3.8.16
Ferð á Fiskidaginn Mikla
Ferðanefnd.
2.8.16
Greiðsluseðlar
Kæru félagsmenn
Breyting hefur verið gerð á greiðsluseðlum í heimabankanum. Búið er að taka út seðla úr valgreiðslum,og er ástæðan sú að mikið hefur verið rætt innan félagsins að þeir hafi ekki séð greiðslur inn í heimabankanum sínum.En ekki mun þetta hafa nein aukakostnað fyrir félagsmenn.
En þætti mér vænt um að fá að vita ef þú ætlar ekki að vera félagsmaður í ár.
19.7.16
Við hlógum, grétum og allt þar á milli
Kærastinn kom sem ferðamaður til Íslands í byrjun þessa árs
Sigríður Ýr kynntist Mike Reid í janúar á þessu ári þegar hann kom sem ferðamaður til Íslands. „Ég hef verið að hýsa ferðamenn í sófagistingu og fengið til mín í gistingu um 50 ferðamenn og Mike var sá síðasti,“ segir Sigríður Ýr sem útskrifaðist úr Tómstunda- og félagsmálafræði frá Háskóla Íslands í vor.„Tilgangur ferðarinnar var að styrkja góðgerðasamtök sem heita Seeds of Peace. Þetta eru samtök í Bandaríkjunum sem fá til sín ung menni frá stríðsþjáðum svæðum í Írak, Afganistan og af Gasa-svæðinu. Þau þurfa styrki fyrir ferðalögum og til dvalar í búðunum. Okkar liður í fjáröfluninni um Bandaríkin var að styrkja einn þátttakanda,“ segir Sigríður Ýr í spjalli við DV.
Einstaklingar og fyrirtæki leggja samtökunum lið
Sigríður Ýr segir að söfnunin hefði meðal annars farið fram með þeim hætti að þau stofnuðu heimasíðu. Þau auglýstu á síðunni og komu þannig ferðinni á framfæri og þá var hægt að heita á þau. Hún segir að upphaflega hafi hún alltaf ætlað sér að fara til Bandaríkjanna og hitta kærasta sinn en síðan hefði ferðin undið upp á sig.Keyptu mótorhjól áður en lagt var í hann
„Við fórum að finna út hvernig við kæmust frá Fíladelfíu til Kaliforníu og við ætluðum ekki að fara hefðbundna leið þannig að við enduðum með því að kaupa okkur mótorhjól. Því næst var að skipuleggja ferðina til Kaliforníu og svo aftur til baka til að geta selt hjólið aftur eftir ferðalagið. Þetta, sem átti að verða smátt í upphafi, var orðið að heilmikilli ævintýraferð,“ segir Sigríður Ýr.„Þegar upp var staðið varð ferðalagið um 12 þúsund kílómetrar og við gerðum mjög grófa áætlun
í upphafi. Við rissuðum hring á landakorti, sem við ætluðum að fara um og höfðum til þess 25 daga.
Við vorum með nokkra áhugaverði staði í huga sem við ætluðum að kíkja á. Fórum þjóðveg 66, fórum í Miklagljúfur, Hollywood, Yellowstone-þjóðgarðinn, hittum amishfólk, indíána og lentum í alls konar ævintýrum,“ segir Sigríður Ýr.
Tilgangurinn var að safna. Eru þið ánægð og sátt þegar upp er staðið?
„Já, við erum það og þetta gekk ótrúlega vel. Þetta er í fyrsta skiptið sem við förum af stað með söfnun, en höfum bæði tvö farið áður í alls konar ferðir. Hann er meira í ævintýraferðum, ég hef verið meira á bakpokaflakki. Það sem stendur upp úr er að við lærðum heilmikið á þessu og við erum með margar ferðir planaðar. Að finna góð málefni og styrkja eins og kostur er. Við erum búin að vera í samstarfi við Guinness um samþykki til að gera tilraun til að setja nýtt heimsmet, núna í september í Bandaríkjunum, sem tengist mótorhjólum. Á meðan málin eru ekki alveg komin á hreint viljum ekki gefa upp meira.“
Hvað finnst þér standa upp úr í þessari ferð ykkar til Bandaríkjanna?
„Þetta var ótrúlega lítið mál. Einfalt að fá einhverja hugmynd þó að hún hafi verið frekar klikkuð og koma henni svo í framkvæmd. Við mættum ótrúlega mikilli góðvild hjá fólki sem varð á vegi okkar og allir voru til í að hjálpa með einum eða öðrum hætti. Þeir sem voru ekki aflögufærir varðandi pening í söfnunina hjálpuðu okkur á annan hátt. Ferðin var erfið, við hlógum, grétum og allt þar á milli því þetta var mikið álag á köflum. Við þurftum að sitja á hjólinu í níu klukkutíma á dag í 20 daga,“ segir Sigríður.
17.7.16
Frá Stjórn
5.7.16
Náði 400 km hraða á mótorhjóli
Þannig hjóli ók Tyrkinn Kenan Sofuoglu fyrir stuttu og kom því á 400 hraða og það á um það bil 26 sekúndum og er sá stutti tími einn og sér hreint með ólíkindum. Þetta gerði hann ekki á akstursbraut, heldur á Izmit Bay-brúnni í Tyrklandi, en hún er með einstaklega slétt yfirborð og heppileg til hraðaksturs. Brúnni var lokað á meðan á þessum magnaða akstri Sofuoglu stóð, en hann var skipulagður af Kawasaki-fyrirtækinu.
Með afl á við sportbíl
Kawasaki Ninja H2R er 300 hestöfl og ekki löglegt á almennum vegum, heldur ætlað að glíma við keppnisbrautir. Það er hins vegar Kawasaki Ninja H2 hjólið, með ekkert R í endann og er það 200 hestöfl og ætti það afl að duga flestum. Kawasaki hafði veitt Kenan Sofuoglu þær upplýsingar að Kawasaki Ninja H2R hjólið væri með uppgefinn hámarkshraða upp á 380 km/klst. en það væri engu að síður draumur margra hjá fyrirtækinu að hægt væri að koma því í 400 km hraða. Það sannaði Kenan Sofuoglu og á nú fyrir vikið hraðaheimsmet á mótorhjóli.30.6.16
Landsmót bifhjólamanna sett á Iðavöllum í kvöld
Bifhjólaklúbburinn Goðar eru gestgjafar Landsmóts bifhjólamanna í ár. Það er að þessu sinni haldið á Iðavöllum á Fljótsdalshéraði, svæði sem til þessa hefur verið þekktara er fyrir ferfætta fáka en vélfáka.
Landsmótið er haldið árlega og var þar til fyrir nokkrum árum í umsjón Sniglanna, bifhjólasamtaka lýðveldisins. Undanfarin ár hafa hins vegar landssamtökin samið við klúbba víða um land um að halda mótið.
Fyrir um ári var haft samband við Goðana og segir Hjörtur Óli Ævarsson, formaður klúbbsins, að undirbúningur hafi staðið yfir í allan vetur. „Hann hefur gengið vel. Þeir einu sem við höfum ekki náð að semja við eru veðurguðirnir.“
Vonast er eftir um 200 manns á Iðavelli. Tónleikar verða í boði kvöldin þrjú en hið landsfræga Sniglaband spilar annað kvöld. Á laugardag verða síðan heimabönd, Nefndin leikur fyrir dans en á undan henni rokksveitirnar MurMur og Oni.
Tækifærið er nýtt til að kynna fjórðunginn fyrir mótorhjólafólki og á föstudag og laugardag er gert ráð fyrir akstri um Austurland. Hjörtur Óli segir fyrirhugað að fara um firðina og upp að Kárahnjúkum.
Mótið hefur tvisvar verið haldið á Austurlandi áður eftir því sem næst verður komist, í Végarði í Fljótsdal og Atlavík, en síðan eru liðin mörg ár.
Gestir koma ýmist á hjólum eða bílum, ýmist með hjólin í eftirdragi eða bara á bílnum til að taka þátt í ánægjunni. Þeir koma víða að, til dæmis komu tveir Færeyingar með Norrænu í morgun gagngert til að mæta á mótið.
Víða erlendis eru samkomur mótorhjólafólks kenndar við óspektir en Hjörtur Óli segir landsmótið með þeim friðsamari sem tök eru á. „Mótið var árum saman haldið í Húnaveri og lögregluþjónar á Blönduósi vildu helst vera á vakt þá helgi. Það fer allt svo friðsamlega fram.“
Austurfrett.is
Höfundur: Gunnar Gunnarsson • Skrifað: .