10.2.19
6.2.19
Ölkvöld Tíunnar
Munið Ölkvöld Tíunnar.
á Laugardaginn 9 feb.
Efri hæð mótorhjólassafnsins.
20:00
Velkominn...
Stjórn Tíunnar...
3.2.19
27.1.19
Vissuð þið að
Að herra Suzuki Framleiddi hágæða vefnaðarvélar löngu áður en þeir hófu framleiðslu á Mótorhjólum.
Að herra Honda stofnaði fyrirtækið til að hjálpa Japönum að ferðast um ódýrt eftir síðari heimstríðöldina.
Að Kawasaki var búið að vera skipamíðastöð og síðar í lestarsmíði og ýmsu öðrum þungavélasmíðum áður en þeir smíðuðu mótorhjól.
25.1.19
Partý og ball
24.1.19
Harley Davidson Rafmagnshjól 2019
17.1.19
Félagsgjöldin í Bifhjólaklúbb Norðuramts Tían
Jújú þetta árlega er að koma ,, Félagsgjöldin í Tíuna
Félagsgjald í klúbbinn hefur ekkert hækkað þ.e 3000 kr nema að seðilgjald hefur bæst við.Við hvetjum félagsmenn til að halda áfram að styrkja klúbbinn. Og þar með safnið.
1000kr af hverju félagsgjaldi fer í að styrkja safnið.
og allir sem eru greiddir félagar í Tíunni fá frítt á Mótorhjólsafnið.
Eftir standa 2000 kr sem við í Tíunni notum til að halda viðburði og skemmtanir og jafnvel reynum að gera eitthvað meira úr aurnum til að nota í safnið eða annara góðgerða mála.
Stjórn Tíunnar þakkar stuðninginn á síðasta ári við finnum fyrir miklum meðbyr þar sem við unnum mikið óeigingjart starf til að koma hjólamenningunni á hærra svið...
2018Skoðið Skýrslu Stjórnar
Sigga Dagný Formaður Tíunnar afhendir Halla V. Stjórnarmanni í Mótorhjólasafninu 200.000 kr styrk. til safnsins |
Við gáfum safninu gjafir að verðmæti yfir 500 þúsund.
Nýtt ofursjónvarp , Örbylgjuofn , og fl.
1 maí hópkeyrslan gekk stórvel ..
Landsmótið sem við héldum 2018 heppnaðist snilldarlega.Við gerðum við Súpupottinn hans Heidda , hann er eins og nýr núna...
Hjóladagar heppnuðst vel, en við viljum stækka þá.
Opnunarhátíð safnsins var frábær sýning er gömlu hjólin voru gangsett.
Hópakstur á Akureyrarvöku.
Haustógleði sem var Snilld.
Víðir afhendir Halla V.
Stjórnarmanni í Mótorhjólasafninu
65 tommu UHD sjónvarpstæki frá
Tíunni til safnsins |
Framundan er spennandi sumar
- Heiðarlegur dagur
- Skoðunardagur
- 1. maí hópkeyrsla
- Förum á Landsmót Bifhjólamanna
- Hjóladagar
- Haustógleði
Og svo vonandi margar aðrar hjólaferðir í sumar...
Ef þið viljið bæta ykkur á félagatal klúbbsins þá þarftu ekkert annað en að hafa samband í tian@tian.is
Og við svörum fljótt.
15.1.19
Velkomin á Safnið
Það er svalur janúarmorgun á Akureyri við Mótorhjólasafn Íslands"
Það er skylduheimsókn allra mótorhjólamanna sem kíkja til Akureyrar að heimsækja mótorhjólasafn Íslands.
Í vetur er opið á Laugardögum og Sunnudögum frá 13-16
Tían Bifhjólaklúbbur Norðuramts hefur einnig aðalstöðvar í þessu glæsilega húsi.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)