FYRIR tíu árum birtist í Dagblaðinu auglýsing sem ætlað var
að ná athygli mótorhjólaáhugamanna á Islandi. Þeim var boðið
að koma að Æsufelli 2 fimmtudaginn 26. janúar til að stofna
mótorhjólaklúbb.
Undiritaður var einn þeirra sem
ekki lét bjóða sér tvisvar. Á þessum
fyrsta fundi hafa verið eitthvað á
milli 20 og 30 manns sem beittu á
næstu vikum öllum brögðum við að
ná til allra sem áttu eða komu á
einhvern hátt nálægt mótorhjólum.
Ef einhver sást á mótorhjóli úti á
götu var hann eltur uppi og boðið
að vera með. Formlegur stofnfundur
var síðan haldinn í Þróttheimum og
er 1. apríl 1984 talinn stofndagur
félagsins sem fékk, eftir mikið karp
og heilabrot, nafnið „Sniglar, Bifhjólasamtök lýðveldisins."
Tilgangur samtakanna var strax
nokkuð ljós, þ.e. að efla félagsanda
meðal mótorhjólafólks og vinna að
hagsmunamálum þeirra. Formlegu
félagsstarfí átti að halda í lágmarki
svo og skriffínnsku. Við áttum helst
ekki að hugsa um sniglana sem klúbb
því það var of uppalegt og ekki sem
félag því það var of formlegt. Málið
var að vera saman á mótorhjólum
því að það var okkar lífsstíll en ekki
að vera í félagi til að sitja á fundum.
Bifhjólasamtökin voru og eru sameiningartákn einstaklinga með áhuga á
mótorhjólum, svo gríðarlega fjölbreytilegt áhugamál sem það er. Eitt
var líka ljóst strax í upphafi. Það
átti aldrei að vera forseti, leiðtogi eða
foringi yfir hópnum.
Það breytti hins vegar engu um
það að rétt eins og í öðrum félagasamtökum kostar það vinnu fámennrar stjórnar að halda batteríinu
lifandi og þar rakst fyrsta stjórnin
á óvæntan þröskuld.
Úthýst af sósíalanum
Eitt af fyrstu verkefnunum var
að finna okkur samkomustað. Því
var strax leitað til Æskulýðsráðs því
undir það heyrir að styðja við allskonar félagsstarfsemi, m.a. að aðstoða með húsaskjól. Við áttum von
á því að fá dræm viðbrögð vegna
þeirra fordóma sem ríkja í garð
mótorhjólafólks en sú var reyndar
ekki raunin. Æskulýðsráði hefði
ekki verið neitt á móti skapi að vera
með puttana í svona starfsemi og
hafa einhvern áþreifanlegan flöt á mótorhjólafólki. En ... forsvarsmenn Æskulýðsráðs töldu það vera
órjúfanlegt náttúrulögmál að samtök eins og sniglarnir myndu deyja
og hverfa þegar upphafsmennirnir
hættu afskiptum sínum af starfseminni og því tæki einfaldlega ekki að
styðja við svo augljóslega skammlíft
félag. Borgarráð var sama sinnis
þegar því var sent erindið. Samtökin
flæktust því á milli kaffihúsa þar til
þau eignuðust sinn eigin samastað
í félagi við LÍA á Bíldshöfða 14.
Sennilega lúta Bifhjólasamtök lýðveldisins ekki náttúrulögmálum því
þau eru á lífí enn, aldrei sterkari,
þótt við sem komum þeim af stað
séum löngu orðnir víðvaxnir kótilettukarlar.
Áttahundruð og fjörutíu meðlimir
hafa verið í sniglunum á þessum tíu
árum sem þeir hafa starfað og hálft
þúsund eru félagsmenn nú. Samtökin halda uppá afmæli sitt um páskana með veglegri sýningu í Laugardalshöllinni.
Alvara fylgir ánægjunni
Eins og áður sagði er það fyrst
og fremst lífsstíll að vera á mótorhjóli. Það er ögrun í því að skera
sig úr fjöldanum og endalaus áskorun í því að komast óskaddaður leiðar sinnar og ná betra valdi á akstrinum. Ökumaðurinn öðlast með tímanum sérstakt samband við hjólið, veginn og umhverfið sem er mjög ólíkt
því að aka bíl. Einnig þróast smátt
og smátt það sem mótorhjólafólk
kallar þrjú hundruð og sextíu gráðu
huglæga skynjun, sem er sá eiginleiki að geta ímyndað sér allar hættur í umhverfínu og verið viðbúinn
þeim. Auglýsing, sem sýnd var í sjónvarpi í fyrra og hittifyrra og var
hluti af umferðarátaki snigla, var
einmitt um þessa skynjun. Myndavél
var fest við mótorhjól og hringur
dreginn utan um allt sem hugsanlega gat valdið hættu. Gott innskot
sem margir hljóta að muna eftir.
Frumkvæði að framförum
Bifhjólasamtökin hafa verið nokkuð í samvinnu við umferðaryfirvöld
í því að fækka mótorhjólaslysum.
Þau hafa lengi bent á brotalamirnar
í kennslu fyrir bifhjólapróf, sem satt
að segja var engin, og í framhaldi
af því og annarri uppstokkun í ökukennslu er nú verið að taka á þeim
málum. Nefnd á vegum samtakanna
hefur verið að reyna fá tryggingafélögin til að breyta reglum sínum og
tengja iðgjöldin við aldur ökumannsins og aflið í hjólinu, en víðast
mætt ótrúlegu skilningsleysi. Bestu
viðbrögðin hafa komið frá Skandia
Island og hljóta að minnsta kosti
reyndari ökumenn að beina viðskiptum þangað.
Það er persónulegt álit undirritaðs
að tengja þurfi ökuréttindi við vélarafl í tveimur til þremur þrepum og
gera litlu hjólin fýsilegri með því að
snarlækka á þeim gjöldin. Það er
enginn vafi á því að þeir sem hafa
verið í tvö ár á skellinöðrum áður
en þeir fá bílpróf eru betri ökumenn
en hinir sem aldrei hafa verið í
umferðinni. Sama gildir um stóru
hjólin. Nýir ökumenn ættu að öðlast
sína reynslu á léttum hjólum sem
auðvelt er að ráða við. Þau þurfa
samt langt í frá að vera máttlaus.
Svo virðist sem tryggingafélög
rugli saman háum skaðabótakröfum
mótorhjólaeigenda og skaðanum
sem þeir valda. Skýrslur sýna að
mótorhjólafólk er í rétti í 70-80%
tilvika og rökréttara að hækka iðgjöld þeirra sem slysunum valda,
þ.e. bíleigenda, og reyna síðan að
fá yfirvöld til að slá af geðveikislegum aðflutningsgjöldum af mótorhjólavarahlutum. Það myndi lækka
bótafjárhæðirnar til mótorhjólaeigenda. Hitt er annað að öllum slysum
þarf að fækka
Átak gegn slysum
Umferðarátaki snigla var hrundið
af stað árið '92 í framhaldi af mikilli iðgjaldahækkun tryggingafélaganna og var hugmyndin sú að lækka
iðgjöldin með því að fækka slysum
með markvissum áróðri. 15% fækkun slysa var metin sem 60 milljóna
króna sparnaður heilbrigðiskerfisins
og 10 milljóna króna sparnaður
tryggingafélaganna. Það er beinlínis
undarlegt að hið opinbera skuli ekki
styrkja svona verkefni almennilega.
Átakið kostaði tvær milljónir og átti
stóran þátt í að afla LÍA viðurkenningar Umferðarráðs fyrir góðan
árangur í umferðarmálum á umferðarþingi 1993.
Fjárskortur dró úr mætti átaksins
á síðasta ári, en fyrirætlanir eru
uppi um að gera betur í ár. Árvissir
fundir lögreglu, Umferðarráðs og
snigla hafa verið áhrifaríkur vettvangur skoðanaskipta og upplýsingastreymis í báðar áttir og hafa
bætt nokkuð samskipti þessara aðila, sem oft lita málin frá ólíkum
sjónarhornum.
■
Haraldur A. Ingþórsson
MBl 20.04.1994
MBl 20.04.1994