Skemmtilegirvinnu hestar nú líka með
drifi á öllum!
Sagt er að ekkert sé nýtt undir
sólinni, en þá er ekki reiknað með
landi hinnar rísandi sólar.Sagt er að Japanar hafi ekki hæfileika til að fá hugmyndir, en ef litið er á varninginn sem til sölu er um allan heim, að ekki sé talað um það sem á leiðinni er, virðist þetta líka vera rangt.
Frá japönsku vélhjólasmiðjunum komu fyrir fáum árum þríhjól með blöðrudekk og lítilli tvígengisvél. Undir eins rann af stað mikið þríhjólaæði í Bandaríkjunum og Ástralíu. Ástralir sáu strax að þríhjólin voru meira en bara leikföng, og komu þau víða að góðu gagni á víðlendum býlum Ástrala.
Næst koma stærri vélar og svo afturfjöðrun í þríhjólin svipað og hannað hafði verið fyrir torfærukeppnishjól. Nokkur þríhjól bárust hingað og eru notuð til vinnu og skemmtunar, en erfitt er að fá þau skráð og nota með öryggi á almennum vegum. Þess vegna þurfa þeir sem ætla að nota þríhjól sér til gamans að eiga kerru og draga þau þangað sem aka á.
Og nú er það nýjasta komið: Fjögur hjól, fjöðrun á öllum og drif á öllum!
Það vinsælasta er líklega frá Honda, og heitir TRX 350 4x4. Vélin er fjórgengis eins strokks og skilar 25 hestöflum í rólegheitum gegnum sjálfvirka kúplingu og 5 gíra gírkassa. Að auki er bakkgír eins og á alvöru bíl. Fjöðrun er framan og áftan, og splittað mismunadrif að framan. 011 drifsköft eru lokuð inni í húsum fylltum smurningu svo ekkert viðhald þarf á þeim frekar en kveikikerfi sem er innsiglað og varið þannig gegn vætu. Því ætti að vera hægt að göslast allan daginn í pyttum og mýrum án vandræða, enda eru allar 3 bremsuskálar líka lokaðar.
NT
24.10.1985