|
Einar Sigurðsson á móti í Ameríku |
Akureyringurinn Einar Sigurðsson íslandsmeistari í MX2 hefur fimm sinnum verið útnefndur íþróttamaður ársins hjá Kappaksturklúbbi Akureyrar (KKA) En á síðasta ári var hann valinn í landslið Íslands og keppti á Motocross des Nations sem haldið dagana 6. og 7. október á Red Bud brautinni í Michigan í Bandaríkjunum. Þetta eru heimsleikarnir í motocrossi. Einar og félagar í landsliðinu höfnuðu í 25. sæti, sem er besti árangur Íslands til þessa.
Á síðasta keppnistímabili varð Einar Íslandsmeistari í MX2 flokki með afgerandi hætti. Vann allar keppnir ársins og var með fullt hús stiga.
|
Einar Sig. |
Afreksjóður Akureyrar Styrkir Einar Sigurðsson
Ánægjulegt er frá því að segja að afrek Einars Sigurðssonar hafa ekki farið framhjá Afrekssjóði Akureyrarbæjar. Stjórn stjóðsins samþykkti á fundi sínum 17. desember s.l. að styrkja Einar með fjárframlagi vegna ársins 2018. Styrkurinn verður afhentur formlega á athöfninni Íþróttamaður Akureyrar í Hofi þann 16. janúar 2019.
Flottur árangur Einar og til hamingju.
Hér fyrir neðan má sjá byltu sem Einar lenti í á móti í bandaríkjunum og má teljast mjög heppina að hafa gengið óskaddaður frá henni.