YKKAR einlægur er einn þeirra u.þ.b.
600 Íslendinga sem fyrstu fimm mánuði ársins 2005 keyptu mótorhjól.
Það var gamalt Yamaha XJ600, sem
keypt var hjá mótorhjólasölu í Þýskalandi í gegnum netið. Hjólið er árgerð
1994 og var ekið um 37.000 km, en
eins og nýtt á að líta og á nýjum dekkjum og vel við haldið. Hingað komið
kostaði það nálægt 350.000 kr. og
hafa nú bæst við um 1.500 km á vegalengdarmælinn, enda einmuna blíða
verið mestallt vorið.
Undirritaður er búinn að sporta sig
allnokkuð á nýja leiktækinu sínu, sem
margir kalla í glensi Gula fiðringinn,
með greinilegri vísan í fiðring af öðrum
og grárri litarhætti. Skrifari er samt
engan veginn undir það búinn að rita
lærðar greinar um mótorhjól, hvað þá
heila reynsluakstursgrein. Til þess er
þekkingin á málefninu allt of brotakennd. Þess vegna ber að líta á þessi
skrif, sem ekki fjalla um Gula fiðringinn að öðru leyti heldur nýja Yamaha
MT-01 ofurhjólið, miklu fremur sem
upplifun íturvaxins drengs sem
skyndilega kemst í stóran dótakassa
og fær að leika sér í honum um stundarsakir.
Þó skal þess getið að Guli fiðringurinn er með 60 hestafla vél og er
fremur létt götuhjól og hefur því alla
tíð virkað bara nokkuð sprækt í huga
drengsins. En svo bauðst honum að
prófa þetta gljáandi nýja Yamaha
MT-01 frá Arctic Trucks, umboðsaðila
Yamaha, og þá upplaukst fyrir honum
splunkunýr og spennandi veruleiki.
Spurning um Newtonmetra
Komið var með hjólið upp að dyrum
seinnipart föstudags og drengnum afhentur lykillinn. Hjólið var skoðað í
andakt í krók og kima. Sumt kom
kunnuglega fyrir sjónir, ekki síst að
MT-01 er á tveimur hjólum, en annað
var framandlegt, eins og tvö púströr
af sverustu gerð alveg upp við sætið,
eins og á torfæruhjólum, og keðjan
sem er hægra megin á hjólinu. Framlugtin er líka öðruvísi en aðrar framlugtir; blanda af einhvers konar
„retro“-hönnun og módernisma.
Pústflækjan og stærðin á V2-vélinni
er næstum yfirþyrmandi. Og afturdekkið er sömuleiðis af sverustu
sort.
Í svipan rifjaðist upp fréttaflutningur af mótorhjólasýningunni í Tókýó
1999 þegar MT-01 var sýnt sem hugmyndahjól. Þá áttu kannski fæstir von
áþví að það yrði nokkurn tíma framleitt, eins furðulegt í uppbyggingu og
það var. Heim var það samt komið á
númerum og fullum tanki af bensíni.
Það er nýbúið að setja MT-01 á
markað í Evrópu en nokkru áður í Japan. Hjólið verður hins vegar ekki markaðssett á næstunni í Bandaríkjunum.
Þá er gaman að geta þess að Yamaha
tók upp allt efni fyrir bæklinga og auglýsingar hér á landi í fyrra og má sjá
skínandi skemmtilegar myndir í íslenskri náttúru á www.mt-01.com.
Sumir höfðu spurt skrifara hvort
hann treysti sér til þess að hjóla á
þessu aflmikla hjóli. Þá kom strax upp
íhugann að hjólið er þó ekki „nema“
90 hestöfl þegar allt kemur til alls,
eins og það hefði í raun og veru eitthvað með málið að gera. Það sem allt
snýst um í MT-01 er nefnilega tog og
aftur tog, Newtonmetrar á Newtonmetra ofan. Yamaha setti stærstu vélina í sínu vopnabúri í þessa glæsilegu
mótorhjólagrind – vél sem notuð hefur
verið í hörðustu hippana eins og t.d.
Warrior, tæpir 1.700 rúmsentimetrar
að slagrými, sem sagt stærri vél en
t.d. í VW Golf 1.6 FSI. En, nota bene,
hjólið er um 920 kg léttara Golfinn.

Það var ekki eftir neinu að bíða. Sólin skein í heiði og kevlar-gallinn hékk
óþreyjufullur á herðatré inni í skáp.
Setan á hjólinu er þægileg fyrir mann
sem kemur af XJ600 og ekki ósvipuð.
Lítið mál að stoppa á ljósum. En þegar
átti að snúa hjólinu við í þrengslum
upp við útidyrnar var það deginum
ljósara að hjólið er engin léttavara
þrátt fyrir allt. Lyklinum var snúið í
svissinum og þrýst á rafstartið. Ætternið leyndi sér ekki í drununum frá
vélinni. Þetta er hippahljóð og það
finnst fyrir vélinni upp í heiladingul.
Grófur víbringur í lausagangi og
þrumugnýr í hlustinni. Svo þegar inngjöfinni er skyndilega sleppt sprengir
vélin, eins og í gömlum átta gata amerískum kagga. Þvílíkur ruddi!

Og svo var brunað af stað út í vorið.
Ífyrsta gír og strax kominn á hámarkshraða! Í öðrum gír og á 2.500
snúningum á allt öðrum hraða. Hjólið
er að skila mesta átakinu í kringum
3.000 snúninga og hljóðið er þungt og
djúpt og hröðunin þegar komið er upp
ávenjulegan aksturshraða gríðarleg.
Um leið er hjólið auðvelt viðureignar;
bara að muna að halda fast í stýrið!
Undirritaður treysti sér hraðar í beygjur á þessum mikla grip en Gula fiðringnum, og það þótt hann væri að
prófa MT-01 í fyrsta sinn. Breið afturdekkin tryggja mikið veggrip. Það
jók líka sjálfstraustið um allan helming
að finna hemlunargetuna frá tvöföldum diskabremsunum að framan. En
alltaf þrengir sér inn í vitundina vélarhljóðið og titringurinn frá vélinni,
sem samt er ekki til óþæginda, miklu
frekar til áminningar um allt aflið sem
er undir ganglimunum.
Nýr flokkur í uppsiglingu?
Með MT-01 virðist sem Yamaha sé
að búa til nýjan flokk mótorhjóla, þar
sem allt gengur út á snarpa aksturseiginleika en meira tog en hröðun og
spennandi að sjá hvort aðrir framleiðendur feta í sömu fótspor. Þetta er
svolítill hlunkur en meðfærilegur að
flestu leyti. Spurning er hversu mikið
vindhlíf myndi spilla útliti hjólsins, en
hún er eiginlega nauðsynleg, að mati
skrifara, í þessu voru rokbæli. Eini
ókosturinn við MT-01 er verðmiðinn;
1,5 milljónir rúmar. En samt er það
kannski fyrirgefanlegt fyrir þá ánægju
sem hjólið veitir.
Guli fiðringurinn og MT-01
gugu@mbl.is