Lögreglan á nú tiu vélhjól, en
fjögur eru á leið til landsins. Þau nýju eru eins og sum hin eldri af gerðinni Harley-Davidson, og kostar hvert þeirra fullbiiið. kringum 430.000 krónur. |
- fékk fjögur ný vélhjól til viðbótar til að fylgjast með Vesturlandsveginum
Lögreglan býr sig nú af kappi undir þjóðvegaakstur — jafnt almennings sem eigin manna. Í sumar mun lögreglan hafa sex bíla við eftirlitsstörf á þjóðvegum, en auk þeirra slangur af vél hjólum.
Dómsmálaráðherra beitti sér fyrir þvi nýlega, að lögreglan fékk fjögur ný vélhjól til sinna nota. Eru þau af gerðinni HarleyDavidson, eins og raunar flest vélhjól lögreglunnar. Hafa þessi hjól enda dugað vel, þau elztu sem nú eru i notkun hjá lögreglunni eru frá árinu 1958 og láta engan bilbug á sér finna.
„Þessi nýju vélhjól okkar verða i notkun mest á steypta vegarspottanum frá Elliðaám og upp að úlfarsá (Korpu)", sagði Óskar Ólason yfirlögregluþjónn i samtali við Vísi, „það er nefnilega hætt við að menn kunni sér ekki læti og spretti um of úr spori við að koma á svo góðan veg — sem ranglega hefur verið kallaður hraðbraut. Þetta hraðbrautarnafn er mjög villandi — menn halda að takmarkaður hraði sé þarna leyfilegur, en þvi fer fjarri, enda vegurinn mjór og umferð um hann þung."
Og væntanlega þora menn ekki að aka svo mjög hratt, vitandi af leðurbúnum lögreglukappa, þeysandi fram og aftur um veginn á nýju hjóli frá Ólafi Jóhannessyni.
- GG
Vísir 26.05.1972