HYOSUNG Aguila, eða GV650 eins
og það heitir líka, hefur fengið nafn
sitt úr spænsku en Aguila þýðir örn
og eins og sjá má er örninn lentur á
Íslandi. Spurningin er bara sú hvort
varpið heppnist en um er að ræða alveg nýja tegund á markaðnum.
Hyosung mótorhjól hafa notið
mikilla vinsælda í Suður-Evrópu og
nágrannar okkar Danir hafa sömuleiðis tekið Hyosung fagnandi enda
hjólin verðlögð þannig að þau eru
mjög samkeppnisfær á markaði sem
annars er plagaður af ofurtollum. Eiríkur Hans Sigurðsson sem bauð
landsmönnum fyrstur manna upp á
Ducati mótorhjól hefur tekið við umboði fyrir Hyosung og hefur til prófunar nokkrar gerðir af þessum hjólum, öll á samkeppnisfæru verði.
Bílablað Morgunblaðsins fékk til
prófunar hjól sem í flestum tilfellum
yrði flokkað sem „kraftkrúser“ og
tók það til kostanna í blíðskaparveðri.
Létt og lipurt en ekki látlaust
Myndir sýna þetta mótorhjól ekki
í réttu ljósi. Það virkar fremur ýkt,
sem það reyndar er, en þó ekki á
slæman máta. Það mætti segja að
þetta mótorhjól sé léttúðugt eða
frískt og hönnun þess ber þess merki
að hafa verið gerð án nokkurrar
fælni við augljósar tengingar til annarra og mun dýrari mótorhjóla eins
og Harley Davidson V-rod sem augljóslega er fyrirmyndin hvað útlitið
varðar. Útlitið er eins og áður sagði
frísklegt og nýtískulegt og einungis
dregið niður af fölsku krómi sem er
óþarft og myndi jafnvel koma betur
út í sama lit og hjólið er sprautað í.
Hjólið er útbúið breiðum dekkjum að
hætti kraftkrúser hjóla með tvöföldum diskabremsum að framan og einfaldri að aftan, lágu sæti og háu
stýri. Á prófunarhjólinu er vindhlíf
sem aukabúnaður ásamt baki og
bögglabera og pústið, sem er fremur
breitt og hljómar hreint ágætlega, er
2 í 1 á hægri hlið. Stjórntæki öll eru
hefðbundin og mjög auðveld í notkun
og akstursstaða hin prýðilegasta
eins og oft er á krúserum.
Við fyrstu viðkynningu er hjólið
mjög létt og þægilegt í meðförum og
auðvelt að ímynda sér að það henti
byrjendum. Reyndar hentar þetta
hjól sérlega vel byrjendum þar sem
hægt er að fá fyrir það búnað til að
draga úr aflinu með 25kw takmörkun, sem er leyfilegt hámarksafl fyrir
yngri ökumenn bifhjóls en 21 árs.
Hægt er síðan að fjarlægja þessa
takmörkun og gefa hjólunum fullt afl
þegar viðkomandi hefur öðlast réttindi, eða hjólið selt og hjólið skilar þá
sínum 79 hestöflum með tilheyrandi
þjósti.
Þar sem hjólið er mjög létt og
meðfærilegt í akstri er hætt við því
að ökumenn muni reka hjólið niður í
beygjum. Sem betur fer er það
fyrsta sem rekst niður ístöðurnar
fyrir fæturna og fæst því tímanleg
tilkynning um það að tímabært sé að
hægja ferðina og kreppa beygjuna
örlítið – þó mun þetta fara eftir ökustíl fólks en sumir munu líklega
draga hælana á undan ístöðunum
vegna framstæðrar stöðu þeirra.
Í bæjarumferð nýtur mótorhjólið
talsverðar athygli og merkilegt nokk
jafnvel meiri athygli en nafntogaðri
mótorhjól í sama stíl. Kannski er þar
um að kenna óþekktu nafni hjólsins,
útliti þess eða hins skæra ljósbláa litar sem er líklega sjaldséður á hjólum
af þessari gerð sem alla jafna eru
svört. Vegfarendur kunnu allavega
vel að meta hjólið og ökumaður
sömuleiðis þar sem það var með eindæmum meðfærilegt. Það er vel
hægt að keyra hjólið meira á toginu
en hásnúning og sennilega munu
flestir kunna að meta það betur þar
sem titringur frá vélinni er talsverður þegar hærri snúningi er náð.
Vissulega er ekkert mál að gíra niður eða upp og þannig draga úr titringnum enda þótti blaðamanni best
að keyra á lágum snúningi og nota
togið og spretta svo úr spori og leyfa
nálinni að hendast upp hraðamælinn
einstaka sinnum án þess að skipta
um gír strax.
Hlykkjóttir og þröngir
þjóðvegir góð skemmtun
Það var ekki síður gaman að keyra
til Þingvalla í góða veðrinu. Þröngur
vegurinn, hæðóttur og hlykkjóttur
dró fram góða aksturseiginleika
hjólsins og sýndi hve jafnvægi þess
var gott. Bremsur virkuðu traustvekjandi og gírkassinn var þýður og
þægilegur og aldrei missti blaðamaður úr gírskiptingu. Togið var yfirdrifið fyrir afslappaðan þjóðvegaakstur og aflið feikinóg til
framúraksturs þegar á þurfti að
halda – þó ekki án titringsins sem
fylgdi hærri snúningi. Vindhlífin
gerði talsvert gagn og er eiginlega
nauðsynleg þar sem akstursstaðan á
krúserhjóli er einungis til þess fallin
að fanga sem mestan vind. Sætið var
þægilegt til lengri aksturs og hægt
að hagræða sér og breyta um stellingu án nokkurra vandræða.
Þegar komið var til Þingvalla var
mál að prófa hjólið með farþega en
það reyndist lítið erfiðara að keyra
hjólið þannig og hvorki fjöðrun né afl
létu af sér draga þrátt fyrir aukafarþegann og má því draga þá ályktun
að aukatöskur gætu gert þetta mótorhjól að fínasta hjóli til daglegs
brúks og jafnvel lengri ferða ef menn
vilja.
Á heildina litið er Hyosung GV 650
létt og þægilegt hjól sem býður upp
á talsvert afl fyrir þá sem það vilja en
er jafnframt hentugt fyrir byrjendur. Í því sambandi má nefna afltakmörkunina sem er fáanleg og svo
einfalda hluti eins og að ekki er hægt
að setja hjólið í gír án þess að setja
standarann upp fyrst – nokkuð sem
allir byrjendur kunna örugglega að
meta. Útlit hjólsins vakti fremur góð
viðbrögð en stíll þess er um margt
óvenjulegur þó ekki séu farnar
ótroðnar slóðir í hönnun þess. Hvað
notkun hjólsins varðar var hægt að
finna fáa galla á því og helst hægt að
kvarta yfir krómuðu plasti sem hefði
mátt sleppa og titringnum í vélinni
sem yrði ansi hvimleiður en kom
ekki að sök þar sem auðvelt er að
gíra sig framhjá því vandamáli.
Blaðamaður bjóst reyndar við að
stafrænt mælaborð hjólsins yrði erfitt aflestrar í sólinni og þá sérlega
ljósið fyrir hlutlausan gír en það
reyndist ekki vera nokkuð vandamál
– reyndar var mælaborðið auðlesið
og fljótlegt að sjá hraðann og þær
upplýsingar aðrar sem voru í boði.
Þó var þess saknað að hafa ekki
snúningshraðamæli. Einn helsti
kostur hjólsins hlýtur að vera verðið
en 860 þúsund telst nokkuð gott verð
fyrir 79 hestafla krúsermótorhjól
sem er nógu sprækt til að skilja
margan krúserinn eftir í rykinu. Það
má reyndar minnast á það að á leiðinni í bæinn var kíkt í heimsókn hjá
nýbökuðum eiganda að Hyosung GT
650R en grunntýpan af þeirri gerð,
GT650, kostar aðeins 666 þúsund
krónur.
Tegund: Hyosung GV650
Sports Cruiser
Vél: Tveir strokkar V2
90° vél, 647 rúmsentimetrar, 8 ventlar, yfirliggjandi knastásar,
vatnskælt.
Afl: 79 hestöfl við 9.000
snúninga á mínútu.
Tog: 68,1 Nm við 7.500
snúninga á mínútu.
Gírskipting: 5 gíra beinskiptur. 1. gír niður, 4 upp.
Bensíntankur: tekur 16
lítra.
Hröðun: Ekki vitað.
Hámarkshraði:
195 km/klst.
Drifbúnaður: Hljóðlátt
koltrefja belti.
Hemlar framan: Diskabremsur. Tvöfaldir diskar.
Hemlar aftan: Diskabremsur. Stór, 270 mm
diskur.
Hjólbarðar og felgur framan: 120/70-ZR18 59W.
Hjólbarðar og felgur aftan:
180/55-ZR17 73W.
Lengd: 2.430 mm.
Breidd: 840 mm.
Hæð: 1.150 mm.
Sætishæð: 695 mm.
Hæð undir lægsta punkt:
160 mm.
Eigin þyngd: 218 kg.
Heildarþyngd 410 kg.
Litir: svart – silfurgrátt –
blátt og silfurgrátt.
Eyðsla: 5 lítrar í blönduðum akstri.
Verð: 860.000 kr.
Umboð: Renta ehf.
Hyosung Aguila
ingvarorn@mbl.is
Morgunblaðið 14.07.2006