|
Baldvin B. Ringsted. |
ALLT
Hér á Akureyri er
hópur fólks í þessum
samtökum þó lítið fari fyrir
þeim, nema þá frekast á
sumrin.
Mér lék nokkur
forvitni á að vita hvers konar
samtök Sniglar væru ásamt
því hvað er svona sérstakt
við bifhjól. Í hugum margra er ímynd
hins svala gæja sú að sjá
svartklæddan
mótorhjólatöffara geysast
um á stóru svörtu hjóli.
Þessir menn eiga þá
samfylgjandi ímynd að vera
hrottar og jafnvel
glæpamenn. Kvöldstund sú
sem ég eyddi með
Sniglunum sannfærði mig
um að margir þyrftu að búk
sér til nýja ímynd af hinum
svala gæja því Sniglarnir
eru (kannski eins og nafnið
bendir til) mestu rólegheita
skinn sem leggja sál sína í
þetta áhugamál, sem
reyndar er orðið stór þáttur í
lífi margra Sniglanna.
Sniglarnir halda fundi annað
hvert fimmtudagskvöld í
Dynheimum og verður
næsti fundur
fimmtudagskvöldið 19.
febrúar klukkan 21.00.
Sniglarnir hvetja eindregið
alla sem hafa áhuga á
bifhjólum að koma á fundi
og kynnast málunum.
BALDVIN B.
RINGSTED
HARALDUR
SIGURÐARSON
HEIÐAR Þ.
JÓHANNSSON
Hvers vegna heita samtökin
Sniglar?
B: „Þegar samtökin voru stofnuð
formlega eftir auglýsingu í DV þá
komu nokkrir áhugamenn saman
og lögðu hausana í bleyti til að spá
í eitthvert nafn. Það voru komnar
ýmsar hugmyndir fram eins og
Svarta höndin, eitthvað óhugnanlegt og ruddalegt. Þá kom þetta
nafn fram og það þótti svo gott að
það var ákveðið."
- Það er ekki verið að skírskota
til hraðans sem þið akið á?
HS: „Við sniglumst jú þegar við
erum margir."
B: „Það má segja það, í nafni
félagsins þá sniglumst við. Þegar
við tökum hópakstur og annað slíkt
þá höldum við okkur innan leyfílegra marka."
- Hvert er takmark félagsins?
B: „Einhver sagði að takmark
félagsins væri að koma öllum
íslendingum á hjól fyrir aldamót.
En í lögum félagsins stendur að það
sé til að byggja upp samstöðu meðal bifhjólamanna og vinna að hagsmunum þeirra. Ná fólki saman og
fara í ferðir út á land og út í heim. Það er ferðast milli Norðurlands og
Suðurlands einnig mætist hópurinn
einhvers staðar um verslunarmannahelgar. Síðast vorum við í
Vestmannaeyjum og þar áður í
Atlavík. Það er líka búið að fara
tvær utanlandsferðir á sýningar og
það er verið að ræða um að fara í
Evrópureisu eða á Ólafsvökuna í
Færeyjum."
-
Hvað eru samtökin gömul?
B: „Þau eru stofnuð í apríl
1984."
- Hvernig skiptast samtökin
milli landshluta?
B: „Það er varla hægt að segja að
þau skiptist. Við byrjuðum að
halda fundi hér á síðasta hausti því
það var orðinn svo fjölmennur hópur hérna og erfitt að fara suður einu
sinni í viku á fund. Það er stjórn í
samtökunum en enginn sérstakur
formaður. Snigill númer eitt er
aldursforsetinn."
- Hvernig er með húsnæði?
B: „Það stendur til aó koma upp
húsnæði en það yrði sennilega á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Ef við
fengjum einhvern bragga hér værum við vís með að þiggja hann. Við kunnum vel við okkur undir beru
lofti enda eru samtökin virkust á
sumrin þá er helst legið í tjöldum."
- Hver eru skilyrði til að komast
í samtökin?
|
Haraldur Sigurðsson |
B: „Upphaflegu og núverandi
skilyrðin eru þau að vera orðinn 17
ára. En það stendur til að gera einhverja smá trekt, það þarf ekki
nema eina skemmda legu í góða vél
til að allt sé ónýtt. Það hafa heyrst
sögur um að þetta séu glæpamenn
eða þaðan af verra."
- En verður maður að eiga
mótorhjól til að ganga í samtökin?
B: „Nei alls ekki. það er talið
æskilegt að þú hafir áhuga á mótorhjólum. Það er nóg að vita að þetta
er farartæki á tveim hjólum sem
kemst hratt og það er gaman að
ferðast á þessu. það þarf ekki að
vita nein tækniatriði eða neitt svoleiðis."
- Hvað með stelpur?
B: „Stelpur eru velkomnar."
- Eru einhverjar starfandi núna?
B: „Já ætli þær séu ekki svona
10%."
HS: „Allt of fáar."
- En hér fyrir norðan?
B: „Við köllum okkur Nyrðri arm samtakanna og þá teljum við
Akureyri, Dalvík, Svalbarðsströnd
og Þingeyjarsýslu. Við erum 35-40
manns og þar af 5-6 stelpur. Heildarfjöldinn yfir landið er að nálgast
300."
- Er hægt að vera félagi hvar
sem er á landinu?
B: „Já það er gefið út fréttabréf.
í því eru nýjustu slúðursögurnar, auglýsingar frá umboðunum og
jafnvel tæknimál."
- Hvar er hægt að fá þetta blað?
|
Heiðar Þ. Jóhannsson |
HS: „Hafa samband við Snigil og
fá að lesa þetta hjá honum."
- Er nauðsynlegt að hafa svona
félag?
HS: „Já."
B: „Já, þetta eflir svo samkenndina. Það er gaman að skemmta sér
með fólki sem hefur sömu áhugamál. Að hittast hvaðanæva af landinu á einum stað, það er svo tignarlegt að sjá 30 hjól saman að þú trúir
því ekki fyrr en þú sérð það."
-
- Hræðist fólk ykkur ekki ef þið
komið kannski 20-30 saman með
ógnar hávaða?
B: „Það eru áhrif frá amerískum
bíómyndum. Fólk setur oft samasemmerki milli mótorhjóla og
glæpamanna. Leðrið hefur líka
þessi áhrif." HS: „Og hávaðinn sem er kvartað undan er í rauninni öryggisatriði
því þegar bílstjórar sjá okkur ekki í
baksýnisspegli er hávaðinn í hjólunum það sem segir þeim að við
séum þarna."
- Eru þetta ekki keppnissamtök
á neinn hátt?
B: „Nei, þau eru fyrst og fremst
til að ná saman mönnum sem hafa
verið dreifðir hver í sínu horni. Ef
einhver sem á gamalt hjól sem er í
sæmilegu ásigkomulagi, og hann
vill losna við það þá er um að gera
að tala við okkur og ganga í samtökin."
- Bjóðið þið ekki upp á viðgerðanámskeið fyrir yngra fólkið
sem er að stíga sín fyrstu skref á
þessari braut?
B: „Nei það hefur ekki verið
gert. Um leið og þú færð þér hjól
og ef eitthvað bilar þá bara spyrðu
næsta mann. Ef hann getur engar
ráðleggingar veitt þér þá finnst
örugglega einhver. Samtökin eru
eins og að eignast 300 systkini og
allir vilja hjálpa öllum."
- Hvernig gengur samstarfið við
lögreglu?
B: „Það hefur yfirleitt verið mjög
gott. Fyrir sunnan bauð yfirlögregluþjónninn strákunum í kaffi
þar sem rædd voru ýmis mál."
HJ: „Það er mikið svínað á okkur í umferðinni og 30% slysa sem
verða á bifhjólum verða þegar svínað er á okkur."
B: „Við erum að reyna að koma
af stað vakningu þar sem við viljum
að allir keyri í fullkomnum hlífðargalla. Alveg í leðri með góðan hjálm, hanska og stígvél. Og að
keyra alltaf með ljós og þ.h. Þú
sérð nú yfirleitt ekkert alvarlegt að
hjá manni á stóru hjóli, ekki eins og
hjá þessum skellinöðrupúkum þar
sem 3 af hverjum 4 eru ljóslausir í
umferðinni. Ábyrgðartilfinningin
er meiri þegar menn eru komnir á
stór hjól."
- Hafið þið lítið álit á þessum
skellinöðrupúkum?
B: „Nei við erum allir búnir að
ganga í gegnum þetta og vitum
hvað þetta er en okkur blöskrar
samt hvað þeir eru kærulausir. Þeir
gera sér margir hverjir ekki grein
fyrir hvað þetta er hættulegt í raun
og veru."
- En að taka þá inn í samtökin?
B: „Þeir verða að hafa sín samtök sjálfir. Það hefur verið rætt um
að bjóða þeim jafnvel á kynningarfund og gefa þeim góð ráð. Þeir myndu eiga mjög erfitt með að
ferðast með okkur þeir eru á svo
kraftlitlum hjólum, þannig að það
gengi ekki að þeir yrðu í samtökunum."
- Hvernig er með þessi nöfn sem
þið fáið á ykkur (þá var ég að skírskota til nafns sem einn fundarmannanna bar á sér)?
B: „Við fáum svona nöfn á okkur
ef það er hægt vegna einhverra
atvika. Þetta nafn sem þú ert að
tala um Skelfir eða réttara sagt
reiðhjólaskelfir fékk hann (þ.e.a.s.
fundarmaðurinn) vegna óhapps
sem tengdist tveim eldri konum."
- Hvað er það sem fær ykkur til
að halda áfram t.d. ef þið hafið orðið fyrir slysum?
HS: „Meðfædd della."
B: „Það er allt hættulegt. Verstu
mótorhjólaslysin sem verða eru
þegar fætur klemmast á milli bíla
en ef viðkomandi dettur á hjóli í
fullkomnum hlífðargalla getur
hann staðið upp aftur. Þetta er orðið meira en áhugamál hjá okkur,
tilfinningin að fara út á sumrin á
góðu hjóli er ólýsanleg, menn
verða að upplifa þetta."
HS: „Maður verður svo ótrúlega
bjartsýnn."
|
Sólveig Sveinbjörnsdóttir |
Sólveig Sveinbjörnsdóttir
18 ára
Sólveig var eina stelpan sem mætt
var á þennan fund svo að ég ákvað
að spyrja hana hvað henni fyndist
um þetta allt og stelpur á mótorhjólum.
-
Af hverju ert þú í samtökunum?
„Ég fór í fyrsta skipti aftan á hjól
í sumar hjá stráknum sem ég er
með. Ég ætlaði að vísu aldrei að
þora en þetta er alveg æðislegt þegar maður byrjar."
- Hefurðu próf á skellinöðru eða
mótorhjól?
„Nei hvorugt en ég ætla að taka
mótorhjólapróf í sumar þetta verður óstöðvandi della hjá manni."
- Hvað finnst þér um sjónarmið
fólks gagnvart því að stelpur séu á
svona hjólum?
„Það er mjög misjafnt, sumir eru
fordómafullir gagnvart þessu en
annars verð ég ekki svo mikið vör
við það."
- Hveturðu stelpur til að ganga í
samtökin?
„Já, ef þær fá delluna einu sinni
þá verða þær. alveg eins og strákarnir."
"
Um leið og ég var að búast til
brottferðar kom Baldvin B. Ringsted að orði við mig og vildi leggja
áherslu á það að stelpum væri velkomið að fá að sitja aftan á hjá
þeim ef þær vildu prófa.
Það væri
bara að tala við þá þar sem þeir
væru oft í bænum á sumrin, það hefði nefnilega sýnt sig að þær væru
alveg jafngóðir bifhjólastjórar og
strákarnir
|
Egill H. Bragason
Ökukennari |
Allt spyr
Egil H. Bragason
ökukennara
- Kennir þú á fleiri farartæki en
bíl?
„Ég hef réttindi til að kenna á
bifhjól líka."
- Er mikið að gera við bifhjólakennslu?
„Það hafa verið svona 30-40
manns á ári." Sniglarnir því miður eins og aðrir.
Þeir sem keyra mótorhjól eiga það
á hættu að keyra hratt og það eru
margir sem missa prófið á hverju
ári út af því."
- En hvað með að ökumenn
svíni fyrir bifhjólafólk?
„Það er alveg rétt, ökumenn geta
verið mjög tilitslausir gagnvart
mótorhjólum. Maður verður alltaf
að gera ráð fyrir að mótorhjól taki
sama pláss á veginum og bíll."
- Heldur þú að slys á mótorhjólum séu meira sök bílstjóranna?
„Það er alveg útilokað að segja
nokkuð um það. Þeir sem eru á
mótorhjólunum ráða vel við þau en
slysin hafa alltaf fylgt og munu gera
það. Það er ekki hægt að segja að
það séu hlutfallslega meiri slys á
mótorhjólum heldur en bílum."
- Hvernig fer kennsla og próf
fram á mótorhjóli?
„Það fyrsta sem maður athugar
er hvort viðkomandi hefur keyrt
skellinöðru áður og langflestir hafa
gert það enda þýðir ekki fyrir mann
að læra á stórt hjól nema að hafa
keyrt skellinöðru. Nemandinn
keyrir síðan ákveðnar leiðir og
maður sjálfur á eftir. Það er byrjað
á frekar fáförnum stað og ef allt er
í lagi þá heldur nemandinn strax
áfram. Maður getur fylgst með gírskiptingunum, hvort nemandi hallar sér rétt í beygju og hvort hann
bregst rétt við hættum í umferðinni. Nemandi er látinn stoppa í
brattri brekku og taka af stað aftur
og þá reynir mjög mikið á hæfni
nemandans. Þetta geta ekki aðrir
gert en þeir sem hafa góða stjórn á
hjólunum. Nemandi má byrja að
læra þrem mánuðum áður en hann
verður 17 ára á stórt bifhjól en getur ekki tekið akstursprófið fyrr en á
17 ára afmælisdaginn. Fræðilega
prófið, sem er fólgið í að þá er fjallað um gerð og búnað bifhjólsins ásamt umferðarreglum og lögum,
er hægt að taka áður en nemandi
verður 17 ára. Í fræðilegu prófi
verður að fá 78 stig af 90 mögulegum. Akstursprófið fer þannig fram
að nemandi ekur einhverja
ákveðna leið í bænum sem bifreiðaeftirlitið tilgreinir og prófdómarinn
ekur á eftir honum.
Nemandi fær í hendurnar sérstakar reglur fyrir bifhjól ásamt
upplýsingum um búnað og þess
háttar. Það skiptir ekki máli hvort
nemandi er með bílpróf eða ekki en
það er léttara fyrir hann því þá
kann hann það mikið í umferðarlögum. Hingað til veit ég bara um
einn mann hjá mér sem hefur tekið
bifhjólapróf án þess að hafa
bílpróf. Þetta próf gildir fyrir stærra
en 50 cc."
- Skiptir engu máli með líkamsburði nemanda?
„Jú hiklaust, það hefur komið
fyrir að fólk hefur ætlað að læra
sem er 40-50 kg og það þýðir ekki,
veldur ekki hjóli sem er hátt í 200
kg. Eins er það að hjól sem eru
með svokölluðu kikkstarti, þ.e.
þeim er startað með fætinum eru of
erfið viðureignar fyrir mjög létt
fólk, það verður að vera á hjólum
með rafmagnsstarti." ......
- Hvað með stelpur?
„Hjá mér eru kannski 3-4 á ári
og þær mættu alveg læra meira því
að það hefur sýnt sig að þær eru
ekki lélegri."
- Hvernig er með þá sem vilja
taka próf á svona hjól en eiga ekki
neitt, geta þeir einhvers staðar
fengið lánað hjól eins og bíla?
„Lögreglan lánar engin hjól en ef
kæmi til mín maður sem ekki gæti
útvegað sér hjól þá myndi ég reyna
að gera það."
- Verðurðu var við fordóma frá
fólki t.d. af því að mótorhjólafólk
er leðurklætt?
„Það er skylda samkvæmt lögum
að bifhjólafólk sé leðurklætt því ef
það dettur af hjólunum þá rispast
það svo mikið að öll venjuleg föt
tætast í sundur, það verður að vera
þykkt efni."
- En hvað með hrotta- og glæpamannastimpil sem mikið af þessu
fólki fær á sig?
„Ég held að besta dæmið sem lýsir þessu sé að ég er búinn að kenna
nokkrum svokölluðum pönkurum
og þetta hafa verið alveg indælis
drengir. Ég held að þetta sé alrangt
álit sem fólk hefur því þetta er
mjög hugsandi ungt fólk sem hefur
sínar eigin skoðanir. Þetta er
ákveðin lífsstefna og þetta er í
tísku. Ég hugsa að margir af þessum mótorhjólastrákum séu í þessu
ekki síst því það er álitið að þetta
höfði eitthvað til kvenkynsins. En
þeir hafa líka mikinn áhuga á hjólunum því er ekki að neita."
- Hvað kostar að læra á bifhjól?
„Fast verð hefur ekki verið
endanlega ákveðið fyrir þetta ár.
En allur kostnaðurinn hefur verið
um 4000 krónur, mér skilst að það
sé eitthvað dýrara að taka þetta
próf fyrir sunnan."
Texti: Ingibjörg Elfa
Stefánsdóttir.
Myndir: Kjartan
Þorbjörnsson
Dagur 12.2.1987