1.4.84
Sniglarnir Stofnaðir
Fjölbreytileiki mótorhjóla
Jón S. Halldórsson |
SKELLINAÐRA
Þetta eru létt og meðfærileg hjól með 50 cc vél sem skilar ekki miklu afli, komast yfirleitt í um 60 km hraða. Það eru hins vegar margargerðir til af hjólum sem flokkast undir skellinöðru en það er sameiginlegt þeim öllum að vélin er ekki stærri en 50 rúmcentimetrar. Slík stærð getur þó skilað hestöflum alveg frá 1 og upp í ca. 15 sem þó er mjög sjaldgæft. Skellinaðra er til í götuhjóla, torfæru, búðarsnatt og keppnishjóla útgáfu. Kemur sem sagt inn á öll svið mótorhjóla en er bara minnkuð útgáfa. Hérlendis hafa notkunarmöguleikar hjóla ekki verið eins miklir og erlendis aðallega vegna veðursins, en upp á síðkastið hefur nokkrum gerðum fjölgað verulega og mætt mikilli andspyrnu fólks sem takmarkaða þekkingu hefur á hjólum og dæmt þau öll „stórhættuleg farartæki sem helst ætti að banna". Þetta er ekki réttlátt og er meiningin með þessari grein að skyggnast örlítið inn í frumskóg mótorhjóla og sýna fram á réttileika þeirra.
En fyrst verður fólk að gera sér ljóst.
„Það er ekkert farartæki hættulegt, heldur hegðun einstaklingsins."
Á þetta við um flugvélar, bíla, báta,
hjól og alla aðra dauða hluti. Mótorhjól gæta hins vegar örlítillar sérstöðu vegna þess að þeim stýra yngstu einstaklingarnir sem oft hafa hvorki þroska né kunnáttu til þess. En þeirra er ekki sökin.
Fullorðnir hafa séð um þessa lélegu kennslu og þeir hinir sömu sýna vítavert gáleysi gagnvart hjólunum í umferðinni. Og það merkilegasta við þetta allt saman er að það ber meira á þessu hér
á íslandi heldur en erlendis einfaldlega vegna þess að hér ríkja alltof mörg boð og bönn. Það er bannað að snerta skellinöðru fyrr en 15 ára aldri er náð. Það er hvergi til æfingasvæði fyrir hjól né
annað nema ef vera skyldi að einhver kallaði göturnar æfingasvæði. Það eru framleidd mótorhjól og vélsleðar fyrir krakka niður í um það bil 8 ára aldur. Þannig tæki er ekki hægt að flytja inn til Íslands með góðu móti og sá sem það myndi gera væri eflaust álitinn snargeggjaður. Reyndin er hins vegar sú að hjól og bílar eru nauðsynleg farartæki og því fyrr sem barnið fær að kynnast þeim, því betra. Erlendis eru barnamótorhjólin mjög vinsæl og er keppt á þeim í nokkrum aldurshópum. Það er stórfurðulegt að hjá annarri eins bílaþjóð skuli nöldurhóparnir hafa náð að drepa niður þessa byrjunarkennslu en afleiðing þess er einmitt það sem allir kvarta yfir, slysin. Farartæki eru nauðsynleg bæði sem hlutur til að koma fólki frá stað A til B og einnig til þess að njóta þeirra sem leikfangs eða jafnvel hálfgerðrar mublu.
TORFÆRUHJÓL
Undir þennan flokk teljast enduro, trial og móto-cross hjól. Þau síðasttöldu eru fyrir hinar frægu móto-cross keppnir sem fara fram á lokuðum erfiðum brautum. Hjólin eru létt, spræk og með geysilanga fjöðrun. Keppt er í fjórum stærðarflokkum: 50-125-250 og 500 cc. Trial hjól eru mestu torfæruhjólin. Gerð til að klöngrast hægt yfir hinar ótrúlegustu torfærur. Góður lágsnúningskraftur, hátt undir lægsta punkt og mjög létt. Hvorug þessara hjólgerða eru notuð óbreytt til götuaksturs. Enduro hjólin eru milligerð þessara tveggja keppnishjóla og eru hugsuð fyrir þá sem vilja bæði hjóla á götunni og utan vega.
ÞRÍHJÓL
Undir þennan hóp má telja mótorhjól með hliðarvagn svo og hina nýju gerð þríhjóla sem hafa mjög breið kubbadekk og komast léttilega yfir mýrlendi, snjó og aðrar torfærur. Fara inn á svið vélsleða en koma einnig að gagni á auðu landi. Auðveld í notkun og er vaxandi eftirspurn eftir þeim sem vinnuþjarki fyrir bændur, fjölskylduleikfangi eða bara sem farartæki í öllum veðrum.
KVARTMÍLUHJÓL
Eru sérbyggð venjulega upp úr stærri götuhjólum. Vonandi verður þessi grein til þess að opna augu einhverra gagnvart mótorhjólinu og notkunarmöguleikum þeirra. Þau eru ekki eingöngu fyrir kolvitlausa krakkaglanna. Og að endingu lesandi góður, næst þegar þú ekur fram á mótorhjól í umferðinni, hugsaðu hlýlega til ökumanns hjólsins.
24.11.83
'MÓTORHJÓLAFÁRIÐ' í Vestmannaeyjum
Undanfarna mánuði hafa lesendabréf birst í bæjarblöðum af og til, þar sem lesendur hafa lýst áhyggjum sýnum yfir ástandi umferðar mála hér í bæ. Mest hefur borið á bréfum þar sem kvartað er yfir ógætilegum akstri ökumanna vélhjóla og hafa lesendur ítrekað krafið ráðamenn svara um úrbætur í þessum efnum. Til að varpa ljósi á málið höfðum við tal af Kristjáni Torfasyni bæjarfógeta. Hvaða ráðstafanir hefur lögreglan gert til að sporna við gáleysisakstri hér í bænum? Þctta mál er mun erfiðara en það virðist við fyrstu sýn. Fyrir það fyrsta, þá hef ég gefið fyrirmæli um, að lögreglan eigi ekki að elta þessa ökumenn mótorhjólanna, því að slíkt skapar mjög aukna slysahættu, auk þess sem þeim er í lófa lagið að stinga af eftir stígum og krókum sem lögreglan getur ekki lagt leið Við gætum mælt hraðann á ökutækinu, og tekið niður númerið á því, en þá er eftir að sanna hver það hali verið sem ók hjólinu. Yfirleitt eru þessir ökumenn með hjálma sem gera þá ill-þekkjanlega, svo að okkur er ómögulegt að sekta einn eða neinn. Hafið þið haft afskipti af ökumönnu m mótorhjóla hér í bæ? Já, og yíirleitt hefur því lokið með dómssátt, nema í einu tilfelli þar sem dómur var felldur og viðkomandi var sviptur ökuleyfinu. Við höfum einnig reynt að tala um fyrir þessum unglingum og því miður höfum við oft rekið okkur á skilningsleysi frá foreldranna hálfu í okkar garð, þegar við höfum reynt að tala um fyrir þeim. Þaðeru nokkuð einkennileg viðbrögð gagn vart þeim sem vilja aðeins reyna að bjarga þessum piltum frá því að fara sér að voða. Nú hefur nokkuð verið um alvarleg umferðarslys hér í Eyjum vegna mótorhjóla. Hafið þið orðið varir við að það drægi úr glannaakstri eftir þau? Svona fyrst eftir slysin urðum við varir við það, en það féll fljótlega aftur í sama farið. Hvernig er lögreglan í stakk búin til að mæla ökuhraða ökutækja? Við erum illa búnir af svoleiðis tækjum, við fengum sent rangt tæki í sumar sem við notuðum til hraðamælinga. Það átti að fara til Snæfellsness og sendum við það þangað. Við eigum nú í vændum nýja radarbyssu sem gerir okkur kleift að mæla hraða ökutækja með svo til engri fyrirhöfn. Eru þetta baldnir unglingar sem eiga mótorhjól? Það er ósköp upp og ofan, líklegast eru þeir eins og fólk er flest, þeir fá bara eitthvað út úr því að hafa svona mörg hestöfl á milli fótanna. Nú er bílaeign hér í Eyjum minni en á sambærilegum stöðum víðs vegar um landið. Hvernig er slysatíðni háttað hér miðað við landsmeðaltal ? Það er rétt, við höfum færri bíla hér en annars staðar miðað við fólksfjölda. Það er hins vegar sorgleg staðreynd, að hér er tíðni umferðarslysa jafnhá og annars staðar á landinu, þrátt fyrir færri ökutæki.
___________________________________________________________________
Þetta er dellubær
Það er ekki hægt að skilja svo við þetta mál, að kynna ekki viðhorf mótorhjólapiltanna sjálfra.
Tryggvi Sigurðsson leit hér inn í stutt spjall og kynnti sín viðhorf. Hann tók það fram að hann væri alls enginn fulltrúi allra hinna , en í Vestmannaeyjum eru nú 48 stór mótorhjól.
Sú gagnrýni , sem komið hefur fram á akstursmáta ykkar hér í bænum , finnst þér hún réttmæt ? Að mörgu leyti er hún það og að öðru leyti ekki. Við erum misjafnir í hátterni og skoðunum. Þeir sem eiga mótorhjól hér í Eyjum eru á bilinu 17-35 ára. Og þar á meðal eru bæði löghlýðnir og ólöghlýðnir einstaklingar, en ég held að mér sé óhætt að fullyrða það, að það er aldrei kappakstur hér í bænum. Slíkt fer fram inni á bryggju. A u k þess vildi ég benda á, að það sést ekki mótorhjól hérna meirihluta ársins, því við afskráum þau að hausti.
Af hverju keyrið þið þá svon a hratt í bænum ? Þessi hjól eru mjög kraftmikil og hágíruð, en bremsurnar á þeim eru mjög góðar og hemlunarvegalengdir eru mjög stuttar, miðað við hraða .
Af þessum 48 hjólúm, sem til eru í Eyjum, eru 75% tveggja ára og yngri. Og það er varla hægt að kvarta um hávaða í þeim, því að verksmiðjurnar, sem framleiða þessi hjól, hafa fengið fyrirskipunum að minnka hávaðann í þeim, vegna laga setninga þar um víðs vegar um heiminn.
Hafið þið haft í hótunum við lögregluna um , að láta ykkur í friði annars hafi þeir verra af ?
Ekki mér vitanlega. Ég held ég geti fullyrt að við virðum að mestu settar umferðarreglur. Það kemur fyrir að hraðinn er of mikill, en þá er lögreglunnar að grípa í taumana .
Hefur þú lent í umferðaróhappi ?
Já , það hafa tvisvar keyrt bílar í veg fyrir mig á mótorhjólinu, og var ég í rétti í bæði skiptin. Svo slasaðist ég einu sinni illa er ég var farþegi í Moskowitch bíl, sem valt undir Eyjafjöllum.
Af hverju eru svona mörg hjól í Eyjum ?
Eyjamenn hafa alltaf sóst í það að vera mestir í öllu, sem þeir taka sér fyrir hendur. Þetta er mesti „dellubær " á Íslandi.
30.9.83
Við eigum fullt erindi í þessa kalla
„Ég var gjörsamlega búinn eftir fyrri umferðina. hendurnar voru illa farnar ... " sagði Heimir Barðason, sem hér sést kreista lúnar hendurnar eftir keppni í Norðurlandameistaramótinu í Danmörku. |
„ÞETTA var erfiðasta braut sem ég hef nokkurn tímann keppt á í Moto Cross. Hún var varla hjólum bjóðandi, en það var mjög gaman og jafnframt lærdómsríkt að taka þátt í þessu," sagði Heimir Barðason, sem ásamt Þorvarði Björgúlfssyni og Þorkeli Magnússyni tók þátt í Norðurlandameistaramótinu í Moto Cross, sem fram fór í Danmörku á sunnudaginn.
„Strax í æfingaakstrinum sáum við að brautin yrði erfið, en hún var einn og hálfur kílómetri að lengd og ekin í 2x45 mínútur. Andstæðingarnir voru líka gífurlega leiknir. Brautin var mjög hörð og skemmdi mörg hjól illilega. í keppninni.
Það var svo mikill hristingur að allar skrúfur í hjólum okkar losnuðu," sagði Heimir. „í fyrri umferðinni af tveimur náði Þorkell á Kawazaki góðu starti og var í sjöunda sæti af 23 keppendum.
Þorvarður var á Hondu, var einnig nokkuð framarlega, en ég sat eftir á mínu Hansa-hjóli. Í einni beygjunni féllu 7—8 keppendur hver um annan þveran, og Þorvarður var einn af þeim. Ég komst framúr þessari kös og náði mér upp í fimmtánda sæti. Þorkell varð að hætta fljótlega þegar keðjan slitnaði á hjóli hans, en Þorvarður náði að halda áfram og var kominn í sextánda sæti þegar gírkassinn brotnaði og einnig sprakk að aftan hjá honum. Varð hann því að hætta keppni í fyrri umferðinni," sagði Heimir. „Ég var alveg í spaði, gjörsamlega búinn líkamlega eftir að hafa klárað fyrri umferðina," sagði Heimir.
„Hendurnar voru illa farnar, ég gat varla hreyft vinstri hendina. Grjótið hafði kastast svo mikið yfir mann, því við höfðum engar hlífar á hjólunum. Ég ákvað því að lána Þorvarði hjólið mitt, því hann átti nóg eftir í seinni umferðina. í startinu var Þorkell óheppinn,
Þorvarður Björgúlfsson ekur hér grimmt á Norðurlandameistaramótinu. Hann náði sjötta sæti, en féll af hjóli sínu og missti á tímabili alla framúr sér. Ljósmyndir Mbl. Otto Einarsson. |
Þorvarði tókst vel upp í byrjun og var kominn í sjötta sæti, eftir tvo hringi, en þá ofkeyrði hann og datt. Var hann þar með kominn í átjánda sæti, en náði framúr þremur keppendum áður en yfir lauk," sagði Heimir.
„Við erum nokkuð sáttir við hvernig þetta fór, þó okkur hafi ekki tekist að klára. Við sáum að við eigum fullt erindi í þessa kalla. Margir þeirra voru atvinnumenn og tóku þetta gífurlega alvarlega. Ég held að þessum bestu hafi varla stokkið bros fyrir keppni," sagði Heimir og hló.
„Sigurvegari í einstaklingskeppninni varð Finninn Jukka Sintonen á Yamaha, en Sören Mortensen varð annar einnig á Yamaha. í landsliðskeppninni vann Finnland, Svíþjóð varð í öðru sæti og Danir þriðja," sagði Heimir að lokum.
G.R Morgunblaðið 30.9.1983
15.9.83
Bíll Mánaðarins
Mótorhjól eða bíll, það er spurningin sem menn varða bara að svara sjálfir.
Þessi þáttur er ekki engöngu ætlaður bílum, heldur öllum athyglisverðum tækjum hérlendis og svo sannarlega flokkast þríhjól Ólafs Þórs Gíslasonar frá Akranesi þar með. Þessi þríhjólamenning er mjög vinsæl erlendis en hér sjáum við fyrsta alvöru þríhjólið á Íslandi sem sameinað er úr bíl og mótorhjóli.
Ólafur sem er 17 ára skagamaður á heiðurinn af þessu glæsilega farartæki en naut þó dyggrar aðstoðar " gamla mannsins" föður síns sem dundaði við að "rétta stráknum verkfærin"! Hugmyndin var fengin í bandarísku mótorhjólablaði fyrir rúmu ári síðan og þá var drifið í að panta yfirbygginguna ásamt framhjólabrettinu, ljósi og rafkerfi.
Framfjöðrunin er dálítið sérstök vegna langra gaffla og fór mikill tími í þá smíði. Afturendi þríhjólsins er úr VW bjöllu, en þannig útbúnaður er hvað vinsælastur í alls konar gerðir "kit kar" bíla og þríhjóla og hægt að fá nánast allt sem hugurinn girnist. Í dag er 1300cc vél og beinskipting í þríhjólinu hans Ólafs en fljótlega hyggs hann láta stærri vél ásamt sjálfskiptingu og læstu drifi í gripinn og ætti hann þá að geta spriklað tölvert því hjólið vegur ekki nema 250 kg. Þrátt fyrir að 2000 vinnustundir séu að baki og hjólið tilbúið að öllu leyti til aksturs þá hafa þeir ekki enn getað glatt augu áhugasamra Skagamanna.
Ástæðan?
Jú blessað Bifreiðaeftirlitið! Áttu ekki allir von á því? En einmitt vegna hræðslu við að leggja út í kostnað og heilmikla vinnu og eiga það svo á hættu að bifreiðaeftirlitið segi svo bara þvert "Nei", hafa þessi vinsælu þríhjól ekki fyrr sést hérlendis. Ólafur á því heiður skilinn fyrir kraftinn og áræðnina sem nú virðist ætla að bera árangur því viðbótarkröfur Bifreiðaeftirlitsins eru ekki óyfirstíganlegt vandamál. Hliðar og breiddarljós fyrir umferð á móti er sjálfsagður hlutur en handbremsa er nú dálítið vafamál. Þá kom einnig athugasamd að þríhjólið "myndi ekki henta íslenskum vegum" en sú athugasemd er svo gjörsamlega út í hött þar eð þessi tæki eru eingöngu notuð innanbæjar og á malbiki. Í framhaldi af því mætti svo endalaust ræða hvort öll skráð ökutæki henti íslenskum vegum eða ekki. Það eru því góðar líkur á því að Ólafur og VW Scorpion þríhjólið hans fari að sjást á götum Akranes og kannski líka Reykjavíkur því stutt er nú yfir að fara.
Fyrir skemmstu hélt Kvartmíluklúbburinn bílasýningu í Reykjavík og var þríhjól Ólafs einn af verðlaunagripum sýningarinnar enda mjög vel til verksins vandað eins og myndirnar sýna glöggt.
Við kveðjum svo þá feðga og óskum þeim til hamingju með árangurinn.
8.7.83
HJÓLIÐ HENTIST FJÖRUTÍU METRA
Frá slysstað á gatnamótum Rauðarárstígs og Flókagötu í gærdag. Bifhjólið ók áfram eftír ákeyrsluna, þeyttist yfír limgerði og staðnæmdist ekki fvrr en um fjörtíutíu metra frá gatnamótunum. |
Ungur maður á bifhjóli slasaðist er hann ók á kaðal sem lá strengdur aftan úr dráttarvél á gatnamótum Rauðarárstígs og Flókagötu um klukkan hálftvö í gærdag. Maðurinn kastaðist i götuna en bifhjólið hélt áfram um fjörutíu metra og staðnæmdist inni i garði hússins númer 17 við Flókagötu.
Bifhjólinu var ekið norður eftir Rauðarárstignum. Samtímis var verið að leggja rafmagnskapal meðfram Flókagötunni í vesturátt. Kapalinn var festur kaðall sem aftur var tengdur í dráttarvélina.
19.8.82
Æfingasvæði eina lausnin
segir Októ Einarsson hjá Vélhjólaíþróttaklúbbnum
„Við erum búnir að ræða þetta mál fram og til baka undanfarin ár og höfum komist að þeirri niðurstöðu að eina ráðið sé að skapa okkur afmarkað svæði utan vega”, sagði Okto Einarsson,Vélhjólaiþróttaklúbbnum, en hann er jafnframt fulltrúi hans i akstursiþróttaráði Landssambands islenskra akstursiþróttafélaga. „Það er vitað mál að margir sem eiga svona torfæruhjól aka á þeim hér á götum bæjarins og við sem stundum þetta sem iþrótt erum þeirrar skoðunar að ekki verði komið i veg fyrir slikt fyrr en aðstaða er sköpuð til að stunda þessa iþrótt á þar til gerðu svæði. Fyrr hvefur ekki aksturinn hér á götunum sem auðvitað veldur margvislegum vandræðum”.
— Tryggingafélögin hafa ekki fengist til að tryggja þessi hjól?
— Nei, og af eðlilegum ástæðum þar sem þau eru ekki skráð. í þessari iþrótt sem á erlendu máli hefur verið kölluð mótor-cross en á islensku „hólakapp” (!) er beinlinis talið hættulegt fyrir ökumenn hjólanna að á þeim sé aukabúnaður eins og útstandandi speglar og ljós. Þess vegna teljum við útilokað að skrá hjólin og þar með tryggja eftir venjulegum leiðum.
— En hvað með torfærukeppnirnar?
— Þær eru haldnar eftir að við höfum aflað okkur leyfis frá dómsmálaráðuneyti, lögreglu og viðkomandi bæjarlélagi. islensk endurtrygging hefur selt okkur tryggingu meðan á keppni stendur en þó eftir að við höfum undirritað sérstakt bótaalsal þannig að við fáum ekki bætur nema fyrir örkuml eða dauða. Samt þurfum við i dag að greiða um það bil 10.000 krónur i tryggingar fyrir eina slika keppni. — Hafið þið itrekað beðið um sérstök æfingasvæði? — Já, það er vist óhætt aö segja það. Áður en okkar landssamband var stofnað vorum við i Félagi Íslenskra bifreiðaeigenda. FIB sendi bréf til borgarstjórnar Reykjavikur og bað um æfingasvæði fyrir okkur á torfæruhjólunum. Ekkert kom út úr þvi. Við sendum svo bréf til borgaryfirvalda fyrir tveimur árum og svar við þvi bréfi hefur ekki einu sinni borist ennþá. — Og þið hafið þá i raun hvergi getað æft? — Við höfum haft bráöabirgðaleyfi fyrir svæði upp við Rauðavatn og auk þess er okkar aðalsvæði suður við Grindavikurafleggjara, rétt hjá Keflavikurveginum. Þar höfum við svæði á s.k. Broad-street en þangað er alllangt að fara fyrir allan þann fjölda sem býr hér á Reykjavikursvæðinu þannig að þar er aðeins um bráðabirgðalausn að ræða einnig. Það sem þarf til að koma er að við fáum aímarkað æfingasvæði sem við mundum sjá algerlega um sjálfir. Þá fyrst væri möguleiki á að útrýma að mestu þeim torfæruakstri sem sifellt er að aukast hér á götum bæjarins, sagði Októ Einarsson að lokum.
Þjóðviljinn 19.ágúst 1982
17.4.82
Þrælskemmtileg þríhjól 1982
Motorsport 4.tb. 3 árg.82
Það er ekki mörg ár síðan framleiðsla svokölluðu ,,Three wheeler" hjólana hófst. Það má segja að þetta sé milligerð vélsleða og mótorhjóls, jafnvígt á auðu og í snjó, þægilegt í meðförum og alveg tilvalið fyrir þjóðir eins og íslendinga. Það er því meiningin með þessari grein að kynna fyrir ykkur lesendur góðir, kosti og galla þessara hjóla og fyrir hverja hjólin eru heppileg. Að vísu er einstaklingbundið hvort viðkomandi hafi hug á leikfangi eða vinnutæki eða hvoru tvekkja. En víkjum fyrst að smíði þeirra og uppbyggingu.Mótorsport
14.2.82
Próflausum strákum fjölgar
„Próflausum
strákum
á mótorhjólum
fjölgar
ört"
Foreldrar kaupa sér frið
Reynir á þol og hugsun
Munar oft mjóu að maður sé hreinlega keyrður niður
Finnst þér vera tekið tillit til fólks á mótorhjólum i umferðinni?
Ég berst á fáki fráum! 1982
Frá vinstri Þorsteinn, Hugi, Haraldur og Kjartan. |
— Unglingasíðan ræðir við þrjá mótorhjólatryllara
■ ,, Honda", „Yamaha", „Suzuki" „allirstrákarnir fá hjól!" Hver kannast ekki við þennan frasa?
Þetta viröíst vera visst skeið á þroskaferli flestra stráka / að dást að þessum mikla krafti sem þeir geta hamið milli fóta sér. En hvers vegna eru yfirleitt bara strákar á mótorhjólum? Ég hef litla trú á því að þetta sé einungis karlkyns íþrótt, alla vega hef ég séð ófáar stelpur sitja aftan á mótorhjólum, æpandi kannski af „æsing" eða „hræðslu". Þetta er kannski endurvakning rómantíkurinnar i nútímalegum búningi/ sem sagt að það sé karlmannlegt að vera á mótorhjólí, þvi þar fá strákarnir tækifæri til að sýna listir sínar og þor með ýmsum brögðum. Einnig gæti svarið falist í undirtektum foreldra, jú það er i lagi þó strákurinn fái hjól, það er bara eðlilegt. En stelpan! Hvað hefur hún að gera með það? hún er kolrugluð! En hvað um það.flestir sem ætla sér komast yfir mótorhjól og keyra það jafnvel próflausir. Foreldrar virðast standa ráðalausir gagnvart þessum vanda, og hafa kannski þurft að horfa upp á börn sín limlestast eða að þau haf i hlotið varanlegan andlegan skaða af völdum slyss á mótorhjólinu. Ég náði tali af þrem 15 ára Garðbæíngum sem allir eiga og hafa áhuga á mótorhjólum. Þeir heita Kjartan Björgvinsson, Hugi Ingibjartsson og Haraldur Grétarsson.
K: Ég rændi fyrsta mótorhjólinu frá bróður minum þegar ég var 13 ára það er að segja ég borgaði ekkert út og afganginn eftir minni. En blessuð ekki skrifa það þvi þá rukkar hann mig!
Hu.: Ég vann 500.000.- gamlar krónur i happdrætti þegar ég var 14 ára og fyrir þann pening keypti
ég mér hjól.
Ha.: Mamma og pabbi hjálpuðu mér að kaupa hjól þegar ég var 14 ára það er að segja þau
borguðu útborgunina og ég einhvern slatta. — Nú fáið þið ekki próf á hjólin fyrr en 15 ára keyrðuð þið próflausir til að byrja með?
K.: Já blessuð vertu það gera flestir, ég fékk hjólið 13 í ókeyrsluhæfu ástandi. Ég gerði við það í snatri og byrjaði að nota það.
Hu: Ég átti að horfa á hjólið inni i bílskúr þangað til ég yrði 15 ára og fengi prófið, en auðvitað
freistaðist maður, og til að byrja með mátti maður keyra fram og aftur götuna heima en maður
varð fljótt þreyttur á þvi svo þetta þróaðist fljótlega út í það að maður var farinn að keyra um
allan Garðabæinn.
— Hvað sögðu foreldrar ykkar við þvi að þið væruð að keyra próflausir á hjólunum?
Ha.: Þeir „sungu" i fyrstu!
K.: Þeim var nátturulega mjög illa við það, en hvað gátu þau gert við vorum komnir með hjólin í
hendurnar.
Notaði aukalyklana þegar löggan tók hina
Hu.: Ég var tekinn einu sinni, löggan tók lyklana af hjólinu minu og ætlaðist til að mammamyndi geyma þá og ábyrgjast að ég myndi ekki snerta hjólið fyrr en ég fengi prófið. Mamma
treysti sér ekki til þess að ábyrgjast þetta svo löggan fór með lyklana mina, en ég notaði auðvitað
aukalyklana af hjólinu!
K.: Löggan reyndi oft að ná mér og vinum minum en tókst það aldrei við stungum hana alltaf af.
— Hvernig?
K.: Við þræddum alla göngustigana og stundum slökktum við ljósin á hjólunum ef það var myrkur og keyrðum ljóslausir, við gátum alltaf stungið hana af.
— Hver er tilgangurinn með þvi að eiga mótorhjól?
Ha.: Hjólið er mjög gott samgöngutæki maður er miklu fljótari i ferðum en annars.
K.: Svo er það lika leiktæki.
— Hvað meinarðu með leiktæki?
K.: Nú það er hægt að nota það til að stinga lögguna af! svo er lika mjög gaman að fara i sandgryfjurnar og tæta þar upp og niður.
— Eruð þið í einhverjum mótorhjólaklúbb?
K.: Já ég er i V.í.K. sem er skammstöfun fyrir Vélhjólaiþrótttaklúbbinn. Þetta er klúbbur fyrir áhugamenn um Motor Cross hjól, en það eru torfæruhjól sem maður notar ekki á götuna, klúbbmeðlimir hittast einu sinni i mánuði á Hótel Loftleiðum og rabba saman en á sumrin er oft farið i ferðir út á land.
Stoppaðar buxur, járnslegnir skór, brynja og hjálmur
— Þarf ekki vissan útbúnað ef maður er á torfæruhjólum?K.: Jú ég á buxur sem eru allar stoppaðar, svo er ég i járnslegnum skóm, siðan er maður i brynju
sem sett er yfir bringuna og siðast en ekki síst hjálmur.
— Á hvernig hjólum eruð þið?
Ha.: Við erum allir á 50 kúbbiga Hondum, en Kjartan á lika Yamaha torfæruhjól.
— Hafið þið ferðast eitthvað út á land á hjólunum?
K.: Ég fór i fyrrasumar til Selfoss.
Hu.: Við förum litið út á land á þessum hljólum, þetta eru aðallega samgöngutæki innanbæjar.
— Stefnið þið að þvi að fá ykkur stórt götuhjól og ferðast til útlanda á þeim?
Hu.: Nei alls ekki, það er ekkert gaman að þeim, ég ætla miklu heldur að fá mér stórt torfæruhjól, maður kemst svo æðislega margt á þeim. Það væri t.d. fint fyrir bændur að smala á þeim, það er hægt að klifra upp flest fjöll og komast yfir flestar ár.
Ferlega dýrt
— Hvernig stendur á þvi, að miklu færri stelpur en strákar eru á mótorhjólum?K.: Það er eiginlega okkur eiginlegt að hafa kraftinn á milli fótanna — AhahaA! —
Ha.: Þær vilja kannski nota peningana I annað, þetta er dýrt sport, fyrst þarf maður að kaupa
hjólið og svo er það bensinið maður! Þó að hjólin eyði litlu þá er þetta ferlega dýrt.
— Hvernig farið þið að þvi að reka hjólin?
K.: Ég vinn með skólanum i Garðshorni.
Ha.: Karlinn og kerlingin borga það yfirleitt.
Hu.: Það er yfirleitt hægt að redda pening.
— Breyttist vinahópurinn með tilkomu mótorhjólanna?
K.: Maður kynnist nátturulega fullt af krökkum i kringum hjólin.
Hu.: Það eru svo margir sem nenna ekki að ganga!
Ha.: Vinahópurinn breytist ekki þannig að maður hætti að vera með gömlu vinunum þó þeir eigi ekki hjól, hópurinn stækkar frekar, það er að kunningjunum fjölgar.
— Finnst eða fannst ykkur flott að vera á mótorhjólum?
K.: Fyrst fannst manni þetta æðislegt, svo kemst maður fljótt að þvi hversu þægilegt þetta er.
Ha.: Maður notar hjólin mikið vegna þess hve fljótur maður er á milli staða.
K.: — og maður litur ekki eins á hjólin i dag eins og maður gerði t.d. fyrir 2 árum. Þetta er meira
til þæginda.
— Er þá ekki næsta skref að fá sér bilhræ til að liggja yfir eða undir og keyra siðan próflaus i
einhvern tima?
K.: Ha! Nei, ertu vitlaus!
— Er tekið tillit til ykkar i umferðinni?
Hu.: Það er misjafnt, stundum og stundum ekki.
— Hvað komist þið hratt á hjólunum?
Það rífa allir innsiglin af
Hu.: Við eigum ekki að komast Í yfir 50 km hraða á klst. vegna þess að hjólin eru innsigluð, enmaður tekur auðvitað innsiglið af og þá kemst maður yfir 100 km hraða á klst.
K.: Það rifa allir undantekningalaust innsiglin af.
— Hafið þið þá aldrei verið teknir fyrir of hraðan akstur?
Hu.: Jú ég var tekinn á 105 km hraða á Hafnarfjarðarveginum, en þrætti fyrir það,sagðist vera á
85 km hraða og löggan samþykkti það.
— Þegar þú varst tekinn á þessum hraða gerði lögreglan ekki athugasemd út af þvi að innsiglið var farið af hjólinu?
Hu.: Nei, hún skipti sér ekkert af þvi, hún gerir það aldrei, maður fær bara sekt.
— Hafið þið lent i slysi á hjólunum?
Hu.: Ég var keyrður niður um daginn, en var i 100% rétti, ég marðist aðeins, og fékk allt borgað úr tryggingunum.
— Hafið þið einhver önnur áhugamál?
K.: Já ég er mikið á skiðum.
Hu.: Ég veit ekki, ekkert held ég, jú! Ég á talstöð og ligg oft yfir henni.
Ha.: Ég æfi iþróttir.
— Þegar þið hugsið til baka finnst ykkur ekki glæfralegt að hafa verið á hjólunum próflausir?
K.: Jú sérstaklega vegna þess að maður hafði ekki umferðarreglurnar á hreinu, eins og t.d.
hver ætti réttinn þegar maður kom að gatnamótum, maður gerði bara eitthvað. Lika vegna
þess að maður var i gjörsamlegum órétti t.d. ef maður hefði slasað einhvern þá þyrfti maður að
borga sjálfur skaðabætur til hins slasaða, úr eigin vasa.
Ha.: Það sama skeður ef eitthvað kæmi fyrir þann, sem maður reiðir þó maður hafi próf.
Hu.: — maður er alltaf i órétti þegar maður reiðir.
— Gerið þið ykkur grein fyrir þeim slysahættum sem geta stafað af þessum hjólum?
Ha.: Já, já.
Hu.: Þetta er ekkert ofsalega hættulegt maður keyrir venjulega bara hratt á steyptum, beinum vegi, hvað ætti að geta komið fyrir?
K.: Góði, það hafa mörg slys einmitt skeð við þannig aðstæður!
— Að lokum voru þeir sammála um það að slysin gera ekki boð á undan sér og að þau geta jafnvel
átt sér stað á beinum, steyptum vegi.
17.12.81
Sandspyrna B.A.(1982)
Kawasaki 650 á Járnskóflum |
Sandspyrna Bílaklúbbs Akureyrar.
Úrslit
Skellinöðrur- Haldór Bachman Yamaha MS 50 8,93sek
- Viðar Þórarinsson Honda MT 50 8.99 -
- Björn Júliusson Suzuki AC 50 9,26-
- Bragi Finnbogason Pontiac 5,61 -
- Haukur Sveinsson Duster 6,89 -
- Brynjar Guðmundsson Pontiac 6,56 --
- Þorsteinn Gunnarsson Duster -----
- Sveinbjörn Jónsson Bronco 6.90 --
- Einar Schiöth Willy's 7,21 --
- Guðmundur Gunnarsson Willy's 5,51--
- Halldór Jóhannesson Willy's 5.83--
- Sveinn Rafnsson Dodge GTS 9,10--
- Þórður Valdemarsson VW 9,18
- Jens Kristjánsson Nova 9,41
1.7.81
Evrópa séð af mótorhjóli (1981)
Valgerður og Sigurborg |