Það voru ekki aðeins
bílar sem dregnir voru á
stall á alþjóðlegu bílasýningunni í Tokyó fyrr í
vetur því í stórum sýningaskála til hliðar við
skálana þrjá sem bilarnir
voru í gaf að líta aukahluti
annars vegar og sérstaka
mótorhjóladeild hins vegar.
Greinilegt er að það er
ekki aðeins í bílunum sem
menn eru farnir að horfa
til gamla tímans því nú
keppast allir mótorhjólaframleiðendur við að bjóða
upp á mótorhjól í anda
„gamla tímans", hjól í
anda Triumph og BSA sem voru vel
þekkt hér á landi á árunum i kringum heimsstyrjöldina síðari.
Þar gaf að líta allt það nýjasta frá
heimamönnum: glæsihjól frá
Suzuki, Yamaha, Kawasaki og
Honda, en líka glæsihjól frá Harley
Davidson sem segja má að hafi haldið „stílnum" öll árin. Það var líka
greinilegt að Harley er hátt skrifaður í Japan.
Honda
Á sýningarsvæði Honda vakt nýtt
„vistvænt" hjól mikla athygli, knúið
léttum en aflmiklum bensínmótor
og hljóðlátum rafmótor. Sjálfvirkur
stýribúnaður skiptir á mUli bensínvélarinnar og rafmótorsins en fjöldi
skynjara metur aðstæður og aflþörf
hverju sinni.
Þarna mátti líka sjá FB-S, sem er
hugsað sem flaggskip framtíðarinnar, en þar er leitast við að sameina
kosti og lipurð skellinöðru og afl og
snerpu 400 cc mótorhjóls.
Fyrir þá sem vilja smíða hjólin
sín sjálfir var þarna hjól sem Honda
kallar „Dream Kid" og má setja
saman ýmsar gerðir hjóla og fjórhjólaökutækja úr þessu smíðasetti.
Renoa er nýtt hjól með 124 cc loftkældum eins strokks fjórgengismótor.
Sportlegu hjólin voru þarna í röðum: FN-1 er léttbyggt sporthjól, án
alls prjáls, og CB1300 er flaggskip
„nöktu" mótorhjólanna og kemur
beint frá CB1000 Super Four.
VTR er léttbyggt hjól
með V-twin vél, Hornet
600 er 600 cc sporthjól og
VFR er með tölvustýrðri
innsprautun á eldsneyti.
CL400RS er hugmynd
um „stálriddara" nútímans og Steed er nýtt hjól
sem byggt er á grunni 400
cc hjóls með sama nafhi.
Þarna mátti einnig sjá
hjól sem Honda-menn
kalla „valkyrjuna", byggt
á 1500 cc, og einnig „fjölnotahjólið" XL250T.
Í kappakstursdeildinni
var NSR500, sigurvegari í
GP500-flokki 1977, og
NSR250, sem sigraði í
„þjóðvegakappakstri" í
Japan 1997 í GP250-flokki. Þá voru
þar einnig RVF/RC45, sem sigraði í
þriðju lotu í 8 tíma endurokeppni í
Suzuka, CR250M, FIM Motocross
World Championship 250 cc, svo
eitthvað sé tínt til af hjólum sem
þóttu merkileg í þessari deild.
Yamaha
Yamaha lét ekki sitt eftir liggja
varðandi umhverfisverndina og
• sýndi nýtt hjól, YXF-Rl, sem er aðeins 177 kíló og knúið ofurléttum
998 cc vökvakældum 4 strokka mótor með tveimur yfirliggjandi kambásum og á að vera mjög sprækt.
YZ400 er fyrsta fjögurra strokka
motokrosshjólið frá Yamaha og er
byggt á sérsmíðaða YXM400F-hjólinu sem sigraði sex sinnum í keppni
í 500 cc Motocross World GP og í
lokahrinunni í AMA Supercross.
WR400F tekur við af YZ400F og
með nokkrum endurbótum er það
tilbúið í slaginn í endurokeppni.
XJR1300 er frekari þróun á
XJR1200, sem hefur verið kallað „konungur nöktu hjólanna", hjól
með snarpt afl, mikiö viðbragð og
lipurt í akstri. XJR400R er millistærðarhjól með loftkældri vél en
með afl á við það sem stóru hjólin
gefa.
Drag Star Classic er klassísk útfærsla á Drag Star sem frumsýnt
var á síðustu sýningu í Tokyo og
náði strax mikilli hylli kaupenda.
Meðal endurbótanna eru breiðari
framdekk, stærri framgaffall, endurbætt stýri og nýtt lag á sæti.
Majesty ABS er komið með læsivarða hemla á Majesty 250SV sem
kemur með diskahemla að aftan á
næsta hausti. Majesty 250 er söluhæsta hjólið í flokki 250 cc síðan
það kom á markað árið 1995.
Líkt og í bílunum eru leiðsögukerfin komin á mótorhjólin og hér
sýndi Yamaha Serow 225 WE Navi.
Meö leiðsögukerfinu á notagildi
hjólsins úti í víðáttunni að aukast
til muna. GPS-leiðsögutækið er innbyggt í mælaborðið á hjólinu.
Lanza Super Bikers er með 17 tomma fram- og afturhjól,
vegahjólbörðum og stórum aurhlífum. Það er
byggt á Lanza-„trailhjóli"
með tvígengisvél. RZ50 er
sportleg skellinaðra með
50 cc vél og sama viðbragði og hjól með tvígengisvél. Til að bregðast
við þjófunum var sýnd
önnur 50 cc skellinaðra,
Jog, sem var með samlæsingu til að angra þjófana.
Reiðhjól með hjálparafli voru einnig til staðar
í sýningardeild Yamaha.
PAS Compact DX er með
baki á hnakknum til að
gera hjólreiðaferðina
þægilegri og mjög auðvelt er að
stíga á og af baki vegna þess hve
stellið er U-laga.
Kawasaki
Eliminator 250 V er hjól frá
Kawasaki sem nýtist jafnt í innanbæjarsnatt og til langferða á þjóðvegum
KLX250 er þróað framhald af
KLX250SR, sem kom fram á árinu
1993, og ES sem kom fram 1994. Nýja
gerðin státar af nýjum startara og
stafrænu mælaborði. D-Tracker er
skemmtileg útfærsla á hinu nýja
KLX250 og ZRX kemur nú með
hljóðdeyfi úr áli og radíalhjólbarða.
Þá sýndi Kawasaki nýjar útfærslur af Ninja ZX-6R, Ninja ZX-9R og
Vulcan 1500 Classic Tourer.
Suzuki
Nýtt hjól frá Suzuki, Sky Wave,
er „ofvaxin" skellinaðra meö 250 cc
vél. Vegna afls og stærðar er Sky
Wave frekar hugsað fyrir fullorðna
til bæjarsnatts, jafnt og helgarferða.
TL1000R er nýtt V-twin-hjól sem
hannað er fyrir alvöru-súperkeppni.
Intruder LC er stórt V-twin-hjól sem
hannað var í Bandaríkjunum. Fyrir
þá sem vilja eftirlíkingu af
kappaksturshjóli til að leika sér á í
umferðinni er GSX-R750 svarið. Það
er búið rafeindastýrðri beinni innsprautun á eldsneyti.
DJEBEL 250 GPS er, að sögn
Suzuki, fyrsta mótorhjólið með GPS- staðsetningarkerfi en áður var búið
að fjalla um fjallahjöl frá
Yamaha með GPS.
Hariey-Davidson
Á næsta ári verður
Harley- Davidson 95 ára.
Harley, sem er þekkt fyrir að vera leiðandi fyrirtæki í mótorhjólabransanum, jafnframt þvl að
vera með lengsta sögu að
baki, sýndi í Tokyo 1998-
afmælisárgerðirnar. Þar
á meðal mátti sjá þrjú Electra Glide FT-hjól:
FLHTCU-I Electra Glide
Ultra Classic Injection,
með 1340 cc vél og stóru og góðu
sætísbaki fyrir langferðirnar.
FLHRC-I Road King Classic Injection, hjól með sæti úr ekta leðri, risastórri vindrúðu og vélarhlíf og
FLHTCUI-I S/C Electra Glide Ultra
Classic Injection Sidecar.
Þá mátti einnig sjá 1998-árgerðir
af nýjum hjólum úr Herigate Softail
FLST-seríunni, FLSTF Fatboy og
FLSTS Heritage Sprinter. Fatboyhjólið er ekki með neina teina í hjólum sem eru eins og diskar. Fatboy
er auk þess með nýtt útlit á útblástursrörum sem minnir á haglabyssu.
Heritage Sprinter er með tvöföldu
útblástursröri meö breiðum stút.
Ljósin eru í anda „gömlu" hjólanna
og hlífar eru með kögri eins og landnemajakkarnir á tíma „vilta vestursins".
Vegna afmælisins á næsta ári var
mikið gert úr sögu Harley-Davidson
á sýningunni í Tokyo með myndasýningum og sýningu á gömlum
hjólum.
-JR
DV
24.janúar 1998