjólalíferni eins og skuggi og
Harley-Davidson hjólinu kannski
sérstaklega. En þó goðsögur séu
lífseigar og geymi í sér sannleikskorn er ekki þar með sagt að þær standist tölfræðilega skoðun í veruleikanum. Þannig hafa kannanir í
Bandaríkjunum sýnt að hinn dæmigerði Harley-Davidson eigandi þar í
landi er rúmlega fertugur karlmaður
með um 5 milljónir í árstekjur, eða
ríf 400 þúsund á mánuði, og notar
hjólið til tómstunda en ekki tómhyggjulegra uppreisna. Og er þá fokið í flest skjól fyrir uppreisnarsegginn rótlausa og Heljarengilinn ógurlega!
Sennilega verður þessi mynd
raunsannari á íslandi með hverju
góðærinu. Undanfarin misseri hafa
t.d. þó nokkrir nafntogaðir forstjórar
stórfyrirtækja í yngri kantinum
eignast Harley-Davidson mótorhjól.
Liggur við að hægt sé að tala um
eins konar „forstjóratísku" í þessu
sambandi. Þar sem forstjórar á íslandi eru eflaust alþýðlegri en
kollegar þeirra erlendis er eins víst
að þeir tilheyri Bifhjólasamtökum
Lýðveldisins og hjóli með þeim um
helgar. Sem hópur skera þeir sig þó
úr að þvi leyti að þeir keyra um á
nýjum eða nýlegum árgerðum hjólanna hérlendis en það er ekki á allra
færi þar sem Harley-Davidson hjólin
eru rokdýr.
Á vettvang
En ofangreindar upplýsingar
fengnar úr bók gefa lítið til kynna
um hinn raunverulega „mótorhjólatöffara", hvað það þýðir þegar mótorhjólið er ekki bara tómstundagaman heldur lífsstíll. Til þess að fá
nasasjón af því fór undirritaður á
vettvang og ræddi við tvo íslenska
Harley-Davidson eigendur sem
„tóra til að tæta" og „tæta til að
tóra" svo notuð sé heldur groddaraleg þýðing á Harley-Davidson
mottóinu: „Live to ride. Ride to live."
Gunnar Þór Jónsson, kallaður
Gunni í Gullsport, er 32 ára gamall
sérfræðingur í mótorhjólum. Mér
verður á að spyrja hann hvenær
hann hafi byrjað á dellunni og fæ
fyrirsjáanlegt svar: „Þetta er ekki
della, heldur lífsstfll," segir Gunni
með ýktum áherslum og brosir að
klisjunni sem hann var að láta út úr
sér. En klisjan á samt við rök að
styðjast. Að minnsta kosti í hans tilviki.
Hann byrjaði að dytta að mótorhjólum 11 ára gamall. „Pabbi gaf
mér snemma hjól en til að halda aftur af mér var það allt í pörtum.
Hann vonaðist til að ég væri endalaust að vinna í því svo ég kæmist
ekki á götuna. Það dugði ekki til því
eftir tvær vikur var ég farinn að
fræsa göturnar."
Gunni byrjaði fyrir alvöru að
vinna í hjólum árið 1989. Árið 1995
byrjaði hann svo að vinna á verkstæðinu í Mótorhjólaversluninni
Gullsporti. Hann segist hafa átt alls
konar mótorhjól í gegnum tíðina og
prófað allt sem hægt er að prófa í þeim efnum. Harley-Davidson eignaðist hann ekki fyrr en seint og síðarmeir. „í gamla daga gat maður
ekki hugsað sér að eiga Harley-Davidson. Maður gerði grín að þessum
köllum sem voru alltaf skítugir úti í
vegarkanti að gera við. Manni fannst
Harlinn þungur, máttlaus og svo
komst hann ekki hratt. Núna, eftir
að maður er búinn að kynnast hjólinu, hefur maður komist að raun um
að það besta við hjólið er að það er
þungt, máttlaust og kemst ekki
hratt!"
Breytt hugarfar
Að sögn Gunna verður alger hugarfarsbreyting. „Eftir að maður er
búinn að keyra af sér hornin, búinn
að gera allt sem hægt er að gera á
hjóli þá er bara eftir að setjast á hjól
til að hafa það notalegt. Ókei, maður
er alltaf grútskítugur, með tannfeiti
á milli puttanna en helmingurinn af
nautninni er að dunda í hjólinu sínu."
Þótt skringilegt megi virðast hafa
Harley-Davidson hjólin haft á sér
orð fyrir að vera dyntótt og alls ekki
gallalaus. Þetta álit má sumpart
rekja til hjóla sem framleidd voru í
lok 7. og í byrjun 8. áratugarins en á
því tímabili var óstjórn í fyrirtækinu
og ýtrustu gæðakröfum ekki fylgt.
En Harley-fólk lætur þetta ekki á
sig fá og segir hjólin einungis hafa
meiri sál en önnur hjól. Viðgerðin,
stillingin, er hluti af lífsstílnum. Og
eins og Robert Pirsig benti á í bók
sinni, Zen and the Art of Motorcycle
Maintenance, þá verður maður að
hlusta á hjólið sitt; það er ekki eingöngu dauð vél.
Of heimsk til að bila
„Harlinn bilar ekki," segir Gunni.
„Ef þau stoppa þá er það vegna þess
að þau þarf að stilla. Vélin er of
heimsk, of einfóld, til að bila. Þetta
er knastás, sveif, stimplar og ef maður hefur þjöppun, neista og bensín,
þá gengur þetta. En það verður að
stilla mótorinn reglulega, ef maður
gerir það
ekki þá
geta þau auðvitað bilað. Ef maður hlustar
á hjartað í hjólinu sínu þá bilar það
ekki."
Gunni telur að elsta hjólið á íslandi sé sennilega frá 1925. Harlinn
hans Gunna er frá 1944. Algengust á
íslandi eru hjól frá '72-73. En á íslandi eru u.þ.b. 60 hjól á skrá en þau
eru ekki öll á götunni. Splunkuný
hjól eru fá vegna verðsins.
Að lokum verður mér á að spyrja
nánar út í „mótorhjólalífsstílinn" almennt og það leynir sér ekki í svipnum á Gunna að spurningunni er ofaukið. „Það er fjöldinn allur af Sniglum (þ.e. meðlimum í Bifhjólasamtökum Lýðveldisins) sem er í þessu
stuttan tíma. Hjá þeim er þetta
hobbí, della sem gengur yfir. Hjá
öðrum er þetta lífsstíll þar sem
menn lifa og hrærast í þessu ...
Ég veit ekki af hverju ég er að
reyna að svara þessari spurningu.
Það er ekki hægt. Ef þú ert ekki á
hjóli þá getur þú ekki skilið hvað
um er að ræða. Eins og þegar
það er spurt hvað sé svona
töff við að vera
á mótorhjóli.
Ef þú ert
„húkkt" þá er
það ekkert töff
að vera á hjóli en það er fáránlegt að
vera það ekki!"
Draumahjólið
Jón Ingi Hannesson er einn
þeirra sem lifir sig inn í lífsstílinn títtnefnda. Hann
starfar sem leiðbeinandi í
fræðsludeild hjá Iðntæknistofnun. En þar fyrir utan er
það „bækið", eins og hann
kemst að orði, eða hjólið.
Hann er búinn að eiga mótorhjól síðan 1991. Harley-Davidson
hjólið sitt eignaðist hann síðasta vetur. „Ég hef átt japönsk hjól áður en
hef stefnt að því alla tíð að komast á
Harley og nú er toppnum náð.
Draumurinn rættist."
Hjólið hans er '87 módel. „Það var
til hér á landi. Eg hef breytt því mikið. Ég lengdi t.d. gaffalinn, teygði á
honum, til að fá svona aðeins meira
„Easy Rider" útlit. Setti líka stærri
tank."
Jón Ingi kveðst vera búinn að
selja gömlu hjólin og hann geti ekki
hugsað sér að fara aftur á
þannig hjól. En af hverju?
„Veit það ekki. Þetta er
bara allt öðruvísi. Þetta
er náttúrlega frumgerðin, má segja. Það
er líka allt öðruvísi að keyra þessi hjól. Þau eru miklu
meira lifandi og hafa miklu sterkari
sál. Maður er miklu fljótari að tengjast þessu hjóli heldur en öðrum.
Harlinn endist mun betur með
réttri meðferð. Maður sér það í erlendum blöðum að það er búið að
keyra þau 4-5 hundruð þúsund mílur
sum hver! Það þarf auðvitað að gera
einhverjar eðlilegar endurbætur á
þeim. Það eru margir sem eru að
keyra á '30-'40 módelunum enn þá.
Svo er það líka kúlturinn í kringum þetta. Þinn lífsstíll mótast af
þessu. Þú getur ekki bara keyrt
Harley-Davidson og verið samur á
eftir. Ósjálfrátt þá fer þinn karakter
að taka mið og mark af þessu hjóli.
Þú ferð að klæða þig í samræmi það
og vilt fá eitthvað á hjólið eða tengt
því í gjöf o.s.frv.
Ég var búinn að stefna að þessu
svo lengi að félagarnir voru farnir að
hlæja að mér. Eg átti alla fylgihlutina og allt draslið," segir Jón Ingi og
sýnir mér hring, kveikjara og úrið
sitt sem allt er merkt Harley-Davidson í bak og fyrir. „Það vantaði
ekkert nema hjólið. Það var stundum svolítið bjánalegt að keyra um
á Hondu og vera allur merktur
HD. Nú smellpassar allt saman
inn í myndina! Ég sé fram á það
að þetta getur þess vegna orðið
mitt síðasta hjól. Að það fylgdi
mér bara það sem eftir
væri," segir Jón Ingi
hlæjandi, setur 1.300
kúbika (rúmsentimetra) Harlann sinn
í gang með látum og
ekur svo af stað í mestu makindum.