29.1.14

Umdeilt frumvarp um mótorhjól

Bifhjólasamtökin Sniglar hafa sent mótmæli sín við nýbirt frumvarp til umferðarlaga til innanríkisráðuneytisins og ennfremur óskað eftir fundi með samgöngunefnd vegna málsins. Tilurð þess er enn ein tilraun yfirvalda til að banna öllum að aka með farþega sé viðkomandi undir 16 ára aldri og undir 150 sentimetrum á hæð.



Að sögn Hrannar Bjargar Harðardóttur, formanns Snigla á mótorhjólafólk erfitt með að skilja hvers vegna þessi lagabreyting skuli koma inn aftur og aftur þótt hún hafi nokkrum sinnum verið tekin út úr lögunum. “Það veldur vonbrigðum þegar ítrekað hafa verið færð góð og gild rök fyrir öllum okkar athugasemdum og þær teknar til greina, skuli þær að sama skapi ítrekað strikaðar út án umhugsunar né nokkura röksemda af hálfu hins opinbera” segir Hrönn í viðtali við bifhjol.is.  



Engin rök með banninu
Síðastliðin ár hafa Bifhjólasamtök Lýðveldisins, Sniglar, veitt umsögn á vinnu nefndar  sem vann að nýju frumvarpi til umferðarlaga. Sniglar hafa sent inn ýmsar athugasemdir við frumvarpsdrögin og hefur að miklu leyti verið tekið tillit til þeirra. Samtökin hafa farið yfir Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum nr. 50/1987, með síðari breytingum. Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar eiga erfitt með að skilja hvers vegna ákvæði um 150 sm. lágmarkshæð fyrir börn sem farþega á bifhjóli er alltaf að koma inn í lögin. Sniglar hafa aftur og aftur fengið þetta ákvæði út með góðum rökum enda ekkert sem rökstyður það.



Slysatölur benda ekki til hættu með börn sem farþega á bifhjóli, en tilurð þess í lögum bendir til fordóma og vanþekkingar á efninu. Erfitt er að skilja að þetta hafi þótt „brýnt að nái fram að ganga eins fljótt og auðið er“ eins og stendur í   athugasemdum við lagafrumvarpið. Í frumvarpi sem var lagt fram á Alþingi 2012-2013 var þetta orðað svona: „Barn sjö ára eða yngra, sem er farþegi á bifhjóli skal sitja í sérstöku sæti því ætluðu. Barn eldra en sjö ára skal ná með fætur niður að fóthvílum bifhjóls, en að öðrum kosti á fyrri málsliður við.“



Reynslulaus má reiða á léttu bifhjóli
Samkvæmt frumvarpinu mætti mjög reyndur bifhjólamaður ekki lengur hafa barn sem farþega á stóru bifhjóli ef það er undir 150 sm. á hæð. Gildir þá einu hvort barnið sé í besta fáanlega hlífðarfatnaði. Samkvæmt frumvarpinu má hins vegar sá sem er með réttindi á bíl og er 20 ára eða eldri reiða barn undir 150 sm. á léttu bifhjóli.  Réttindi á létt bifhjól fylgja réttindum á bíl svo fræðilega séð er sá sem enga þjálfun hefur hlotið í meðferð bifhjóla, því þá síður akstri með farþega á bifhjóli, sá eini sem má reiða barn undir 150 sm. á bifhjóli.



Í mörgum tilfellum gæti það verið staðreynd að 15 ára barn væri með réttindi á létt bifhjól en ef það er undir 150 sm. lágmarkshæðinni má sama barn ekki vera farþegi á stóru bifhjóli. Með réttu ætti að fella út kaflann um réttindi til aksturs léttra bihjóla skuli fylgja réttindum á bíl þar sem engin þjálfun fer fram í akstri þeirra.

Finnur Thorlacius skrifar 

https://www.visir.is/g/2014140128784

3.12.13

Mótorhjólasafnið í Newburgh:



Yfir 450 mótorhjól til sýnis

Í aðeins um klukkustundar fjarlægð frá Manhattan er eitt stærsta mótorhjólasafn heimsins. Safnið heitir Motorcyclepedia sem er réttnefni enda safnið eins og hálfgerð alfræðiorðabók um mótorhjól. Safnið er á 250 Lake Street í Newburgh og til að komast þangað er best að taka Metro North Hudson Line frá Grand Central-brautarstöðinni upp til Beacon. Þaðan er hægt að ganga niður fyrir brautarstöðina að ánni og taka ferju yfir Hudson-ána yfir til Newburgh og þá er safnið aðeins fimm mínútur í burtu með leigubíl. Undirritaður var á ferðinni um New Yorkríki á dögunum og kom þar við.
Harley Davidson keppnishjól frá
1911 tekur á móti gestum þegar
 þeir ganga inn á safnið í Newburgh.

Safnið samstarf feðga 

Saga safnsins er nokkuð merkileg en það er aðeins tveggja ára gamalt í núverandi mynd. Á sjöunda áratugnum voru tveir vinir, þeir Mike Corbin og Ted Doering, sem eyddu miklum tíma saman á og með mótorhjólum sínum. Corbin stofnaði fyrirtæki sem fór að framleiða sæti á mótorhjól og flest mótorhjólafólk þekkir í dag, en Ted Doering fór að gera auka hluti á Harley-hjól fyrir ört vaxandi markað heima fyrir. Áður en langt um leið var hann farinn að láta smíða fyrir sig mikið af hlutum í Taívan og fékk í framhaldinu viðurnefnið Taiwan Ted. Hann varð fljótt milljóner af þessu og til að halda í hjólaáhugann fór hann að safna mótorhjólum og hlutum þeim tengdum, aðallega í samstarfi við föður sinn Jerry Doering sem keppti á Indian-mótorhjólum upp úr seinna stríði. Ted safnaði Harley Davidson-hjólum og sérstaklega breyttum hjólum en Jerry hóf að safna Indian-hjólum árið 1949. Safnið stækkaði fljótt og þurfti stóra skemmu til að geyma öll hjólin. Mikill fróðleikur Jerry um Indian-hjól skilaði sér í miklu safni slíkra hjóla og á safnið hverja einustu tegund og árgerð frá upphafi sem er einstakt, fyrir utan gott safn Indian-keppnishjóla. Við safnið hefur svo bæst fjöldinn allur af öðrum amerískum gerðum auk talsvert margra evrópskra og japanskra hjóla en uppistaðan í safninu er hjól framleidd í Bandaríkjunum. Meðal þess sem áhugavert er að skoða á safninu er gott safn herhjóla og lögreglumótorhjóla. Einnig er sérstök sýning á hjólum mótorhjólasmiðsins Indian Larry á safninu, auk keppnishjóla af ýmsum gerðum sem sýna vel sögu mótorhjólaíþrótta í Bandaríkjunum. Yfir 450 mótorhjól eru í safninu og vel þess virði fyrir þá sem hafa áhuga á hvers kyns mótorhjólum að heimsækja það. 

NG
Morgunblaðið
3.12.2013
njall@mbl.is