„Próflausum
strákum
á mótorhjólum
fjölgar
ört"
- segir Þorvarður
Björgúlfsson,
sem tvívegis
hefur orðið
íslandsmeistari
i Motorcrosskeppninni
■ Þeir sem áhuga hafa á
mótorhjólum sem leiktækjum eða sporti fylgjast
sennilega með Mótor Cross
keppnum sem haldnar eru
með vissu millibili. Mér
fannst þvi tilvalið að ræða
við Þorvarð Björgúlfsson
sem unnið hefur islandsmeistaratitilinn tvisvar í
Mótor Cross keppnum.
Hvað varstu gamall þegar þú
fékkst fyrst áhuga á mótorhjólum?
— Ég var 13 ára, þá voru
strákarnir að byrja að fá sér hjól
og maður varð alveg sjúkur þegar þeir voru tætandi hjólin upp og
niður göturnar próflausir og
fannst náttúrlega óréttlátt að þeir
fengu að keyra um, en ekki ég.
Hvers vegna varst þú ekki
lika á hjóli?
— Það var.númer eitt af þvi að
foreldrar minir sögðu þvert nei
við þvi að ég væri á hjólinu próflaus. Svo spilaði peningaleysið
einnig inn í, ég átti náttúrlega
ekki pening fyrir hjóli þegar ég
var 13 ára gutti. Þá fór dellan i
lægð i smá tima, en þegar ég var
aö verða 15 ára keypti ég mér
fyrsta hjólið, og var þá búinn aö
aura saman öllum þeim pening
sem ég náöi I. Upp úr þvi varö ég
bitinn og kokgleyptur af dellunni.
Frá 15 til 17 ára aldurs er mótorhjól eina löglega farartækið sem
unglingar mega vera á, fyrir utan
reiðhjól, maður veröur mjög
fljótt háður þessu farartæki, þaö
er létt og lipurt og maður nennir
hreinlega ekki að labba neitt eftir
aö maður verður háður þeim,
þetta er nákvæmlega það sama
og hendir bileigendur.
Er mikið um það að krakkar
keyri hjólin próflaus?
— Já mjög mikið, það má segja
að flestir sem hafa áhuga á
mótorhjólum komist yfir hjól á
aldrinum 13-14 ára. Ég held ég
geti sagt að aukningin á próflausum strákum á mótorhjólum hafi
byrjað fyrir svona 5-6 árum og
siðan hefur þeim fjölgað ört.
Foreldrar kaupa sér frið
— Hvers vegna?
— Krakkar hafa miklu meiri
pening handa á milli i dag en áður
tiðkaðist, foreldrarnir eru of uppteknir af sjálfum sér og skipta sér
takmarkað að þessu og jafnvel
kaupa sér friðinn. Lögreglan tekur ekki nógu hart á þvi að krakkar séu að keyra próflausir, þegar
hún tekur próflausan einstakling
þá er farið með hjólið niður á stöð og foreldrarnir látnir sækja það,
og síðan er smá peningasekt.
Þetta getur endurtekið sig aftur
og aftur.
Hverja telur þú skýringuna á
þvi að færri stelpur eru á mótorhjólum en strákar?
— Ég tel að það geti verið margar ástæður fyrir þvi, þær
hafa yfirleitt mikið minni pening
handa á milli en strákar, sem
stafar fyrst og fremst af þvi hve
þærfá verr launaða vinnu og einnig hversu erfitt er fyrir þær að fá
vinnu á sumrin. Nú svo, ef þær
eignast einhvern pening, þá kjósa
þær yfirleitt frekar að eyða honum i eitthvað annað. Ástæðan
gæti lika verið þessi gamla,
þekkta um hlutverkaskiptin. Svo
getur það lika verið almenningsálitið, ég man eftir þvi þegar ég
var að byrja, þá voru nokkrar
sem fengu sér hjól, þær misstu
fljótlega samband við hinar
stelpurnar, sem voru ekki á hjólum, en komust ekki alveg inn i
hóp strákanna, sem voru á hjólum, þær urðu þvi mjög oft einar
og á milli hópa, og yfirleitt fengu
þær viðurnefni af hjólinu. En sem
betur fer er þeim alltaf að fjölga
og ég get bætt þvi við að strákar
liti frekar upp til stelpna sem eru
á hjólum.
— Hvenær byrjar þú svo i Mótor
Cross?
— Dellan fyrir torfæruhjólunum kviknaði i gryfjunum. Félagslifið er venjulega mjög mikið þar
og þangað getur maður farið og
fengið útrás á hjólinu þ.e. tætt
upp og niður hæðir og dali, prjónað og stokkið, óáreittur af lögreglunni. Upp frá þessu gerðist ég
félagi i Mótor Cross klúbbnum.
Reynir á þol og hugsun
Hvað er Mótor Cross?
— Mótor Cross er fyrst og
fremst sport, þetta er keppnisgrein og önnur erfiðasta íþróttagreinin. Þegar maður er i keppni
eða að æfa þá reynir þetta bæði á
þol og hugsun. Maður þarf að vera fljótur að hugsa og taka
ákvarðanir um það hvernig og
hversu mikið á að halla hjólinu i
beygjum, hvar eigi að bremsa og
hvar eigi að vinna upp hraðann.
Til gamans má geta þess að þeir
sem æfa þrekæfingar reglulega
eru gjörsamlega búnir eftir einn
góðan túr á torfæruhjóli. Þessi
iþróttagrein er mjög fjölbreytt
maður kemst um allt bæði á vetrum og sumri.
Fer gróðurinn ekki illa á þvi
þegar þið tætið upp og niöur
fjallshliðar og fjöll?
— Það er útbreiddur misskilningur að við tætum upp allan
gróður um þær slóðir sem við förum, þvi i þeim ferðum sem ég hef
farið i, þá hafa verið tætt upp
fjöll, sem eru gróðursnauð, en við förum um göngustiga á þeim
stöðum sem eru grónir, leiðirnar
eru alltaf valdar i gróðri og passað er upp á að eyðileggja ekkert.
— Eru margir félagar í Mótor
Cross klúbbnum?
— Nei það eru ekki margir
félagar i klúbbnum. Þessi grein
fær mjög litla kynningu i fjölmiölum og er þá hægt að nefna sjónvarpið sérstaklega. Bjarni Felixson hefur marg oft lofað að koma
og láta taka myndir en alltaf
svikið það. Þetta er mjög slæmt
þvi við þurfum bara góða kynningu, það hefur marg oft komið
fyrir að fólk slysast til að koma á
keppni, það verður undantekningalaust mjög hrifið, og
þakkar okkur fyrir góða og
spennandi keppni. Fólk hefur oft
orð á, að það hefði ekki trúað, að
það gæti verið svona gaman á
keppnum.
Munar oft mjóu að maður sé hreinlega keyrður niður
Finnst þér vera tekið tillit til fólks á mótorhjólum i umferðinni?
— Nei alls ekki, það kom oft
fyrir að það munaði mjóu, að
maður væri hreinlega keyrður
niður, þvi ökumenn bifreiða
reikna aldrei með því að mótorhjól eða aðrir farkostir en bílar
séu í umferðinni.
Hvað mundir þú ráðleggja
unglingum á mótorhjólum i umferðinni að varast?
— Ég myndi segja að maður
mætti aldrei trúa á náungann,
taka verður fáránlegustu viðbrögð með í reikninginn. Mitt
motto er að ef maður ætlar að lifa
það af að vera á mótorhjóli á götunni, þá verður maður að vera
eins og einstaklingur sem haldinn
er ofsóknarbrjálæði!
Tíminn 14.2.1982