17.12.18
12.12.18
11.12.18
Gjaldskrá Vaðlaheiðaganga kynnt
Gjaldskrá Vaðlaheiðarganga var kynnt í dag og er ekki annað að sjá en að Bifhjól fari frítt í gegn sem eru góðar fréttir fyrir okkur hjólarana.
Úr gjaldskránni er hægt að lesa að fullt gjald í gegnum göngin á fólksbíl mun vera 1500kr
en hægt verður að kaupa ferðir í heildsölu og þar með lækkar verðið og virðist vera hægt að fá ferðina á 700 kr ef stærsti pakkinn upp á 100 ferðir er tekinn en þá þarf að punga út 70000kr á einu bretti,
Hægt verður að vera með allt að þrjá bíla skráða á hvert kort.
Ökutæki sem eru yfir 3500 kg hinsvegar þurfa að borga 6000 kr á fullu verði en þar er boðið upp á pakka með 40 ferðir á 5220kr ferðin en þá þarf að punga út 208800kr.
Ótakmarkaðann fjöld þungra ökutækja er hægt að skrá á þessi kort.
sjá nánar ....
Hér er tilkynningin frá Vaðlaheiðargöngum...

6.12.18
Vinnudagar á Mótorhjólasafni í janúar.
Eins og þeir sem til þekkja þá er hið stórglæsilega Mótorhjólasafn okkar á Akureyri ekki alveg tilbúið, og hafa félagsmenn í Tíunni sem og aðrir veitt ómetanlega hjálp við uppbyggingu á safninu, hvort sem er í formi styrks eða vinnu.
Mótorhjólasafnið Akureyri |
Flíslagning er nokkuð á veg komin í miðsalnum og á gangi og stiganum en það vantar lokahnykkinni í að klára flísalagninguna.
Um miðjan janúar ætlum við sem,sagt að boða til vinnukvölda og eru félagsmenn hvattir til að mæta og hjálpa því margar hendur vinna létt verk...
Þessi síðasti hluti hússins gæti nefnilega verið dágóð tekjulind fyrir húsið þar sem hægt verður að leigja þann hluta út til funda og annara viðburða td til að halda fermingarveislur.
en þangað til í janúar ....
Gleðileg jól ...
3.12.18
Af Ingólfi og hinum gleymdu bræðrunum.
Undir lok 19. aldar fæddust bræður á bænum Espihóli í Eyjafirði.
Espihóll Eyjafirði |
Aðalstræti 16 Akureyri |
Saga Espholinbræðra er mörgum ýmist gleymd eða hulin. Lítið hefur verið skráð og gefið út um lífsferil bræðranna, ekki síst er snýr að einkalífi þeirra. Jón Hjaltason gerði Espholinbræðrum ágæt skil árið 2004 í bók sinni Saga Akureyrar – Válindir tímar 1919-1940, IV. bindi . Grenndargralið fer hratt yfir sögu Ingólfs Gísla, bræðra hans Jóns, Steingríms, Hjalta og Þórhalls og foreldranna Sigtryggs og Guðnýjar.
Þeir voru fimm. Fjórir voru tæknimenn og uppfinningamenn í upphafi 20. aldar. Þeim fimmta, Steingrími sem var fæddur árið 1890, var snemma komið í fóstur og því ólst hann ekki upp með bræðrum sínum. Espholinbræður voru athafnamenn og brautryðjendur. Meðal þess sem þeir afrekuðu, ýmist einir eða saman, var að auglýsa flugvélar til sölu en þeir urðu fyrstir Íslendinga til að gera það fyrir sléttum 100 árum síðan, árið 1918. 29.11.18
Hringfarinn
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)