|
Emilio Scotto ásamt eiginkonu sinni, Monicu, fyrir aftan Svörtu prinsessuna, sem er Honda Goldwing 1100. Á milli sín halda þau á korti þar sem ferðalag Emilios er merkt inn á. Hann hefur verið á ferðinni síðan 14. janúar 1984 og hefur ekki komið til heimalands síns, Argentínu, síðan. Ferðinni lýkur hann
í Buenos Aires eftir eitt ár og á þá að baki 750.000 km sem samsvarar ferð til tunglsins og aftur tiljarðar. |
Emilio Scotto hefur undanfarin níu ár ekki sofið á sama svefnstað tvær nætur í röð, nema í þau
skipti sem hann hefur lent í fangelsi eða vegna veikinda. Ástæðan er sú að 14. janúar 1985
lagði hann af stað frá heimabæ sínum, Buenos Aires í Argentínu, í heimsreisu á mótorhjóli.
Takmarkið var að koma til allra þeirra ríkja í heiminum, þar sem stjórn eða landstjóri er
við lýði, hvort sem þau eru opin ferðamönnum eða lokuð.
„Ég varð meira að segja að fara
til Tuvalo, sem er svo lítið að þar
eru aðeins 24 bílar," sagði hann við
blaðamann þegar hann leit inn á
ritstjóm Morgunblaðsins í vikunni.
Opnaði síðan stórt landakort af
heiminum, þar sem ferðalag hans
er merkt inn á og benti á örlítinn
depil í Kyrrahafi langt frá fastalandinu. „Hérna er Ruvalo, eyja sem
varð til í eldgosi,“ sagði hann.
Tilgangurinn með ferðinni er
einnig að aka 750.000 km eða svipaða fjarlægð og frá jörðinni til
tunglsins og aftur til baka. Emilio
hefur þegar farið einn hring í kringum hnöttinn og er nú á Ieiðinni til
baka.
Að sögn hans eru ríkin alls 215
og er ísland 173. viðkomustaðurinn.
Hann kom til landsins með Brúarfossi 5. apríl Og reiknaði með nokkurra daga dvöl hér áður en hann
heldur áfram til Grænlands. „Ég
veit ekki hvenær eða hvemig ég
kemst þangað, því það er of dýrt
að fijúga og ég veit ekki hvort nokkurt skip er á leiðinni þangað. Þannig er líf mitt, ég veit aldrei hvað
bíður mín.“
Greinarskrif og ljósmyndir
Tímann hér notar hann til að
safna efni í greinar, en hluta ferðarinnar fjármagnar hann með skrifum
og Ijósmyndum í alls kyns spænsk,
ítölsk og frönsk tímarit, sem hann
er á samningi við. Ferðin er einnig
farin í þeim tilgangi að kynnast
menningu mismunandi þjóða.
„Þetta er eins konar háskóli. Þegar
ég var ungur og var spurður hvaða
háskóla ég stefndi á og hvað ég
ætlaði að verða sagðist ég vilja
verða ævintýramaður og ferðast
eins og Marco Polo og fleiri.
„Já, en það er ekki starfsgrein,"
var þá sagt við mig.
„Jú, ég ætla að gera það að
starfi," sagði ég og hét því að gera
ferðina að háskóla lífsins, þar sem
mismunandi kynstofnar og kynslóðir kenndu mér allt mögulegt. Þetta
hefur tekist á undanförnum níu
árum. Ég er ekki Argentínumaður
á ferðalagi, ég er íslendingur hér
á landi, Kínverji í Kína o.s.frv.
Þannig hef ég t.d. iært nokkur
tungumál, en ég kunni bara
spænsku þegar ég hóf ferðina.“
Emilio undirbjó sig vel, lærði
m.a. landafræði og sögu auk þess
sem hann kynnti sér alls kyns málefni á styttri námskeiðum, eins og
hvernig ætti að komast af í frumskógum og eyðimörkum. „Þegar ég
var þrítugur ákvað ég að láta slag
standa, en það hafði enginn trú á
ferðalaginu og því fékk ég engan
til að styrkja mig. Ég lagði því af
stað á Svörtu prinsessunni með einungis 300 dollara í vasanum, nokkur landabréf, en ekki einu sinni mótorhjólahjálm. Ég verð að viðurkenna, að fólkið á götunni var
styrktaraðilar mínir fyrstu árin,“
segir hann svo og horfir brosandi
á Monicu, eiginkonu sína, „og þá
einkum konur“.
Emilio þykir greinilega tilhlýðilegt að útskýra þetta og segist hafa
þekkt Moniciu í tvö ár áður en hann
tók þá ákvörðun að leggja I heimsreisuna. „Hún sagði að ég skyldi
fara í ferðina og lifa lífinu en hún
biði eftir mér. Eg hélt af stað og
svaf stundum á fimm stjörnu hótelum í boði hótelstjóranna eða á
ströndinni undir berum himni.
Stundum buðu konur mér að gista
eða þær buðu mér í mat, í sumum
tilvikum með samþykki eiginmannsins."
Eftir sjö ára fjarveru bað Emilio
Monicu og hún kom til Indlands þar
sem hann var staddur. Þegar hann
hélt, áfram ferðinni var hún með í
för, en síðan sneri hún til Spánar,
þar sem þau hyggjast hafa aðsetur
í framtíðinni.
Opnar safn í Barcelona
Þegar ferðinni er lokið á næsta
ári ætlar Emilio að opna safn í
Barcelona, History of the Humans,
þar sem allar heimildir um ferðina
verða á einum stað, auk þess sem
myndir og minjar um aðra þekkta
ferðalanga verða einnig að því
marki sem Emilio nær að safna heimildum. Hann hefur einnig samið bók um ferðalagið, sem verður
gefin út á næsta ári, auk landabréfabókar með myndum. Bækurnar verða fyrst gefnar út á Spáni
en síðar á fleiri tungumálum.
Emilio hefur nú þegar tekið
90.000 myndir og munu þær ásamt
bókunum gagnast sem mikilvægar
heimildir fyrir skóla, fyrirtæki, fjölmiðla og fleiri. „1 hveiju landi kaupi
ég einnig sígilda tónlist hvers lands
og þegar ég flyt fyrirlestra spila
ég tónlist um leið, sem tengist landinu,“ segir hann.
Talinn njósnari Ghaddafis
Emilio segir að ferðin hafi að
mestu gengið áfallalaust, hann hafi
að vísu einu sinni lent i alvarlegu
slysi á mótorhjólinu og lá í viku á
spítala, í annað skipti fékk hann
malaríu og lá veikur í tíu daga. Auk
þess hefur hann setið í fangelsi,
m.a. vegna þess að yfirvöld í Chad
töldu hann vera njósnara á vegum
Ghaddafis. Ástæðan var sú að hann
hafði fengið sérstakt leyfi Ghaddafis til að komast inn í Líbýu, sem
þá var lokað ferðamönnum. Hann losnaði úr fangelsinu með því að
segja fangelsisyfirvöldum að hann
hefði fengið góðar móttökur í Líbýu
sem var talið „vonda“ landið en
hins vegar fengi hann slæma meðferð í þessu „góða“ landi. Þeir sáu
sér ekki annað vænna en sleppa
honum „vegna þessa leiða misskilnings“, segir Emilio og ypptir öxlum
brosandi.
Ég var líka settur í fangelsi í
Zimbabve, vegna þess að þeir héldu
að ég hefði falsað passann. Sömuleiðis í Afríku vegna myndatöku,“
heldur hann áfram. „Eitt sinn var
ég þó í lífshættu. Það var í Sómalíu, en ég var þar þegar stríðið
hófst og lenti í miðri skothríð milli
hermannanna og fólksins. — Hvað
um það, þetta er það líf sem ég lifi.
Fólk hefur oft spurt mig hvað
gerist þegar ég hef lokið ferðalaginu. Hjá mér er aldrei mánudagur
eða þriðjudagur eða klukkustundir
eða mínútur. Ég lifi bara við það
að sólin kemur upp á morgnana og
tunglið birtist á næturnar," segir
hann. „Ég get aldrei búið við það
að eitthvað ákveðið eigi að gerast
kl. 8 á mánudagsmorgni eða 9 á
þriðjudegi."
Er nú betri efnum búinn
Á sama hátt og Emilio gekk erfiðlega að fá menn til að leggja fé
til ferðarinnar í upphafi hafa
streymt til hans styrktaraðilar nú.
Má þar nefna Pepsi Cola, sem er
stærsti styrktaraðili hans, Honda,
ýmsar sjónvarpsstöðvar og fleiri
aðilar. „Vegna þessara fyrirtækja
get ég frekar einbeitt mér að vinnu
í stað þess að vera sífellt að leita
fjármögnunarleiða. Nú hef ég efni
á að eiga góða myndavél og get
þannig gefið fólki kost á að sjá það
sem ég sé á ferðalögum mínum.“
Vegna þess að flökkueðlið er
orðið Emilio svo eðlilegt segist hann
ætla að stofna fyrirtæki og bjóða
fólki upp á að kynnast löndum á
annan og meira spennandi hátt en
tíðkast hafi hingað til. Auk þess
muni hann flytja fyrirlestra og gefa
út bækur. „Mig langar líka til að
búa til kvikmynd um ferðina. Þar
sem ég hef ágæt sambönd í Bandaríkjunum ætla ég að reyna að fá
Steven Spielberg eða annan þekktan leikstjóra til að taka verkið að
sér.“ Hann sér þó ekki sjálfan sig
í hlutverkinu heldur góðan leikara,
enda er kannski óþarfi að fara í
þriðju heimsreisuna strax aftur?
MBL 10.4.1994
eftir Hildi Friðriksdóttur