Er úti um titilvonir Valentino Rossi?
Atvikið á Sepang brautinni hefur sett keppnistímabilið í MotoGP í uppnám
Klukkan 15:11 að staðartíma sunnudaginn 25.
október síðastliðinn
gerðist atvik á Sepang
brautinni sem breytti öllu keppnistímabilinu í MotoGP og setti allt
á annan endann fyrir síðustu
keppnina í Valencia sem fram fer
um næstu helgi. Heimsmeistarinn
Marc Marques og fyrrverandi
heimsmeistarinn Valentino Rossi,
sem er í forystu í stigakeppninni í
ár, höfðu barist af hörku um
þriðja sætið í keppninni þegar
Marquez þröngvar sér upp að
vinstri hlið Rossi skömmu fyrir
krappa hægri beygju. Rossi að því
er virðist hægir aðeins á sér til að
fá Marquez til að hætta við atlöguna en þegar hann gerir það ekki
tekur Rossi sig til og rekur fótinn
í stýrið á hjóli Marquez sem fellur
við. Vegna atviksins eru Rossi
dæmd þrjú refsistig og þar sem
hann var með eitt refsistig á bakinu þarf hann því að ræsa aftastur í síðustu keppninni með aðeins
sjö stiga forystu í heimsmeistarakeppninni. Aðalkeppninautur
hans Jorge Lorenzo mun að öllum líkindum ræsa af fremstu rásröð enda er hann að keppa þar á
sínum heimavelli, og verður því
við ramman reip að draga fyrir
aumingja Rossi.
Var atvikið réttlætanlegt?
En hvernig gerir nífaldur heimsmeistari eins og Rossi svona afdrifarík mistök, gæti einhver
spurt? Rossi hafði nokkru áður
sakað Marquez um að keppa
gegn honum en fyrir Lorenzo, því
að eftir slakt gengi í byrjun tímabilsins á Marquez ekki lengur von
á þriðja titlinum í röð.
Lorenzo er
samlandi Marquez en Rossi er frá
Ítalíu, en frá báðum löndum koma
oft blóðheitir keppnismenn. Það
má heldur ekki gleyma því að
þótt Marquez eigi ekki lengur von
á titli er hann fyrst og fremt
keppnismaður og fær borgað fyrir að vinna keppnir. Keppnin í ár
stendur einnig á milli Honda og
Yamaha og þar sem að þeir
kepptu um þriðja sætið snerist
keppnin ekki síst um það hvort
liðið hefði tvö hjól á verðlaunapalli. Marquez hafði eins og áður
sagði gert harða atlögu að Rossi
og þeir höfðu skipst á forystu
fram og til baka og aldrei meira
en hjóllengd á milli þeirra. Fyrir
þá sem á horfðu varð þessi hanaslagur þess valdandi að neglur
voru nagaðar niður í kviku og
lamið í sófaborð af öllu afli.
Stuttu fyrir atvikið storkaði Marquez honum mikið og Rossi brást
við með því að veifa eins og einhver sem lendir í að svínað sé á
hann í umferðinni. Þessir leikrænu tilburðir höfðu engin áhrif á
Marquez sem hélt uppteknum
hætti og eftir á hafa sumir sagt
að Rossi hafi verið í rétti að
sparka til Marquez eftir þessar
atlögur. Vandamálið fyrir Rossi
var bara eins og hann veit best
sjálfur að það eru reglur í MotoGP keppninni eins og öðrum
keppnum og ásamt dómurunum
með reglugerðarbókina voru
hundruð milljóna áhorfenda að
fylgjast með í beinni útsendingu.
Jú, að vísu hafði Marquez rekið
höfuðið í rassinn á Rossi skömmu
áður og hvað var þá að því að
Rossi ræki fótinn aðeins í hann?
Málið var einfaldlega það að
Rossi hægði á sér fyrir beygjuna
og leit á Marquez á meðan og
tekur svo þá ákvörðun að sparka í
hann. Þegar atvikið er skoðað í
þessu samhengi verður ásetningurinn augljós og Rossi verður því
að sætta sig við þá niðurstöðu að
byrja aftastur í Valencia.
Ekki öll von úti
Rossi getur þó átt nokkra
möguleika ennþá og ef hann nær
sjötta sæti. Til dæmis þarf Lorenzo að verða í öðru af efstu
tveimur sætunum til að vinna
heimsmeistarakeppnina. Rossi
hefur áður þurft að ræsa aftarlega og unnið sig upp í efstu
sæti svo að spennan fyrir áhangendur Rossi og Lorenzo er gífurleg. Hvað liðsmenn Honda gera
til að hafa áhrif á þann slag verður að koma í ljós en Pedrosa og
Marquez hafa eflaust fengið þá
skipun að vinna efstu tvö sætin í
sárabætur fyrir slakt gengi á
árinu. Marquez á brautarmetið í
Valencia og Pedrosa hefur oftast
unnið þar keppni. Það stefnir því í
mikla veislu næstkomandi sunnudag en keppnin verður meðal
annars sýnd í beinni útsendingu á
Stöð 2 Sport 3 og hefst dagskráin klukkan 12:50 að íslenskum tíma.
Hér má sjá í hvaða sæti Valentino Rossi þarf að lenda á móti
Jorge Lorenzo til að hampa
heimsmeistaratitlinum:
Lorenzo fyrstur, Rossi annar
Lorenzo annar, Rossi þriðji
Lorenzo þriðji, Rossi sjötti
Lorenzo fjórði, Rossi níundi
Lorenzo fimmti, Rossi ellefti
Lorenzo sjötti, Rossi tólfti
Lorenzo sjöundi, Rossi þrettándi
Lorenzo áttundi, Rossi fjórtándi
Lorenzo níundi, Rossi fimmtándi
njall@mbl.is