Lögfræðineminn ************ hefur kært lögreglumann fyrir að hafa
stofnað lífi sínu og heilsu í stórhættu. Lögreglumaðurinn ók yfir á rangan vegarhelming i veg fyrir ******** sem ók þar um á vélhjóli og lá óvígur eftir. Lögreglan ber því við að hér hafi verið um slys að ræða. Ríkissaksóknari rannsakar málið. Lögreglan í Reykjavík telst vanhæf
************, 25 ára lögfræðinemi, hefur kært lögreglumann fyrir að hafa ekið yfir á öfugan vegarhelming og í veg
fyrir hann að kvöldi 31. mai. Í kærunni er ökumaður lögreglubifreiðarinnar sagður hafa stofnað lífi og heilsu *****í voða og þess
krafist að málið verði rannsakað.
Ríkissaksóknari er með málið í
höndum en lögreglan í Reykjavík telst vanhæf til að rannsaka
það.
******* segist heppinn að vera enn á lífi.
„Ég meiddist töluvert og er ekki
búinn að bíða þess bætur ennþá,"
segir ******** sem stundar nám
við lagadeild Háskóla íslands og er
meðlimur í Sniglunum. Bifhjólamenn eru margir hverjir afar reiðir
yfir atburðinum og spyrja hvort það
sé stefna lögreglunnar að aka niður
mótorhjólamenn.
Keyrði í veg fyrir hjólið
Í skýrslum lögreglunnar þann
31. maí kemur fram að nokkur bifhjól hafi verið mæld á of miklum
hraða fyrr um kvöldið. Lögreglunni tókst hins vegar ekki að
stöðva þá ökumenn. Nokkru síðar
sá ökumaður lögreglubifreiðar
númerið MN-074, ****, koma akandi við bensínstöðina á Ægisíðu. **** var ekki viðriðinn hraðaksturinn fyrr um kvöldið og hefur ekki
enn hlotið neina kæru eftir umrætt kvöld.
Ökumaður lögreglubifreiðarinnar ákvað hins vegar að stöðva hann. **** segist hafa komið fyrir horn og
verið á leið inn í beygju þegar lögreglubíllinn keyrði snöggt í veg fyrir
hann. **** skall á lögreglubílinn
og flaug af hjólinu.
Eins og sést á myndunum
hér til hliðar er augljóst að lögreglan ók yfir á rangan vegarhelming. ****