Mótorhjól og vélsleðar hafa hingað
til sloppið við ákvæði um mengun í
flestum ríkjum heimsins. Reyndar
hafa þau orðið að sætta sig við mun
strangari hávaðareglur á síðustu árum
en önnur farartæki en þar sem þau
menga minna en stærri farartæki hafa
Evrópusambandið og Bandaríkin horft
fram hjá mengun í útblæstri þeirra
hingað til. Þetta er breytist þó allt á
næstu árum ef reglugerðir beggja
vegna Atlantsála ná fram að ganga.
Reglugerð í smíðum hjá ESB
Samkvæmt reglugerð sem nú er í
smíðum hjá Evrópusambandinu eiga
mótorhjól að falla undir sömu mengunarstaðla og bílar fyrir árið 2006.
Áætlanir ESB miðast við að ná þessu
markmiði í tveimur þrepum. í fyrra
þrepinu á að
minnka
kolmónoxið og vetnissameindir í fjórgengisvélum framleiddum eftir
1. apríl 2003 um
60%. í seinna þrepinu, sem kemur til aðgerða 1. janúar
2006, þarf hlutfall þeirra að lækka um
50% í viðbót. Tvígengisvélar þurfa að
minnka kolmónoxíðútblástur um 30%
og kolvetni um 70% en þar sem hlutfall
nituroxíðs í útblæstri þeirra er lágt
verða engar breytingar á magni þeirra
í útblæstri fyrir 2003 til þess að gefa
framleiðendum aðlögunartíma til að
lækka hlutfall þeirra fyrir 2006.
Nýtt prófunarferli
Þessar mengunarreglur falla vel að
framleiðsluumhverfinu í dag og flest
hjól standast 2003 reglugerðina. Sem
dæmi stenst Suzuki V-Strom 1000 hjólið hana og er ansi nálægt að standast
2006 reglugerðina lika en það hjól er
búið hvarfakút, súrefnisskynjara og
beinni innspýtingu. Samhliða þessum
mengunarreglugerðum verður búið til
nýtt prófunarferli fyrir mótorhjól. Miðast þær prófanir við eðlilega notkun
fyrstu 30.000 kílómetrana. Einstök ríki
geta þó sett sín viðmiðunarmörk sjálf
og ráðið því hvort þau sekta eldri farartæki sem ekki uppfylla staðla.
Annar staðall í BNA
Nýr mengurnarstaðall EPA (Environmental Protection Agency) fyrir
mótorhjól og vélsleða í Bandaríkjun um byggist á því að þessi tæki eigi
stóra sök á mengun andrúmsloftsins.
Þessi staðreynd virðist úr lausu lofti
gripin hjá EPA því að í samanburði
við einkabílinn menga til dæmis mótorhjól töluvert minna. Reyndar getur
þessi staðhæfing átt við í Austurlöndum fjær þar sem stór hluti farartækja
er mótorhjól og mörg þeirra tvigengis
og því skýtur það skökku við að mengunarstaðallinn skuli fyrst vera settur
þar sem mikill meirihluti mótorhjóla
er fjórgengis. Það að staðallinn er kominn til að vera í Bandaríkjunum má
þakka náttúruverndarsamtökunum
þar í landi en þau hafa lengi séð ofsjónum yfir umferð torfæruhjóla og
vélsleða i náttúrunni. Búast má við að
þessi staðall hafi lamandi áhrif á framleiðslu vélsleða á næstu árum og menn
verði að bregðast
við með fjórgengisvélsleðum eins
og Yamaha var
reyndar að gera
með nýja RX-1
sleðanum.
Strangari reglugerð
Þessi staðall kemur fyrst til aðgerða
í Kaliforníu árið 2004 og verður landsstaðall árið 2006. Hætt er við að tvígengis-torfæruhjól og fjórhjól deyi út
eins og risaeðlurnar þegar staðlinum
verður fylgt eftir en reyndar nær hann
ekki yfir keppnishjól og keppnissleða
sem einungis eru ætluð fyrir keppni.
Núverandi reglugerð leyfir 5 grömm af
kolvetnis- og níturoxiðsameindum og
12 grömm af kolmónoxíði í hverjum
eknum kílómetra. 2004-reglugerðin
lækkar þessar tölur niður í 1,4 grömm
fyrir kolvetnis- og níturoxíðsameindir
en hlutfall kolmónoxíðs verður áfram
óbreytt. Mörg þeirra fjórgengis-mótorhjóla sem framleidd eru í dag standast
þessa mengunarstaðla en hætt er við
að R-hjólin svokölluðu eigi erfiðara
með að ná þeim. Líklega verða framleiðendur að eyða meiri peningum í
þróun sem aftur leiðir til dýrari hjóla
og sleða.
Rúm fyrir breytingar
Mörg þeirra mótorhjóla sem seld
eru í dag eru með beinum innspýtingum. Þrátt fyrir að þau séu ljósárum á
undan blöndungshjólum í minni mengunarmagni er samt hægt að gera betur
í því efnum. í mótorhjólum er tjúnun þeirra kóðuð í tölvuheila sem stjórnar
kveikjumii og miðast hún við meðalaðstæður sem breytast ekki þrátt fyrir
breytingar á ytri aðstæðum, eins og
loftþrýstingi, lofthita og þess háttar.
Bílar hafa fullkomnara rafkerfi sem
leyfir það að hægt er að koma fyrir
skynjurum hvar sem er sem senda aftur upplýsingar til tölvuheilans sem aftur breytir kveikjunni eftir aðstæðum.
Strangari reglugerð í Bandaríkjunum
er líkleg til að neyða framleiðendur til
að setja fióknari rafkerfi í mótorhjólin
sem einnig leiðir til hækkandi verðs á
þeim. Þetta mun líklega einnig leiða til
þess að ekki verður hægt að gera
breytingar á mótorhjólum nema á fullkomnu verkstæði. Hlutir eins og flækjur og aðrir tjúnhlutir munu því rykfalla í hillum mótorhjólaverslana áður
en langt um líður og tekið verður fyrir
það að eigendur mótorhjóla breyti
þeim sjálfir.
Lítil mengun í hjólum
Að sögn Þorsteins Marels hjá Vélhjólum & sleðum er talvert um hysteríu meðal umhverfissamtaka sem fara
offari þegar rætt er um mengun ökutækja. „Oft er verið að einblína á það
sem mönnum er næst í umhverfinu án
tillits til hvað mengar og hvað ekki.
Má nefna þegar aðalpúströr heimsins,
sem eru eldfjöll, fara í gang. Eitt meðaleldgos mengar á örfáum andartökum
ársskammt allrar umferðar heimsins.
Hvað mótorhjól varðar þá mengar einn strætó meira en öll hjól landsins
yfir árið. Mér er það líka til efs að
vélsleðar hafi í við hverasvæðin í Yellowstone Park. Frægt er þegar umhverfisverndarsinnar þar reiknuðu út
mengun af sleðum í garðinum. Þeir
tóku öll efni í áætlaðri bensín- og tvígengisolíusölu til sleðamanna á svæðinu og sögðu það fara beint í jarðveginn."
Tækni kostar peninga
Framleiðendur tvígengisvéla eru á
fullu að hanna innspýtingar og lofa t.d.
OMC og Orbital-útfærslurnar góðu.
Gallarnir koma hins vegar í kostnaði
og þyngd. „Öll þessi tækni kostar peninga og þarf mun þyngri og öflugri rafkerfi sem vinna með fjórgengisvélum í
samanburði. Báðir kostir eru slæmir
fyrir léttustu tækin." Krossarar og
keppnissleðar finna mest fyrir hverju
grammi sem við bætist. „Varðandi
breytingar eða „tjúningar" á hjólum og
sleðum framtíðarinnar held ég að litið
breytist annað en græjurnar sem notaðar verða til verksins. Nú kaupa
menn einfaldlega nýjan stýrikubb í
tölvu tækisins með flækjunum, rétt
eins og menn breyta tölvum þessa dagana. Hluti þess að eiga flott hjól eða
nýjasta sleðann er einfaldlega yfirlýsing eigandans til umhverfis sín. ,;Ég er
ekkert eins og meirihlutinn" eða „Ég
fer mína leið." Þetta verður áfram til
þess að tækjum verður breytt og gæðingum hleypt," segir Þorsteinn.
-NG
DV
5.2.2003