4.6.14
Hjóladagar á Akureyri
Tían, Hjóladagar á
Akureyri
Tían, Bifhjólaklúbbur Norðurlands, mun halda sína árlegu
Hjóladaga á Akureyri dagana
17.–19. júlí. Þar verður sem
fyrr þrautabraut, hjólaspyrna,
útimarkaður, grill og sýning
á mótorhjólum ásamt því að
minningarakstur um Heiðar
Jóhannsson verður farinn.
Hjóladagar hafa farið stækkandi ár frá ári og eru nú að
verða aðalsamverutími allra
íslenskra hjólamanna. Upplýsingar og dagskrá Hjóladaga
má finna á heimasíðu Tíunnar www.tian.is
27.5.14
Matchless fær nýtt líf (2014)
Gamall draumur Hilmars Lútherssonar varð að veruleika þegar Birgir Guðnason færði honum illa farið flak Matchless 500 mótorhjóls frá 1946.
Fyrir tæpum aldarfjórðungi sá Hilmar Lúthersson mynd af illa förnu mótorhjóli af gerðinni Matchless 500, árgerð 1946. Hann falaðist eftir því við eigandann, Stefán Einarsson verktaka á Siglunesi, en sá vildi síður skilja við það og Hilmar gaf hjólið upp á bátinn.Fjölmörgum árum síðar var Birgir Guðnason að vinna fyrir Stefán á
24.5.14
Túristinn! Mótorhjóla Víkingar
Það stóðu allt í einu 10 flott BMW mótorhjól á bryggunni hjá Steina Vigg á Siglufirði
Enginn af fjölmörgum gestum Rauðku sem nutu þess að sitja utandyra kvörtuðu yfir "útsýnis truflun" þessa fallegu fáka. þvert á móti stóðu margir upp og skoðuð þessi flottu hjól.
Hjólin voru öll merkt "BIKING VIKING" sem hljómaði nokkuð spennandi. Enginn mótorhjóla kappi var sjáanlegur þessa stundina, allir að borða hádegismat á Kaffi Rauðku.
Síðan komu þeir, glaðlegur blandaður hópur af ýmsu þjóðerni en einn var að tala íslensku í farsíma svo ég rauk í hann strax er samtalinu lauk.
Hverjir eru þið og á hvaða ferðalagi er mannskapurinn?
"Ég heiti Þorgeir Ólafsson kallaður Toggi og ég er leiðsögu maður á ferðaskrifstofunni Biking Viking, við sérhæfum okkur í mótorhjóla ferðum um Ísland."
Toggi fararstjóri og leiðsögumaður |
"Við höfum verið að þróa og vinna með þessar ferðir í 14 ár. Erum núna með 40 stk. BMW hjól sem eru góð í keyrslu á þjóðvegum landsins, bæði á malbiki og moldarvegum."
En utanvega akstur er það ekki stórt vandamál í dag?
"Hjá okkur kemur ekki slíkt til greina, þeir sem gera það eru hreinlega sendir heim. Það er ömurlegt að sjá spor og afleiðingarnar í íslenskri náttúru af slíkum akstri."
"Við leggjum mikið upp úr fræðslu um náttúruna og sögu lands og þjóðar og gæði í þjónustu. Við erum eins og margar aðrar ferðaskrifstofur nema að við erum á mótorhjólum".
Hverskonar túr er þessi hópur í núna?
"Við förum hringveginn á 7 dögum, gistum á hótelum, gistiheimilum og bændagistingum, stoppum hingað og þangað og skoðum náttúruperlur. Reynum að gefa þeim mjög blandaða reynslu frá Íslandi"
Hvernig kemur Sigló inn í myndina?
En utanvega akstur er það ekki stórt vandamál í dag?
"Hjá okkur kemur ekki slíkt til greina, þeir sem gera það eru hreinlega sendir heim. Það er ömurlegt að sjá spor og afleiðingarnar í íslenskri náttúru af slíkum akstri."
"Við leggjum mikið upp úr fræðslu um náttúruna og sögu lands og þjóðar og gæði í þjónustu. Við erum eins og margar aðrar ferðaskrifstofur nema að við erum á mótorhjólum".
Hverskonar túr er þessi hópur í núna?
"Við förum hringveginn á 7 dögum, gistum á hótelum, gistiheimilum og bændagistingum, stoppum hingað og þangað og skoðum náttúruperlur. Reynum að gefa þeim mjög blandaða reynslu frá Íslandi"
Hvernig kemur Sigló inn í myndina?
Leitað að lyklum |
"Eitt af þessu snýst líka um að finna áhugaverða vegi að keyra og upplifa. Tröllaskagi hefur flotta mótorhjólavegi, mörg göng, fallega firði og fjöll, bættum þessu í túrinn nýlega. Frábær upplifun"
Við erum meðal annars með sérstaka 3 daga ferð um Vestfirði, fjöll og firðir, marga beygjur, erfiðir vegir. Einnig túra yfir svarta sanda á hálendinu o.fl.
Allt í einu heyrum við hlátur og læti bak við okkur, einn af mótorhjóla túristunum hefur misst eitthvað í gegnum bryggjuna.
Við erum meðal annars með sérstaka 3 daga ferð um Vestfirði, fjöll og firðir, marga beygjur, erfiðir vegir. Einnig túra yfir svarta sanda á hálendinu o.fl.
Allt í einu heyrum við hlátur og læti bak við okkur, einn af mótorhjóla túristunum hefur misst eitthvað í gegnum bryggjuna.
Takk fyrir spjallið Toggi og góða ferð.
20.7.2014
Myndir og texti:
Myndir og texti:
NB
Jói Mara með allt úti
Þegar ég keyrði Hólaveginn fyrir stuttu síðan var alveg hreint hellingur af allskonar mótorhjólum fyrir utan hjá Jóa Mara.
Jói var að taka til og endurraða í bílskúrnum, en eins og sést þá vantar ekki hjólin hjá Jóa.Hann á "nokkur hjól" sem eru líklega orðin sjaldséð núorðið og svo að sjálfsögðu Johnson vélsleðann sem er á kerrunni hjá honum.
En Jói hefur verði duglegur að safna hjólum og hefur sent fjöldamörg hjól og vélsleða á söfn hingað og þangað um landið.
Ég bað nú Jóa um að fá að taka eina mynd af honum fyrir framan hjólin en hann var fljótur að tilkynna mér það að hann sjálfur væri nú alls ekkert myndefni en ég mætti taka eins margar myndir af hjólunum og ég vildi.
Meira af myndum á tenglinum hér að neðan.
http://www.siglo.is/is/frettir/joi-mara-med-allt-uti
http://www.siglo.is/is/frettir/joi-mara-med-allt-uti
24.05.2014
Jón Hrólfur Baldursson
14.5.14
Fjölmenni á stórsýningu Rafta og Fornbílafjélags í Brákarey (2014)
Miðpunktur sýningunnar var í portinu |
Mikil og góð stemning einkenndi vel heppnaða stórsýningu Bifhjólafjélagsins Rafta og fornbílafjélags Borgarfjarðar sem fram fór í Brákarey í Borgarnesi á laugardaginn.
Bifhjól af ýmsum gerðum mátti sjá á sýningunni |
30.4.14
Breytingar á mótorhjólaprófum skv. ESB
Minnaprófið stækkar
Hinn 19. janúar síðastliðinn tók gildi ný reglugerð sem byggist á
þriðju ökuréttindalöggjöf Evrópusambandsins.
Breytingar þessar eru gerðar til
að samræma ökupróf í allri Evrópu til að tryggja frjálsan flutning
og akstur milli landa og gerir ökuskírteini úr einu landi ESB eða
EES gild í öllum öðrum löndum
þess. Breytingarnar eru mestar í
flokki mótorhjóla en þar er kominn nýr flokkur sem kallast A2 og
tekur hann við af flokki sem hét
lítið mótorhjól áður og miðaðist
við 34 hestöfl (25 kW).
Hámarksaflið 47 hestöfl
Hér er rétt að útskýra þennan
flokk aðeins betur því að hann
veldur talsverðum ruglingi og
skoða hvaða hjól falla í þennan
nýja flokk, en hann er nú miðaður
við 47 hestöfl (35 kW) sem er
töluverð breyting.
Eins og sjá má af töflunni er hámarksafl mótorhjóla í A2-flokki nú
komið í 47 hestöfl en sum mótorhjól má fá með svokölluðu innsigli til að ná niður afli í þetta tiltekna hámark. Þó má ekki
samkvæmt löggjöfinni minnka afl
hjóls í þessum flokki um meira en
helming, þannig að 100 hestafla
hjól getur ekki fengið innsigli og
farið í 47 hestöfl sem dæmi. Til að
átta sig betur á þessu hefur bílablaðið sett saman stuttan lista
með hjólum sem falla undir þennan flokk og inniheldur hann einnig
hjól sem eru með löglegu innsigli
samkvæmt þessum A2-flokki. Aðeins er minnst á þau hjól sem eru
annaðhvort seld á Íslandi eða hafa
komið hingað á undanförnum árum.
Falla í A2-flokkinn
Þegar þessar tölur eru skoðaðar er auðvelt að sjá að nokkuð
mörg mótorhjól sem áður voru
flokkuð sem stór mótorhjól falla í
A2-flokkinn. Önnur breyting á
réttindaflokkunum er sú að núna
má taka réttindi í A2-flokk á hvaða
aldri sem er svo lengi sem viðkomandi hefur náð 19 ára aldri.
Þetta þýðir að einhver sem telur
að hjól eins og ofangreind dugi sér
þarf þá ekki að taka full réttindi
strax og getur einfaldlega valið að
taka þennan flokk fyrst. Mun það
eflaust henta mörgum að taka
próf í þessum flokki þar sem
kennsluhjól í honum geta verið
talsvert minni en fyrir full réttindi.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)