Heimsins kraftmesta rafmagnsmótorhjól, Killacycle frá
Colorado í Bandaríkjunum, verður
til sýnis á ráðstefnunni Driving
Sustainability ´08 sem fram fer á
Hótel Nordica í dag og á morgun.
Hönnuður Killacycle-hjólsins
og eigandi, Bill Dubé verður með
kynningu á tækninni að baki þessu
einstaka farartæki, sem sett hefur
hvert hraða- og spyrnumetið á
fætur öðru á síðustu árum. Í desember síðastliðnum fór það
kvartmíluna í fyrsta sinn á undir
átta sekúndum, en það er langbesti spyrnutími sem rafdrifið
farartæki hefur nokkru sinni náð.
Auk þessa ofurmótorhjóls verða öllu hversdagslegri en þó nýstárleg farartæki til sýnis og til
umfjöllunar á ráðstefnunni, svo sem rafmagnsvespur og rafreiðhjól. Sú þróun sem orðið hefur í
rafhlöðutækni á síðustu árum
hefur nú gert rafdrif í svo léttum
farartækjum að mjög hagnýtum
og hagkvæmum kosti til að komast mengunar- en þó áreynslulaust
milli staða innanbæjar.
Þetta er í annað sinn sem alþjóðlega ráðstefnan Driving Sustainability er haldin, en rafvæðing ökutækja, stórra sem smárra, er í
brennidepli dagskrár hennar í ár.
Meðal annarra dagskrárliða má
nefna kynningu á „i MiEV“-rafbílnum frá Mitsubishi og á tilraun
til að fljúga umhverfis hnöttinn á
sólarrafdrifinni flugvél. - aa
Fréttablaðið
18.08.2008