25.2.13
14.2.13
Hjól sem lætur ekki fara lítið fyrir sér
Þeir sem eiga peninga í pokavís og hafa smitast af mótorhjóladellu geta auðvitað ekki sætt sig við að vera á venjulegu verksmiðjuframleiddu vélhjóli.
Eins gaman og það er að vera á huggulegum Harley eða kröftugri Hayabúsu þá gengur ekki að láta sjá sig á svona alþýðlegum hjólum meðan hægt er að finna eitthvað enn betra. Ríka og fræga fólkið pantar hjólin sín hjá bandaríska framleiðandanum Confederate Motors.
Í bænum Birmingham í Alabama leynist eitt framúrstefnulegasta mótorhjólafyrirtæki sem finna má. Var reksturinn stofnaður árið 1991 og hefur síðan fest sig í sessi (ef utan er skilið gjaldþrot árið 2001 og endurvakning árið 2003) sem framleiðandi hjóla sem virðast nánast fengin beint úr vísindaskálsögum.
Kosta hjólin á við litla íbúð. Ódýrasta módelið er Hellcat sem kostar 55.000 dali á meðan t.d. R131 Fighter kostar frá 100.000 dölum og verður að sérpanta. Þegar litið er yfir viðskiptavinalistann rekur þar hver stórstjarnan aðra. Hjartaknúsarinn huggulegi Brad Pitt sést t.d. gjarnan þeytast um á Confederate-hjólinu sínu, Bruce Springsteen er með sitt hjól í bílskúrnum líka, Steven Tyler úr Aerosmith sömuleiðs og knattspyrnukempan David Beckham svo aðeins séu nokkrir nefndir.
Eins og vera ber er enginn skortur á kröftum en það eru ekki hestöflin sem gera hjólin frá Confederate Motors svona sérstök heldur útlitið. Virðist sem hefðirnar séu til þess gerðar að brjóta þær og útkoman skemmtilega tröllsleg farartæki sem verka á líkamann eins og væn sprauta af testósteróni.
Nánar má skoða hjólin á www.confederate.com
Morgunblaðið 2013
ai@mbl.is
5.2.13
Draumasamkoma mótorhjólamannsins 2013
Hafsteinn Emilsson við eigin fák og að sjálfsögðu með íslenska fánann á hjólinu eins og á Bikeweek. |
Draumasamkoma mótorhjólamannsins
Daytona Bikeweek - skipulagðar ferðir Íslendinga á sýninguna síðastliðin 10 ár.
Daytona Bikeweek er tíu daga samkoma mótorhjólaáhugamanna sem haldin var fyrst árið 1937 á Daytona Beach í Flórída. Hafsteinn Emilsson er öllum hnútum kunnugur í Daytona enda hefur hann ekki misst af Bikeweek frá 1996 og er því að fara núna í 18. skiptið í röð. Hafsteinn segir að þessar ferðir hafi verið mjög vinsælar hjá Íslendingum og þeir hafi fjölmennt þangað um árabil. Fjöldinn er æði misjafn, allt frá tólf og upp í 45 manns, en í fyrra voru þeir 28 talsins og það stefnir í svipaðan fjölda í ár. Þátttakendur eru konur jafnt sem karlar og á aldrinum frá 18 til 82 ára, en allir með sama áhugamálið, mótorhjól.
Íslenski fáninn á hjólunum
Þátttakendur hafa bæði valið sér að fara á eigin vegum og nýta sér skipulagða ferð þarMörg forvitnileg mótorhjól ber fyrir augu á Daytona Bikeweek. |
Eftir Bikeweek-dagana efnir Hafsteinn ávallt til tveggja daga hjólaferðar um Flórída á Harley Davidson-hjólum. Er þá farið mest um sveitir í miðfylkinu þar sem umferð er lítil og fallegir smábæir. „Þá er íslenski fáninn alltaf á hjólunum og það hefur oft komið fyrir að við erum stoppuð af Íslendingum sem búsettir eru í Flórída eða fyrrverandi hermönnum sem voru á Íslandi sem spyrja okkur hvort við séum frá Keflavík eða Reykjavík. Þeir vilja síðan allt fyrir okkur gera,“ segir Hafsteinn.
Ein stærsta mótorhjólasýning í heimi
Daytona Bikeweek er ein stærsta mótorhjólasamkoma og sýning á heimsvísu, eins og alltsem bandarískt er. Á Bikeweek koma saman um sex hundruð þúsund mótorhjólaáhugamenn árlega. Hver sá sem framleiðir eitthvað tengt mótorhjólum lætur sig ekki vanta með sýningarbás þar, hvort sem um er að ræða mótorhjól, aukahluti fyrir mótorhjól, mótorhjólafatnað, smurolíur, hnakka, spegla, gleraugu eða hvers konar fylgihluti. Allar tegundir af hjólum er að finna til sýnis og sölu; torfæruhjól, þríhjól, hippahjól og kappaksturshjól. Í fyrra keyptu tveir Íslendingar mótorhjól á sýningunni, svo ferðin er stundum ekki bara farin til að svala forvitninni, heldur með kaup í huga.
Keppnir og sölubásar
Daytona er álíka fjölmenn og Reykjavík og í annarri viku marsmánaðar ár hvert fyllist bærinn af mótorhjólum og hjólafólki. Vinsælt er t.d. að rölta niður aðalgötu bæjarins þar sem sölubásar eru við hvert fótmál og sýningar á hverju götuhorni. Síðustu ár hefur ásókn seljenda verið svo mikil að sýningar og sölubásar hafa verið settir upp í nærliggjandi bæjum eins og Ormond Beach. Þar er líka að finna mótorhjólaverslunina Bruce Rossmeyer Harley Davidson sem er stærsta Harley-verslun og -umboð í heimi. J & P þar við hliðina er með alla hugsanlega aukahluti fyrir mótorhjól og allan hlífðarfatnað. Það er einnig keppt á mótorhjólum í Daytona og ýmsar keppnir fara fram þá tíu daga sem Bikeweek stendur yfir. Eru þær flestar haldnar á International Speedway-kappakstursbrautinni íDaytona. Þar má sjá Motorcross- og Super Race-keppnir flesta daga. Við Speedway er stór markaður með notuð hjól og varahluti í gömul hjól. Þar er bæði gaman og fróðlegt að skoða og tala við þá sem þar eru með sölubása. Hafsteinn segir að enn séu laus sæti í ferðina á Daytona Bikeweek, sem er átta daga ferð og kostar 153 þúsund krónur með öllu.
16.1.13
Vildum bæta umferðarmenninguna
Eiríkur á ennþá gamla hjálminn sem hann notaði þegar hann var formaður hins fornfræga vélhjólaklúbbs. Hann lét þá setja merki Eldingar framan á hjálminn og það prýðir hann enn. mbl.is/Golli |
Enn færri vita að áður en að því kom var Eiríkur formaður vélhjólaklúbbs, fyrsta skráða klúbbsins, sem bar nafnið Elding. Klúbburinn fór eftir ákveðnum lögum. Þar kom meðal annars fram að allir geta orðið meðlimir, bæði strákar og stelpur, 14 ára og eldri, sem hafa áhuga á viðgerðum og notkun vélhjóla.
Markmiðin voru meðal annars að koma á föstum fræðslu- og skemmtikvöldum fyrir meðlimi, fræðslu um umferðarmál, fá æfingasvæði og koma á æfingum. Gefa félögum færi á að gera við sín eigin hjól, efna til hæfnisprófa og ferðalaga. Umferðarlögreglan í Reykjavík og Æskulýðsráð Reykjavíkur voru með einn ráðunaut hvor á fundum, þeir voru með í ráðum hvað varðar klúbbinn og gæta hagsmuna hans út á við. Sá sem var ótvírætt driffjöður klúbbsins var lögreglumaðurinn Sigurður Emil Ágústsson, betur þekktur sem Siggi Palestína. „Jón Pálsson frá Æskulýðsráði var líka oft með okkur og saman reyndum við að bæta umferðina, en skellinöðrur voru litnar hornauga áður en Elding kom til,“ segir Eiríkur í viðtali við bílablaðamann Morgunblaðsins.
Vinsælt Starf
„Hann Siggi var alveg ótrúlega duglegur að hjálpa okkur og sinna í þessu starfi. Strákarnir báru mikla4.12.12
Sameinað norrænt mótorhjólafólk
Sameinað norrænt mótorhjólafólk
Sjö samtök norræns mótorhjólafólks hafa tekið höndum saman og mótað sameiginlega stefnu í umferðaröryggismálum og komið henni á framfæri við ríkisstjórnir og vegamálayfirvöld hvert í sínu landi. Löndin eru Svíþjóð, Danmörk, Noregur Finnland og Ísland.Í skjalinu sem mótorhjólafólkið hefur sent yfirvöldum umferðarmála eru m.a. ákveðnar tillögur sem samtökin telja að muni auka öryggi mótorhjólafólks í umferðinni og hugmyndir um hvernig best verði að haga samstarfi þvert yfir landamæri, svo að sem mest gagn verði að fyrir öryggi mótorhjólafólks.
Sá sameiginlegi vettvangur sem norrænu mótorhjólasamtökin hafa með sér nefnist Nordiskt MotorSykkel Råd, NMR. NMR var stofnað um miðjan áttunda áratuginn. Tilefnið var það að til stóð að setja miklar takmarkanir á stærð, hraðagetu og vélarafl mótorhjóla. Mótorhjólafólk vildi einfaldlega hafa eitthvað um þá framvindu að segja.
Þau samtök sem starfa saman innan NMR eru Sniglar Íslandi, Danske Motorcykelklubbers Råd (DMC) Danmörku, MC Touring Club (MCTC), Danmörku, Norsk Motorcykkel Union (NMCU), Noregi, Moottoripyöräkerho 69 (MP 69) og Suomen Motoristit r.y (SMOTO), Finnlandi og Sveriges MotorCyklister (SMC), Svíþjóð.
04.12.2012
https://www.fib.is/is/um-fib/frettir/sameinad-norraent-motorhjolafolk
12.10.12
Haustógleði 2012
Daginn öll
Við vildum bara minna á skráningu á Haustógleðina 2012 sem haldin verður næstkomandi laugardagskvöld í sal Lindu Steikhús á Akureyri.
Húsið opnar klukkan 20:00 og reiknað með að borðhald hefjist um klukkan 20:30.
Skráning fer fram í síðasta lagi í dag, föstudag, á tian@tian.is eða með því að hringja í síma 869-3332
Verðinu er stillt í hóf, eða aðeins 3500 krónur á mann.
Um leið viljum við líka vekja athygli á því að þar sem Ógleðin er haldin á vínveitingahúsi þá er óleyfilegt að koma með eigin drykki með sér. Hins vegar er sértilboð á bjór (300kr glasið!) og öðrum vínveitingum á staðnum.
Með kveðju
Stjórn Tíunnar