Flogið yfir sandhóla...
spyrnt og spólað...
Vel heppnuð hjólreiðakeppni við Sandfell
Um 500 manns horfðu á fyrstu
motorcross hjólakeppnina hér á
landi, sem fram fór við Sandfell við Þrengslaveg i gær.
Var þarna keppt í
tveimur stærðarflokkum mótorhjóla.
Varð hörkukeppni um fyrsta sætið i
stærri flokknum en úrslitin í keppni
minni hjóla lágu á borðinu frá byrjun, ef
svo má segja. Í stærri flokknum voru keppendur niu
og luku allir keppni nema einn.
Keppt
var á þúsund metra braut með alls kyns
hólum og beygjum og keppnin þvi engu
minni þraut en keppni um sæti.
Farnar voru þrjár umferðir, 15
hringir í 1. umferð og 10 hringir í 2. og
3. umferð.
Gefnir voru punktar fyrir
hverja umferð og punktarnir réðu
úrslitum i lokin.
Úrslit i stærri
flokknum, það er hjól með 500 cc vél:
1. Einar Sverrisson á Yamaha 400
2. Pétur Þorgrimsson á Montesa 360
Minni flokkinn skipuðu piltar á
hjólum með 50 cc vélar.
Ellefu
keppendur voru í þeim flokki og luku
níu keppni. Farnar voru tvær umferðir,
7 hringir i hvorri umferð.
Yfirburðasigurvegari varð Jón Baldursson á Hondu SS 50. Annar varð Sveinn
Guðmundsson á Casal 50 og i þriðja
sæti Tómas Eyjólfsson á Casal 50.
Allir keppendur voru búnir
samkvæmt ströngustu kröfum, með
sérstaka hjálma og hökuhlífar. Þá höfðu
þeir axlarhlifar og hnjáhlifar. Kom enda
ekkert óhapp fyrir neinn keppenda.
Áhorfendur skemmtu sér vel og
hlógu oft þá er keppendur féllu i erfiðum
þrautum sinum.
Dagblaðið gaf verðlaun til þessarar
fyrstu vélhjólakeppni, bikar í hvorum
flokki og þrjá verðlaunapeninga i
hvorum flokki.
ASt.