Laugardaginn 6. júlí var keppt í mótókrossi í Vestmannaeyjum, í flokkum 250 og 500 rúmsentimetra hjóla, og gaf keppnin stig til íslandsmeistaratitils.
Fyrir þessa keppni var Marteinn
Pétursson efstur að stigum þótt hann
keppi á 250 sm3
hjóli. Á hæla hans
komu Ragnar Ingi Stefánsson og
Gunnar Pór Gunnarsson á 500 sm
hjólum, en Valdemar Johnsen var
fjórði.
Að venju var keppninni skipt í
þrjár lotur, svofiefnd mótó, en áður
gátu menn farið nokkra hringi og
kynnt sér brautina sem er lögð í vikri
og íeyndist hjólunum erfið.
Keppnin hófst með mikilli baráttu
þeirra Ragnars og Gunnars sem stóð
stutt, því strax á öðrum hring bræddi
hjól Gunnars úr sér. Hann stökk á
lánshjól og hélt áfram en bræddi líka
úr því áður en fyrsta mótó var
yfirstaðið.
Marteinn varð því Ragnari
skæðastur og dró á hann en hjól hans
fór þá að dæmi Gunnars og bræddi úr
sér. Ragnar vann því þá lotu, Valdimar varð annar en Eyjapeyinn
Bjartmar Jónsson þriðji.
Marteinn fékk lánað hjól fyrir aðra
lotu, en það var 500 rúmsm. og því
allt öðruvísi en 250 hjólið hans.
Gunnari tókst ekki að útvega sér
þriðja hjólið og var þar með úr leik.
Vann Ragnar þá lotu því nokkuð létt,
Marteinn annar og Valdemar þriðji.
Fyrir þriðju lotu hafði Marteinn
vanist hjólinu nægilega vel til að ná
forystu en Ragnar gaf honum ekkert
eftir. Svo hörð var barátta þessara
tveggja að þeir skildu alla aðra eftir.
Þrýstingurinn á Martein varð mikill
og datt hann þegar stutt var eftir.
Ragnar vann því þriðju lotuna eins og
hinar fyrri, Marteinn náði öðru sæti.
ÚRSLIT
500 rúmsm. flokkur
1. Ragnar Ingi Stefánsson KTM500
2. ValdimarJohnsen Honda 480
3. Marteinn Pétursson Yamaha 490
250 rúmsm. flokkur
l. StígurHannesson Yamaha250
2. Sigurður Bjarni Richardsson Yamaha 250
3. Hafþór Hafliðason Honda
Staða til íslandsmeistara
1. Ragnar Ingi Stefánsson KTM 500
2. Marteinn Pétursson Suzuki 250
3. Valdimar Johnsen Honda 480
4. Sigurður Bjarni Richardsson Yamaha 250
5.-6. Gunnar Þór Gunnarsson Yamaha 490
5.-6. Stígur Hannesson Yamaha250
NT 12.7.1985