Athugið að hringvegurinn var opnaður 14 júlí 1974 með opnun brúnna yfir Skeiðarársand !
Sennilega er þetta með fyrstu "hringferðum" um landið á mótorhjólum.
af facebook
Þarna hafa strákarnir fundið sér góðan stað til bess að reyna sig í torfæruakstri. |
Mér varð litið út um gluggann frá fangageymslunum á lögreglustöðinni, þegar ég sá allt í stóran eldblossa úti á Skúlagötu. Ég gerði strax aðvart, og við fórum í skyndi á staðinn á lögreglubilum."
Þetta sagði lögregluþjónn. sem blaðamenn Vísis hittu á Skúlagötu í gærdag, þegar lögreglan var að gera skýrslu um óhugnanlegan árekstur, sem varð á horni Vitastigs og Skúlagötu. Mótorhjól með ökumanni og farþega hafði ekið inn i hlið fólksbils, sem kom niður Vitastiginn og út á Skúlagötu. Mennirnir á hjólinu köstuðust 15 til 20 metra fram fyrir bílinn við áreksturinn, og slasaðist ökumaðurinn allmikið, en farþeginn eitthvað minna.
Við áreksturinn kviknaði í mótorhjólinu, og brann það algjörlega. Einnig kviknaði í bílnum, en slökkviliðinu tókst að slökkva eldinn fljótlega eftir að það kom á staðinn.
Eldblossinn, sem lögregluþjónninn sá, myndaðist þegar mótorhjólið rann aftur með fólksbílnum, eftir að hafa ekið í hlið hans framan til. Hjólið festist við bílinn aftast, og kviknaði um leið í því með miklum blossa.
Eldurinn læsti sig einnig í bílinn, og unnu lögregluþjónar
að þvi að bjarga farangri úr
honum, sem var allmikill. Bíllinn er utan af landi. Hann brann
allmikið aftan til.
Billinn kom akandi niður
Vitastig og beygði til hægri út á
Skúlagötu. Mótorhjólið kom þá
aðvifandi og skall á bilnum.
Framgjörðin lagðist alveg
saman við áreksturinn, en djúp
dæld myndaðist í bilinn.
Við þennan árekstur hefur fólksbíllinn farið yfir á vinstri vegarhelming Skúlagötunnar, því að hann rakst þar á bíl, sem kom á móti. Litlar skemmdir urðu hins vegar af þeim árekstri.
Ökumaður fólksbilsins
slasaðist litillega, hlaut nokkra
skurði og skrámur.
Farþeginn á mótorhjólinu var
12 ára gamall drengur. Hann
slasaðist eitthvað minna en ökumaður hjólsins. Báðir voru
fluttir á slysadeild, þar sem gert
var að meiðslum þeirra.
Mótorhjólið brann gjörsamlega, og lágu plastbrettin á þeim í klessu utan á hjólinu, bráðin
vegna hitans.
Í viðtali við varðstjóra slysarannsóknadeildar lögreglunnar í gærdag, sagði hann, að slys af þessu tagi virtust því miður fullalgeng. Bílstjórar bera oft fyrir sig, að þeir hafi ekki séð vélhjól, þegar þeir aka í veg fyrir þau.
Vélhjólamönnum hefur oft
verið bent á það að aka með
fullum ljósum, jafnt daga sem
nætur, til að tryggja, að betur sé
eftir þeim tekið í umferðinni.
-
Lögreglan á nú tiu vélhjól, en
fjögur eru á leið til landsins. Þau nýju eru eins og sum hin eldri af gerðinni Harley-Davidson, og kostar hvert þeirra fullbiiið. kringum 430.000 krónur. |
Líklega hefur almenningur ekki veitt því athyglj að skelli nöðruöldin er liðin, og nú hafa þeir sem búnir eru að fá ökuskírteinið og halda enn tryggð við útiveruna í akstri, fengið sér aflmikil mótorhjól, 60 æpandi hestöfl, sem geta undir góðum skilyrðum fleytt hjólinu áfram á 200 kílómetra hraða.
„Við erum alls engir villimenn" sögðu fjórir forráðamenn klúbbsins í viðtali við Vísi, „en við finnum það greinilega að þannig er oft á okkur litið, því miður. Og þetta vildum við gjarnan að fólk hefði í huga.
Hjólin eru okkar sport alveg eins og knattspyrna eða lax hjá öðrum."
— Og hvers eiga reglugerðir um hámarkshraða að gjalda?
Auðvitað förum við eftir
þeim reglurm á sama hátt og
aðrir ökumenn, —
Við verðum
lika að gera það. Því við erum
tvímælalaust undir smásjánni hjá lögreglunni og reyndar fleiri.
Stóru mótorhjólin, sem kosta yfirleitt liðlega 100 þúsund kr.
og allt upp í 160 þúsund (dýrasta hjólið kostaði að vísu um
500 þúsund) eru yfirleitt japanskrar ættar Hondur eða
Kawasaki, en eitthvað mun vera
hér af BSA og Triumph frá
Bretlandi, — þau amerísku eru
yfirleiit of dýr aðeins einn maður á slíkt hjól hér.
Það var af sameiginlegum
áhuga og eins og fyrir tilviljun
að klúbburinn varð til, segja
piltarnir, menn hittust og báru
saman bækur sínar. Klúbburinn
var stofnaður, enda talin þörf
á því, þar sem svo mjög færist í vöxt að menn aki mótorhjóli.
„Það sem háir okkur óneitanlega er það að við höfum
ekki aðstöðu til að reyna hjólin. Vitanlega kaupir enginn sér
mótorhjól til þess eins að aka
um allar trissur á 45 km hraða.
Því þurfum við að fá að reyna
hjólin, — löglega á meiri hraða,
einnig torfæruakstur og annað slíkt. Við köllum það „sótbraut"
því þar ætti að gefast tækifæri
til að hreinsa sótið úr vélinni,"
sögðu félagarnir.
Aðstöðu til funda einu sinni
í viku hafa þeir þó i húsakynnum Æskulýðsráðs, á fimmtudags
kvöldum, og þar sýna þeir kvikmyndir á veturna og ræða sameiginleg hagsmuna, og áhugamál.
Ferðalög eru farin út úr
borginni og núna nýlega var
farið norður til Akureyrar, -
tíu' komust á leiðarenda, en ýmsar bilanir á leiðinni gerðu
öðrum félögum lífið leitt.
Áhorfendur og keppandi, sem er að glíma við skriðuna |
Nú hlýtur að vera talsverð slysahætta af akstri mótorhjóla, ekki sízt ef viðkomandi ökumaður hefur kannski hert takið á bensíngjöfinni um of?
„Já, og þarf ekki til. Ökumenn hér á landi hafa alls ekki vanizt því að vera H umferðinni með svo aflmiklum hjólum, virðast halda að þetta séu allt skelli nöðrur Þeir hafa því hvað eftir annað „svinað" í veg fyrir okkur." segir einn klúbbfélaganna. „Þessi er nýbúinn að - lenda í slysi" — „Og ég var ár frá vegna mjaðmagrindarbrots" segir annar, sem er ný lega farinn að sitja hjólið að nýju.
Nú voruð þið kærðir á dögunum fyrir að valda landsspjöllum við Kleifarvatn, — er slíkt ekki heldur ósportlegt athæfi?
„Jú. vitaskuld er það ósport legt, en málið er nú bara það að við ollum engum landsspjöllum þarrna síður en svo, Við vorum þarna á æfingu fyrir torfæruaksturskeppni og höfðum fullt leyfi frá lögreglunni fyrir þessu. Einhver virðist hafa kært þetta, en sú kæra er byggð á misskilningi. Við vorum einmitt að koma sunnan að eftir að gróðursetja eftir okkur. Þarna var alls enginn gróður fyrir, en það verður hann væntanlega eftir þessa æfingu okkar. Annars sáðum við mest í för eftir jeppa og aðra bíla, sem þarna hafa ekið." „Við teljum að jepparnir geti valdið hundraðföldum skaða í landslaginu miðað við hjólin okkar. Þá má líka benda á að í lögum okkar félagsskapar eru ströng ákvæði um landvernd, því hennar veg viljum við sem mestan og beztan.
Að lokum spurði blaðamaður
hvort þeir teldust ekki óæskilegir og nánast óvinsælir nágrannar í sínum hverfum.
„Jú, vitanlega erum við ekkert vel. séðir... Það lætuf hátt
í hjólunum okkar, og við því er ekkert í að gera. Þau eru framleidd svona frá verksmiðjunni. Það hafa margir kvartað,
við þekkjum það. En við teljum
að fólk geti varla sýnt slíka
þröngsýni í okkar garð. Við viljum fara að lögum, þurfum bara
að fá okkar aðstöðu eins og
ungir menn hafa erlendis. Við
förum að reglum eins og aðrir
ökumenn, við höfum þann öryggisútbúnað sem nauðsynlegur er, m. a. mun betri hjálma
en lögreglan hefur.
Við viljum því endilega að fólk leggi
ekki dóm á okkur eftir einhverjum „kollegum" okkar í Ameríku — sem við reyndar sækjum engar hugmyndir til."
JBP
Vísir 30.7.1971
https://timarit.is/files/9952011
Hér sýnir einn piltana listir sýnar |
Nokkrir piltar úr Eldingunni |
Hjólin lagfærð og smurð |