18.9.14
Tían Bifhjólaklúbbur Norðurlands
9.8.14
Motocross er fyrir þá sem vilja hafa gaman
Eiður Orri Pálmarsson er 9 ára gamall en hann verður 10 ára á þessu ári. Eiður stundar motocross og er með tvö mótorhjól í bílskúrnum sem hann er duglegur að æfa sig á. Eiður segir motocross–íþróttina henta fyrir alla, börn, fullorðna, stráka og stelpur en hann minnir á hversu mikilvægt er að vera með góðan hlífðarbúnað þegar hjólað er á mótorhjóli.
Hvað gerir maður í motocross?
Maður stekkur, beygir og keyrir hratt til dæmis.
Hvar stundar þú motocross?
Ég keyri á MotoMos–brautinni í Mosfellsbæ og uppi í Bolöldu sem er á móti Litlu kaffistofunni. Svo er ein braut rétt hjá heimilinu mínu og við förum stundum þangað. Það er líka hægt að keyra á Akranesi og Aukureyri.
Ferðast þú um allt landið til að stunda motocross?
Já, og þegar við förum til Akureyrar þá erum við kannski í tvo eða þrjá daga.
Hvernig eru motocrossbrautirnar?
Til dæmis er MotoMos–brautin úr svona sandsteypu.
Hvenær byrjaðir þú að æfa þig á mótorhljól?
Þegar ég var þriggja ára. Þá þurfti ég minna mótorhjól.
Hver kenndi þér á mótorhjól?
Hann pabbi. Svo er ég að æfa uppi í Bolöldu, þá eru þjálfarar að kenna okkur, þeir heita Gulli og Helgi.
Eru einhverjir vinir þínir að stunda þessa íþrótt líka?
Já, þeir heita Máni, Víðir og Fannar. Víðir er með mér í skóla.
Hvað er skemmtilegast við að æfa motocross?
Keppnin er skemmtileg og svo eignast maður marga vini.
Er þetta hættuleg íþrótt?
Hún getur verið það. Þess vegna notum við hjálm, legghlífar, brynjur, hálskraga og annan hlífðarbúnað.
Hefur þú dottið á mótorhjóli?
Já, oft og stundum hef ég meitt mig.
Hver er munurinn á mótorhjólunumþínum?
Annað þeirra er 65 cubic og hitt er 85 cubic, þannig að annað þeirra er stærra og fer betur ofan í holur. Ég er nýbyrjaður að nota þetta sem er stærra.
Hvað segir fólk þegar þú segir þeim að þú sért að æfa motocross?
Sumir eru hissa en ekki allir.
Myndir þú mæla með þessari íþrótt?
Já, aðallega fyrir þá sem eru með keppnisskap og fyrir þá sem vilja hafa gaman. Sumir prófa að hjóla án þess að keppa.
Áttu þér einhver önnur áhugamál?
Já, fótbolta og skíði og ég er að æfa það líka.
4.7.14
1.7.14
Franskur sigur í Pikes Peakkeppninni
Franskur sigur í Pikes Peak keppninni
Pikes Peak er ein þekktasta, ef
ekki þekktasta, „hillclimb“-keppni
sem til er. Hillclimb felst í því að
ekið er, eins hratt og kostur er, upp
brattar brekkur og þar er Pikes
Peak í Colorado í Bandaríkjunum í
sérflokki. Keppnin hófst í síðustu
viku og lauk sunnudaginn 29. júní.
Brautin er 20 kílómetra löng
með 156 beygjum og rís hún 1.440
metra frá ráslínunni og upp á topp
hnjúksins. Á leiðinni upp er venjulega boðið upp á mikið sjónarspil
þegar öflugustu farartæki heims í
ýmsum flokkum bruna upp brautina.
Farartækin eru oft í óvenjulegri
kantinum; vörubílar, mótorhjól og
hefðbundnir sportbílar taka þátt í
bland við sérsmíðaða hillclimbbíla. Í ár voru rafbílar vinsælir en
rafbílametið á til dæmis Nissan
Leaf en það setti Chad Hord árið
2011 þegar hann náði tímanum
14:33.429. Í ár ætlaði Tesla að
reyna að ná metinu af Nissan Leaf
sem margir Íslendingar þekkja.
sem margir Íslendingar þekkja.
Sá sem kom, sá og sigraði hins
vegar var Frakkinn Romain Dumas
sem sigraði á franska Norma
M20-bílnum. Sigur hans bætist í
safn sigra á Spa, Nürburgring og
Le Mans. Í flokki mótorhjóla féll
skuggi á keppnina þar sem hinn
54 ára gamli Bobby Goodin lést í
lok ferðar sinnar. Hann keppti í
millistærðarflokki á Triumph Daytona 675 og hafði orðið þriðji árið
áður.
Morgunblaðið 1.7.2014
https://timarit.is/files/43379654#search=%22og%20upp%20og%20og%20og%20og%20og%20og%20og%22
10.6.14
Hættulegasta íþróttagrein í heimi
Bob Price lést á þriðja hring í Supersport flokki |
TT-keppnin á Mön nýyfirstaðin
Isle of Man TT-keppnin er án efa ein hættulegasta keppni sem um getur í mótorsporti í heiminum í dag. Í ár létust tveir keppendur og í 107 ára sögu keppninnar hafa því 242 látist. Þrátt fyrir að öryggismál hafi verið tekin í gegn á síðustu árum hafa 23 látist síðan um aldamótin, sem gerir þetta að einni hættulegustu íþróttagrein sem hægt er að stunda.
360 km á tæpum 2 tímum
TT keppnin, eða Tourist Trophy eins og hún heitir á engilsaxnesku, var fyrst haldin árið 1907 og var þá 24 kílómetrar. Hinni frægu Snæfellsleið var bætt inn í keppnina árið 1911 og varð hún þá 60 km eins og hún er í dag. Hafa ber í huga að keppnin er haldin á venjulegum vegum á eynni sem er lokað í tvær vikur á ári til að breyta þeim í keppnisbraut. Fyrir vikið er mikið af föstum hlutum nálægt brautinni svo að ekki þarf að spyrja að leikslokum ef einhver missir stjórn á hjóli sínu á meira en 300 km hraða, en mótorhjólin fara oft og vel yfir þá tölu á hringnum. Keppnin er hröð í öllum fimm flokkunum, Superbike, Senior, Superstock, Supersport og Lightweight, en einnig er keppt í flokki hliðarvagna og nú á síðustu árum í flokki rafhjóla.Alls eru 264 beyjur í brautinni sem er 60km og þræðir bæði skóga þorp og fjallendi.Umhverfið hefur reynst ökumönnum skeinuhætt |
Bultaco Rapitán er mótorhjól sem tekið verður eftir
Þegar talað er um rafmótorhjól er hætt við
því að flestir fái upp í
hugann mynd af suðandi rafmagnsvespu
eða álíka saumavél.
Rafhjólin frá Bultaco
ættu að fá viðkomandi
til að skipta um skoðun.
Bultaco, sem er með höfuðstöðvar sínar í Barcelona, er fornfrægt merki sem hefur að mestu legið í láginni síðan 1983. Ljóst er af nýjustu hjólum fyrirtækisins að þar á bæ ætla menn að koma inn á markaðinn aftur með látum og stæl. Til þess hefur Bultaco nú kynnt til sögunnar tvö spennandi rafknúin mótorhjól, Rapitán og Rapitán Sport, sem koma í sölu snemma á næsta ári.
Rafknúin raketta
Þar sem hjólin eru knúin af
liþíumrafhlöðu er bensíntankur
óþarfur og það rými hefur haganlega verið endurhugsað sem
geymsluhólf fyrir hjálminn.
Hjólið dregur um 145 kílómetra
á hleðslunni og tekur um fjórar
klukkustundir að fullhlaða.