14.6.16
Breyting í ferðanefnd
Þá skipa semsagt ferðanefnd þau Jutta, Tryggvi og Gissur.
Svo viljum við í stjórninni benda hjólafólki á að gæta að sér vegna hraðahindrana sem er verið að skrúfa niður úti um allan bæ, og sérlega þá “bólur” sem heyrst hefur að eigi að setja í einhver hringtorg!!
27.5.16
Yfir þrjátíu mótorhjólamenn á leið á Kirkjubæjarklaustur
Um þrjátíu keppendur úr Akstursíþróttafélaginu START eru á leið á Kirkjubæjarklaustur í motokrosskeppni. Hjólin voru gerð klár í gærkvöldi.
Félagar í klúbbnum eru skráðir með 31 hjól til keppni en sumir mæta með fleiri en eitt. Í gærkvöldi voru um 230 keppendur skráðir til leiks á Klaustri
„Þetta er eiginlega samkoma mótorhjólamanna,“ sagði Páll G. Jónsson sem fylgir syni sínum á Klaustur.
Hann gegndi einnig hlutverki skoðunarmanns í gærkvöldi. Fyrir hvert mót þarf að skoða keppnishjólin og tryggja að helsti öryggisbúnaður sé í lagi. Hjólin eru vanalega skoðuð á keppnisstað kvöldið fyrir keppni eða að morgni keppnisdags.
Austfirðingarnir eru hins vegar það margir að til að flýta fyrir fékkst leyfi til að skoða hjólin eystra og það var gert á verkstæði Rafeyjar á Egilsstöðum.
Félagar í START hafa verið duglegir við að mæta á mótin á Klaustri. Keyrt er í sex klukkutíma en mismunandi keppnisflokkar eru í boði þannig menn geta skipst á að keyra eða keyrt einir í flokki járnkalla. „Þarna eru hröðustu ökumenn landsins og þeir hægustu,“ segir Páll.
Keppendurnir fara ekki einir því þeim fylgja stuðningsmenn og tæknimenn en stundum þarf að lappa upp á hjólin í miðri keppni. Félagar í START verða líka áberandi, allir í eins peysum sem útbýtt var í gærkvöldi og þær merktar sérstaklega í tilefni 30 ára afmælis klúbbsins.
„Peysurnar gera þetta skemmtilegra. Þær vekja athygli á samheldnum hópi,“ sagði Magnús Ástráðsson, formaður START.
Stjórn tíunar 2016
26.5.16
Aðalfundur Tíunnar 21.maí 2016
1. Fundarstjóri var kosinn Páll Baldvin Guðmundsson og ritari Jónína Baldursdóttir.
Gizzur fór stuttlega yfir starf ferðanefndar og leggur fram ferðaplan fyrir sumarið 2016 sem inniheldur einnig 2 óvissuferðir.
3. Stjórn lagði fram endurskoðaða reikninga og gjaldkeri fór yfir tölur og gerði grein fyrir að einungis hafi náðst að fá undirskrift Bjarkar Sigurgeirsdóttur, þar sem Svandís Steingrímsdóttir var erlendis þegar reikningar voru klárir. Handbært fé félagsins var um áramót kr 539.597- Björk kom með ábendingu um að reikningar væru ekki nægilega aðgengilegir, að vantaði nánari upplýsingar um hvað væri hvað og raða betur í möppu. Stjórn lofar að bæta þetta og mun fá Svandísi til að skoða þegar hún kemur heim.4. Kosið var í stjórn Tíunnar og voru að þessu sinni 7 framboð.
5. Hjónakornin Oliver og Anna Guðný buðu sig fram til að telja atkvæði í hléi.
6. Tían bauð upp á snittur og drykki í hléi og var fólk almennt ánægt með veitingarnar.
Niðurstöður úr kosningu urðu svohljóðandi: Páll B Guðmundsson 31 atkvæði, Hrefna Björnsdóttir 26 atkvæði, Sigríður Dagný 21 atkvæði, Jokka 20 atkvæði, Geirdís Hanna 10 atkvæði, Halldóra Vilhjálms 13 atkvæði, Þóra Kristín 3 atkvæði. Það kom í ljós daginn eftir, að Þóra Kristín Hafdal hafði dregið framboð sitt til baka samdægurs og fór það framhjá stjórninni. Hennar nafn var því með í kosningu en þar sem hún fékk einungis 3 atkvæði breytir það ekki niðurstöðum kosninga.
Nýja stjórn skipa núna: Jónína Baldursdóttir, Sigurvin Samúelsson, Súsanna Kristinsdóttir, Hrefna Björnsdóttir, Páll B Guðmundsson, Jóhanna G Birnudóttir og Sigríður Dagný Þrastardóttir.
7. Kosið var í ferðanefnd. Fólk var ekki viljugt en 2 voru fengin til að taka hana að sér. Það eru þau Birgir Eiríksson og Jutta Solufari Knur. Gizzur bauðst til að vera þeim innan handar og hjálpa þeim að koma óvissuferðum í framkvæmd.
8. Björk Sigurgeirsdóttir bauð sig fram sem skoðunarmann reikninga áfram og ætlar stjórn að tala við Svandísi líka þegar hún kemur heim. Einnig kom fram hugmynd að tala við Kristínu Helgadóttur um það.
9. Önnur mál. Kosið var um að fundir í sumar yrðu færðir yfir á þriðjudagskvöld og mæting kl 19:30 við Mótorhjólasafnið. Fyrsti fundur næsta þriðjudag 24.maí og vikulega eftir það.
Rætt um leiðir til að ná betur til félagsmanna, athuga sms sendingar, vera sýnilegri á Facebook og leita meira til félaga við undirbúning og vinnu á viðburðum.
Virkja mannskapinn betur í vinnu á safninu, og stjórn safnsins sjái til þess að verkstjórn sé þar fyrir þá sem vilja koma inn og vinna.
Nýja stjórnin var síðan kynnt og mynduð.
Fundi slitið kl 20:30
24.5.16
Með dellu fyrir kaffireiserum
Ólafur Róbert Magnússon, eða Óli Bruni eins og margir kalla hann, hefur gert upp ófá hjólin í gegnum tíðina. Hann hefur sérstakt dálæti á breskum kaffireiserum. Í dag á hann átta hjól ásamt konu sinni en saman ferðast þau á mótorhjólum bæði innan lands og utan.
Mótorhjóladellan hefur fylgt Óla frá tólf ára aldri. „Þá sátum við Haukur Richardsson, besti vinur
minn, yfir mótorhjólablöðum á borð við Cycle World. Við keyptum síðan sína Hondu 50 hvor árið
1966, þá fimmtán ára gamlir, og dellan hefur bara versnað síðan þá,“ segir Óli glettinn.
Yfir 40 hjól
Fljótlega létu þeir félagar sér ekki nægja að hjóla um á hjólunum heldur fóru að fikta, breyta og bæta og þeir hafa ekki hætt því. Áhugamálið var sett á pásu meðan Óli kom upp börnum en dellan hvarf þó aldrei. „Frá árinu 1987 má segja að ég hafi alltaf haft einhver hjól að gera upp,“ segir Óli sem hefur átt yfir fjörutíu hjól í heildina.11.5.16
Á þriðja þúsund gestir á bíla- og mótorhjólasýningu
2.5.16
Mótorhjól á belti og með skíði
Trax beltabúnaðurinn var settur á Beta 450 cc. mótorhjól frá Nitro, hjólið er um 50 hestöfl og var að skila ágætlega krafti í beltið þrátt fyrir verstu aðstæður sem mögulegar eru fyrir akstur á snjó (blautur krapasnjór sem var verulega þungur). Ég tók lítinn hring á hjólinu og fann strax að það var þungt að hjóla í 1. gír, en strax og sett var í annan gír léttist hjólið og í 3. gír virkaði allt miklu léttara. Maður beygir og hallar hjólinu rétt eins og á venjulegu mótorhjóli (bara gaman, gaman). Fyrir mér er svona búnaður spennandi aukahlutur á mótorhjólið, en bíð spenntur eftir að fá að prófa þennan búnað á nýjum frosnum snjó. Verðið á beltabúnaðinum með skíði og öllum festingum er rúm 1.100 þúsund, en Trax beltabúnað má setja á torfærumótorhjól sem eru frá 350 cc. fjórgengis og tvígengishjól sem eru stærri en 200 cc.
26.2.16
Mótohjólafólk fái föt
Bifhjólasamtök Lýðveldisins, Sniglar, hafa gefið út lista yfir 10 helstu baráttumál bifhjólafólks á Íslandi og birt á heimasíðu sinni, www.sniglar.is.
Sniglar krefjist þess að aldursmörk á bifhjól verði lækkuð, að bifhjólafólk fái að nota strætóreinar og að notuð verði bifhjólavænni vegrið.
“Við viljum brýna aðeins stálið og setja fram þessi helstu baráttumál okkar,” sagði Hrönn Bjargar, formaður Snigla í samtali við bifhjol.is.
Fleira vekur athygli í kröfum sniglanna. Í ljósi þess að miklu varði að mótorhjólafólk sé klætt í góða hlífðarbúninga á vegum úti sé réttlætismál að vörugöld á fatnaði þeirra verðir felld niður.
Þannig lítur óskalisti Sniglanna út:
- Aldurstakmörk á A-próf verði lækkað í 19 ára, A2 próf í 17 ára og A1 próf í 16 ára, auk þess að reglugerð verði sett á gangstéttarvespur.
- Bannað verði að nota kubbahindranir í götum með meira en 30 km hámarkshraða.
- Fá sérstök bifhjólastæði í miðbæjum helstu þéttbýlisstaða.
- Vegrið séu bifhjólavæn og sérstakar undirakstursvarnir settar þar sem við á.
- Leyfa bifhjólum að nota strætóreinar til að auka sýnileika.
- Bifhjól verði flokkuð sem græn ökutæki og fái ívilnun á vörugjöldum og bílastæðum.
- Gerð verði sérstök kennslusvæði sem uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í bifhjólaprófum.
- Öryggisfatnaður bifhjólafólks fái niðurfellingu á vörugjöldum.
- Skoðanir á bifhjól og skoðunarreglugerðir séu endurskoðaðar.
- Tekið sé tillit til þarfa bifhjólafólks við lagasetningar og að þær séu gerðar í samráði við bifhjólafólk.
22.12.15
minna er svo miklu meira
Bandit9 eru vanir að smíða mótorhjól sem tekið er eftir og nægir í því sambandi að nefna módel á borð við Nero MKII, The Bishop og núna þetta silfurlitaða listaverk sem nefnist Ava.
Hún sver sig í ættina því hjólin frá fyrirtækinu eru iðulega list sem má hjóla á.
Aðeins níu stykki smíðuð
Eflaust munu færri komast að en vilja þegar hjólin verða sett á sölu því aðeins níu eintök voru smíðuð í það heila. Grunnurinn er 125cc Honda Supersport en boddíið er handsmíðað úr hápóleruðu stáli, eins og sjá má, enda geta sællegir og stálheppnir eigendur speglað sig um leið og þeir dást að nýja hjólinu sínu.3.12.15
Konan sem sigraði karlana
Halldóra Vilhjálmsdóttir, þriggja barna móðir og leikskólakennari í Eyjafjarðarsveit, varð á dögunum fyrsta konan í 41 árs sögu Bílaklúbbs Akureyrar til að vera valin akstursíþróttamaður ársins en félagið er það fjölmennasta sinnar tegundar á landinu. Halldóra segir mótorsport ekki vera karlaíþrótt og vonast til þess að með útnefningunni sé hún að ryðja veginn betur fyrir konur sem hafa áhuga á akstursíþróttum. Vikudagur settist niður með Halldóru og spjallaði við hana um mótorsportið ,staðalímyndir og fleira.
"Það var kominn tími á að kona fengi þessa nafnbót og ég er vonandi að ryðja brautina fyrir aðrar" segir Halldóra sem varð íslandsmeistari í 200 m götuspyrnu F-hjóla á árinu. " Þetta er mikill heiður og viðurkenning fyrir mig, að það sé litið þannig á að minn árangur að ég eigi þetta skilið. Sérstaklega þar sem ég er fyrsta konan sem er valin. Sú staðalímynd að mótorsport sé bara fyrir karlmenn hefur verið viðloðandi lengi en raunin er sú að þeta er ekkert frekar karlasport fremur en það sé kvennmannsverk að skúra.Við erum alltof föst í staðalímyndum og þurfum að taka af okkur svuntuna og koma okkur út úr þessari þröngsýni. Það að keppa á mótorhjólum eða torfærubílum er ekki bundið við karlmenn " segir Halldóra.
Kom þér valið á óvart?
"Já það gerði það að hluta til, sérstaklega að vera tilnefnd. Það fór fram kosning á netinu þar sem ég var með afgerandi forystu. Ég fékk svo símtal frá fomanni Bílaklúbbsins þar sem ég ver beðin að mæta á lokahófið sem ein af þeim tilnefndu. Stjórnin átti eftir að kjósa og gillti 50% á móti netkostningunni. Miðað við netkostninguna var ég kominn með þumalputtann hálfa leið upp en maður vissi þó aldrei hvernig endanleg niðurstaða yrði."
Var eina stelpan á skellinöðru
Halldóra var 15 ára þegar hún fékk skellinöðru í fyrsta sinn og þá var ekki aftur snúið. " Þegar ég var að byrja að keyra skellinöðru sem unglingur þótti þetta mjög skrítið. Ég var eina stelpan í bænum í þessu sporti á þeim tíma og var litin hornauga. Ég var alltaf að hjóla með strákunum og var ein af þeim.Ég fann ekkert mikið fyrir fordómum en eflaust voru þeir til staðar og eru enn. En ég var alltaf