21.8.20
Landsmót 2021
Bannað að prjóna
Já samkvæmt lögum er bannað að prjóna á Mótorhjólum.
og miðað við þetta stórskrítna þriggja hjóla mótorhjól þá þarf ekki að hafa áhyggjur af því.
Drifhjólið er nefnilega í miðjudekkinu og þar með gjörsamlega ómögulegt að lyfta framdekkinu nema með tjakk.... alveg sama hversu mörg hestöfl eru í græjunni...
Við skulum bara vona að þetta komi aldrei til með að komast í framleiðslu ,,,, oj bara..
Varðandi þetta hjól veít ég ekkert um en það fann ég á netinu og var ekkert minnst á uppruna þess kannski sem betur fer,
19.8.20
Moto GP úrslit í Austurríki.
Í Motogp helgarinnar sigraði Andrea Dovizioso og kom sér þar með í titilbaráttuna
Það má segja að það hafi verið viðburðarríkri keppni á Red Bull Ring brautinni í Austuríki.
Sigur Dovizioso kom aðeins 24 stundum eftir að hann tilkynnti að hann væri að yfirgefa Ducati liðið eftir tímabilið.
Þetta er í þriðja sinn sem Dorvizioso sigrar í Austurríki síðustu fimm árin.
Joan Mir, tók annað sætið á Suzuki og Jack Miller náði að taka þriðja sætið einnig á Ducati.
Hreinsa þurfti brakið og svo var keppnin endurræst.
Brad Binder KTM hagnaðist mest á endurræsingu keppninnar en hann komst úr 18 sæti í það fjórða og Rossi tók fimmta sætið.á Yamaha. Takaaki Nakagami kom svo í sjötta sæti á Honda.
Núverandi heimsmeistari Marc Marques (Honda) tók ekki þátt í keppninni að þessu sinni en hann er að jafna sig eftir handleggsbrot.
Staðan eftir 4 keppnir af 14
- QUARTARARO Fabio FRA 67 stig
- DOVIZIOSO Andrea ITA 56 stig
- VIÑALES Maverick SPA 48 stig
- BINDER Brad RSA 41 stig
- ROSSI Valentino ITA 38 stig
Fundu örmagna mótorhjólamann
Mótorhjólamaður fannst heill á húfi eftir að hafa orðið viðskila við hóp sinn á hálendinu inn af Fossárdal í Berufirði í gærkvöldi.
Maðurinn var kominn langleiðina inn í Vesturbót sem er inn af Hamarsdal þegar björgunarsveitir fundu manninn. Hafði hann dottið á hjólinu í brekku og var of örmagna til að reisa það við, „og gerði það rétta í stöðunni og beið við hjólið þar til aðstoð barst“, eins og segir í tilkynningu á Facebook-síðu björgunarsveitarinnar Báru á Djúpavogi.
Tók vitlausa beygju
Þar segir sömuleiðis að tilkynning um mótorhjólamanninn hafi borist björgunarsveitinni, ásamt fleiri sveitum á Austurlandi, um klukkan ellefu í gærkvöldi.
Hafði maðurinn tekið vitlausa beygju á slóða og lent í aðra átt en hópurinn sem hann var með. „Myrkur og þoka skall svo á og erfitt fyrir ókunnuga að átta sig,“ segir í tilkynningunni.
Fimm manns á tveimur bílum leituðu mannsins sem síðar fannst heill á húfi.
mbl.is