21.12.05
Á vélhjóli í jöklaferðir 2005
15.12.05
JÓLAHJÓL
DÆGURLAGIÐ
Það var í gömlu góðu árdaga Sniglanna sem þetta klassíska jólalag kom í heiminn. Mótorhjólatöffarinn og leikarinn Skúli Gautason á heiðurinn af lagi og texta.
„Ég átti afmæli og það var veisla heima hjá mér,“ svarar Skúli aðspurður hvernig lagið varð til. Þá leigði hann hús ásamt Þormari Þorkelssyni, öðrum mótorhjólatöffara, á Görðum við Ægisíðu.„Þar var hálfgert félagsheimili fyrir mótorhjólabullur og oft gestkvæmt og glatt á hjalla,“ segir Skúli. Hann rifjar síðan upp það sem fór fram í örlagaríku afmælisveislunni.
Börn og mótorhjól
„Við vorum eitthvað að velta fyrir okkur hvernig hugsunarhátturinn hefði verið hjá mótorhjólatöffurunum þegar þeir voru börn, um hvað þeir voru að hugsa. Flestir voru á því að hafa átt draum að fá mótorhjól í jólagjöf. Svo fóru af stað vangaveltur um það hvort hann væri ekki svolítið áberandi pakkinn og hvort það væri eitthvað hægt að fela þann pakka því að jólagjafir eiga að koma á óvart, ekki satt?“ Upp úr þessum umræðum og vangaveltum spratt svo lagið „Jóla-hjól“ og þar sem þetta var afmælisveislan hans Skúla var honum gefið það loforð í afmælisgjöf að lagið skyldi koma út á plötu. Hann og Þormar mæta daginn eftir upp í stúdíó Mjöt til að taka upp tvö lög, þar á meðal lagið um jólahjólið. „Þetta var glamrað á kassagítar og við bara rauluðum þetta inn,“ segir Skúli.Milljón dollara hugmynd
Ætlunin var að gera lítinn 45 snúninga vínil og fóru þeir með upptökurnar upp í plötupressuna Alfa sem þá var suður í Hafnarfirði.„Þá voru þeir í plötupressuninni í miðju jólaplötuflóðinu og voru einungis í því að pressa stóru 33 snúninga plöturnar. Til að koma okkar plötu inn hefði þurft að afgreiða allar stóru plöturnar fyrst og það var of mikið mál.“
Á endanum varð platan þeirra á stærð við 33 snúninga plötu en spilanlegi hlutinn aftur á móti aðeins á stærð við 45 snúninga plötu. Meira en helmingur plötunnar var sem sagt auður. „Síðan gáfu þeir okkur hvítt umslag utan um og við Þormar handskreyttum þessi hvítu umslög eftir óskum hvers viðskiptavinar og seldum þetta bara úti á götu. Við sögðum auðvitað ekki frá því að auða svæðið á plötunni væri út af þessum vandræðum í plötupressunni heldur létum við í veðri vaka að þetta væri alveg sérhannað. Þetta væri svona handfang þannig að maður gæti alveg gripið um plötuna með fitugum fingrum án þess að það kæmi niður á hljómgæðunum. Alveg milljón dollara hugmynd. Við prentuðum plötuna í einhverjum fimm hundruð eintökum sem seldust upp þessi jól.“
27.10.05
Með bensín í blóðinu
Tryggvi Sigurðsson |
Þetta áhugamál er efni í stórt og mikið viðtal en nú ætlunin að halda sig við bíla og mótorhjól. Tryggvi tekst allur á loft þegar hann er spurður um Mustanginn og hann hellir tölulegum staðreyndum yfir blaðamann sem veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið. „Þetta er Ford Mustang árgerð 1968, Fastback
Ford Mustang Fastback 1968 |
Þá er komið að mótorhjólunum og þar er ekki komið að tómum kofunum því Tryggvi á fjögur mótorhjól og það elsta er frá árinu 1946. „Mótorhjólin tóku allan minn tíma og pening þegar ég var ungur það tók maður í arf frá bæði pabba og afa. Þar var Hornaflokkurinn enn og aftur á ferðinni. Það er rétt að ég á fjögur mótorhjól í dag en að sjálfsögðu byrjaði maður á skellinöðru."
Tryggvi segir að þetta með mótorhjólin hafi verið svolítið í bylgjum og enn hefur hann ekki fjárfest í draumahjólinu en hann getur ekki kvartað. „Draumamótorhjólið er að sjálfsögðu Harley Davidsson V Road en það er það dýrt að ég get ekki réttlætt það fyrir sjálfum mér að eiga slíkan dýrgrip. En maður verður að eiga einn Harley og ég á Harley Davidsson Sportster 1200, árgerð 2000. Svo á ég tvö Hondahjól, CB-750 af árgerðum 1975 og 1976 sem eru sams konar hjól og ég átti og þegar þú varst að elta mig," sagði Tryggvi hlæjandi og vísaði til fyrri starfa blaðamanns í lögreglunni.
„Fjórða hjólið er Matchless 500 árgerð 1946 sem ég gerði upp. Ég gaf það nú eiginlega syni mínum og hann notar það sem stofustáss. Hann fékk líka hjá mér skellinöðru sem ég gerði upp. Hún er af gerðinni Honda Dax, árgerð 1971 og var upphaflega 50 rúmsentimetrar en er í dag 85 og enginn má vita það."
Áttu þér annan draumabíl en Mustang? „Mig hefur lengi langað í jafnaldra minn, Chevrolet Bel Air 1957. Annars hef ég aldrei verið með einhverja einstefnu í bílategundunum, hef verið blessunarlega laus við það. Benz er vandaðasti bíllinn, en samt er það nú svo að hver bíll hefur sín einkenni eða öllu heldur karakter."
Er bíladella eitthvað sem eldist afmönnum? „Ég veit það ekki, sjálfur ætla ég að halda þessu áfram á meðan það gefur mér einhverja ánægju. Það sem háir mér er lítill tími því það fer mikill tími í bátasmíðina, svo er það fjölskyldan og sjómennskan og svo er ég með dellu fyrir bátum og skipum í fullri stærð og á mikið myndasafn og þekki sögu flestra í
Eyjaflotanum. Til að slappa af frá þessu öllu saman finnst mér best að stíga á mótorhjól og taka einn hring. Eg þekki ekkert sem er eins afslappandi," sagði Tryggvi að lokum.
Eyjafréttir 27.10.2005
11.10.05
Vélhjólasport vaxandi íþrótt
með ljósi og annað slíkt. Á þeim hjólum má keyra innan bæjarmarka en á mótorkross hjólunum má einungis vera á lokuðum svæðum. Þess má geta að sonur Jóns Hafsteins er núverandi íslandsmeistari í enduro. Búnaður skiptir öllu máli þegar byrja skal í þessu fjöruga sporti. Nauðsynlegt er að hafa hjálm, hanska og brynju sem fer annað hvort innan undir eða yfir utanyfirflíkina. í JHM sport er hægt að fá allt í tengslum við vélhjólasportið auk þess sem þar vinnur fagfólk sem veitir persónulega ráðgjöf.
http://timarit.is/
23.8.05
Þingmaður í leðri Geysist um á mótorfák
„Ég er búinn að eiga þetta hjól í tíu ár," sagði Magnús Þór, skömmu fyrir brottför í gær, og hugurinn hvarf aftur til Norður Noregs á 10. áratugnum. „Ég hef farið nokkrum sinnum um allan Noreg og allar Færeyjar. Ég hef nú lent í mörgum svaðilförum á þessu hjóli. Ég var á því í mörg ár, bjó í Noregi og ferðaðist á því með tjald og svefnpoka. Upp á síðkastið hef ég bara verið að eignast börn og svona og er fyrst núna að draga hjólið fram aftur," segir hann.
Erindi Magnúsar Þórs á Ísafirði var fundur Vestnorræna ráðsins sem hófst þar í gær. Er þar um að ræða vettvang þar sem ísland er stórveldi við hlið Færeyja og Grænlands. Íbúar Vestfjarða geta átt von á að fá að berja þingmanninn augum næstu daga, þar sem hann geysist um héraðið, leðurklæddur á mótorfák. „Ég ætla að fara um Vestfirðina næstu daga og hitta fólk. Og gera úttekt á vegakerfinu, þannig að maður viti hvað maður er að tala um á Alþingi. Ég fer um sunnanverða firðina, ég er ættaður þaðan," segir hann. Og hjólið er ekki á leiðinni inn í bílskúr á næstunni.
Magnús Þór hefur í hyggju að nota það í vetur Það er rosalega gott að vera á mótorhjóli, sérstaklega Reykjavík, þar sem umferðarþunginn er orðinn gríðarlegur. Ef maður er á mótorhjóli fer maður fyrstur af stað á hverjum ljósum. Jafnvel í mestu umferðarhnútum. Þess fyrir utan fær maður allt aðra tilfinningu fyrir landinu á mótorhjóli en í bíl."
18.8.05
Yamaha 2-trac
NÝVERIÐ kom á almennan markað mótorhjól
sem er afar óvenjulegt fyrir þær sakir að það
er með drifi á báðum hjólum. Kíkjum nánar á
gripinn.
Hvað er Yamaha 2-trac? Hjólið er í raun hið
sama og Yamaha WR 450 nema með drifi á
báðum hjólum.
Hvernig virkar framdrifið? Í stuttu máli er
glussadæla fest á mótorinn og dælir hún
vökva gegnum leiðslu sem liggur inn í rotor á
framdekkinu sem fær það til að snúast. Afturdekkinu er svo snúið á hefðbundin máta
með keðju og tannhjólum.
Hvers vegna framdrif? Hugmyndin er ekki
ný, mönnum hefur lengi hugnast að láta vélaraflið knýja bæði fram- og afturdekkið en
það er ekki fyrr en á síðustu misserum að
menn hafa séð mögulegan markað opnast
fyrir slík hjól. Það er helst fyrir tilstilli
tækniþróunar og aukinnar sölu á mótorhjólum
að menn hafa loks látið verða af því að setja
slík aldrifshjól í framleiðslu. Yamaha reið á
vaðið, KTM eru að blása til sóknar á þessum
markaði og líklegt að fleiri fylgi í kjölfarið.
Hugmyndin á margt skylt við fjórhjóladrifsbíla, að gefa ökutækinu jafnara og meira grip
öllum stundum.
Hvernig er samvinna fram- og afturdekks?
Gagnstætt því sem margir halda er framdrifið
í vinnslu öllum stundum, ekki bara ef afturdekkið byrjar að spóla. Framdekkinu er snúið áfram á sama hraða og afturdekkinu. Þegar
afturdekkið missir grip og byrjar að spóla (s.s.
í djúpum sandi) byrjar framdekkið að snúast
hraðar til að halda í við afturdekkið. Þannig
virkar framdrifið mest þegar á reynir og notar
það allt að 15% af afli mótorsins til að toga
hjólið áfram.
Hvernig kemur 2-trac út úr reynsluakstri?
Við vitum nú þegar að að grunninum til er
þetta bara hefðbundið WR 450 og það eitt og
sér er gott mál. Hinsvegar breytir framdrifið
aksturseiginleikunum verulega. 2-trac er rásfastur fákur. Þetta er líklega eins nálægt því
að vera járnbrautarlest og mótorhjól mun
nokkurntíma komast hvað aksturseiginleika
varðar. Það er hreinlega eins og hjólið sé á
teinum. Það getur bæði verið gott og slæmt,
fer eftir því hvar og hvernig þú ert að keyra. Í
djúpum sandi er það hrein snilld; þú bara miðar þangað sem þú vilt fara, snýrð upp á bensíngjöfina og hjólið hreinlega étur sig áfram og
skilur afturhjóladrifnu hjólin eftir spólandi. Yfirburðir tvídrifsins koma einnig vel í ljós yfir
torfæran og sleipan jarðveg þar sem hjólið er
alger klifurköttur. Þar sem við erum að fjalla
um stórt mótorhjól í öllum skilningi þess orðs, og tvö dekk sem snúast af krafti, verður maður töluvert var við beygjutregðu. Vertu ekkert
að rembast við að taka innri aksturslínur í
gegnum þröngar beygjur þar sem hjólið virkar
í eðli sínu best þegar það fer sem beinast
áfram. Þú þarft að átta þig á hvernig hjólið
hegðar sér og vinna með því en ekki á móti.
T.a.m. eru flestir vanir að aka gegnum sléttar
og kantlausar beygjur eftir jöfnum bogalöguðum ferli. Á 2-trac verður þú að leggja þennan akstursstíl til hliðar því framdekkið togar
þig áfram, byrjar að stýra en leitast á sama
tíma við að rétta sig við og getur þar af leiðandi beint hjólinu út úr beygjunni sem var nú
ekki beint hugmyndin í upphafi. Mér reyndist
best að koma inn í slíkar beygjur í beinni línu,
bremsa með afturdekkinu, búa til vinkil og
snúa hjólinu í þá átt sem ég vildi fara, gefa
svo aftur í og fara aftur út úr beygjunni í því
sem næst beinni línu. Þannig virtist maður ná
tökum á hjólinu og með bæði dekkin í vinnslu
og þennan kraftmikla mótor var hröðun hjólsins mjög mikil út úr beygjunum og gaman að
vera til. Ekki gafst færi á að prófa hjólið í fullorðins brekkuklifri en það er ljóst að á þessu
hjóli gæti maður loks klárað brekkur sem hafa
gert manni lífið leitt árum saman.
Fyrir er WR 450 nokkuð þungt hjól og er
framdrifið varla til þess fallið að létta hjólið.
Þó segir Yamaha að 2-trac sé einungis 5
kílóum þyngri en afturhjóladrifni bróðirinn en
hvað sem því líður verður maður nokkuð var
við kílóin. 2-trac er engu líkt, ekki bara hvað
aksturseiginleika varðar heldur hljómar og
lyktar hjólið öðruvísi en önnur hjól. Já, þú
heyrir nefnilega hvininn í glussanum undir
hausnum á þér þar sem hann sprautast gegnum leiðslurnar og inn í framdrifið.
Og þegar
átökin eru mikil hitnar vökvinn og fer að gefa
frá sér daufa lykt sem fer ekki fram hjá þér.
Eflaust finnst einhverjum þetta fráhrindandi
en persónulega fannst mér þetta bara ansi
töff! Ohlins sér um fjöðrunina á 2-trac og
hvað það áhrærir er hjólið hrein og klár snilld.
Ohlins fjöðrun er jafn dýr og hún er góð. Það
er sama hvar ber niður, í grjóti, í grasþúfum, í
stökkum og lendingum, fjöðrunin hreinlega étur upp allan óþverra sem á vegi hjólsins verður.
Þegar upp er staðið má lýsa 2-trac með
tveimur orðum: Grip, fjöðrun.
Er þetta hjól fyrir þig? Áttu digra sjóði inni
á bankabókinni? Ert þú sífellt í baráttu við
djúpan sand, sleipa steina eða brattar brekkur. Vilt þú vera öðruvísi? Ef það er málið er
2-trac inni í myndinni.
6.8.05
Gullhjólið er notað á góðviðrisdögum
Sigurður O. Björnsson er stoltur eigandi að Harley Davidson mótorhjóli. Mikil þrautaganga var að koma því til landsins en gullhjólið, eins og strákarnir á Kárahnjúkum kalla gripinn, var alveg þess virði.
„Ég er alveg klár á því að það er ekki til neitt Harley Davidson hjól í líkingu við þetta,“ segir Siggi.Enda erum við að tala um hundrað ára afmælisútgáfu af Harley Davidson Softail Deuce frá árinu 2003.
„Það var töluvert bras að koma hjólinu hingað. Ég þurfti að kaupa það frá Ameríku,“ segir Siggi.
Hann fór því sjálfur til Ameríku og hlóð hjólið aukahlutum sem ekki eru fáanlegir hérna. Þetta
fyrirkomulag kostaði þó töluverð vandræði. „Reglurnar hjá Harley Davidson í Ameríku eru þannig að þeir selja ekki nokkrum manni nýtt hjól nema að hann hafi amerískt ökuskírteini og lögheimili.
Það sem bjargaði mér í þessu er að ég er amerískur ríkisborgari svo ég gat farið og tekið bílprófið,“ segir Siggi sem bætir við að hjólið sé sérstaklega flott af því að það sé í hundrað ára afmælislitunum
„sterling silver og wild black“. En af hverju gullhjól? „Við vorum að grínast með þetta uppi á Kárahnjúkum þar sem ég vinn, því ég fékk gulllykil með hjólinu því þetta er afmælis útgáfa. Það fengu ekki allir svona lykil nema bara sérstakir viðskiptavinir. Hann kom í öskju og með keðju til að hafa um hálsinn,“ segir Siggi. Hann bætir við að strákarnir hafi dálítið strítt honum á þessu og verið hneykslaðir á því að hann hafi ekki viljað keyra um á hjólinu uppi á Kárahnjúkum. „Það fer ekki nokkur maður með neitt mótorhjól upp að Kárahnjúkum nema að það sé torfæruhjól. Gullhjólið er líka svo flott að maður notar það ekki nema bara á góðviðrisdögum.“