25.6.94
Árlegur Hjóladagur Sniglana
11.5.94
GRÁI FIÐRINGURINN
Grímur að störfum |
Þann 30. október síðastliðinn bar það til tíðinda að hópur manna var saman kominn í bíókjallaranum við Hverfisgötu. Allir áttu þeir eitt eitt sameiginlegt en það var ódrepandi áhugi á gömlum mótorhjólum. Þetta mannamót var stofnfundur gamlingja. Meðlimir Vélhjólafjelags Gamlingja verða samkvæmt stjórnarskrá að vera komnir til vits eða ára. Voru nokkrir þeirra heimsóttir í hið allra heilagasta, skúrana, til að komast að því hvort sú fullyrðing ætti við rök að styðjast.
Grímur Jónsson
Svo fór ég á sjóinn þegar ég var búinn að læra og fór að kynna mér út í Englandi hvort ég fengi eitthvað í hjólið. Þegar ég kom heim hafði pabbi fengið hreingerningaræði og hent öllu út af loftinu og þar á meðal hjólinu. Þannig að það fór fyrir lítið. Bróðir minn var líka mikið á hjólum í gamla daga og ég fékk að taka í hjá honum en hjól eignaðist ég ekki aftur fyrr en löngu seinna"
Voru aksturskilyrði fyrir hjólekki slæmá þeim tíma?
" Nei, þau voru það nú ekki. Hjólið sem bróðir minn átti var Ariel. Það var með lágum þyngdarpunkti og fjöðrun eins og þá tíðkaðist en þótt það væru holur og möl þá var alveg dyrðlegt að keyra það, það lá alveg á veginum"
Hvað komsvo næst?
"Annað hjólið mitt var og er Henderson 1918. Ég fékk það hjá Inga í Ánanaustum en hann seldi brotajárn. Á motorinn rakst ég inni á lagernum hjá vélsmiðjunni Héðni og fór að spyrjast fyrir um þetta og hvort hann vildi selja mér hjólið. Það var alveg sjálfsagt og lét hann hafa fimmþúsundkall. En þá hafði kallinn látið einhvern strák hafa stellið og allt sem því tilheyrði en hann hafði aldrei borgað það. Það endaði með því til að friða strákinn þá keypti ég restina af honum á 25000 krónur."
Hvað er svona sérkennilegt við þetta hjól?
"Það er náttúrulega fjögra strokka með toppventlavél, 1168 kúbik og eru aðeins tvö hjól af þessari tegund eftir í heiminum. Hitt er á Nýja-Sjálandi. Þetta er líklega elsta hjólið á landinu."
Hvað tók svo við?
" Næst kaupi ég tvö hjól af þjóðverjum sem komu hingað. Þetta voru Maico hjól frá þýska hernum en þeir fóru yfir hálendið á þeim. Þau notaði ég í nokkur ár fyrir norðan í Hrútafirði. Seinna seldi ég þau Magnúsi Axelsyni fasteignasala. Ég átti líka Royal Enfield '37 módelið sem ég fékk á undan þeim og geymdi líka fyrir norðan."
Hvað með Henderson hjólið?
Hvað þarf að laga í því?
" Stellið, gafflarnir, brettin, sætin, stýrið og luktin. Þetta er allt í góðu lagi. Tankurinn er þokkalegur en svo er það náttúrulega mótorinn. Það eru vandræði með magnetuna og svo er ég að smíða nýja stimpla og stimpilstöng en mótorinn sjálfur er ekkert skemmdur."
Áttu ekki frá einhverju skemmtileu að segja að lokum?
Þaðvar einu sinni norður í Hrútafirði að ég lá fyrir gæs. Ég fór meðfram lítilli ársprænu og ætlaði að komast út á litla sléttu skammt þar frá. Þegar ég er kominn næstum niður undir sjó þá gekk ég fram á mótorhjól, gamalt BSA hjól 1945-46 módel. Áfram hélt ég við veiðarnar en hugsaði mér að tala við bóndann sem ég og gerði og fékk leyfi hjá honum til að hirða hjólið. Svo þegar ég kom seinna að ná í hjólið á pick-up þá var það allt í einu horfið. einhver hafði bara tekið þaðen ég missti af gæsinni."
Já það borgar sig að grípa gæsina meðan hún gefst.
" Já meður verður að gera það. Ég hefði betur rúllaðþví upp eftir og komið því heim."
Þröstur |
Þröstur Víðisson, Haukur Richardsson og Torfi Hjálmarsson.
Hvað er lang síðan að þið byrjuðuð með þennan skúr saman?Þröstur : það eru svö ár síðan við byrjuðum hérna. Ég og Fuðmundur Gunnarsson, sem á Svarta BMW hjólið, vorum saman með skúr, Haukur var upp í Breiðholti og Torfi bara heima hjá sér í sínum skúr.
Hvaða hjól eru hérna og hvaðan koma þau?
Haukur og Torfi : Það eru tveir Tridentar, báðir '75 módelið og koma frá ameríku.
Haukur: Og svo Norton Commando en hann kemur frá Hilmari en kom hérna fyrst æi upphafi árs 1975 en þá flutti Fálkinn hann inn, einn af fjórum, og Þröstur með BMW.
Þröstur: Það má eiginlega segja að þeir séu þrír. Það að sjálfsögðu mitt R69S '65, Hjólið hans Gumma R50 '67 og svo R75/6 '73. Það komu hingað túristar 1970 á R50 hjólinu og keypti Karl Cooper það af þeim og átti í 20 ár áður en Guðmundur fékk það. Mitt hjól er lögguhjól sem selt var á uppboði í kringum 1980 og er ég annar eigandinn af því á eftir löggunni.
Hvað eruð þið búnir að eiga hjól lengi ?
Haukur : Ég eignaðist fyrsta hjólið 1968.
Þöstur: Og ég eignaðist fyrsta hjólið 1974 held égen það var japanskt og ég tek það fram að það vareina japanska hjólið mitt, svo fór ég í bretana. Svo náttúrulega sá ég að mér og fékk mér BMW.
Torfi : Ég fékk fyrsta hjólið 1987,Triumph Tiger.
Er einhver rígur á milli hjólategunda hjá ykkur?
Torfi: Ekki til. Jú,jú en það er allt á góðu nótunum.
Haukur : Það er skotið á menn en .Það er aldrei skotið undir belti. Það er svona verið að gantast eins og maður segir, annað væri bara óheilbrigt.
Þröstur: Það er til siðs að rísa upp á hjólunum þegar við náum að farafram úr hverjum öðrum til að sýna mönnum óæðri endann.
Torfi: Þannig að það má segja að Þröstur þekki þá hlið okkar ansi vel.
Lúrið þið ekki á einhverji skemmtisögu.?
Haukur: Það var um árið að við fórum á 17. júní á Akureyri 1991. Við vorum beðnir um að koma með hjólin á sýninguna þar og í bakaleiðinni fengum við alveg djöfull gott veður. Við stoppuðum í Varmahlíð og hittum þar mann á BMWsem var Þjóðverji. Hann var með landabréf uppi og var eitthvað að reyna að átta sig hvert hann væri eiginlega að fara.
Við sem sannir íslenskir mótorhjólamenn vildum náttúrulega aðstoða manninn og býð ég honum að vera í samfloti með okkur. Í þvíkemur Þröstur og er hann með á bakinu þýska járnkrossinn. Ég segi við Þjóðverjann að þetta sé nú Þjóðverji líka og tek í öxlina á Þresti og sný honum við. Hann fölnaði upp og afþakkaði boðið keyrði þarna í nokkra hringi og hvarf svo. Hann hélt greinilega að við værum snarvitlausir, varð bæði hræddur og ráðvilltur. Við skírðum þennan mann Adolf von Snitzel.
Má segja að Gamlingjar hafi verið stofnaðir upp úr þessum félagskap ykkar?
Haukur: Já alveg hiklaust.
Þröstur: Maður kynntist náttúrulega stórum hópi manna út frá þessu. Maður þekkti náttúrulega Timerinn og smátt og smátt myndaðist kjarni góðra manna. Þetta var rætt á milli manna og svo þróaðist þetta svona.
Hvaðer á döfunni?
Þröstur: Við höldum aðalfund í Vestmannaeyjum í ár sem stendur í tvo daga.
Torfi: Þar ætlum við að leggja sumarplan, ákveða hvað við ætlum að gera.
Þröstur: Svo er það Akureyri og náttúrulega sýning í höllinni.
Haukur: Og svo ætlum við að fara í kaffi til Daða austur á Hornafjörð og ég veit að hann á einhvern djöfulinn í kjallaranum hjá sér út í það.
Snigillinn
20.4.94
Bifhiólasamtökin fagna 10 ára afmæli
FYRIR tíu árum birtist í Dagblaðinu auglýsing sem ætlað var
að ná athygli mótorhjólaáhugamanna á Islandi. Þeim var boðið
að koma að Æsufelli 2 fimmtudaginn 26. janúar til að stofna
mótorhjólaklúbb.
Úthýst af sósíalanum
Alvara fylgir ánægjunni
Frumkvæði að framförum
Átak gegn slysum
MBl 20.04.1994
10.4.94
A stanslausu ferðalagi í níu ár
skipti sem hann hefur lent í fangelsi eða vegna veikinda. Ástæðan er sú að 14. janúar 1985
lagði hann af stað frá heimabæ sínum, Buenos Aires í Argentínu, í heimsreisu á mótorhjóli.
Takmarkið var að koma til allra þeirra ríkja í heiminum, þar sem stjórn eða landstjóri er
við lýði, hvort sem þau eru opin ferðamönnum eða lokuð.
„Ég varð meira að segja að fara
til Tuvalo, sem er svo lítið að þar
eru aðeins 24 bílar," sagði hann við
blaðamann þegar hann leit inn á
ritstjóm Morgunblaðsins í vikunni.
Opnaði síðan stórt landakort af
heiminum, þar sem ferðalag hans
er merkt inn á og benti á örlítinn
depil í Kyrrahafi langt frá fastalandinu. „Hérna er Ruvalo, eyja sem
varð til í eldgosi,“ sagði hann.
Tilgangurinn með ferðinni er
einnig að aka 750.000 km eða svipaða fjarlægð og frá jörðinni til
tunglsins og aftur til baka. Emilio
hefur þegar farið einn hring í kringum hnöttinn og er nú á Ieiðinni til
baka.
Að sögn hans eru ríkin alls 215 og er ísland 173. viðkomustaðurinn. Hann kom til landsins með Brúarfossi 5. apríl Og reiknaði með nokkurra daga dvöl hér áður en hann heldur áfram til Grænlands. „Ég veit ekki hvenær eða hvemig ég kemst þangað, því það er of dýrt að fijúga og ég veit ekki hvort nokkurt skip er á leiðinni þangað. Þannig er líf mitt, ég veit aldrei hvað bíður mín.“
Greinarskrif og ljósmyndir
Tímann hér notar hann til að safna efni í greinar, en hluta ferðarinnar fjármagnar hann með skrifum og Ijósmyndum í alls kyns spænsk, ítölsk og frönsk tímarit, sem hann er á samningi við. Ferðin er einnig farin í þeim tilgangi að kynnast menningu mismunandi þjóða. „Þetta er eins konar háskóli. Þegar ég var ungur og var spurður hvaða háskóla ég stefndi á og hvað ég ætlaði að verða sagðist ég vilja verða ævintýramaður og ferðast eins og Marco Polo og fleiri.
„Já, en það er ekki starfsgrein,"
var þá sagt við mig.
„Jú, ég ætla að gera það að
starfi," sagði ég og hét því að gera
ferðina að háskóla lífsins, þar sem
mismunandi kynstofnar og kynslóðir kenndu mér allt mögulegt. Þetta
hefur tekist á undanförnum níu
árum. Ég er ekki Argentínumaður
á ferðalagi, ég er íslendingur hér
á landi, Kínverji í Kína o.s.frv.
Þannig hef ég t.d. iært nokkur
tungumál, en ég kunni bara
spænsku þegar ég hóf ferðina.“
Emilio undirbjó sig vel, lærði m.a. landafræði og sögu auk þess sem hann kynnti sér alls kyns málefni á styttri námskeiðum, eins og hvernig ætti að komast af í frumskógum og eyðimörkum. „Þegar ég var þrítugur ákvað ég að láta slag standa, en það hafði enginn trú á ferðalaginu og því fékk ég engan til að styrkja mig. Ég lagði því af stað á Svörtu prinsessunni með einungis 300 dollara í vasanum, nokkur landabréf, en ekki einu sinni mótorhjólahjálm. Ég verð að viðurkenna, að fólkið á götunni var styrktaraðilar mínir fyrstu árin,“ segir hann svo og horfir brosandi á Monicu, eiginkonu sína, „og þá einkum konur“.
Emilio þykir greinilega tilhlýðilegt að útskýra þetta og segist hafa þekkt Moniciu í tvö ár áður en hann tók þá ákvörðun að leggja I heimsreisuna. „Hún sagði að ég skyldi fara í ferðina og lifa lífinu en hún biði eftir mér. Eg hélt af stað og svaf stundum á fimm stjörnu hótelum í boði hótelstjóranna eða á ströndinni undir berum himni. Stundum buðu konur mér að gista eða þær buðu mér í mat, í sumum tilvikum með samþykki eiginmannsins."
Eftir sjö ára fjarveru bað Emilio
Monicu og hún kom til Indlands þar
sem hann var staddur. Þegar hann
hélt, áfram ferðinni var hún með í
för, en síðan sneri hún til Spánar,
þar sem þau hyggjast hafa aðsetur
í framtíðinni.
Opnar safn í Barcelona
Þegar ferðinni er lokið á næsta ári ætlar Emilio að opna safn í Barcelona, History of the Humans, þar sem allar heimildir um ferðina verða á einum stað, auk þess sem myndir og minjar um aðra þekkta ferðalanga verða einnig að því marki sem Emilio nær að safna heimildum. Hann hefur einnig samið bók um ferðalagið, sem verður gefin út á næsta ári, auk landabréfabókar með myndum. Bækurnar verða fyrst gefnar út á Spáni en síðar á fleiri tungumálum.
Emilio hefur nú þegar tekið 90.000 myndir og munu þær ásamt bókunum gagnast sem mikilvægar heimildir fyrir skóla, fyrirtæki, fjölmiðla og fleiri. „1 hveiju landi kaupi ég einnig sígilda tónlist hvers lands og þegar ég flyt fyrirlestra spila ég tónlist um leið, sem tengist landinu,“ segir hann.
Talinn njósnari Ghaddafis
Emilio segir að ferðin hafi að mestu gengið áfallalaust, hann hafi að vísu einu sinni lent i alvarlegu slysi á mótorhjólinu og lá í viku á spítala, í annað skipti fékk hann malaríu og lá veikur í tíu daga. Auk þess hefur hann setið í fangelsi, m.a. vegna þess að yfirvöld í Chad töldu hann vera njósnara á vegum Ghaddafis. Ástæðan var sú að hann hafði fengið sérstakt leyfi Ghaddafis til að komast inn í Líbýu, sem þá var lokað ferðamönnum. Hann losnaði úr fangelsinu með því að segja fangelsisyfirvöldum að hann hefði fengið góðar móttökur í Líbýu sem var talið „vonda“ landið en hins vegar fengi hann slæma meðferð í þessu „góða“ landi. Þeir sáu sér ekki annað vænna en sleppa honum „vegna þessa leiða misskilnings“, segir Emilio og ypptir öxlum brosandi.
Ég var líka settur í fangelsi í Zimbabve, vegna þess að þeir héldu að ég hefði falsað passann. Sömuleiðis í Afríku vegna myndatöku,“ heldur hann áfram. „Eitt sinn var ég þó í lífshættu. Það var í Sómalíu, en ég var þar þegar stríðið hófst og lenti í miðri skothríð milli hermannanna og fólksins. — Hvað um það, þetta er það líf sem ég lifi. Fólk hefur oft spurt mig hvað gerist þegar ég hef lokið ferðalaginu. Hjá mér er aldrei mánudagur eða þriðjudagur eða klukkustundir eða mínútur. Ég lifi bara við það að sólin kemur upp á morgnana og tunglið birtist á næturnar," segir hann. „Ég get aldrei búið við það að eitthvað ákveðið eigi að gerast kl. 8 á mánudagsmorgni eða 9 á þriðjudegi."
Er nú betri efnum búinn
Á sama hátt og Emilio gekk erfiðlega að fá menn til að leggja fé til ferðarinnar í upphafi hafa streymt til hans styrktaraðilar nú. Má þar nefna Pepsi Cola, sem er stærsti styrktaraðili hans, Honda, ýmsar sjónvarpsstöðvar og fleiri aðilar. „Vegna þessara fyrirtækja get ég frekar einbeitt mér að vinnu í stað þess að vera sífellt að leita fjármögnunarleiða. Nú hef ég efni á að eiga góða myndavél og get þannig gefið fólki kost á að sjá það sem ég sé á ferðalögum mínum.“
Vegna þess að flökkueðlið er orðið Emilio svo eðlilegt segist hann ætla að stofna fyrirtæki og bjóða fólki upp á að kynnast löndum á annan og meira spennandi hátt en tíðkast hafi hingað til. Auk þess muni hann flytja fyrirlestra og gefa út bækur. „Mig langar líka til að búa til kvikmynd um ferðina. Þar sem ég hef ágæt sambönd í Bandaríkjunum ætla ég að reyna að fá Steven Spielberg eða annan þekktan leikstjóra til að taka verkið að sér.“ Hann sér þó ekki sjálfan sig í hlutverkinu heldur góðan leikara, enda er kannski óþarfi að fara í þriðju heimsreisuna strax aftur?
MBL 10.4.1994
eftir Hildi Friðriksdóttur
4.4.94
Mótorhjólasýning um Páskahelgina (1994)
Mótorhjólasýning um páskahelgina BIFHJÓLASAMTÖKIN halda Dagana 31. mars til 4.
2.4.94
Bifhjólasamtökin 10 ára (1994)
Hópur af sniglum í Lambakjötsátaki |
Bifhjólasamtökin 10 ára
Bifhjólasamtökin 10 ára
Úthýst af sósíalanum
Alvara fylgir ánægjunni
Haraldur A. Ingþórsson
20. mars 1994 |
31.3.94
Bifhjólasamtök lýðveldisins 10 ára
SNIGLARNIR, bifhjólasamtök lýðveldisins, halda upp á 10 ára afmæli sitt með stórsýningunni Bifhjól á íslandi um páskana. Halldór
Blöndal, samgönguráðherra, opnar sýninguna með formlegum hætti
í Laugardalshöll kl. 15 í dag. Sýningin verður opnuð almenningi kl.
17. Hún er opin til kl. 22 alla daga að frátöldum síðasta sýningardeginum á mánudag. Þann dag verður henni lokið snemma eða kl. 20.
Yfir 200 bifhjól verða á sýningunni. Nærri liggur að hver tegund, sem flutt hefur verið hingað til lands frá 1918, eigi sinn fulltrúa. Félagar í Sniglunum munu bjóða gestum upp á stuttar hjólaferðir ef veður leyfir, vörukynningar verða í salnum og nýr geisladiskur Sniglanna til sölu. Á disknum eru lög eftir meðlimi Sniglanna og hafa aðeins verið gefin út 1000 eintök.Landsmót Sniglanna verður í Húnaveri fyrstu helgina í júlí og eru allir bifhjólaeigendur velkomnir.
Að auki verður haldið upp á afmæli samtakanna með styttri og lengri hjólaferðum hér á landi og erlendis. Áttahundruð og fimmtíu félagar hafa frá upphafi verið skráðir í Sniglanna.