Kviknaði í mótorhjóli og bíl við hörkuárekstur á Skúlagötu
Mér varð litið út um gluggann frá fangageymslunum á lögreglustöðinni, þegar ég sá allt í stóran eldblossa úti á Skúlagötu. Ég gerði strax aðvart, og við fórum í skyndi á staðinn á lögreglubilum."
Þetta sagði lögregluþjónn. sem blaðamenn Vísis hittu á Skúlagötu í gærdag, þegar lögreglan var að gera skýrslu um óhugnanlegan árekstur, sem varð á horni Vitastigs og Skúlagötu. Mótorhjól með ökumanni og farþega hafði ekið inn i hlið fólksbils, sem kom niður Vitastiginn og út á Skúlagötu. Mennirnir á hjólinu köstuðust 15 til 20 metra fram fyrir bílinn við áreksturinn, og slasaðist ökumaðurinn allmikið, en farþeginn eitthvað minna.
Við áreksturinn kviknaði í mótorhjólinu, og brann það algjörlega. Einnig kviknaði í bílnum, en slökkviliðinu tókst að slökkva eldinn fljótlega eftir að það kom á staðinn.
Eldblossinn, sem lögregluþjónninn sá, myndaðist þegar mótorhjólið rann aftur með fólksbílnum, eftir að hafa ekið í hlið hans framan til. Hjólið festist við bílinn aftast, og kviknaði um leið í því með miklum blossa.
Eldurinn læsti sig einnig í bílinn, og unnu lögregluþjónar
að þvi að bjarga farangri úr
honum, sem var allmikill. Bíllinn er utan af landi. Hann brann
allmikið aftan til.
Billinn kom akandi niður
Vitastig og beygði til hægri út á
Skúlagötu. Mótorhjólið kom þá
aðvifandi og skall á bilnum.
Framgjörðin lagðist alveg
saman við áreksturinn, en djúp
dæld myndaðist í bilinn.
Við þennan árekstur hefur fólksbíllinn farið yfir á vinstri vegarhelming Skúlagötunnar, því að hann rakst þar á bíl, sem kom á móti. Litlar skemmdir urðu hins vegar af þeim árekstri.
Ökumaður fólksbilsins
slasaðist litillega, hlaut nokkra
skurði og skrámur.
Farþeginn á mótorhjólinu var
12 ára gamall drengur. Hann
slasaðist eitthvað minna en ökumaður hjólsins. Báðir voru
fluttir á slysadeild, þar sem gert
var að meiðslum þeirra.
Mótorhjólið brann gjörsamlega, og lágu plastbrettin á þeim í klessu utan á hjólinu, bráðin
vegna hitans.
Í viðtali við varðstjóra slysarannsóknadeildar lögreglunnar í gærdag, sagði hann, að slys af þessu tagi virtust því miður fullalgeng. Bílstjórar bera oft fyrir sig, að þeir hafi ekki séð vélhjól, þegar þeir aka í veg fyrir þau.
Vélhjólamönnum hefur oft
verið bent á það að aka með
fullum ljósum, jafnt daga sem
nætur, til að tryggja, að betur sé
eftir þeim tekið í umferðinni.
-