Laugardaginn 7. april kl. 1 eh.
verður i Félagsbíói Keflavik
vélhjólakynning á vegum J.C.
Suðurnes.
Vélhjólaklúbburinn Ernir,
sem var stofnaður i vetur,
verður kynntur, sýndar verða
kvikmyndirum akstur vélhjóla,
svo sem keppnisakstur og akstur i umferð eða á viðavangi.
Fulltrúi frá Bifreiðaeftirliti
rikisins veitir upplýsingar um
öryggisbúnað og þær reglur sem
gilda um vélhjól.
Allir munu fá i hendur
bækling sem inniheldur almenna umferðarfræðslu.
Auk þess sem kynnt verður
þjónusta við vélhjólaeigendur,
þá munu eftirtalin vélhjóla-umboð sýna vöru sina:
PUCH —
umboðið, MONTEZA — umboðið CASAL — umboðið, HONDA
— umboðið.
Þessi vélhjólakynning er eitt
af mörgum verkefnum, sem
J.C. Suðurnes hefur unnið i vetur undir kjörorðinu,
„Eflum
öryggi æskunnar".
7.4.79
20.3.79
Bílungar
Vissuð þið að málhreinsunarmenn á sjöunda áratugum vildu kalla mótorhjól ,"Bílunga".
Sem betur fer náði það ekki hilli landans .
Mynd úr Mogganum 1979
Hinir síðustu verða fyrstir sannaðist í þessari bifhjólakeppni (Venezuela fyrir nokkru. — Bifhjólið sem aftast er (númer 7), sem Bretinn Barry Sheene ók, kom fyrst í mark í þessari Venezuela Grand Prix-keppni. — Sá sem hefur forustuna þegar myndin er tekin er írinn Tom Herron. — Það er svo annað mál, að þessi mótorhjól eru komin með svo mikið utanáliggjandi blikkskraut að þau minna lítt (nema hjólin tvö) á bílunga, eins og málhreinsunarmenn hér í gamla daga vildu láta kalla mótorhjólin.
Með mótorhjólið um borð
Í gamla daga, og reyndar enn þann dag í dag, hafa sum skipafélög lagt áhöfnum skipa sinna til reiðhjól, þannig að sjómenn geti skroppið í hjólatúr í erlendum höfnum; en það er bæði heilsusamlegt og þægilegt. Sjómenn hafa ekki mikla hreyfingu miðað við fólk í landi, sem gengur mikið. Þess vegna kemur hjólið sér vel.
En hjólið hefur líka annað gildi, menn komast leiðar sinnar án þess að taka rándýra leigubíla, því oft er örðugt að fá strætisvagna í nágrenni við skipalægin, og maður verður að þekkja leiðakerfið þar að auki.Auðvitað væri þægilegast að sjómaðurinn gæti haft bílinn sinn með og notað hann í höfnum, en það væri nú einum of mikið. Þá kemur til greina að eiga mótorhjól, eða rafdrifið mótorhjól, sem er að verða vinsælt austan hafs og vestan.
NÝTT AFKVÆMI HJA SKELLINÖÐRUÆTTINNI
Þetta hjól, sem líklega er af skellinöðruættinni, en það er framhald af svonefndu moped hjóli (motor and pedal) þar sem hjólið er bæði með stigna pedala og mótordrifið. Þetta nýja hjól er hinsvegar nefnt Electroped.Electroped hjólið er alveg hreinasta raritet, einkum þar sem það má taka í sundur, og það er aðeins venjulegt reiðhjól með rafgeymi á bögglaberanum fyrir aftan hjólreiðamanninn, en rafmótor er komið fyrir ofan á gafflinum yfir framhjólinu. Þar er drifhjól, sem vinnur á gúmmídekkinu.
Rafgeyminn geta menn hlaðið á nóttunni og kostar hleðslan á núgildandi rafmagnsverði um 50 krónur, en hleðslan er 12 volta rafgeymir, 34 amp.
Hjólið kemst um það bil 40 kílómetra leið á einni hleðslu, en það er meira en flestir ökumenn aka á virkum dögum í bæjarkeyrslu. Hjólið kostar erlendis 80—120 þúsund krónur, og er verðmunurinn fólginn í mótorstærðinni, en rafmótorinn er ýmist lA eða 1 hestafl.
mynd:
Myndin lengst til vinstri sýnir Electroped í akstri. Rafmótorinn yfir framhjólinu, rafgeymirinn/orkan á bögglaberanum. Næsta mynd sýnir hjólið, sem taka má í sundur með tengslum, raflínan og stellið er rofið. Stór handskrúfuð skrúfa læsir tengslum. Hjólið tekur síðan mjög lítið pláss og má jafnvel geyma það í farangursgeymslu á Volkswagenbjöllu.
SJÓMANNABLAÐIÐ VÍKINGUR 1979
1.3.79
Næst erfiðasta íþróttagrein heims
Motocross:
Fyrsta stórkeppni í þessari grein í dag
Í dag klukkan 14 gengst Vélhjólaíþróttaklúbburinn fyrir fyrstu Motocross-keppninni sem haldin hefur verið hérlendis og verður keppnin háð á keppnisbraut klúbbsins við Sandfell við Þrengslaveg.
Í samtali sem Timinn átti við Kára Tryggvason, formann Vélhjólaiþróttaklúbbsins og Þorvarð Björgúlfsson, sem sæti á í stjórn klúbbsins, kom fram að undirbúningur fyrir þessa keppni hefur staðið frá þvi snemma i febrúar, en alls er fyrirhugað að halda fjórar Motocross keppnir i sumar, sem allar munu gefa stig til íslandsmeistaratitils.
Að sögn þeirra félaga fer Motocross þannig fram að mismunandi mörg vélhjól eru ræst samtimis af stað og er ekið um sérstaka braut , mishæðótta og erfiða yfirferðar.
Sá vinnur síðan sem fyrstur kemur í mark. Í keppninni i dag verður keppt í tveim flokkum, þ.e.a.s. í 50 cc. flokki og í opnum flokki, þar sem aðalkeppnin mun fara fram, en 11 keppendur eru skráðir til leiks í þeim flokki og verða þeir allir ræstir samtímis af stað. Eknir verða 30 hringir i brautinni, 15 í senn og vinnur sá sem bestan hefur tlma eftir báðar ferðir. — Það er rétt að taka það fram að Motocross er viðurkennd, sem næst erfiðasta Íþróttagrein heims, aðeins bandaríska rugbyið er talið erfiðara.
Í samtalinu við þá félaga kom fram að félagsmenn í Vélhjólaiþróttaklúbbnum hafa undanfarin tvö ár unnið að meira eða minna leyti við keppnisbrautina, sem er eins og áður segir við Sandfell við Þrengslaveg og eru þær ótaldar vinnustundirnar sem farið hafa i brautina. Mjög góð aðstaða verður fyrir áhorfendur, — sú besta
sem nokkur klúbbanna getur boðið upp á — sögðu þeir félagar og ekki er að efast að fjölmenni verður á þessari fyrstu Motocross keppni sem háð verður hérlendis. Þeir félagar vildu einnig taka það fram að öll hjólin sem keppt verður á i opna flokknum eru sérsmíðuð keppnishjól og þola þau því alls kyns hnjask, sem ekki myndi þýða að bjóða venjulegum vélhjólum.
sem nokkur klúbbanna getur boðið upp á — sögðu þeir félagar og ekki er að efast að fjölmenni verður á þessari fyrstu Motocross keppni sem háð verður hérlendis. Þeir félagar vildu einnig taka það fram að öll hjólin sem keppt verður á i opna flokknum eru sérsmíðuð keppnishjól og þola þau því alls kyns hnjask, sem ekki myndi þýða að bjóða venjulegum vélhjólum.
24.1.79
„Hraða vikan" á Bonneville saltsléttunni
„Og hraðinn var hrein fegurð''
Við stöndum í miðri auðninni og hvert sem við lítum sjáum við einungis rennislétt hvitt yfirborð jarðarinnar. Víðáttan er slík að kúlulagað yfirborð jarðarinnar sést greinilega en purpurarauð fjöllin teygja sig upp yfir sjóndeildarhringinn og hina gömlu strönd úthafsins sem var hér fyrir 100.000 árum. Ekki sést nein lífvera og þögnin er slík að við heyrum greinilega tifið í armbandsúrinu okkar. Það marrar i yfirborði jarðarinnar er við færum okkúr um set. Við teygjum okkur niður, snertum jörðina, brögðum á henni og komumst að raun um að undir fótum okkar eru milljónir tonna af hreinu borðsalti. Skammt frá okkur stendur staur upp úr jörðinni og á honum stendur „4 mílur".Fallhlífar springa út eins og rósir þegar ökumaðurinn byrjar að hægja á farartækinu og stuttu síðar hverfur farartækið niður fyrir sjóndeildarhringinn. Við stöndum aftur einir og yfirgefnir á Bonneville saltsléttunum í Utah í Bandaríkjunum. Það fer hrollur um okkur í heitri eyðimerkursólinni og þrúgandi þögninni sem umlykur okkur aftur, er við hugsum til þess er við höfum orðið vitni að. „Farartækið" sem við sáum var straumlínulagað mótorhjól með tveimur forþjöppuðum 1000 cc vélum og var það á 333 mílna hraða, (556 km/klst) er það fór fram hjá okkur.
„En hraðinn var afl og hraðinn var gleði og hraðinn var hrein fegurð." Þetta uppgötvaði Jónatan Livingston Mávur er hann var að æfa sig í hraðflugi. En það eru fleiri en Jónatan sem hafa uppgötvað þennan sannleika. Á hverju ári þyrpast hundruð ökumanna út á Bonneville saltslétturnar með það eitt í huga að aka hratt.
Í október sl. var haldin þritugasta árið í röð svokölluð „Hraða vika" á saltsléttunni. Að þessu sinni voru keppendur 270 og dunduðu þeir sér viö það alla vikuna að ná sem mestum hraða. ökutækin eru flokkuð niður eftir gerð þeirra, vélarstærð og eldsneytinu sem þau nota. Að þessu sinni voru sett þrjátíu og tvö ný hraðamet í fólksbílaflokkum og 41 met í mótorhjólaflokkum. Auk þess tókst 15 manns að komast í 200 mílna klúbb inn, en það er klúbbur þeirra er hafa ekið á yfir 200 mílna hraða (334 km/klst.), Meðal beirra sem komust í 200 mílna klúbbinn að þessu sinni var Marcia Holley en hún er fyrsta konan sem nær þeim árangri.
Jóhann A Kristjánsson
27. JANUAR 1979.
27. JANUAR 1979.
25.12.78
Honda CB 750 four
Honda CB 750 Four |
Á augnabiliki er nálin í hraðamælinum farin að fikta við þriggja stafa tölur. |
Kúplingin er létt en það urgar lítilsháttar í gírkassanumþegar sett er í fyrsta gír, og svo er ekið af stað út í umferðina, rólega til að byrja með meðan ég er að venjast hjólinu, en líka vegna þess að reynsluaksturinn er framkvæmdur seinni hluta laugardags og sunnudagsbílstjórarnir eru komnir á stjá, en þeir annars ágætu menn eru lítið gefnir fyrir okkur mótorhjólamenn eins og við flestir vitum og sumir okkar þekkja af biturri reynslu.
Hún lætur ekki mikið yfir sér þegar hún stendur kyrr. |
Önnur hlið á HONDA 750
Við (ég og HONDA) erum von bráðar komin að rótum Ártúnsbrekkunnar, og nú loksins læt ég það eftir mér að snúa dálítið mannalega upp á eldsneytisgjöfina, og.... HELVÍITI...., eða átti ég kannski að segja eins og skáldið: "Elsku drottinn, núna var ég nærri dottinn".
Það vill til að HONDAN er framþung og ég að sjálfsögðu aldeilis frábær ökumaður því annars hefði ég orðið eftir þarna niðri í brekkunni, sem sagt, þetta þægilega leikfang breyttist á svipstundu í eitthvað það ægilegast villidýr sem ég nokkurntímann sest klofvega á, og og ég gerði ekki meira en að hanga á hjólinu meðan það ruddist með þrumugný upp brekkuna og linnti ekki látunum fyrr en ég losnaði um takið á inngjöfinni, en um leið var HONDAN aftur orðin sakleysið uppmálað.
Frábær í meðhöndlun á malarvegum. |
Kvartar ekki Þótt gefið sé
Nú fór ég að verða alvarlega spenntur og hraðaði mér upp að Rauðavatni til að prófa hvað hægt er að gera við svona villidýr.
Og nú var aftur opnað fyrir bensínrennslið inn á blöndunguna fjóra, en í þetta sinn var ég viðbúinn öllu því versta, og var það eins og við mannin mælt, viðbragðið var svo snöggt að ég átti fullt í fangi með aðgæta þess að renna ekki aftur úr sætinu og á svipstundu var nálin í hraðamælinum farin að gæla við þriggja stafa tölur.
Þegar HONDAN æddi áfram á útopnu í fimmta gír þótti mér bölvað ólán hvð stýrið var hátt því að loftmótstaðan var svo mikil að ég hélt einna helst að fötin ætluðu að rifna utan af mér, og þegar mér var litið niður á hraðamælinn, sem er ílla staðsettur til aflestrar sá ekki betur en nálin væri einhverstaðar í nágrenni 160-170, en þar sem mér er ákaflega annt um ökuskyrteinið mitt vil ég ekki staðfesta þetta.
Eftir að hafa ekið nokkrar ferðir fram og til baka komst ég að þeirri niðurstöðu að það er næstum ótakmarkað hvað hægt er að halla hjólinu í beyjum, bremsurnar eru fyrsta flokks, skiptingin er frábær þegar skipt er upp en leiðinda urr og smellir þegar skipt er niður.
Mjög þægilegt er að ná til allra rofa en ljósasamstæðan sem sýnir stefnuljósin, olíuþrýstiljós, háuljós og hlutlausa gírinn er ílla staðsett eins og mælarnir, eins eru speglarnir ekki nógu hentugir því þeir eru á svo stuttum örmum að ég þurrfti að halla mér til að sjá eitthvað aftur fyrir mig.
Hljóðkútarnir fjórir skila sínu hlutverki af full mikilli samviskusemi fyrir minn smekk, því að mér finnst að HONDAN þurfi ekkert að fera feimin við að láta heyra dálítið til sín.
Frábær á malarvegi
Allar línur mjúkar og fínlegar. |
Best gæti ég trúað að HONDA 750 sé einna hentugasta hjólið fyrir okkar vegi sem völ er á, í það minnsta fær hún mín bestu meðmæli við slíkar aðstæður.
Þótt ég æki um á allt að 80-90 km hraða gaf hún ekki frá sér minnsta tíst, og ég er sannfærður um að það má henni tímunum samaná mölinni án þess að fá vott af rassæri eða nýrnalosi.
Þegar ég skilaði HONDUNNI aftur til eigandans var það með söknuði þvi að þetta er vissulega eigulegt hjól.
En í lokin læt ég fylgja nokkrar tæknilegar upplýsingar varðandi þrumufleyginn HONDA 750 FOUR:
Vél 736cc, yfirliggjandi knastás,
fjórir strokkar samsíða,
fjórgengis, loftkæld.
Hestorkutala:
67 hestöfl (bhp) á 8000 snúningum á mínutu
Þjöppunarhlutfall:
9:1
Blöndungar:
Fjórir 28 mm KEHIN
Tankur :
17 lítrar
Bremsur:
296 mm diskur að framan 180 mm tromla að aftan
Þyngd:
218 kg (dry weight) ásamt 5 gíra kassa , rafmagnsstarti , stefnuljósum, snúnings og hraðamæli, Smurþrýstiljósi o.fl.
Að síðust við ég þakka eiganda hjólsins Ara Vilhjálmssyni fyrir lánið og HONDA umboðinu fyrir þeirra þátt.
RJG.
Bílablaðið feb 1978
21.10.78
Hraðskreiðasta mótorhjól landsins
— ungur Grundfirðingurfer kvartmfluna á 11,9 sekúndum
Á Grundarfirði er mikill mótorhjólaáhugi. Þar trylla ungir menn á hjólum sínum um götur og vegi.
Nú hefur ungur Grundfirðingur slegið öllum við á þessu sviði, ekki aðeins sveitungum sínum, heldur og öllum öðrum landsmönnum. Hann heitir Hilmar Harðarson og er þessa dagana að koma á götuna með hraðskreiðasta og stærsta mótorhjól landsins.
Hjólið er af gerðinni Kawasaki Z—. 1000 Z1 —R og getur náð allt aö 250 km hraða á klukkustund. í 100 km hraða er hjólið aðeins 3.2 sekúndur við góðar aðstæður. Vélin er 4 cylindra, 1015 kúbik og 90 hestöfl. Hjólið vegur 245 kíló og kvartmíluna fer Hilmar á 11.9 sekúndum, eða hraðar en nokkur annar hérlendis. Og verðið er litlar 2.7 milljónir. ÓV.
Dagblaðið 21.10.1978
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)