|
Að sögn Marra er þverskurðurinn af
þjóðfélaginu í Sniglunum |
,,Frá forstjórum niður í sleða "
Það er ekkert gaman að vera einn á hjóli. Hefur þú prófað að vera
ein í bíl" spyr Marri, Snigill nr.
#660 þegar hann er spurður út í það
hvers vegna hann hafi gengið til
liðs við Sniglana. Það er sem sagt félagsskapurinn, umfram annað, sem
fólk er að sækjast eftir þegar það
gengur i Sniglana.
En hvers konar félagsskapur er
þetta? Hvaða fólk sækir um inngöngu í Sniglana?
„Þetta er bara þverskurðurinn af
þjóðfélaginu; alveg frá forstjórum
og ráðherrum og niður í einhverja
sleða," segir Marri til útskýringar.
„Þetta er einstaklingshópíþrótt og
þar af leiðandi félagsskapur fyrir félagslynda einstaklingshyggjumenn;
fólk sem hefur þetta áhugamál, að
hjóla."
Sniglarnir eru 15 ára um þessar
mundir og eru skráðir meðlimir í félaginu um 1200. Þeir eru þó ekki
allir virkir því að sögn Marra verða
menn „að vera greiddir", þ.e.a.s. að
hafa greitt félagsgjöld til að teljast
virkir í félaginu. Menn hittast og
hjóla, halda fundi einu sinni í viku
og síðan er farið í ferðir, eina torfæruferð fyrstu helgina í september
í Landmannalaugar og síðan aðrar
styttri óskipulagðar ferðir hingað
og þangað um landið.
„Við fórum til dæmis upp á Akranes í kaffi um helgina," segir Marri
þegar hann er beðinn um útlistun á
týpiskum túr. „Hrelltum fólk i göngunum og svona," bætir hann við og
geispar siðan letilega.
Hvað áttu við? Eruð þið í því að
abbast upp á fólk?
„Nei, nei. Það tekur bara svo
langan tíma að afgreiða hjól í göngunum. Menn þurfa að taka af sér
hjálma og vettlinga og annað til að
ná í veskin og þegar við erum 30-40
saman eins og þarna þá tekur þetta
heillangan tíma. Enda fór allt í háaloft. Menn voru að verða vitlausir á
okkur," segir Marri og er ekki að
heyra að hann hafi tekið þessa
taugaveiklun í bíleigendum nærri
sér.
„Svo erum við með hjóladag á
laugardaginn, tökum þá monttúr
um borgina og svona, og síðan
landsmót Sniglanna," segir hann
um það sem er á döfinni í nánustu
framtíð. „Á landsmóti koma menn
saman til að monta sig, hver sem
betur getur, af nýja hjólinu eða bara
hinu og þessu sem þeir hafa verið
að gera," bætir hann við en fyrir þá
sem ekki vita er rétt að taka fram
að landsmótið verður haldið í Tjarnarlundi í Búðardal fyrstu helgina í
júlí.
En hvað þurfa menn að gera til
þess að fá inngöngu í félagið?
Eruð
þið með ströng inntökuskilyrði?
„Ja, það geta náttúrlega allir sótt
um. En menn verða að fá meðmæli
frá 13 Sniglum til að verða samþykktir," segir Marri nokkuð drýgindalega en bætir við, til vara: „Við
erum samt ekkert mjög strangir við
fólk. Það verður bara að prófa."
-esig
DV 23. JUNI 1999
Heilræði frá Sniglunum, Bifhjólasamtökum lýðveldisins:
Tékklisti fyrir
mótorhjólaferðir
Fyrir vikuferðalag út
a land
- Það fer enginn út að hjóla
nema í viðurkenndum öryggisfatnaði og með hjálm .
- Tjald og svefpoki .
- Föt til skiptanna .
- Sundfatnaður og stuttbuxur .
- Góðar vatnsheldar töskur
og poki fyrir farangur .
- Vatns- og vindheldur hlífðargalli .
- Vatnsheldir vettlingar .
- Vatnsheldar skóhlífar (eða
plastpoki).
- Helstu verkfæri .
- Límband .
- Startkaplar .
- 1 lítri af mótorolíu .
- Olíutrekt .
- Dekkjaviðgerðasett .
- Bensínslanga (ca 1 metri) .
- Sjúkragögn .
- Hafa hitabrúsa uppi við
með kaffi/kakói .
- Saumaveski Snigla .
- Smokkar (ef menn eru
heppnir) .
- Dömubindi (fyrir þær
óheppnu).
- Peningar og koss bless frá mömmu.