|
Kvartmilljón áhorfenda fylgdist með aðförum keppenda, sem óku oft á yfir 300 km hraða eftir brautinni og í beygjum
á allt að 250 km hraða. |
KVARTMILUÓN áhorfenda,
svipuðum fjölda og byggir ísland, var þjappað inn á áhorfendasvæðið við Jerez-kappakstursbrautina á Spáni, þegar
liðuríheimsmeistaramótinu í
mótorhjólakappakstri fór þar
fram fyrir skömmu. í 30 stiga
hita og sól óku ofurhugar nútímans 175 hestafla og aðeins
130 kílóa mótorhjólum á þriðja
hundrað kílómetra hraða. Utan
hringsins voru þúsundir mótorhjóla íeigu áhugasamra áhorfenda, sem hver átti sína hetju
á kappaksturshringnum. Sama
stemmning var og á fótboltaleik, áhorfendur fögnuðu sfnum mönnum og fylgdust hugfangnir með toppmönnunum,
sem fá 180 milljónir hver ítekjur á ári fyrir utan auglýsingatekjur og ýmiskonar bónusa
fyrir góðan árangur. Morgunblaðið fylgdist með keppninni
og skoðaði þá bestu.
|
Fyrsta beygjan og Ástralinn Michael Doohan hefur þegar tekið forystu. Hann vann fjórða kappakstur sinn á árinu ,---- hefur unnið þá alla — og er efstur í stigakeppninni um heimsmeistaratitilinn |
Bandaríkjamaðurinn Wayne Rainey á Yamaha er heimsmeistari í flokki 500 cc mótorhjóla, sem
eru þau hjól sem flestra augu beinist að á svona kappsakstri, þó baráttan
sé oft enn meiri í flokki kraftminni hjóla, þar sem
ungir ökumenn reyna að sanna sig.
En í ár er það Ástralinn ungi Michael Doohan, sem hefur unnið fyrstu
fjögur mót ársins á Honda, en Raíney hefur þrívegis náð öðru sæti.
Aðrir kappar í fremstu röð hafa
verið Kevin Schwantz og Doug
Chandler á Suzuki, sem eru nú í
þriðja og fjórða sæti í stigakeppn-
'inni til heimsmeistara. Þessir fjórir
kappar aka öflugustu og best búnu
mótorhjólunum, sem með aðstoð
flókinna mælitækja og tölvubúnaðar er stillt upp fyrir hverja af 13
brautum ársins, en lega brautanna
gerir það að verkum að útfæra
þarf hjólin misjafnlega í hvert
skipti.
Í raun er ótrúlegt að sjá hve
mikið er lagt uppúr því að ná
árangri í kappakstri á mótorhjólum,
en þó ekki. Árangurinn nýtist hjólaverksmiðjunum í auglýsingaherferðum, og tæknilið keppnisliðanna
prófa oft nýjungar sem notaðar eru
í venjuleg götuhjól. Þróunin hefur
reyndar orðið svo hröð að nútímahjól sem aka hérlendis á götum eru
ekki ósvipuð í útliti og keppnishjól
og ekki mikið kraftminni sum hver.
Þessi kraftur leíðir til þess að þau
ná svipaðri hröðun og straumlínulagaðir Formula 1 keppnisbílar og hámarkshraðinn er 320 km á
klukkustund. Það er ekki lítið á
tæki, þar sem stjórnandinn er berskjaldaður gegn veðri og vindum,
lofmótstöðu og svo brautinni ef'
hann fellur yið.
Reyndar eru kapparnir í sterkum
göllum, með hlífar á hnjám, olnbogum og innan klæða á baki þeirra
eru plastplötur sem verja hrygginn
og þá eru hjálmarnir af bestu gerð,
eins og reyndar allir akstursíþróttamenn ættu að nota í keppni. Ökumennirnir eru allir með sérstaka
þjálfara, sem undirbúa þá líkamlega, og þeir bestu hafa oftast
menn sem geta aðstoða andlega;
veitt þeim styrk og stuðning, aðstoða þá við hvernig þeir eigi að
einbeita sér að verkinu hverju sinni,
og jafnvel um fæðuval. Margir
keppenda ferðast á milli móta í
risavöxnum hjólhýsum og ófáir
ferðast með alla fjólskylduna, konu
og börn, lifa einskonar sígaunalífi
í kringum kappakstursmótin.
|
Stóru llðin hafa 4-5 hjól tilbúin fyrir hvern ökumann, ef eitthvað skyldi bila
á æfingum eða í tímatökum |
Risavaxnir trukkar flytja mótorhjólin
og allt hafurtaskið milli staða, í
þeim eru varahlutir, verkfæri ýmiskonar og tölvubúnaður sem notaður
er til stillingar. Það er ótrúleg sjón
að sjá 20-30 slíka trukka á sama
svæði og hvert keppnislið með
12-14 keppnishjól á einu og sama
svæðinu.
Til öryggis eru stóru liðin með
4-5 mótorhjól tilbúin í slaginn fyrir
hvern ökumánn, vélar geta bilað
eða menn farið útaf á æfingum, sem
standa í tvo daga, áður en sjálf
keppnin hefst.
Á fyrstu æfingunum reyna ökumennirnir og tæknimenn þeirra að
finna bestu uppstillinguna fyrir
brautina, breyta vélar- og demparastillingum miðað við hvað ökumanni
finnst eftir nokkra prufuhringi og
hvað tölvubúnaður um borð í hjólunum gefur til kynna, þegar hann er
tengdur móðurtölvu í viðgerðarskýlinu. Þegar menn eru orðnir
sáttir við hjólin reyna þeir að aka
eins hratt og kostur er, leggja líkamann í takt við inngjöf bensíns.
Hröðunin er gífurleg, bestu tækin
eru innan við þrjár sekúndur úr
kyrrstöðu upp í 100 km hraða. Þau
eru mjög hágíruð; ná 130 km hraða
í fyrsta gír og eru tíu sekúndur að
ná 250 km hraða. Uppröðun keppenda í sjálfan kappaksturinn ræðst
af því hvaða tíma þeir ná í tímatökum, þannig að sá hluti undurbúningsins er mikilvægur. Ekkert er
verra en að þurfa að taka framúr.
Þó nýtist mönnum oft að aka fyrir
aftan annan keppanda, sem klýfur
vindinn og skjótast síðan framúr á
síðustu stundu þegar hentar, en þá
þurfa hjólin að vera svipuð að afli.
Hitinn á Jerez brautinni gerði
mönnum erfitt fyrir, dekkinn hitnuðu og ökumenn þurftu að gæta
þess að missa ekki gripið of fljótt
með of ákafri inngjöf.
Michael Doohan náði langbesta tíma í tímatökum og var því fyrstur í rásmarkinu
í keppninni, með tæplega 30 kappa
aðra fyrir aftan sig, sem allir vildu
ná langt, en með misgóð tæki undir höndum. Þegar dró nær ræsingu
fór kliður um áhorfendasvæðið,
stemmningin varð rafmögnuð og
þegar græna ljósið birtist sprakk
múgurinn, hver gargaði í kapp við
annan eins og um nautaat væri að
ræða. Greinilega blóðheitir. þeir
spönsku. Fólk var um allar hæðir,
oft klætt í merktum treyjum liða
sinna eða með húfur, merki eða
fána. Mótorhjólaeign er mikil á
Spáni og margir vilja meina að
mótorhjólakappamir séu vinsælli en
bestu nautabanar landsins og þá
er nú mikið sagt. +
Doohan náði strax forystu í
keppninni, í raun hafði hann yfirburði frá byrjun, enda nú talinn
vera með aðeins öflugri vél en
helstu keppinautar hans, Wayne
Rainey, Kewin Schwantz og Doug
Chandler. Rainey fylgdi honum af
fremsta mætti og hélt öðru sætinu
af öryggi, en barátta var um næstu
sæti á eftir milli Niall McKenzie,
Schwantz og Chandlers, sem lauk
með því að McKenzie náði í verðlaunasætið, sem gladdi breska
áhorfendur á keppninni. í flokki 250
cc mótorhjóla vann Loris Reggiani
á Aprilia eftir æsispennandi keppni,
sem var mun líflegri en keppni
þeirra stóru, en Luca Cadalora hefur unnið þrjú mót í þeim flokki, en
hann ekur undir sömu merkjum og
Doohan, fyrir Honda.
Gunnlaugur Rögnvaldsson
MORGUNBLAÐIÐ
24. MAI 1992