63JA ÁRA GAMALL FYRRUM LÖGREGLUMAÐUR LÉT DRAUM RÆTAST OG ÓK Á MÓTORHJÓLI ÞVERT YFIR BANDARÍKIN UM
ÞJÓÐVEG 66. VEGUR VONA, SEGIR FERÐALANGURINN
Sævar Ingi Jónsson er dálítill
ævintýramaður. Hann er
fyrrverandi lögreglumaður til
langs tíma, fjölskyldumaður
og hefur starfað hjá Vegagerðinni
seinni ár. Sævar hefur skipst á að búa
á Akureyri og í Reykjavík en kom sér
fyrir nokkrum árum endanlega fyrir
í hinu bjarta norðri og er sáttur. Eða
hvað? Kannski var hann pínulítið
ósáttur við eitt. Hann hafði nefnilega
gengið með draum í maganum um
langan tíma, að aka frægasta þjóðveg
heims, Route 66, frá austri til vesturs
í Bandaríkjunum og var orðinn
úrkula vonar um að draumurinn ætti
eftir að rætast. En þá heyrði hann
af nokkrum lögreglumönnum sem
voru að spá í svipaða hluti. Sævar
setti sig í samband við þá og til að
gera langa sögu stutta sneri hann
nýverið alsæll heim til Akureyrar
eftir að hafa ekið 4.444 kílómetra á
amerískri grundu – á Harley Davidson mótorhjóli.
Stórkostlegt, þetta var stórkostlegt, ég er stoltur að hafa látið til
skarar skríða. Loksins! Jafnframt afar
þakklátur eiginkonu og fjölskyldu
fyrir stuðninginn við að gera þetta
mögulegt“ segir Sævar og fær sér
sæti á skrifstofu blaðamanns.
Hann tekur upp tölvu og sýnir
blaðamanni hundruð mynda úr
ferðinni. En hvert var upphaf þess að
63ja ára gamall maður ók mótorhjóli
yfir þjóðveg 66?
Steinbeck áhrifavaldur
„Draumurinn kviknaði fyrir mörgum, mörgum árum eftir að ég hafði
lesið Þrúgur reiðinnar eftir John
Steinbeck. Mér fannst, eftir lestur
þeirrar bókar, í hjarta mínu að þjóðvegur 66 væri táknrænn, að hann
væri tákn fyrir drauma, vonina og
ósk um betra líf. Þetta var vegurinn
þar sem heilu fjölskyldurnar tóku
allt sitt hafurtask, hrúguðu því inn í
bílinn og létu vaða, allt fram til ársins
1950. Þá var vegurinn formlega tekinn af skrá,“ segir Sævar.
En hvernig fór ferðalagið með
hann? Er svona ferð ekki að einhverju leyti bæði andleg og líkamleg
þrekraun? Hann brosir við og viðurkennir með semingi að glíman við
veginn hafi stundum tekið á. Hann
ferðaðist í 12 manna hópi sem í
voru 11 karlar og ein kona og voru
Íslendingarnir stundum „afar þreyttir
að kvöldi dags“ eins og hann orðar
það. Ýmsar óvæntar uppákomur
töfðu líka ferð en gerðu með sama
hætti ævintýrið eftirminnilegra.
Sem dæmi þurfti hópurinn að bíða
eftir leiguhjólunum. Sum hjólanna
voru líka „hálfgerðar druslur“ og
ekki í samræmi við samninginn.
Einn daginn rigndi svo mikið að
ferðalangarnir komust hvorki lönd
sé strönd og vitaskuld komu upp
bilanir eins og gengur. „Eiginlega
fór allt skipulag úr böndunum og
við máttum hafa okkur öll við að
að komast þessa vegalengd á 11
sólarhringum eins og við þurftum
að gera. Sumir dagarnir urðu þess
vegna lengri akstursdagar en nokkur
sá fyrir, mest fórum við á sjöunda
hundrað kílómetra á einni dagleið.“
Ónotað krossgátublað
Sævar var langelstur íslensku ferðalanganna og segir hann að mikil orka
hafi farið í að halda fullri athygli á
akstrinum jafnframt því að fylgjast
með umhverfinu. Líkamlega taki
svona ferð líka lúmskt á. „Ég keypti
krossgátublað í Fríhöfninni til að
dunda mér við fyrir svefninn. En
eftir að ég kom heim sá ég að þeir
voru ekki margir stafirnir sem ég
hafði skrifað. Maður datt út um
leið og höfuðið nam við koddann á
kvöldin.“
„Ferðin um þjóðveg 66 reyndi
mikið á samvinnu,“ segir Sævar,
„og ýmsar félagslegar lausnir. Einu
sinni var svo þröngt með gistingu
að margir þurftu að sofa saman í
herbergi. Þá er það eitt nokkur kúnst
að verða ekki viðskila við hópinn
þegar menn ferðast um á mótorhjóli á götum alheimsins.“ Hann segir
Bandaríkjamenn hafa verið afskaplega hjálplega í umferðinni, þeir hafi
gefið séns vinstri, hægri og komið
þægilega á óvart. „Tillitssemin var
alveg einstök og gætum við Íslendingar lært margt af Könum í því efni.“
Fjöldi draugabæja
Spurður um eftirminnilega upplifun
segir vegagerðarmaðurinn að það
hafi verið sérstakt að aka fram hjá
fjölda draugabæja á leiðinni. Sumir
þeirra minntu hann á Haganesvík
þar sem byggð lagðist af eftir að vegurinn var færður til. Þar sem áður
hafi staðið urmull af bensínstöðvum
og alls konar þjónustu við ferðalanga
ríki nú víða auðnin ein
Ýmsar skemmtilegar uppákomur
urðu í ferðinni eins og gengur og
voru ferðafélagarnir afar samstíga
í því að njóta ferðalagsins og hafa
gaman af. Til stóð að lögreglumennirnir í hópnum myndu hitta kollega
sína í Chicago og endaði það með því
að þeir buðu öllum hópnum í mat
kvöldið fyrir brottför. „Við hittum
líka í nokkrum tilfellum á ferð okkar
lögreglumenn á vakt og áttum við þá
skemmtileg og ánægjuleg samskipti.“
Spurður um samanburðinn á því
að vera íslenskur eða amerískur
lögreglumaður segir Sævar að
fyrir tækja- og dellukarl eins og sig
hafi ekki verið leiðinlegt að skoða
amerísku lögreglubílana. „Hjá þeim
eru allir bílarnir sérsmíðaðir fyrir
notkun þeirra. Bíll sem er notaður
í vegaeftirlit er til dæmis með mjög
öfluga vél og hemla auk þess sem
hann er sérstaklega innréttaður fyrir
hlutverk sitt. Bíll sem notaður er í
fangaflutninga er sérútbúinn með
öðrum hætti. Hér á landi er þetta
hins vegar þannig að það fer fram
útboð, svo er samið, keyptur kannski
einhver fjölskyldubíll, hann merktur
og svo er skellt á hann sírenu og
ljósum“, segir Sævar.
Með haglabyssu á
mótorhjólinu
En hvað með vopnaburðinn?
„Við hittum meðal annars lögreglumann með haglabyssu á mótorhjólinu. Það er nú kannski ekki alveg
það sem maður vildi sjá hér,“ segir
Sævar og hlær að tilhugsuninni, sem
væntanlega er framandi í huga flestra
friðsamra Íslendinga
„Það eina sem ég sé eftir er að
hafa ekki farið þessa ferð fyrr. Mín
hvatning til þeirra sem eiga sér
óuppfyllta drauma er einfaldlega að
láta vaða, stökkva frekar en hrökkva.
Það að takast á við krefjandi verkefni
gefur lífinu ómetanlegt gildi,“ segir
Sævar hress og þýtur út af skrifstofu blaðamanns til starfa fyrir
Vegagerðina. Hann setur bifreiðina
sína í gang og ekur af stað Þórunnarstrætið til norðurs – en af svipnum
af dæma er hugurinn enn bundinn
við þjóðveg 66. Veg draumanna. Veg
vonarinnar.
Akureyri 13. OKTÓBER 2011