NÝLEGA fluttum við fréttir af Goldwing 1800 þríhjóli sem væntanlegt
var til landsins. Það er nú komið í
hendur eiganda síns, Maríu Hafsteinsdóttur, og komið á númer.
Þótti
okkur því tilvalið að heyra aðeins í
henni og spyrja hvað fengi fólk til að
kaupa slíkan grip sem þetta hjól er.
„Ég sá svona hjól fyrst í Halifax í
Kanada 1997 en spáði þá ekki svo
mikið í það,“ segir María um fyrstu
kynni sín af þríhjólum. „Við hjónin
vorum svo á mótorhjólamóti í Daytona árið 2000 og þá fórum við að
skoða þau betur. Ég mátaði svona hjól
og leist vel á og þá fórum við að skoða
það í framhaldinu hvar við gætum
fengið slík hjól,“ segir María. „Hjólið
fundum við svo hjá söluaðila sem sérhæfir sig í Goldwing-hjólum og þríhjólum frá Lehman sem er þekkt merki í
þeim geira hjólamennskunnar.“
Sérhæfa sig í Goldwing-þríhjólum
Lehman hafa sérsmíðað mörg
hundruð þríhjól síðan þeir hófu að
sérhæfa sig í þeim árið 1992 en
Goldwing-hjól eru þeirra sérgrein,
þótt þeir smíði einnig upp úr öðrum
gerðum. Hjólið kemur með sérsmíðuðum framdemparafestingum sem
eykur halla framfjöðrunarinnar. Það
styttir ferilinn á framhjólinu þannig
að hjólið verður léttara í stýri sem er
nauðsynlegt þegar viðnám og þyngd
er aukin að aftan. Afturgaffall er eitt
stykki með sérstökum stífum sem
tryggir að hjólið hallar ekki út í beygjum, enda kallast þetta kerfi þeirra No
lean.
Öðruvísi í akstri
„Það er töluvert öðruvísi að keyra
þríhjól en venjuleg mótorhjól,“ segir
María um aksturseiginleika þríhjóla.
„Maður þarf ekki að halda jafnvægi
þegar hægt er farið eins og á mótorhjóli og það er erfitt til að byrja með
að venja sig af því að setja niður fætur. Maður notar meira hendurnar í
beygjum þar sem maður getur ekki
hallað því enda er stýrið nákvæmt og
fljótt að taka við sér. María sagðist
hafa orðið vör við að hjólið vekti töluverða athygli enda blikkuðu menn
ljósin á bílum sínum þegar þeir
mættu henni á fyrsta rúntinum um
götur Reykjanesbæjar.
„Ég hlakka til að fara í alvöru ferðalög á þessu hjóli, enda tekur það
kynstrin öll af farangri í skottið,“ segir María.
Skottið er opnanlegt með fjarstýringu sem og aðrar læsingar á hjólinu.
Auk þess er hjólið með bakkgír sem
er rafdrifinn og er bakkað með því að
ýta á takka, sem að bremsar sjálfkrafa þegar honum er sleppt.
Morgunblaðið
25.2.2004