Við vildum bara minna á skoðunardaginn okkar hjá Frumherja sem er núna laugardaginn 25. maí (næstkomandi laugardag) frá kl 10-14. Greiddir félagar fá 60% afslátt af skoðunargjaldi þennan dag, og einnig verða grillaðar pylsur á boðstólnum fyrir gesti :-)
Vonumst til að sjá sem flesta félaga!
Með bestu kveðju
Tían - Bifhjólaklúbbur Norðuramts
23.5.13
22.5.13
Með kaffi í blóðinu
Það er í góðum félagsskap á sveitahótelinu Hraunsnefi í Borgarfirði sem maður fer að velta fyrir sér hverskonar snilldargripur Moto Guzzi V7 hjólið er. Fyrir framan undirritaðan er gómsætur hamborgari á diski og góðir félagar. En í kollinum er aksturinn frá Reykjavík á þessum létta ítalska kaffireiser sem sjálfur er einmitt góður félagi.
Reynsluaksturinn hófst í Reykjavík deginum áður og strax bauð mótorhjólið af sér góðan þokka. Það er samdóma álit þeirra sem hafa séð hjólið að Moto Guzzi V7 sé ekta og dæmigert mótorhjól, svona hjól eins og unglingur myndi teikna ef hann væri beðinn um að teikna mótorhjól. Moto Guzzi V7 er lágt og lipurt að sjá, V-vélin er skemmtileg á að líta og kaffireiser sætið stílhreint. Tankurinn mátulega voldugur og mælaborðið og framljósið látlaust. Útlitslega er Moto Guzzi V7 því skólabókardæmi um mótorhjól.
Strokkasinfónía í hæsta gæðaflokki
En það leynir þrátt fyrir það á sér í mörgu tilliti. Vélin er ekki sérlega stór eða öflug, 744 cc og 48 hestöfl. En það hve þýð vélin er skiptir verulegu máli og hún skilar sínu mjög skemmtilega. Hún er snögg upp á snúning og í raun gerir þessi hógværa en þýða vél manni kleift að nýta allt aflið sem mótorhjólið hefur án þess að brjóta hraðareglur. Það þýðir að akstur á þessu hjóli innanbæjar er gríðarlega skemmtilegur vegna þess að það er svo mikið að gerast.
jólið purrar á rauðu ljósi og á grænu er smellt í fyrsta og gjöfinni snúið, annar fylgir rétt á eftir og svo þriðji og jafnvel fjórði – allt innan marka skynseminnar og með adrenalínflæði í öfugu hlutfalli. Allan tímann má heyra strokkasinfóníu í hæsta gæðaflokki úr tvöföldu pústkerfinu – með skemmtilegum baksprengingum og smellum þegar slegið er af gjöfinni.
Lipurleiki hjólsins er framúrskarandi. Stýrið er mátulega breitt og akstursstaðan er góð en það verður þó að segjast eins og er að hjólið er eflaust í minnsta lagi fyrir þá sem eru yfir 185 á hæð. Á móti kemur að hjólið er ákaflega skemmtilegt í höndunum á færum ökumanni og hrekklaust byrjandanum. Það er til að mynda hægt að losa afturdekkið í akstri án þess að auka púls hjartans – svo góð stjórn er á hjólinu sem sker sig í gegnum beygjur fyrirhafnarlaust.
Skynsamlegur pakki
En Ísland er ekki bara innanbæjar og í þjóðvegaakstri býður hjólið af sér góðan þokka. Það þolir ekki mikinn mótvind hinsvegar, til þess er það of létt og vélin þarf þá að rembast örlítið. Fjöðrunin er hinsvegar þokkaleg á þjóðvegahraða á misgóðum vegum landsins og lítið mál var að fara í mátulega langferð úr borginni og að Bifröst í Borgarnesi. Þó væri skynsamlegt að hafa í huga að fjöðrunin er fremur slagstutt og mjúk sem þýðir að hún getur slegið saman á mestu ójöfnunum. Kaffireiserinn er samt vel til þess að þeysa á milli kaffistaða, jafnvel þótt sérstaklega vel sé lagt í vegalengdina.Moto Guzzi V7 er í raun nokkuð skynsamlegur pakki. Hjólið er loftkælt eins og svo mörg önnur mótorhjól, vel smíðað og samsett, ræður yfir góðum bremsum og afskaplega þýðum gírkassa. Þá er það ótvíræður kostur að hjólið er með drifskafti og því þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af sliti í keðju eða hvimleiðu viðhaldi. Það er ágætt pláss fyrir farþega, allavega fyrir styttri ferðir og óvæntur plús var sá að bæði virtist eldsneytiseyðsla hjólsins vera mjög lítil og eins er tankurinn stór. Það má því búast við því að hægt sé að aka töluvert langt á milli fyllinga, kannski jafnvel 400 kílómetra. Sennilega hjálpar þyngd hjólsins því á flestum sviðum því það er ekki nema um 180 kíló.
Á réttum forsendum
Í stuttu má segja að þessi lipri kaffireiser fangi fullkomlega fegurð sjöunda áratugarins í mótorhjólum með allri tækni og þægindum nútímans.Hin ítölsku Moto Guzzi mótorhjól eru sjaldgæf á Íslandi og það er kominn tími til að landinn skoði eitthvað annað en hið dæmigerða og augljósa þegar kemur að mótorhjólum. Mótorhjól snúast auðvitað um stíl og skemmtun – þau ættu allra síst að veljast á sömu forsendum og vísitölubíllinn. Fyrir þá sem líta á mótorhjól sem fullnustu lífsstílsins ætti þessi lipri kaffireiser að passa fullkomlega.
ingvar.orn.ingvarsson@gmail.com
Kostir
Sparneytið, lipurt, rekstrar-hagkvæmni drifskaftsins og sígilt út-litGallar
Helst til slagstutt fjöðrun, hjólið getur virkað lítið undir há-vöxnu fólki
Morgunblaðið | 22.5.2013
19.5.13
SPESSI LJÓSMYNDAÐI MÓTORHJÓLAMENNINGU Í MIÐRÍKJUM BANDARÍKJANNA
„Þetta er svo mikil Ameríka“
ÉG KOMST INN Í ÞENNAN HÓP OG KYNNTIST MENNINGUNNI INNAN FRÁ,“ SEGIR LJÓSMYNDARINN SPESSI. SÝNING Á LJÓSMYNDUM HANS AF BANDARÍSKUM MÓTORHJÓLAKÖRLUM VERÐUR OPNUÐ Í LJÓSMYNDASAFNI REYKJAVÍKUR OG ER Á DAGSKRÁ LISTAHÁTÍÐAR.
Þegar maður vinnur svona verkefni verður maður að sýna ákveðið hlutleysi og ekki setja sig í neitt dómarasæti. Manni er treyst. Fólkið fann að ég hef áhuga á þessari mótorhjólamenningu, og ég varð á vissan hátt hluti af henni,“ segir Spessi ljósmyndari, Sigurþór Hallbjörnsson, um sýninguna Nafnlaus hestur sem hann opnar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á laugardag klukkan 13. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík.
Á sýningunni eru ljósmyndir á mótorhjólaköppum sem Spessi myndaði á árunum 2011 og 2012 en þá var hann búsettur í Kansas í Bandaríkjunum og myndaði þar í kring – á einhverju fátækasta svæði Bandaríkjanna. Hann segir markmiðið hafa verið í senn að skrá og veita innsýn í þennan sérstaka menningarkima, sem hann hefur sökkt sér í. Ásamt Bergsteini Björgúlfssyni kvikmyndagerðarmanni vinnur hann nú einnig að heimildakvikmynd um mótorhjólameninguna, „bækerana“ eins og þeir eru kallaðir þessir karlar sem bruna um þjóðvegina og mörgum stendur ógn af, enda sumir þeirra bendlaðir við sitthvað misjafnt.
Spessi er einn kunnasti ljósmyndari landsins, þekktur fyrir afgerandi hlutlægan stíl hvort sem hann sýnir fólk eða staði; margir þekkja bækur hans Bensín og Location. Hann segir þetta verkefni hafa legið í loftinu í mörg ár, allar götur síðan hann sá kvikmyndina Easy Rider í London árið 1979 í London. „Fyrsta mótorhjólið eignaðist ég árið 1986, svo tók ég mér hlé en upp úr aldamótunum fékk ég mér Harley Davidson-hjól og öðlaðist mikinn áhuga á þessum kúltúr. Mér fannst hann spennandi og langaði að kynna mér betur hvaðan hann kemur,“ segir hann.
„Þeir hafa lifað lífinu“
Áhuginn gat ekki annað en leitt Spessa til Bandaríkjanna – „í upphafi er þetta amerísk menning,“ segir hann. Í byrjun árs 2008 lét Spessi sérsmíða fyrir sig mótorhjól í Las Vegas og þegar það var tilbúið um vorið flaug hann út og ók á því á mótorhjólahátíð í SuðurDakóta, og svo áfram suður til Memphis í Tennessee. „Á þessum tíma ákvað ég að gera portrettbók um mótorhjólamenn,“ segir hann. Kunningi hans stakk upp á því að hann gerði samtímis heimildamyndina um þessa menningu. Síðan hefur verkefnið þróast og Spessi ákvað að hann þyrfti að dvelja um tíma vestanhafs, í nábýli við eigendur mótorhjólanna stóru. „Ég endaði í Kansas þar sem konan mín fór í skóla sem skiptinemi – og það var hárrétti staðurinn! Þetta er svo mikil AmeríkaÞeir hafa lifað lífinu,“ segir Spessi og hlær, enda hefur hann heyrt hjá þeim margar sögur. „Ég komst inn í þennan hóp og kynntist menningunni innan frá, kjarnanum, á meðan ég hef venjulega horft utan frá í öðrum verkefnum sem ég hef unnið með myndavélinni.“
„Eins og þjóðflokkur“
Í þessum nýjum myndum Spessa segir hann ákveðinn samruna þeirrar hlutlægu nálgunar sem hann er þekktastur fyrir og hefðbundinnar heimildaljósmyndunar, ljósmyndafrásagna eins og þekktar eru úr eldri tímaritum.„Þetta verkefni sver sig í ætt við mín fyrri en nálgunin er líka klassísk; þetta krafðist annarrar nálgunar en ég er vanur. Þetta er mjög sjónræn menning. mótorhjólamennirnir eru eins og þjóðflokkur. Tilfinningin er að allir „bækerar“ séu vinir. Gömlu karlarnir segja mér að hvort sem menn voru í klúbb eða ekki þá héldu þeir saman. Þótt þessir menn eigi fjölskyldur snýst allt um mótorhjólamenninguna; ef einhver deyr þá er farið á mótorhjólunum í útförina. Það þykir virðingarvottur.“
Rætur þessarar mótorhjólamenningar eru raktar aftur Kaliforníu árið 1947 og þetta voru gjarnan uppgjafahermenn sem áttu bágt með að aðlagast hinu daglega lífi að nýju. Spessi segir þá hafa stofnað klúbba sem séu að vissu leyti byggðir upp eins og herdeildir og þeir flökkuðu um eins og kúrekar í villta vestrinu, nema hjólin komu í stað hesta. Þessa sögu mun Spessi segja í heimildakvikmyndinni. Og auk þess að hafa mikinn áhuga á þessari menningu, menningu sem sumir fyrirlíta og aðrir óttast, þá segist Spessi hafa samúð með henni. Og hann gerir ekki mikið úr því að hún spretti víða upp úr fátækt, eymd og fáfræði. „
Vissulega er nokkur fátækt en margir þessara karla stunda sína vinnu og þeir eru alls ekki allir í einhverjum klúbbum. Þetta er heillandi heimur,“ segir Spessi.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
http://timarit.is
19.05.2013
19.05.2013
14.5.13
Með fjandann í fingrunum
Ökuþórinn Friðjón Veigar Gunnarsson
Friðjón Veigar Gunnarsson eða Fíi eins og hann er kallaður af vinum sínum er listamaður af nýju kynslóðinni. Hans pensill er lítil sprautubyssa sem í daglegu tali kallast airbrush út af því að það er ekki til gott íslenskt orð yfir þetta fyrirbæri. Pappírinn er hins vegar frekar óvenjulegur hverju sinni,
en það eru bílar og mótorhjól og þá venjulega ekki af verri endanum. Friðjón hefur verið að sprauta fyrir þónokkra hérna heima en ekki síður erlendis og hefur farið þónokkrum sinnum á síðustu tveimur árum til Skandinavíu að sprauta. Hann er á leiðinni út aftur næsta föstudag og bílablaðið heyrði aðeins í honum vegna þess.
Vinsæll í verkefni á Vestur-Jótlandi
„Ég er að fara til Varde sem er á VesturJótlandi að mála flotta bíla og mótorhjól. Þetta hafa mest verið mótorhjólaverkefni en síðast þegar ég var þarna málaði ég górillu aftan á bíl sem tilheyrði vinsælli vefsíðu. Í framhaldinu fer ég á NorðurJótland þar sem ég á að mála bíl og tvö mótorhjól en það er hjá aðila sem ég vann hjá þegar ég bjó þarna úti. Ég er búinn að fara nokkrum sinnum þarna út, fór tvisvar í fyrra og málaði sjö hjól í fyrra skiptið. Í seinna skiptið tók ég þátt í Mosten Raceday en þar vorum við þrír málarar með tjald og vorum að sprauta allan tímann. Ég
tók þátt í keppni í hittifyrra í Kaupmannahöfn sem endaði einmitt með því að ég fékk hringingu frá þeim í Varde um að koma og vinna nokkur verkefni fyrir þá.“ Friðjón Veigar hefur mest lært af sjálfum sér þegar kemur að sprautuninni en hann tók þó eitt námskeið hjá Craig Fraiser þegar hann kom hingað fyrst. Fraiser hefur haldið fjögur námskeið hérlendis, en hann kom hingað fyrst 2008.
„Ég hef haft nóg af krefjandi verkefnum sem hafa neytt mann til að gera prófanir og að kafa ofan í hlutina. Það eru margir sem eru að sprauta bara út af því að þeir hafa gaman af því. Það eru samt ekki
margir sem gefa sig út í þetta hérlendis en þetta er að verða vinsælt eins og tattúið. Þetta er reyndar ekki eins endanlegt og tattúið en ég hef verið að fikta aðeins við það líka. Menn eru að mála allt frá einföldum hauskúpum upp í myndir sem eru eins og ljósmyndir með réttu tækninni. Þú þarft bara að kunna að teikna og skyggja og restin er að læra handbragðið og trikkin.“
Langar í snargeðveikt mótorhjól
Þegar Friðjón var spurður út í draumaverkefnið var svarið fljótt að koma. „Það væri eitthvert snargeðveikt og risastórt, sérsmíðað mótorhjól sem ég fengi að mála nákvæmlega eins og ég myndi vilja það. Mér finnst mest gaman að vinna með mótorhjólin þótt það væri auðvitað gaman að fá að gera einn Pick-up eða trukk. Mótorhjólin bjóða upp á miklu fínni myndir því maður sér ekki heilu bílana sem eru málaðir eins og hjólin eru máluð. Maður getur opnað flóðgáttir illskunnar á þau ef svomá segja. Sumir nota litla myndvarpa til að kasta mynd á hjólið til að mála eftir en ég vil heldur gera sem mest fríhendis, það er mikið skemmtilegra,“ segir Friðjón. Hann hefur úr mörgum verkefnum að velja á næstunni hérlendis og er meðal annars að fara að mála vélarhlíf á flottum TransAm. „Ég er að vinna í geðveikum Kaffireiser og einnig skilrúm í kaffihús og var að klára einn mótorhjólahjálm þannig að verkefnin eru fjölbreytt. Annars er ég búinn að vera í fæðingarorlofi í vetur og hef ekki náð að sinna máluninni sem slíkri í nokkra mánuði,“ segir Friðjón sem er með Fésbókarsíðu sem heitir Fjandinn, airbrush og tattoo.
14.05.2013
njall@mbl.is
13.5.13
Xavier á sigló
Þegar ég keyrði niður aðalgötuna á þriðjudaginn síðasta(semsagt 7. maí) sá ég mótorhjól fyrir utan gistiheimilið Hvanneyri. Það var svolítið sérstakt að sjá mótorhjól á þessum tíma(hjól sem ég vissi að var alveg pottþétt túristahjól).
Sá sem á hjólið heitir Xavier De Somer. Hann er á hringferð um Ísland. Og á mótorhjóli!! Þetta er æðislegt. Mig langar í svona hjól.
Daginn áður en ég hitti hann, semsagt á mánudaginn, sama dag og hann kom til Siglufjarðar var alveg hin sæmilegasta hríð og hin albezta snjóblinda. Þetta er sko alvöru sagði hann. Að vera að djöflast á mótorhjóli svona yfir háveturinn og það á Siglufirði.
Xavier er frá Belgíu og er búin að keyra um fleiri lönd á mótorhjólinu. Hjólið er KTM og er hann alveg í skýjunum með það. Hann sagði að það væri mjög gott í snjó(reyndar hló hann á eftir).
Ég fékk að taka nokkrar myndir hjá honum og svo fékk ég líka leyfi til að setja myndbönd sem hann hefur sett á youtube inn á vefinn hjá okkur. Góða skemmtun.
Myndband.
Reykjavík - Akureyri
http://www.youtube.com/watch?v=V42JI299XWw
Myndband
Ferð sem hann fór í til Marakkó.
http://www.youtube.com/watch?v=9aOoNTrlNDY
http://www.siglo.is/ 2013
11.5.13
Lúta eigin lögmálum
FÁKURINN PRJÓNAR Hank, vinur Spessa og velgjörðarmaður. |
Það er mikið um að vera í Frystihúsinu við Hafnarbraut þessa dagana. Þar býr og starfar ljósmyndarinn Spessi, sem á Listahátíð mun sýna í Ljósmyndasafninu myndir sem hann tók af mótorhjólaköppum í Kansas í Bandaríkjunum. Heiðurssess í vinnustofunni skipar veglegt mótorhjól sérsmíðað fyrir Spessa en auk þess eru þar annað mótorhjól, nokkur reiðhjól, staflar af myndum og hundurinn Fidel sem Saga, dóttirin á heimilinu, tilkynnir mér að sé orðinn þrettán ára.
EITT SINN BÆKER– ÁVALLT BÆKER Jesse James, mótorhjólasmiður í Salina. |
Kúrekar á vélfákum
NAFNLAUSI HESTURINN HVÍLDUR Spessi lét sérsmíða hjólið í Las Vegas og tók með sér til Kansas. MYND/HENRY |
Snýst um frelsi
KOMINN HEIM Jackie er reyndar hermaður, en byssur eru almenningseign í Kansas. |
Fréttablaðið
11.5.2013
3.5.13
Smaladrengir færa Maddömum peningagjöf
Vélhjólafélagið Smaladrengir í Skagafirði og tóku stuttan rúnt um Sauðárkrók á sumardaginn fyrsta og lögðu hjólum sínum við Maddömukot. Samkvæmt heimasíðu drengjanna færðu þeir Maddömunum peningagjöf að upphæð 50.000 kr. og innrammað skjal því til staðfestingar.
„Vil ég sérstaklega þakka þeim sem létu sig hafa það að koma í frekar óskemmtilegu veðri og vera með,“ segir á heimasíðunni en í gengið sem hjólaði um göturnar samanstóð af sjö mótorhjólum og einu fjórhjóli.
Feykir.is 2013
2.5.13
Aðalfundur Tíunnar / Dansiball / Hjólamessa /
Góðan daginn
Við viljum bara minna á að aðalfundur Tíunnar verður haldinn laugardaginn 11. maí næstkomandi á Sportvitanum og hefst fundurinn klukkan 14. Eftir fundinn förum við svo í hópakstur um bæinn og minnum fólk á að hjólin eru komin á götuna.
Í ár er kosið um fjögur sæti í stjórn Tíunnar. Þeir sem hafa áhuga á að starfa í stjórn Tíunnar er bent á að senda inn framboð sitt á tian@tian.is eða hringja í síma 869-3332 (Óli Pálmi). Einungis greiddir meðlimir geta kosið í stjórnarkjörinu, en greiðsluseðlar fyrir félagsgjaldinu hafa verið sendir út og í heimabanka (ætti að koma undir valgreiðslur í heimabankanum).
Á laugardagskvöldinu ætlum við síðan að starta hjólasumrinu með því að skemmta okkur saman á Sportvitanum. Á dagskránni er meðal annars uppistand þar sem Sigurvin Fíllinn Jónsson mun skemmta, og trúbador leikur nokkur vel valin lög. Húsið opnar klukkan 22 og reiknum við með að hefja skemmtunina um hálftíma síðar, eða klukkan 22:30. Miðaverð er kr 1500 sem greiðist við innganginn (við tökum ekki kort).
Hjólamessa verður síðan haldin í Akureyrarkirkju sunnudaginn 26. maí klukkan 11. Mætum á hjólunum (amk þeir sem hafa ekki tekið of hraustlega á því kvöldið áður) og hlustum á skemmtilega tónlist :-)
Góðar stundir
30.4.13
Minnaprófið stækkar
Í sumum tilvikum er Harley Davidson 883 skráð minna en 47 hestöfl en samkvæmt hestaflabekksmælingu er það 46,6 hestöfl. Taka skal fram að vissara er að skoða skráningarskírteini í vafatilfellum. |
Breytingar á mótorhjólaprófum skv. ESB
Hinn 19. janúar síðastliðinn tók gildi ný reglugerð sem byggist á þriðju ökuréttindalöggjöf Evrópusambandsins. Breytingar þessar eru gerðar til að samræma ökupróf í allri Evrópu til að tryggja frjálsan flutning og akstur milli landa og gerir ökuskírteini úr einu landi ESB eða EES gild í öllum öðrum löndum þess. Breytingarnar eru mestar í flokki mótorhjóla en þar er kominn nýr flokkur sem kallast A2 og tekur hann við af flokki sem hét lítið mótorhjól áður og miðaðist við 34 hestöfl (25 kW).Hámarksaflið 47 hestöfl
Hér er rétt að útskýra þennan flokk aðeins betur því að hann veldur talsverðum ruglingi og skoða hvaða hjól falla í þennan nýja flokk, en hann er nú miðaður við 47 hestöfl (35 kW) sem er töluverð breyting. Eins og sjá má af töflunni er hámarksafl mótorhjóla í A2-flokki nú komið í 47 hestöfl en sum mótorhjól má fá með svokölluðu innsigli til að ná niður afli í þetta tiltekna hámark. Þó má ekki samkvæmt löggjöfinni minnka afl hjóls í þessum flokki um meira en helming, þannig að 100 hestafla hjól getur ekki fengið innsigli og farið í 47 hestöfl sem dæmi. Til að átta sig betur á þessu hefur bílablaðið sett saman stuttan lista með hjólum sem falla undir þennan flokk og inniheldur hann einnig hjól sem eru með löglegu innsigli samkvæmt þessum A2-flokki. Aðeins er minnst á þau hjól sem eru annaðhvort seld á Íslandi eða hafa komið hingað á undanförnum árum.Falla í A2-flokkinn
Þegar þessar tölur eru skoðaðar er auðvelt að sjá að nokkuð mörg mótorhjól sem áður voru flokkuð sem stór mótorhjól falla í A2-flokkinn. Önnur breyting á réttindaflokkunum er sú að núna má taka réttindi í A2-flokk á hvaða aldri sem er svo lengi sem viðkomandi hefur náð 19 ára aldri. Þetta þýðir að einhver sem telur að hjól eins og ofangreind dugi sér þarf þá ekki að taka full réttindi strax og getur einfaldlega valið að taka þennan flokk fyrst. Mun það eflaust henta mörgum að taka próf í þessum flokki þar sem kennsluhjól í honum geta verið talsvert minni en fyrir full réttindi.
njall@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ
30.4.2013
23.4.13
HONDA MÓTORHJÓL – GÆÐI OG GOTT VERÐ
Hlynur Pálmason, sölustjóri bifhjóla hjá Bernhard |
Bernhard í Vatnagörðum 24-26 hefur flutt inn Honda-mótorhjól í hálfa öld. Honda er þekkt fyrir gæðiog góða endingu. Mótorhjólamenning Íslendinga hefur þroskast mikið undanfarin ár.
Í fyrra voru fimmtíu ár síðan Bernhard hóf innflutning á Honda-mótorhjólum og því óhætt að segja að innanhúss sé að finna mikla þekkingu á merkinu. „Við erum með afar breiða línu af Honda-mótorhjólum. Allt frá fimmtíu kúbika torfæruhjólum fyrir sex ára krakka og upp úr,“ segir Hlynur Pálmason, sölustjóri bifhjóla hjá Bernhard. Hann segir mótorhjólamenningu Íslendinga hafa tekið stórstígum framförum á síðustu árum. „Þetta hefur breyst úr því að vera helgaráhugamál hjá þröngum hópi í að hjól eru notuð sem alhliða ferðatæki í vinnu, leik og ferðamennsku.“Hlynur segir vinsælustu hjólin í dag vera ferðahjól. „Við finnum fyrir aukinni eftirspurn eftir hjólum sem eru bæði fyrir malbik og malarvegi og sem komast út fyrir hefðbundna vegi,“ útskýrir hann og bendir á að Bernhard bjóði upp á breiða línu í ferðahjólum enda algengt að pör stundi hjólaferðamennsku saman og jafnvel heilu fjölskyldurnar líka
Hjól við allra hæfi
Hlynur segir helstu kosti Honda-bifhjólanna vera gæði og gott verð. „Honda er einn stærsti vélaframleiðandi í heimi og gæðin eru því í góðu lagi. Þá leggjum við hjá Bernhard mikinn metnað í að bjóða gott verð og mikið úrval af hjólum,“ upplýsir Hlynur. Hann segir öryggið einnig í fyrirrúmi enda leggi Honda mikið upp úr öryggisbúnaði á mótorhjólin sín. „Þeir voru til dæmis fyrstir til að hanna loftpúða á mótorhjól. Þá eru flestar gerðirnar sem í boði eru fáanlegar með ABS-hemlakerfi,“ segir Hlynur og bætir við að Bernhard sé með hjól við allra hæfi. „Hvort sem um er að ræða byrjendur eða lengra komna, þá eigum við rétta hjólið.“ Starfsmenn Bernhard búa yfir mikilli reynslu og aðstoða fólk eftir bestu getu. „Þegar fólk er að kaupa sér hjól reynum við að greina áhugasvið þess og þarfir. Það er misjafnt eftir hverju fólk er að leita og við reynum að benda því í rétta átt hvað varðar stærð og afl.“ Verðið á mótorhjólunum frá Honda þykir gott. „Ný fullvaxin götuhjól er hægt að fá hjá okkur frá 1.099.000 krónum. Svo erum við líka með eldri módel, svokölluð eftirársmótorhjól, átilboðsverði og því hægt að gera góð kaup.“
Vespur í stað bíla
Fólk er í meiri mæli farið að nota vespur til að komast á milli staða að sögn Hlyns. „Bæði er þetta skemmtilegur lífsstíll en auk þess er þetta afskaplega praktískur ferðamáti,“ segir hann og nefnir sem dæmi að hægt sé að kaupa hjól sem eyði ekki nema 2,1 lítra á hundraði. „Við erum að selja 125 kúbika vespur og fólk er margt hvert farið að kaupa slík hjól í staðinn fyrir aukabíl á heimilið,“ segir Hlynur en þeir sem kaupa slík hjól eru iðulega fólk sem komið er yfir tvítugt. „Fjölskyldufólk nýtir vespuna oft í staðinn fyrir bíl númer tvö og sparar þannig heilmikið í rekstrarkostnað.“ Bernhard býður upp á vesputilboð um þessar mundir sem hljóðar upp á 569þúsund krónur. „Þetta hjól, Honda PCX 125, er búið skemmtilegri og umhverfisvænni tækni sem kallast stopp/start tækni líkt og í tvinnbílum. Þegar þú stoppar hjólið á ljósum drepur það á vélinni eftir þrjár sekúndur og ræsir sig sjálfkrafa þegar þú gefur í til að fara af stað.“
Aukahlutir, fjármögnun og viðgerðir
Bernhard býður upp á mikið úrval aukahluta á hjólin sín. Þá hefur fyrirtækið yfir að ráða fullkomnu bifhjólaverkstæði í Vatnagörðunum. Fjármögnun á bifhjólum á ekki að vera vandamál að sögn Hlyns. „Við aðstoðum fólk við það en í dag er hægt að fá tiltölulega háa fjármögnun á hjól,“ útskýrir hann. Þá séu tryggingar á hjól einnig orðnar sanngjarnari í dag en áður. Inntur eftir vinsældum mótorhjóla svarar Hlynur að gríðarleg aukning hafi orðið í mótorhjólasölu fyrir hrun. „Árið 2007 vorum við að selja hátt í fimm hundruð hjól á ári. Eftir hrun dró mikið úr sölunni en við bindum vonir við að þetta sé að breytast og okkur finnst sem áhuginn sé að glæðast á ný.“ Bernhard ehf. frumsýnir 2013 árgerðirnar af Honda-hjólum á sýningunni „allt á hjólum“ í Fífunni 4.-5. maí næstkomandi.
Fréttablaðið
23.4.2013
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)