Stóraukinn munur á iögjöldum mótorhjólatrygginga og tjónagreiðslum:
- mótorhjól á svörtum lista tryggingafélaganna
Mótorhjólatryggingar og svimandi há iðgjöld á þeim hafa verið nokkuð í fréttunum að undanfórnu. Þegar tölur um kostnað og slys eru skoðaðar kemur í ljós að tjónakostnaður bifhjóla hefur hækkað sexfalt á fimm árum þrátt fyrir að fjöldi slysa sé á niðurleið.tryggingafélagi heldur en hvaða reynslu hann hefur?
Svar tryggingafélaganna
Samband íslenskra tryggingafélaga (SÍT) sendi frá sér yfirlýsingu á dögunum þar sem fram kemur að iðgjöld mótorhjóla nægja ekki fyrir tjónum þeirra. Ástæður yfirlýsingarinnar voru sagðar yfirlýsingar forsvarsmanna Sniglanna um óheyrilega há vátryggingariðgjöld í viðtali í fréttum á Stöð 2 og Bylgjunni. í viðtalinu var einnig gefið til kynna að iðgjöldin væru of há miðað við tjón og að slysum færi fækkandi. SÍT segir allar þessar fullyrðingar rangar í yfirlýsingu sinni.Slysum fækkar en bætur hækka
í yfirlýsingu SÍT kemur fram að iðgjöld tryggingafélaganna af mótorhjólum 1995-99 hafa verið 143 milljónir króna en tjónakostnaður þeirra á sama tímabili 316 milljónir. Með öðrum orðum töpuðu tryggingafélögin á þessu. timabili 173 milljónum í mótorhjólatryggingum. SÍT fullyrðir jafnframt að tjónum hafi ekki fækkað á sama tímabili og tjónakostnaður aukist margfalt, eða úr rúmum 22 milljónum árið 1995 í rúmlega 130 milljónir í fyrra. Sú fullyrðing að slysum hafi ekki fækkað er reyndar ekki rétt því árið 1995 var skráð 41 mótorhjólaslys en 39 á árinu 1999. Á þessum árum fjölgaði samt skráðum bifhjólum um rúm 200, úr 1881 árið 1995, í 2084 í fyrra, þannig að þrátt fyrir fleiri bifhjól verða færri slys. Meðaltal áranna 1980-94 var 60,3 slys á ári.Dýrari kúnnar?
í stuttu máli má því segja að þrátt fyrir svo til óbreytt ástand í mótorhjólaslysum á síðustu fimm árum hefur tjónakostnaður vegna þeirra sexfaldast og því hljóta menn að verða að spyrja út af hverju.Svimandi há iðgjöld
Ársiðgjald mótorhjólatryggingar án nokkurs bónuss hjá einu tryggingarfélaganna skiptist þannig: Iðgjald 193 þúsund krónur og SÖE iðgjald (slysatrygging ökumanns og eiganda) 279 þúsund.Eitt slys getur reynst öðrum dýrt spaug.
Hvað gerist svo? Hækka þarf iðgjald mótorhjólatrygginga hjá þessu félagi til að mæta tapinu en hjá félaginu tryggja 200 manns hjólin sín. Það þarf því að hækka tryggingu hvers og eins um 100 þúsund krónur á haus til að eiga fyrir tapinu - allt út af einu slysi. Áróður skilar árangri 1991 var eitt versta ár í sögu mótorhjólaslysa á íslandi: 88 slys, 93 slasaðir, þar af fjórir sem létust. Því var ákveðið að aðgerða væri þörf og árið 1992 var gefið út umferðarátak Snigla sem skilaði sér í því að slysum fækkaði um næstum þriðjung á einungis tveimur árum. Tækninefnd tryggingafélaganna styrkti það átak um hálfa milljón króna og sparaði þar með tryggingafélögunum tugmilljónir í tjónabætur. Samt segir SÍT í yfirlýsingu sinni að þrátt fyrir styrk þennan hafi þessi viðleitni þeirra ekki borið þann árangur sem vænst var. Hálf milljón á einum áratug er ekki mikill peningur miðað við þær upphæðir
sem eytt er i forvarnir tryggingafélaganna vegna bílatrygginga.