25.2.13
14.2.13
Hjól sem lætur ekki fara lítið fyrir sér
Þeir sem eiga peninga í pokavís og hafa smitast af mótorhjóladellu geta auðvitað ekki sætt sig við að vera á venjulegu verksmiðjuframleiddu vélhjóli.
Eins gaman og það er að vera á huggulegum Harley eða kröftugri Hayabúsu þá gengur ekki að láta sjá sig á svona alþýðlegum hjólum meðan hægt er að finna eitthvað enn betra. Ríka og fræga fólkið pantar hjólin sín hjá bandaríska framleiðandanum Confederate Motors.
Í bænum Birmingham í Alabama leynist eitt framúrstefnulegasta mótorhjólafyrirtæki sem finna má. Var reksturinn stofnaður árið 1991 og hefur síðan fest sig í sessi (ef utan er skilið gjaldþrot árið 2001 og endurvakning árið 2003) sem framleiðandi hjóla sem virðast nánast fengin beint úr vísindaskálsögum.
Kosta hjólin á við litla íbúð. Ódýrasta módelið er Hellcat sem kostar 55.000 dali á meðan t.d. R131 Fighter kostar frá 100.000 dölum og verður að sérpanta. Þegar litið er yfir viðskiptavinalistann rekur þar hver stórstjarnan aðra. Hjartaknúsarinn huggulegi Brad Pitt sést t.d. gjarnan þeytast um á Confederate-hjólinu sínu, Bruce Springsteen er með sitt hjól í bílskúrnum líka, Steven Tyler úr Aerosmith sömuleiðs og knattspyrnukempan David Beckham svo aðeins séu nokkrir nefndir.
Eins og vera ber er enginn skortur á kröftum en það eru ekki hestöflin sem gera hjólin frá Confederate Motors svona sérstök heldur útlitið. Virðist sem hefðirnar séu til þess gerðar að brjóta þær og útkoman skemmtilega tröllsleg farartæki sem verka á líkamann eins og væn sprauta af testósteróni.
Nánar má skoða hjólin á www.confederate.com
Morgunblaðið 2013
ai@mbl.is
5.2.13
Draumasamkoma mótorhjólamannsins 2013
Hafsteinn Emilsson við eigin fák og að sjálfsögðu með íslenska fánann á hjólinu eins og á Bikeweek. |
Draumasamkoma mótorhjólamannsins
Daytona Bikeweek - skipulagðar ferðir Íslendinga á sýninguna síðastliðin 10 ár.
Daytona Bikeweek er tíu daga samkoma mótorhjólaáhugamanna sem haldin var fyrst árið 1937 á Daytona Beach í Flórída. Hafsteinn Emilsson er öllum hnútum kunnugur í Daytona enda hefur hann ekki misst af Bikeweek frá 1996 og er því að fara núna í 18. skiptið í röð. Hafsteinn segir að þessar ferðir hafi verið mjög vinsælar hjá Íslendingum og þeir hafi fjölmennt þangað um árabil. Fjöldinn er æði misjafn, allt frá tólf og upp í 45 manns, en í fyrra voru þeir 28 talsins og það stefnir í svipaðan fjölda í ár. Þátttakendur eru konur jafnt sem karlar og á aldrinum frá 18 til 82 ára, en allir með sama áhugamálið, mótorhjól.
Íslenski fáninn á hjólunum
Þátttakendur hafa bæði valið sér að fara á eigin vegum og nýta sér skipulagða ferð þarMörg forvitnileg mótorhjól ber fyrir augu á Daytona Bikeweek. |
Eftir Bikeweek-dagana efnir Hafsteinn ávallt til tveggja daga hjólaferðar um Flórída á Harley Davidson-hjólum. Er þá farið mest um sveitir í miðfylkinu þar sem umferð er lítil og fallegir smábæir. „Þá er íslenski fáninn alltaf á hjólunum og það hefur oft komið fyrir að við erum stoppuð af Íslendingum sem búsettir eru í Flórída eða fyrrverandi hermönnum sem voru á Íslandi sem spyrja okkur hvort við séum frá Keflavík eða Reykjavík. Þeir vilja síðan allt fyrir okkur gera,“ segir Hafsteinn.
Ein stærsta mótorhjólasýning í heimi
Daytona Bikeweek er ein stærsta mótorhjólasamkoma og sýning á heimsvísu, eins og alltsem bandarískt er. Á Bikeweek koma saman um sex hundruð þúsund mótorhjólaáhugamenn árlega. Hver sá sem framleiðir eitthvað tengt mótorhjólum lætur sig ekki vanta með sýningarbás þar, hvort sem um er að ræða mótorhjól, aukahluti fyrir mótorhjól, mótorhjólafatnað, smurolíur, hnakka, spegla, gleraugu eða hvers konar fylgihluti. Allar tegundir af hjólum er að finna til sýnis og sölu; torfæruhjól, þríhjól, hippahjól og kappaksturshjól. Í fyrra keyptu tveir Íslendingar mótorhjól á sýningunni, svo ferðin er stundum ekki bara farin til að svala forvitninni, heldur með kaup í huga.
Keppnir og sölubásar
Daytona er álíka fjölmenn og Reykjavík og í annarri viku marsmánaðar ár hvert fyllist bærinn af mótorhjólum og hjólafólki. Vinsælt er t.d. að rölta niður aðalgötu bæjarins þar sem sölubásar eru við hvert fótmál og sýningar á hverju götuhorni. Síðustu ár hefur ásókn seljenda verið svo mikil að sýningar og sölubásar hafa verið settir upp í nærliggjandi bæjum eins og Ormond Beach. Þar er líka að finna mótorhjólaverslunina Bruce Rossmeyer Harley Davidson sem er stærsta Harley-verslun og -umboð í heimi. J & P þar við hliðina er með alla hugsanlega aukahluti fyrir mótorhjól og allan hlífðarfatnað. Það er einnig keppt á mótorhjólum í Daytona og ýmsar keppnir fara fram þá tíu daga sem Bikeweek stendur yfir. Eru þær flestar haldnar á International Speedway-kappakstursbrautinni íDaytona. Þar má sjá Motorcross- og Super Race-keppnir flesta daga. Við Speedway er stór markaður með notuð hjól og varahluti í gömul hjól. Þar er bæði gaman og fróðlegt að skoða og tala við þá sem þar eru með sölubása. Hafsteinn segir að enn séu laus sæti í ferðina á Daytona Bikeweek, sem er átta daga ferð og kostar 153 þúsund krónur með öllu.
16.1.13
Vildum bæta umferðarmenninguna
Eiríkur á ennþá gamla hjálminn sem hann notaði þegar hann var formaður hins fornfræga vélhjólaklúbbs. Hann lét þá setja merki Eldingar framan á hjálminn og það prýðir hann enn. mbl.is/Golli |
Enn færri vita að áður en að því kom var Eiríkur formaður vélhjólaklúbbs, fyrsta skráða klúbbsins, sem bar nafnið Elding. Klúbburinn fór eftir ákveðnum lögum. Þar kom meðal annars fram að allir geta orðið meðlimir, bæði strákar og stelpur, 14 ára og eldri, sem hafa áhuga á viðgerðum og notkun vélhjóla.
Markmiðin voru meðal annars að koma á föstum fræðslu- og skemmtikvöldum fyrir meðlimi, fræðslu um umferðarmál, fá æfingasvæði og koma á æfingum. Gefa félögum færi á að gera við sín eigin hjól, efna til hæfnisprófa og ferðalaga. Umferðarlögreglan í Reykjavík og Æskulýðsráð Reykjavíkur voru með einn ráðunaut hvor á fundum, þeir voru með í ráðum hvað varðar klúbbinn og gæta hagsmuna hans út á við. Sá sem var ótvírætt driffjöður klúbbsins var lögreglumaðurinn Sigurður Emil Ágústsson, betur þekktur sem Siggi Palestína. „Jón Pálsson frá Æskulýðsráði var líka oft með okkur og saman reyndum við að bæta umferðina, en skellinöðrur voru litnar hornauga áður en Elding kom til,“ segir Eiríkur í viðtali við bílablaðamann Morgunblaðsins.
Vinsælt Starf
„Hann Siggi var alveg ótrúlega duglegur að hjálpa okkur og sinna í þessu starfi. Strákarnir báru mikla4.12.12
Sameinað norrænt mótorhjólafólk
Sameinað norrænt mótorhjólafólk
Sjö samtök norræns mótorhjólafólks hafa tekið höndum saman og mótað sameiginlega stefnu í umferðaröryggismálum og komið henni á framfæri við ríkisstjórnir og vegamálayfirvöld hvert í sínu landi. Löndin eru Svíþjóð, Danmörk, Noregur Finnland og Ísland.Í skjalinu sem mótorhjólafólkið hefur sent yfirvöldum umferðarmála eru m.a. ákveðnar tillögur sem samtökin telja að muni auka öryggi mótorhjólafólks í umferðinni og hugmyndir um hvernig best verði að haga samstarfi þvert yfir landamæri, svo að sem mest gagn verði að fyrir öryggi mótorhjólafólks.
Sá sameiginlegi vettvangur sem norrænu mótorhjólasamtökin hafa með sér nefnist Nordiskt MotorSykkel Råd, NMR. NMR var stofnað um miðjan áttunda áratuginn. Tilefnið var það að til stóð að setja miklar takmarkanir á stærð, hraðagetu og vélarafl mótorhjóla. Mótorhjólafólk vildi einfaldlega hafa eitthvað um þá framvindu að segja.
Þau samtök sem starfa saman innan NMR eru Sniglar Íslandi, Danske Motorcykelklubbers Råd (DMC) Danmörku, MC Touring Club (MCTC), Danmörku, Norsk Motorcykkel Union (NMCU), Noregi, Moottoripyöräkerho 69 (MP 69) og Suomen Motoristit r.y (SMOTO), Finnlandi og Sveriges MotorCyklister (SMC), Svíþjóð.
04.12.2012
https://www.fib.is/is/um-fib/frettir/sameinad-norraent-motorhjolafolk
12.10.12
Haustógleði 2012
Daginn öll
Við vildum bara minna á skráningu á Haustógleðina 2012 sem haldin verður næstkomandi laugardagskvöld í sal Lindu Steikhús á Akureyri.
Húsið opnar klukkan 20:00 og reiknað með að borðhald hefjist um klukkan 20:30.
Skráning fer fram í síðasta lagi í dag, föstudag, á tian@tian.is eða með því að hringja í síma 869-3332
Verðinu er stillt í hóf, eða aðeins 3500 krónur á mann.
Um leið viljum við líka vekja athygli á því að þar sem Ógleðin er haldin á vínveitingahúsi þá er óleyfilegt að koma með eigin drykki með sér. Hins vegar er sértilboð á bjór (300kr glasið!) og öðrum vínveitingum á staðnum.
Með kveðju
Stjórn Tíunnar
6.9.12
Sum Hjól eiga ekkert erindi utanvega
Vélknúin farartæki henta misvel til smölunar:
Létt klifurhjól og léttustu fjórhjólin henta best – Sum tæki eiga alls ekkert erindi á gróið land
GASGAS TX 125 Randonee |
Umhverfisstofnun sendi frá sér fréttatilkynningu þann 27. ágúst undir fyrirsögninni „Göngum vel um landið í leit að fé“.
Tilkynningunni er beint til smala á vélknúnum ökutækjum. Í niðurlagi hennar kemur fram að heimilt sé að aka utan vega vegna starfa við landbúnað á landi utan miðhálendisins, sem sérstaklega er nýtt sem landbúnaðarland, að því tilskildu að ekki hljótist af því náttúruspjöll. Það er vissulega þörf á að minna á slíkan utanvegaakstur og að bændur sem aðrir leggi sig fram um að ganga vel um landið. Ég hefði þó viljað sjá í þessari tilkynningu frá Umhverfisstofu góð ráð um notkun ökutækja við smölun en reyni að bæta aðeins úr því hér.
Prófun á klifurhjóli til að sannreyna fullyrðingar
Þann 18. ágúst 2011 var auglýst í Bændablaðinu mótorhjól undir fyrirsögninni „Nýjung í smalamennsku, létt klifurhjól“. Það átti ekki að skemma land og vera umhverfisvænt. Þrátt fyrir að hafa keyrt mótorhjólí 30 ár var þetta það mikil nýjung fyrir mig að ég taldi mig þurfa að prófa hjólið í smalamennsku tilað sannreyna þessar fullyrðingar í auglýsingunni. Þann 15. september 2011 skrifaði ég smalasöguna og að hjólið hefði staðist prófið. Það var umhverfisvænt, tætti ekki upp gróður og var gott til smölunar. Ég skrifaði ekki allt sem ég reyndi á þessu hjóli því þar var ég að bera hjólið saman við fjórhjól, sexhjól og hesta sem voru með mér í þessum göngum. Hvað gróðurvernd varðar tel ég persónulega að klifurhjólið hafi haft vinninginn í samanburði við öll önnur tæki og líka hesta. Skömmu eftir þessi skrif mín í Bændablaðinu kom að máli við mig bóndi og spurði hvort ég gæti ekki miðlað af þekkingu minni til bænda í von um betri umgengni til gróðurvemdar í tengslum við tvíhjól og fjór/ sexhjól. Hér að neðan eru nokkur veigamikil atriði sem gætu hugsanlega hjálpað notendum slíkra tækja að vernda gróður eins og mögulegt er. Byltingarkenndar tækninýjungar Tækninýjungar í fjöðrun og hjólbörðum á klifurhjólum eru svo byltingarkenndar að enginn trúir hvernig þau eru í akstri á grónu landi nema að sjá það með eigin augum. Fyrir nokkru voru ráðunautum í jarðrækt hjá Bændasamtökunum kynnt svona hjól. Jarðræktarráðunautarnir trúðu varla ökumönnunum sem kynntu hjólin og vildu meina að einhver brögð hlytu að vera í tafli við kynninguna. Að lokum sannfærðust þeir þó og gátu fallist á að mótorhjól væri ekki bara mótorhjól, þessi klifurhjól væru öðruvísi.
Sum tæki eiga alls ekkert erindi á gróið land
Þegar ég prófaði klifurhjólið í göngunum á síðasta ári var það ekki í fyrsta sinn sem ég smalaði á mótorhjóli, og reynsla mín er að sum tæki eigi alls ekkert erindi á gróið land sökum uppbyggingar. Tökum t.d. „motocrosshjól“. Þau eru hönnuð til keppnisaksturs á sérútbúnum brautum og eru mjög óhentug til smalamennsku. Gírkassi er ekki gerður fyrir hæga ferð, vélinni er ætlað að vera á miklum snúningi og ef hún er það ekki getur hún ofhitnað. Fjöðrunin er of stíf og hentar hvorki í miklu grjóti né þúfum. Motocrosshjól eru að öllu jöfnu með 19 tommu afturdekk og mjúk 19 tommu dekk eru einfaldlega ekki flutt til landsins. Svokölluð „endurohjól“ eru svipuð og motocrosshjól og eru endurohjól sem flutt eru hingað til lands oftast með stóra vél. Ef hjólið er með minni vél en 400 cc og afturdekk undan klifurhjóli má notast við svoleiðis hjól við smalamennsku á ýmsum stöðum, þó að til séu undantekningar um stærð hjólanna.Sexhjólin verri en fjórhjólin
Hvað varðar fjórhjól og sexhjól, þá geta sexhjólin verið mjög notadrjúg til smalamennsku. Þau þola samt illa mikinn skak-akstur og vilja liðast í sundur. Einnig vilja sexhjól tæta upp gróður og skilja eftir sig mikil för eftir öftustu hásinguna ef beygt er harkalega. Til að lágmarka þann skaða er best að vera með sem sléttust dekk á öftustu hásingunni á sexhjólum. Mitt persónulega mat er að sexhjól skemmi gróður mun meira en fjórhjól. Spurningin er þó hvort ekki mætti taka fremri afturdekkin undan sexhjólunum við smalamennsku til að lágmarka gróðurskemmdir. Ef keypt eru ný dekk undir sexhjól er mjög gott að geyma gömlu slitnu dekkin til að geta sett undir öftustu hásinguna þegar ekið er í viðkvæmum gróðri.Kraftlitlu og léttustu fjórhjólin henta vel
Fjórhjól undir 500cc eru sennilega þau hjól sem henta einna best og þá á fínmunstruðum dekkjum. Þessi litlu fjórhjól eru yfirleitt um 100- 200 kg léttari en stóru 800+ cc hjólin, fljóta því mjög vel og eru oftast með minni þunga á hvern fersentimetra á jörðinni en sexhjól, þótt hjólin á jörðinni séu aðeins fjögur.
Engin þörf á drulluspyrnudekkjum í smalamennsku
Engin þörf er á að vera á einhverjum drulluspyrnudekkjum í smölun því í raun henta gömlu hálfslitnu dekkin best og marka minnst í gróið land. Ef landið er blautt er hætta á að það vaðist upp í drullu. Því verður einfaldlega að reyna að krækja fyrir viðkvæmustu staðina. Sé verið að krækja fyrir blautan stað vegna hættu á að festa sig er nánast alltaf betra að fara upp fyrir blauta staðinn ef sá kostur er fyrir hendi. Þá losna menn við að skemma gróðurinn fyrir neðan.Stóru og kraftmiklu fjórhjólin oft miklir skaðvaldar
Stóru og þungu 800 cc fjórhjólin eru oftast óttalegir skaðvaldar fyrir gróið land því að í hvert sinn sem gefið er í er krafturinn og þunginn svo mikill að smá spól mynda sár, en litlu hjólin eru svo mátulega kraftlaus og létt að þau spóla síður.Létt klifurhjól henta best
Ef ég væri að fara í göngur í dag og mætti velja mér vélknúinn fararskjóta mundi ég hiklaust velja klifurhjól af gerðinni GasGas TX 125 Randonee frá JHM Sport á Stórhöfðanum. Það er ekki nema 85 kg og er að mínu mati sérhannað fyrir smalamennsku. Hjólið er létt og mjúk dekkin fara vel með gróður. Það er með fjögurra lítra bensíntank og nægan kraft án þess að hætta sé á spóli og er sérstaklega hannað til að klifra á mjög hægri ferð. Þá er það með rafstarti og kostar ekki nema 625.000 krónur fyrir utan virðisaukaskatt. Ég hef tröllatrú á klifurhjólum og tel mikla framtíðarmöguleika í notkun þeirra við búskap. Eftir að hafa prófað þetta GasGas hjól verð ég að segja að það er ótrúlega notadrjúgt og gott til brúks.http://timarit.is/
23.8.12
Fuglasafn Sigurgeirs og Mótorhjólasafnið á Akureyri
Fuglasafn Sigurgeirs fær hæstu einkunn
- Safn Ólafs á Þorvaldseyri og fjölskyldu hans fylgir þar fast á eftirÍ sumarfríi mínu settist ég upp á mótorhjól og ók stóran hring í kringum Ísland. Á ferðalaginu heimsótti ég nokkur af fjölmörgum söfnum sem urðu á vegi mínum og vert er að benda fólki á að skoða.
Fyrst ber að nefna safn Ólafs á Þorvaldseyri og fjölskyldu hans, sem nefnist Eyjafjallajökull. Frábært
framtak og vel upplýsandi um hamfarirnar þegar Eyjafjallajökull gaus í apríl fyrir rúmum tveim árum. Þó safnið sé ekki stórt eru bæði aðkoma og snyrtimennska til fyrirmyndar og vel staðið að öllu er við kemur safninu. Á safninu er súynd stuttmynd sem er aðallega samansett úr fréttamyndum. Þegar ég var á ferðinni var verið að sýna útgáfu myndarinnar með þýsku tali, en það kom ekki að sök, þessar myndir sögðu allt sem segja þurfti og mögnuð upplifun að vera á staðnum þar sem þessar
hamfarir dundu yfir í svona fallegu umhverfi svo stuttu eftir gosið. Það var einstaklega fræðandi að bera saman útsýnið að gosstöðinni í sumar og myndina, sem tekin var þar sem safnið stendur, þegar fjölskyldan var að flýja heimilið við upphaf goss. Þetta er safn sem enginn má láta framhjá sér fara.
muna sem eru aðallega frá síðustu öld og flestir þekkja frá barnæsku. Hins vegar mætti leggja smá vinnu í að merkja gripina betur og segja frá því hvaða ár þessir munir voru almennt í notkun. Þarna var lægsti aðgangseyririnn, en aðeins kostaði 500 krónur inn á öll söfnin þrjú.
Fuglasafn Sigurgeirs fær hæstu einkunn
safni með öðrum orðum en að þarna hefur systkinum og vinum Sigurgeirs Stefánssonar frá Ytri-Neslöndum tekist frábærlega að reisa safn utan um þetta mikla fuglasafn sem Sigurgeir hafði komið sér upp áður en hann lést í slysi á Mývatni.
í mínum huga er það eitt besta safn sem ég hef komið á hingað til.
Mótorhjól og falleg listaverk Mótorhjólasafn Íslands er á Akureyri
og reist í minningu Heiðars Þ Jóhannssonar sem lést í mótorhjólaslysi sumarið 2006. Vissulega mættiaðkoman að safninu vera betri, en hvorki er búið að malbika planið né klæða húsið að utan. Inni í safninu er búið að opna neðri hæðina, en þar eru um 80 mótorhjól og nokkur mjög sjaldgæf, bæði gömul og „alíslensk nýsmíði“, en það sem sjaldnast er nefnt við þetta safn eru hin fjölmörgu listaverk sem Heiðar smíðaði (sennilega er hans þekktasta listaverk minnismerki um fórnarlömb bifhjólaslysa, sem stendur við Varmahlíð og heitir Fallið).
Mætti vera meira um veiðisögu og nytjar á Selasafni
Gaman að koma á Hákarlasafnið
Mér fannst gaman að koma í Hákarlasafnið í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi þó það sé svolítið sundurlaust. Þarna er samansafn af ýmsum áhöldum, veiðarfærum, verkfærum o.fl. sem aðallega var notað snemma á síðustu öld, en einnig eru þarna uppstoppuð dýr s.s. fuglar, refir, minkar o.fl.Á safnið vantar sárlega meiri lesningu til að útskýra safnhlutina (hversu gamlir þeir voru og til hvers þeir voru notaðir á sínum tíma).
26.7.12
BMW G650 Sertao mótorhjól (2012)
BMW G650 Sertao Fullbúið með töskum og upphitiuðum handföngum. Myndir / HLJ |
Með fyrirmyndar ABS bremsubúnaði
Fátt finnst mér skemmtilegra en að keyra gott mótorhjól á góðviðrisdögum og ekki hefur það verið afleitt sem af er sumri, enda hef ég verið duglegur að „mótorhjólast“.
Mótorhjólainnflytjandinn Reykjavík Motor Center bauð mér
að prófa nýtt mótorhjól af gerðinni BMW G650 Sertao, en það er með 652 cc einsstrokks vél sem á að skila 48 hestöflum og er 175 kg (fullt af
bensíni 192 kg.). Hjólið er með 21 tommu framgjörð og 17 tommu afturgjörð sem gerir það jafnvígt á malarvegum og á malbiki.
ABS bremsubúnaður til fyrirmyndar
Hjólið sem ég prófaði var að fara sem leiguhjól til Biking Viking hjólaleigunnar og var því útbúið með farangurstöskum og veltigrind sem aukabúnaði. Ég ók hjólinu um 80 km við misjafnar aðstæður og fátt sem kom mér á óvart, þó verð ég að hæla tæknimönnum hjá BMW fyrir hversu langt þeir eru komnir í þróuninni á ABS bremsubúnaðinum í hjólinu. BMW var einn af fyrstu framleiðendum mótorhjóla til að koma með ABS bremsubúnað í mótorhjól í kringum 1992. Fyrst virkaði þetta einfaldlega ekki í beygjum og á möl, en nú 20 árum seinna má rífa í frambremsu í lausamöl án þess að eiga á hættu að splundrast beint á hausinn. Ég gerði nokkrar tilraunir á þessu á mismunandi hraða og alltaf var útkoman svipuð. Ég tók ABS bremsurnar af og prófaði að bremsa
með og án þeirra og á 30 km hraða stoppaði ég 11 fetum fyrr án ABS en með því (ég vil benda á að ég tel mig hafa þokkalega kunnáttu til mótorhjólaaksturs og bremsuhæfileika eftir 30 ár á mótorhjóli). ABS bremsur eru góðar á þessu hjóli, sérstaklega fyrir byrjendur, en þegar maður venst hjólinu mæli ég með því að ökumaðurinn reyni sig áfram án þeirra (sérstaklega á möl).
Grófur gangur
Gangurinn er svolítið grófur í mótornum, enda 1650 cc stimpill sem skilar tæpum 50 hestöflum og minnir hljóðið í mótornum í hægagangi óneitanlega á gamla Deutz d15 traktorinn sem til var í minni sveit þegar ég var strákur. Að keyra mótorhjól með svona stórar töskur er í fyrstu svolítið skrítið, en venst strax. Þó getur verið leiðigjarnt að vera með topptöskuna í miklum vindi ef maður er einn áhjólinu, en með farþega og topptösku er betra að keyra hjólið.
Stillanleg fjöðrun
Fjöðrunin er stillanleg og hægt að breyta stillingu á afturdemparanum á ferð, sem er gott ef fram undan er malarkafli.Eyðir um 4-5 lítrum á hundraðið
Bensíneyðslan er ekki mikil, en mér sýndist ég hafa farið með innan við 4 lítra af bensíni á þessum 80km sem ég keyrði hjólið og gæti trúað að meðaleyðslan á 100 km væri nálægt 4-5 lítrum á hundraðið. Lokaniðurstaða er að BMW G650 Sertao er ekta hjól til brúks fyrir flesta vegi í íslensku vegakerfi,
semsagt mótorhjól til að nota
Góð kaup
Verðið á Sertao er lægra en ég bjóst við, en án taskna er það um 2.100.000. Ég mæli þó eindregiðmeð því að menn kaupi töskur og veltigrind undir mótorinn og bæti þar með tæpum 200.000 krónum við, en hjólið sem ég prófaði var með
svoleiðis útbúnaði og kostar rétt um 2,3 „millur“ (persónulegt mat: góð kaup á mótorhjóli til almenns brúks).
4.7.12
Þakklátur fyrir að vera á lífi
Slysið varð vorið 2007 á gatnamótum við Reykjanesbraut og var dæmigert að mörgu leyti, þar sem ökumaður gerir ekki ráð fyrir mótorhjóli og ekur fyrir það. Algengasta tegund mótorhjólaslysa eru árekstrar á gatnamótum, samkvæmt upplýsingum frá Rannsóknarnefnd umferðarslysa, og í langflestum tilfellum lendir þar saman hjóli og bíl. Vandinn liggur því ekki síður hjá ökumönnum bíla, þegar þeir gleyma að taka tillit til mótorhjóla í umferðinni.
Tilgangslaust að vera reiður
Þórarinn tvíkjálkabrotnaði, viðbeinsbrotnaði og handleggsbrotnaði báðum megin. Mjaðmakúlan vinstra megin fór í gegnum mjaðmagrindina og vinstri ökklinn fór í sundur. Rifbein sem brotnuðu stungust í gegnum lungun á honum og slagæð fór í sundur. Þórarni var haldið sofandi í öndunarvél í rúmar þrjár vikur og útskrifaðist 6 mánuðum eftir slysið eftir þrotlausa endurhæfingu á Grensásdeild, en rætt var við sjúkraþjálfara þar sem unnu með Þórarni á Mbl.is í gær.
Áverkarnir sem Þórarinn hlaut voru svo alvarlegir að ótrúlegt má heita að hann lifi, enda segist Þórarinn þakklátur fyrir að vera á lífi og ekki tjái að velta sér upp úr því sem hann hafi misst. „Það er endalaust hægt að vera sár og reiður út í lífið, en maður tapar sjálfum sér og öðrum á því að gera það. Slysin gerast og aumingja maðurinn sem lenti í því að fara fyrir hjól og gera mann örkumla, það er á samviskunni hans allt hans líf."
Breyttur maður vegna heilaskaða
Þórarinn hefur náð markverðum bata eftir slysið, en mun hinsvegar aldrei ná sér að fullu. Hann er með lamaða hægri hönd og með stöðuga verki, en þeir áverkar sem erfiðast hefur reynst að læra að lifa með sjást þó ekki utan á honum, því þeir urðu inni í höfðinu á honum. Þórarinn segist hafa grínast með heilaskaðann fyrst og ekki gert sér grein fyrir hvað hann háir honum mikið.
Hann á erfitt með að skipuleggja, muna hluti, finna orð og tala í samhengi. Hann segist í fyrsta skipti hafa kynnst því að til sé nokkuð sem heiti andleg þreyta. „Að gera ekkert er leiðinlegt, en svo ef maður fer að reyna að rembast og segja „ég get þetta alveg" þá kemst maður að því að það er ekki svoleiðis. Raunveruleikinn er ekki að geta, heldur að takast á við lífið eins og það er. En það var svolítið erfitt fyrir mig fyrst að biðja um hjálp." Skaði á framheila olli persónuleikabreytingum, sem hann skynjar að vísu ekki sjálfur, en hans nánustu hafa sagt honum það. Hann hefur í kjölfarið m.a. starfað með Hugarfari, félagi fólks með áunninn heilaskaða.
Mun fleiri mótorhjól í umferðinni
Margfalt fleiri mótorhjól eru í umferðinni í dag en fyrir áratug. Þannig voru 2.279 mótorhjól skráð árið 2000, en árið 2011 voru þau 9.922 talsins. Það er 440% aukning. Á sama tíma fjölgaði mótorhjólaslysum um 230%, samkvæmt tölum frá Umferðarstofu. 32 slösuðust eða létust á mótorhjóli árið 2000, en 107 árið 2008 sem var metár að þessu leyti. Sem betur fer hefur þó dregið úr alvarlegustu slysunum, og í fyrra voru þau 74 talsins. Hér má sjá kort yfir öll banaslys í umferðinni á Íslandi undanfarin 5 ár.
Árið 2007, þegar Þórarinn varð fyrir slysinu, urðu margir mótorhjólamenn fyrir samskonar slysum. Tveir þeirra létu lífið. Þetta varð til þess að Umferðarstofa réðst í auglýsingaherferðina „Fyrirgefðu, ég sá þig ekki", til að hvetja til meiri aðgátar gagnvart mótorhjólum. Síðan hefur dregið úr alvarlegustu slysunum. Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu, segir að reynsla og viðhorf hafi áhrif og árangurinn megi m.a. þakka því að vegfarendur séu nú orðnir vanari mótorhjólum í umferðinni.
Dýrkeypt að gleyma sér eitt augnablik
Þórarinn telur þó að fólk mætti vera enn meðvitaðra. „Þegar þetta er komið í praksis og maður er í umferðinni, þó að viðhorfið sé að líta tvisvar og allt það þá koma þessi tilfelli, að fólki vilji drífa sig til að ná rauða ljósinu. Það eru alltaf svona smá augnablik í umferðinni þar sem fólk gleymir sér eða er bara í sínum eigin heimi."
Þórarinn var á mótorhjóli á leið í grillveislu þegar ekið var í
veg fyrir hann. Ljósmynd/Þórarinn Karlsson
Þessi litlu augnablik geti verið dýr, eins og Þórarinn fékk sjálfur að reyna. „Ég skildi ekki hvað slys og áhætta er fyrr en ég var sjálfur búinn að lenda í þessu. Það er í sjálfu sér ekki slysið sjálft, það tekur bara einhverjar sekúndur, en það eru afleiðingarnar sem fólk er að berjast við í mörg, mörg ár. Og það er ekki bara manneskjan sem slasast sem lendir í þessu, heldur allt fólkið í kring sem upplifir þetta með manni."
Þórarinn bendir á að umferðarslys séu eins og öfugt lottó. Nokkuð sem enginn vilji lenda í, en enginn reikni heldur með því. Hann telur að besti hugsunarhátturinn í umferðinni sé eins og annars staðar, að koma fram við náungann eins og sjálfan sig. Enginn breytt hegðun fólks nema það sjálft. „Ég breyti þér ekki, þú breytir þér."
Þórarinn var á mótorhjóli á leið í grillveislu þegar ekið var í veg fyrir hann. Ljósmynd/Þórarinn Karlsson
Margfalt fleiri mótorhjól eru í umferðinni í dag en fyrir áratug og árið 2007 urðu mörg samskonar slys og Þórarinn varð fyrir.
Mbl.is/Elín Esther
4.7.2012
20.6.12
Lögreglan leitar ökumanns sem stakk af
Ökumaður sem flúði vettvang þegar lögreglumaður féll af bifhjóli í gær er enn ófundinn.
Þeir sem urðu vitni að slysinu, og/eða geta veitt upplýsingar um ökumann svarta mótorhjólsins, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is.
Ökumaður svarta mótorhjólsins er hvattur til að gefa sig fram. Talið er að hjólið (racer) sem hann var á sé mögulega af gerðinni Yamaha R1 árgerð 2004-2008 eða Kawasaki ZX-10R Ninja árgerð 2006 eða 2007. Á því eru líklega rauðar strípur eða stafir. Ökumaðurinn var í túbugalla, sennilega svörtum að lit.