7.4.01
Lögðu 7.545 kílómetra að baki á mótorhjólum 15.12.2001 MBL
Guðmundur Bjarnason tæknifræðingur, Guðmundur Björnsson læknir og Ólafur Gylfason flugstjóri hafa lokið ferð sinni á mótorhjólum þvert yfir Bandaríkin. Lögðu þeir upp frá Vancouver í suðvesturhluta Bandaríkjanna og komu til Orlando í Flórída um helgina. Lögðu þeir að baki 4.689 mílur eða 7.545 kílómetra á leiðinni og hjóluðu um 12 ríki Bandaríkjanna á 19 dögum.
Í dagbók úr ferðinni á heimasíðu um leiðangurinn segja þremenningarnir að tilfinningin í ferðalok sé engu lík. „Við gerðum það sem marga dreymir um, að fara þvert yfir Ameríku, heila heimsálfu á mótorhjóli og höfum farið yfir þrjú tímabelti. Okkur tókst það sem við héldum að við myndum aldrei ná og hvað þá að leggja út í. Það er þrekvirki andlega og líkamlega að takast á við heila heimsálfu, ekki það að við séum að miklast af því, það er einfaldlega staðreynd. Það er ekki hægt að lýsa því hvernig er að ferðast um á mótorhjóli þvert yfir Bandaríki Norður Ameríku, upplifa breytingar á veðri, landslagi, gróðri, lykt, hitastigi, rakastigi, fólki, litarhætti, trúarbrögðum, menningu, arkitektúr, efnahag, viðmóti og svo mætti lengi telja. Þetta er ólýsanlegt og menn verða bara að upplifa það sjálfir. Þetta er þolraun, sem tekur á líkama og sál. Við erum fegnir því að allt gekk vel og erum þakklátir þeim sem næst okkur standa fyrir að veita okkur tækifæri og sýna skilning á því að við urðum að takast á við þennan æskudraum. Við erum líka þakklátir okkur sjálfum fyrir að leyfa okkur að láta hann rætast. Það er heilsusamlegt að láta drauma sína rætast. Við fyllumst nú einhverri innri ró sem erfitt er að lýsa, líklega hafa landkönnuðir allra tíma sótt í sama brunn og við," segir meðal annars í ítarlegri dagbók leiðangursmanna við ferðalok.
með mynd :
Guðmundur Bjarnason, Ólafur Gylfason og Guðmundur Björnsson á strönd Flórída við ferðalok en að baki eru 7.545 kílómetrar yfir þver Bandaríkin. mbl.is
31.3.01
Stærsta mótorhjól í heimi orðið að staðreynd
Mótorhjól í svokölluðum hippaflokki hafa alltaf verið að stækka og það stærsta í dag er Honda VTX 1800.
Kaupendahópurinn að þessum gerðum hjóla hefur einnig vaxið mest og því ekki að furða þó
framleiðendur hafi lagt mikla áherslu á að kynna ný hjól. Meira að segja BMW kom með hippa fyrir nokkrum árum sem vakti verðskuldaða athygli. Vél í þessum stærðarflokki hefur ekki sést í hippa áður. Meira að segja útblástursventlarnir eru stærri en í P-51 Mustang-flugvél eða 45 mm. Það er með stærstu strokka sem sést hafa í mótorhjóli, heila 10 sentímetra í þvermál en það er sama stærð og í 400 Chevy. Til að minnka hættu á titringi i svona stórum mótor er sveifarásinn 20 kíló.
Þetta hjól varð fyrst til sem tilraunaútgáfa árið 1995 og hét þá Zodia. Það notast við beina innspýtingu og stenst mengunarlöggjöf fyrir árið 2008 í Kaliforníuútgáfunni en annars 2004 í Evrópuútgáfu. Púströrið er í sama stærðarflokki og annað í hjólinu og það ér með fimm gíra kassa. Notast varð við drifskaft til þess að ráða við snúningsvaegið í mótornum Til þess áð stoppa öll 319 kílóin setti Honda i það samtengt bremsukerfi sem hefur verið þróað lengi. Ef togað er í handbremsu tekur hún aðeins í að framan en fótbremsa virkar á báða öxla. Þegar stigið er á hana notast hún aðeins við einn stimpil af þremur í frambremsunni. Þetta er haft svona vegna þess að þeir sem keyra hippa virðast frekar nota afturbremsu en frambremsu, að sögn Honda. Hraðamælirinn sýnir 240 km og eflaust er góö og gild ástæða fyrir því. Honda ætlar að bjóða upp á mikið safn aukahluta í VTX, fyrir þá sem vilja setja sitt persónulega mark á hjólið. Honda umboðið á Islandi er að skoða það að flytja svona hjól inn sem verður þá fáanlegt um mitt sumar.
-NG
DV 31.3.2001
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)