Fimmtán gljáandi, urrandi Harley Davidson mótorfákar með íslenskum knöpum brunuðu um hlykkjótta sveitavegi austurræisku Alpanna í september.
Alpanna í
september.
„Mótorhjólaklúbburinn HOG stendur fyrir Harley
Owners Group og er stærsti mótorhjólaklúbbur veraldar með yfir milljón meðlimi,“ segir Jón Örn Valsson, framkvæmdastjóri Harley Davidson Íslandi, sem
ásamt fimmtán meðlimum í Íslandsdeild HOG gekk
frá hjóli sínu í gám til Frankfurt, þaðan sem brunað
var á hjólunum niður Móseldalinn í átt til austurrísku
Alpanna.
„Íslandsdeild HOG fer utan ár hvert, ásamt því að
reiða farþega í kringum Tjörnina á menningarnótt til
styrktar langveikum börnum. Nú fórum við á Harleymót til Faak am See, austurrísks fjallaþorps í 550
metra hæð. Alls mættu 50 þúsund manns, en í Ölpunum er ekki þverfótað fyrir mótorhjólafólki í eftirsóknarverðum aðstæðum þar sem hægt er að keyra
upp og niður hlykkjótta vegi innan um stórkostlegt
landslag og vinalega smábæi,“ segir Jón Örn sem
skrapp yfir í ítalska hluta Alpanna og til Ljúblíana í
Slóveníu meðan á mótinu stóð.
„Það er mikil stemning í þessum ferðum. Við forðumst hraðbrautir eins og heitan eldinn því það er
hundleiðinlegt ferðalag þar s ekki sést landslag og
aðeins stoppað á bensínstöðvum. Svona ferðalag snýst
um hjólaleiðina að áfangastað og til baka, en það er
mótorhjóladellan í okkur að vera á góðum hjólum á
mismjóum, bugðóttum sveitavegum. Maður upplifir
náttúruna beint í æð, eins og alla lykt, hvort sem hún
er af nýsleginni töðu eða kúaskít,“ segir Jón Örn hlæjandi, en að meðaltali ók hópurinn 250 kílómetra leið á
dag.
„Við áttum einungis bókaða gistingu fyrstu og síðustu nótt ferðarinnar. Því var ekkert stress að keyra á
milli náttstaða heldur létum við hvern dag ráðast og
stoppuðum í hvert sinn sem eitthvað freistaði,“ segir
Jón Örn sem eignaðist sína fyrstu skellinöðru tólf ára
gamall.
„Gamla ímynd mótorhjólamannsins er á hröðu undanhaldi, en lengi þótti annars flokks að vera á mótorhjóli og ógleymanlegt þegar fjörutíu Sniglar fylgdu
félaga sínum heim í Mosfellsbæinn og kona hringdi á
lögregluna. Í dag eru Harley-eigendur allt frá lægsta
launamanni til skurðlækna, milljónamæringa og þingmanna, og allir tala saman á jafnréttisgrundvelli.
Harley sameinar fólk og hjólamenn heilsast þegar
þeir mætast hér heima og ytra, því þetta er bræðralag. Mótin eru svo ekkert annað en stór partí þar sem
skiptast á sýningar og böll með rokkhljómsveitum og
fjöri. Þess vegna er maður æstur að fara aftur, ár
eftir ár, til að njóta ferðalags, hjólamennsku og þess
að vera í góðra vina hópi.
https://timarit.is/files/40479599#search=%22m%C3%B3torhj%C3%B3lakl%C3%BAbbur%22