Bílaprófun Vikunnar
Myndir: Ragnar Th. og Friðsteinn Stefánsson
Texti: Hörður Honda ATC 250 R
Upplagt farartæki fyrir bændur?
Venjulega finnst manni að þríhjól sé eitthvað rautt, með
þremur hjólum, sæti á miðjunni
og knúið áfram með tveimur fótstigum á hjólinu að framan. Vikan
ákvað fyrir stuttu að prófa eitt
slíkt nema hvað þetta þríhjól var
knúið áfram af vél undir sætinu og
komst miklu hraðar en fyrrnefnda
hjólið.
ÚPS!
Við fyrstu sýn virðist hjólið ekki líklegt til stórræðanna,
fremur lágt og einhvern veginn
eins og barnaleikfang. Annað kom
svo sannarlega á daginn. Við
fyrstu keyrslu virtist hreinlega
ómögulegt að ráða nokkuð við
hjólið. Maður hafði alltaf á
tilfinningunni að maður væri að
detta og sökum þess var vald
manns yfir hjólinu ansi takmarkað og leiddi það óneitanlega til
skringilegra akstursleiða. Ekki
bætti úr skák að hjólið er ógnarkraftmikið og minnsta snerting á
bensíngjöfinni, sem stjórnað er með þumalfingri eins og á vélsleða, hreinlega þeytti hjólinu
áfram. Maður reyndi náttúrlega
aö hanga á hjólinu með því að
grípa eins fast og maður gat um
handföngin. Þessar kreistingar
leiddu svo til þess að maður
kreisti bensíngjöfina um leið — og
hjólið tók algerlega völdin og þaut
með mann þangað sem því sýndist. Sem betur fer vandist þetta
því annars væri Vikan einum
starfsmanni fátækari.
EHEM, JÆJA
Þegar þessum byrjunarörðugleikum lauk var svo hægt að
fara að keyra hjólið af einhverju
viti og kanna hvernig það hagaði
sér í raun og veru. Aðallega var
ekið í umhverfi Mosfellssveitar,
vegir, slóðar, hestaleiðir, fjörur,
drullupyttir, ár og mýrar voru
farnar og reynt að finna hvar
svona hjól eru nothæf. Því miður
vantaði snjó en næstum öruggt er
að hjólið kemst leiðar sinnar við
slikar aðstæður því að í reynsluakstrinum kom aldrei upp sú staða að hjólið gæti ekki meir.
Þetta er ótrúlegt en satt. Þetta
hjól kemst næstum því allt og það
sem meira er, hjólið veldur sama
og engum landspjöllum. Ástæða
þess eru hin breiðu dekk, nánast
belgir, sem valda því að hjólið flýtur yfir jafnvel blautustu mýrar án þess að nokkuð sjáist. Á tímum landgræðslu og landverndar
er vert að taka þetta til athugunar
þegar menn ætla að velja sér
farartæki til að þeysa á um holt og
móa.
AÐ AKA HONDU
Allur akstur á hörðu undirlagi
er auðveldur og nánast þægilegur.
Lítið loft er haft í dekkjunum og
þegar maður keyrir yfir steina og
aðrar smáar misfellur í veginum
gleypa dekkin hreinlega allt í sig.
Þar ofan á er fjöðrunin verulega
slagstór og hjólið hegðar sér sérlega vel í alls kyns meiriháttar
ójöfnum. Það er helst á mikilli
ferð sem hjólið vill skoppa svolítið
þegar maður fer í lítil og djúp
hvörf. Reyndar er það með
ólíkindum hversu lítið þessa
gætir. Að framan er hjólið eins útbúið og hvert annað mótorhjól,
tveir vökvafylltir gafflar, en að aftan er svokólluð Pro-Link
fjöðrun. Þessi útbúnaður var upphaflega hannaður með mótorhjól í
huga og byggir hann á einum
dempara í stað tveggja. Í tilfelli
þríhjólsins er búið að færa demparann þar sem afturhjólið er á
mótorhjólum, milli tveggja gaffla,
og síðan kemur öxullinn heill í
gegnum gafflana fyrir aftan
demparann. Þetta er, eins og
reyndar hjólið allt, mjög traustlega gert.
Í akstri í vatni er það alltaf
sama sagan: Það er hreinlega
ómögulegt að ofbjóða hjólinu með vatni. Miklu meiri líkur eru til
þess að ökumaöurinn drukkni
löngu áður en hjólið hefur fengið
nóg. Einu verður maður samt að passa sig á. Dekkin eru svo breið
að hjólið á það til að hreinlega
fleyta kerlingar á vatnsfletinum
ef ekið er hratt og þá þarf að passa
sig á að hafa jafnvægispunktinn á
hárréttum stað því annars getur annar endi hjólsins stungist á kaf
og illa farið. Að öðru leyti er hægt
að komast hvert sem maður þorir
á hæfilegum hraða.
Í drullu er, eins og áður sagði,
mjög auðvelt að komast yfir pytti
án þess að sökkva. En í tilfellum
þar sem pytturinn er nánast kviksyndi er ekki um neitt annað að
ræða en að draga andann djúpt
halda honum í sér og gefa í. Í flestum tilfellum æðir hjólið yfir
með látum og drulluaustri en í
örfá skipti, þegar drullan er
akkúrat svo þunn að hjólið flýtur
ekki en hefur talsverða fyrirstöðu
fyrir framdekkið, getur verið erfiðleikum bundið að komast
leiðar sinnar án einhverra tilfæringa. Í akstri sem þessum er
eins gott fyrir ökumann að hafa
einhverja hlíf fyrir vitum sínum
og augum því að á vissri ferð,
þegar hjólið spólar sig áfram,
moka dekkin beinlínis yfir mann
jarðveginum og olli það í nokkur
skipti því að blaðamaður fékk
ókeypis smökkun á hinum ýmsu
jarðvegstegundum Íslands.
EFTIRÁ AÐ HYGGJA. . .
Eftir frábæran dag hér og þar í
nágrenni Mosfellssveitar varð þó
að skila hjólinu til réttra eigenda.
Allan tímann hugsaði maður sér
þetta sem leikfang, en eftir á að hyggja fór maður nú að hugsa: Er
eitthvað hægt að gera við hjólið
annað en að leika sér að því? Í ljósi fenginnar reynslu var svarið
auðvelt. Þetta er eitt það sniðugasta sem bændur gætu notað við
hin margvíslegu störf á bújörðum
sínum.
Hagsmunir þeirra eru að
geta farið sem mest án þess að
valda landspjöllum og þetta hjól
gerir minna að því en hvaða farkostur sem er, jafnvel hestar.
Einnig er þetta vel nothæft fyrir
veiðiverði hvers konar, þar sem
oft barf að komast hratt yfir ýmiss
konar ófærur. Þessi hjól gefa kost
á skemmtilegri ferðamáta en flest
annað þannig að ferðafrík og
sportveiðimenn hvers konar geta
vel notað hjólið. Mælingamenn,
landkönnuðir, vísindafólk, jarðvinnufólk og jafnvel skíðafólk
getur notað hjólið og svona er
lengi hægt að telja, notagildið er
ótrúlegt.
UTBUNAÐUR
Til síns brúks er hjólið mjög vel
útbúið. Engir mælar eru á hjólinu
enda er þeirra ekki þörf. 60 vatta
ljós er að framan með háum og
lágum geisla og einnig er aftur- og
bremsuljós þannig að maður ætti
að sjá og sjást. Hugsað hefur verið
fyrir ýmsu, til dæmis er handbremsa á hjólinu og varnargrind
yfir ljósinu. Að neðan er hjólið
einnig mjög vel varið, sterklegar
hlífðarplötur bæði undir vél og
undir tannhjólinu og bremsudiskinum að aftan. Sætið er stórt,
mjúkt og nær upp á tankinn en
auðvelt er að rispa afturbrettin,
"sem eru úr plasti, þegar menn
leggjast út á hlið í hraðakstri.
GALLAR?
Veikir punktar hjólsins eru fáir. Í akstri ber helst að varast að fara
of brattar brekkur því hjólið hefur
það gott grip að maður steypist
beinustu leið aftur yfir sig og það er ekkert grín að ætla að redda
málunum veltandi niður brekku.
Þegar startað er sparkar maður
startsveifinni fram á við og óvanir
gætu auðveldlegatognað með því
að reka hælinn í fótstigið. Þessu
hefði verið hægt að bjarga með því
að smella fótstiginu upp en það er
ekki hægt. Varast ber ennfremur
að styðja sig með fótunum í akstri
því að þá hreinlega keyrir maður
bara yfir sig. Afturhjólin eru
nefnilega rétt fyrir aftan fætur manns og renna upp á hælinn um
leið og maður rekur fæturna
niður, sem er óþarfi því hjólið er
mjög stööugt.
TÆKNILEGAR
UPPLÝSINGAR
Vél og drif: Tvígengis. Einn
strokkur, loftkældur, 247 cm', 26
hestöfl við 6500 snúninga á
mínútu. Snúningsseigla: 3,33 kg-m
við 6000 snúninga á mínútu.
Magnetukveikja. 5 gírar. Keðjudrif.
Hemlar: Einn gataður diskur að
framan og aftan. Vökvaátak.
Fjöðrun: Framan: Loft-og vökvafylltir gafflar. Slaglengd: 22 cm.
Aftan: Stillanlegur gasfylltur
þrýstings- og fráslagsdempari
(Pro-Linkj.
Mál og vog: Hæð; 1,09 metrar.
Lengd: 1,86 metrar. Breidd: 1,1
metri. Eigin þyngd: 133 kíló.
Hæð undir lægsta punkt: 12
sentímetrar. Tankrúmtak: 10,5
lítrar af 5% olíublönduðu bensíni.
Verð: 126.300 krónur.
Umboð: Vatnagörðum24.