Iðgjöld bifhjólatrygginga
hækkuðu um allt að 300%
„Tryggingarnar hjá stóru félögunum fyrir mótorhjól hækkuðu um
300% hjá Sjóvá-Almennum og um
tæp 150% hjá VÍS. Á rúmlega 100
manna fundi á miðvikudagskvöldið
var ákveðið einróma að segja upp
öllum tryggingum fyrir þessa helgi.
Það gildir fyrir alla í Bifhjólasamtökum lýðveldisins, 350 manns, sem er
rösklega 1/3 allra mótorhjólaeigenda í landinu," sagði Þorsteinn
Marel Júlíusson, talsmaður hjá
Sniglunum, Bifhjólasamtökum lýðveldisins, í samtali við DV.
„
Við eru búnir að ná sambandi við
alla félagsmenn með tölu, og það eru
allir sammála um úrsögnina. Við
erum ekki bara að segja upp tryggingum á mótorhjólum heldur öllum
tryggingum okkar hjá félögunum.
Þetta eru allt saman skyldutryggingar og við höfum næsta mánuð til viðræðna við tryggingafélögin. Þeir
þurfa að bjóða okkur til sín í viðræður en það hefur ekki verið neinn tími,
hvorki hjá okkur né þeim, vegna
anna."
40 milljóna hækkun
„Þessar hækkanir, sem eru nú í
gangi, koma út sem um 40 milljón;
króna hækkun. Það er hræðilega
vont dæmi að þessar tryggingar skulu allar vera sendar undir sama hatt,
burtséð frá stærð, hestöflum, aldri
eða reynslu. Það er engin tryggingastærðfræði notuð.
Það sem við viljum gera og okkar
tilboð miðar að er að tengja aldur og
reynslu við hestöfl í tryggingunum.
Yngstu mennirnir og stærstu hjólin
borga mest. Bara þetta atriði myndi
stuðla að því að ungir menn fengju
sér frekar minni hjól sem stuðlar að
, minni tjónum og minni. slysum.
Hingað til hefur ekki verið hlustað á
þessar röksemdir okkar.
"Meðalaldur Sniglanna er tæplega 30 ár
og margir eiga meira en eitt mótorhjól eða bifreið. Það sér það hver
maður að það er nánast útilokað fyrir menn að borga iðgjöld af fleiri en
einu hjóli eða hjóli og bifreið. Menn
sem hafa hjól tryggð hjá til dæmis
Sjóvá-Almennum, sem hækkuðu
gjöldin mest og hafa engan bónus,
þurfa að borga um 150 þúsund á ári.
Með 55% bónus er þetta gjald 83.000
krónur." .
Viðræður eftir helgi
Þessar tólur komu ekki út fyrr en
um síðustu helgi og því er þetta svo
nýtt fyrir okkur enn. Við erum á
fullu innan Sniglanna aö vinna í
þessum málum en viö reiknum með
að hefja viðræður við tryggingafélögin í næstu viku.
Þegar tryggingar eru svona háar
fara menn að keyra tryggingarlausir,
taka hjóhn sín út af skrá. Það býður
þeirri hættu heim og er bara mannlegt eðli. Við höfum stuðning lögreglunnar því að hún gerir sér grein fyrir því að þegar iðgjöldin eru komin
upp fyrir allt sem raunhæft er fara
menn að keyra tryggingarlausir. Þar
með er búið að velta hluta vandamáls tryggingafélaganna yfir á lógregluna. -IS