|
Seldu allt Rocky og Paula ætla að vera á ferð um heiminn næstu misseri. Hér eru þau við Louise- vatn í Kanada. Mynd: Rocky Vachon |
Rocky Vachon og Paula Fatioa fóru í heimsreisu á mótorhjól
Fengu höfðinglegar móttökur í Reykjanesbæ
Ég lít ekki svo á að við séum strandaglópar á Íslandi. Maður er strandaglópur ef maður er á stað sem maður vill ekki vera á,“ segir Kanadamaðurinn Rocky Vachon. Hann kom ásamt kærustu sinni, Paulu Fatia, til Íslands á mánudaginn í síðustu viku. Þau urðu fyrir því óláni, þegar þau komu til Íslands
frá Bandaríkjunum, að afgreiðsla á mótorhjólinu þeirra tafðist hjá tollayfirvöldum í Ameríku. Þau höfðu gert ráð fyrir að bíða í nokkra daga eftir hjólinu en sú bið lengist um viku, hið minnsta.
Rocky og Paula, 35 og 33 ára, tóku saman fyrir um þremur árum. Þau höfðu bæði hug á að leggja land undir fót, eða hjól, og skoða heiminn. Einu ári eftir að þau kynntust hafði Paula selt húsið sitt og jafnaði þá upphæð sem Rocky hafði safnað sér. Þau hættu bæði í vinnunni og settust upp á hjólið.
Þau óku frá heimabæ sínum, Hamilton í Ontario-héraði í Kanada í ágúst 2011. „Við fórum vestur Kanada, í gegnum Vancouver og þaðan yfir til Bandaríkjanna,“ segir Paula um upphaf ferðalagsins. „Við ferðuðumst um Bandaríkin, fórum þaðan til Mexíkó, Belís og svo Gvatemala,“ heldur hún áfram. Þegar þau nálguðust suðurhluta Ameríku, eftir 146 ferðadaga og 25 þúsunda kílómetra akstur, tók ferðalagið á mótorhjólinu óvæntan endi. Flutningabíll þröngvaði þeim út af veginum og þau höfnuðu ofan í skurði – eiginlega á kaf í skolp. Þau sluppu bæði ómeidd en hjólið skemmdist töluvert og varð óökuhæft.
Lærði að gera við hjólið
Rocky, sem er menntaður rafmagnsverkfræðingur, hófst strax handa við að endurbyggja hjólið og skipuleggja framhald ferðarinnar. Hann segist ekkert hafa kunnað þegar hann byrjaði að skrúfa það í sundur og panta varahluti. Hann tók myndir af hverju skrefi og setti allar skrúfur og bolta í poka sem hann merkti. „Ég er ekki bifvélavirki en ég get næstum því kallað mig það eftir þetta,“ segir hann og hlær. „Það er gott að þekkja hjólið þegar eitthvað kemur upp á. Ég kunni ekki að gera við dekk þegar ég byrjaði en núna get ég bjargað mér með flest. Ég reyni að gera allt sjálfur,“ segir hann. Þau fóru aftur af stað í byrjun sumars og hafa verið á ferðalagi um Kanada í næstum 70 daga og ferðuðumst um austurhluta Kanada, Nýfundnaland og Labrador. Því næst flugu þau til Íslands.
Boðið í bústað
Rocky og Paula njóta nú íslenska sumarsins, þó megnið af farangri þeirra, auk fararskjótans, vanti. Þau hafa verið tiltölulega heppin með veður. Fyrstu nóttina gistu þau við Keflavíkurflugvöll en næsta dag húkkuðu þau sér far í Reykjanesbæ, þar sem þau komust í verslun og nettengingu. „Við erum með fötin okkar og tjaldið. Það er nóg í bili,“ segir hann af því æðruleysi og þeirri gleði sem einkennir fas þeirra beggja.
Á föstudaginn hittu þau Gylfa Jón Gylfason, fræðslustjóra í Reykjanesbæ, fyrir utan ráðhúsið í bænum þar sem þau höfðu tjaldað. Gylfi Jón bauð þeim í mat og í kjölfarið að dvelja í sumarhúsi hans að Hafurbjarnarstöðum, á milli Garðs og Sandgerðis, þar til þau fá hjólið í hendurnar. Þau eru hæstánægð með þá gestrisni. Gylfi Jón hefur sýnt þeim Reykjanesið og þau hafa meðal annars skoðað Gunnuhver, vinsælan ferðamannastað við Reykjanesvita. Þá fengu þau lánaðan bíl hjá heimamanni til að fara í dagsferð að Gullfossi og Geysi.
Flækingar
Rocky og Paula halda úti skemmtilegri vefsíðu þar sem fylgjast má með ferðalagi þeirra. „Not all those who wander are lost“ eru einkennisorð vefsíðunnar. Á íslensku gæti það útlagst sem: Flækingar eru ekki alltaf villtir. Tilvitnunin er úr Hringadróttinssögu en slóð vefsíðunnar er einmitt
www.notallthosewhowanderarelost.ca Rocky tekur myndir og Paula skrifar texta um það sem á daga þeirra drífur á ferðalaginu. Þar má meðal annars sjá nákvæmt sundurliðað yfirlit yfir eyðsluna á ferðalaginu, en á ferð þeirra um Ameríku eyddu þau að jafnaði sem jafngildir 6.600 krónum á dag. Þau spara mjög við sig í mat og gistingu enda tjalda þau yfirleitt utan hefðbundinna tjaldstæða. „Stundum komumst við ekki í sturtu svo dögum skiptir,“ segir Paula og hlær. „Núna veit ég hvernig það er að vera skítugur hjólreiðamaður (e. dirty biker).“
Sigur Rós í uppáhaldi
Þau stefna á að vera tvær til þrjár vikur á ferðalagi um Ísland eftir að þau fá hjólið. Þau hafa merkt við marga staði sem þau ætla að heimsækja hér, en Rocky er mikill aðdáandi hljómsveitarinnar Sigur Rósar. Hann féll fyrir landinu þegar hann sá heimildamyndina Heima, um tónleikaferðalag sveitarinnar um Ísland. Þau Rocky og Paula áætla að ferðast þar til peningurinn klárast. „Við ætlum næst til Danmerkur, með Norrænu, og svo sunnar, þegar fer að hausta. Við ætlum í haust til Portúgal, þar sem Paula fæddist og á fjölskyldu sem hún þekkir lítið. Hún hefur ekki komið þangað frá því hún var þriggja ára,“ útskýrir Rocky. „Fjölskylda mín býr í Portúgal og Frakklandi. Ég þekki þau ekki en hef hitt suma einu sinni, fyrir löngu síðan. Það verður gaman að hitta þau,“ bætir Paula við. Þau gera ráð fyrir að verja vetrinum í Portúgal og hyggja á að heimsækja Marokkó líka. Þegar fer að vora ætla þau að færa sig norðar á bóginn og heimsækja Sviss og Ítalíu, hið minnsta. „Okkur langar að fara til Egyptalands, aka með Nílarfljótinu og heimsækja Jórdaníu. Við verðum svo að sjá til hvort hægt verður að fara til Tyrklands og Alsír en aðstæður í þeim löndum verða að ráða því,“ segir Rocky. Hann hefur að auki reynt að sannfæra kærustu sína um að heimsækja Pakistan og Íran, en til Íran langar Rocky mikið að koma, sérstaklega norðurhéraðanna. „Ég er enn að reyna að sannfæra hana …“ „Við sjáum til,“ grípur hún fram í og hlær. Þau ætla að láta veðrið ráða för, svolítið eins og Íslendingar. „Við förum heim þegar við erum annaðhvort orðin leið hvort á öðru eða blönk.“
Finna frið á hjólinu
Þau viðurkenna aðspurð að það geti tekið á að vera saman á ferðalagi allar sólarhringinn, svo vikum og mánuðum skiptir. Stundum kastist svolítið í kekki. „Við erum stundum spurð hvers vegna við notum ekki hljóðnema til að tala saman þegar við erum á mótorhjólinu,“ segir Paula en segir að það komi ekki til greina. „Við notum tímann á hjólinu til að hugsa og vera út af fyrir okkur,“ segir Rocky. „Þó við sitjum þétt saman þá eru þetta einu stundirnar sem við fáum frið hvort fyrir öðru. Það skiptir máli,“ segir hann og Paula tekur í sama streng.
Þau segja að mótorhjólið veiti þeim mikið frelsi. Þau geti skoðað staði sem aðrir þurfa jeppa til að komast á. Hjólið komist vegi sem smábílar komist ekki. „Þetta er eins og jeppi á tveimur hjólum – þannig komumst við lengra og getum séð meira en ef við værum á bílaleigubíl,“ segir Rocky en bætir við að Paula verði svolítið hrædd ef vegirnir eru mjög slæmir. Hugmyndin kviknaði í Taívan Fyrir um tíu árum var Rocky að vinna við enskukennslu í skóla í Taívan, til að eiga fyrir háskólanámi. Hann keypti sér vespu og fór að aka um strendur landsins. Það var þá sem hann fékk þá flugu í höfuðið að ferðast um heiminn á mótorhjóli. Hugmyndin var nokkur ár í gerjun og undirbúningi. Eftir háskólanám fékk hann vinnu sem gaf vel. En vinnan átti ekki við hann. „Ég þoldi ekki vinnuna og gat ekki hugsað mér að sitja á bak við skrifborð næstu 30 árin. Svo kynntist ég Paulu og sagði henni frá því hvað mig langaði að gera,“ útskýrir Rocky. Paula segir að hana hafi líka langað til að ferðast en í fyrstu hafi hugmyndin um að gera það á mótorhjóli verið fráleit. Honum hafi þó fljótt tekst að sannfæra hana um ágæti þess að ferðast um á mótorhjóli. „Ég féll fyrir stöðunum sem hann ætlaði að heimsækja,“ segir hún. Húsið seldist og þau drifu sig af stað, eins og fram hefur komið. Paula
segist þó stundum sakna heimahaganna, fjölskyldunnar og kattanna sinna, sem eru 13 og 17 ára. Þeir eru í pössun hjá bróður hennar og móður og heyra má að hún óttast að hitta þá ekki aftur. „Kettir geta alveg náð 20 ára aldri,“ segir Rocky til hughreystingar.
Dagblaðið Vísir 16.08.2013