1250 cc Mótorhjól á ísdekkjum er örugglega upplifun út af fyrir sig.
Förum nokkra hringi með Ólafur Arnar Hjartarson Nielsen sem prufaði þetta á dögunum ásamt föður sínum Hjörtur L Jónsson.
Förum nokkra hringi með Ólafur Arnar Hjartarson Nielsen sem prufaði þetta á dögunum ásamt föður sínum Hjörtur L Jónsson.
![]() |
Tían Bifhjólaklúbbur Norðuramts |
Hvar hittast hjólamenn á Akureyri:
Olís og Ráðhústorg. Eru yfirleitt söfnunarstaðirnir.
Á Akureyri voru mótorhjólin komin af stað um leið og fystu snjóa leysti.
Vorið var reyndar í svalari kantinum eftir snjóþungan vetur, en hjólarar margir hverjir létu sig samt hafa það og óku á þurru malbiki milli snjóruðninga lengi fram á vorið.
Covid setti einnig svip sinn á vorið en það virtist ekki há hjólamönnum mikið þeir héldu bara tveggja metrareglunni að mestu og hjóluðu milli kaffihúsa og sveitarfélaga í góðviðrisdögum í sumar.
1. mai hópkeyrsla
Var plönuð á Akureyri af Tíunni eins og alltaf en út af Covid varð að fella hana niður. Í staðinn var bara farið út að hjóla helgina eftir og fór góður hópur í frábæra dagsferð austur fyrir heiði til Húsavíkur og um innsveitir Aðaldals.
Mikill undirbúningur liggur að baki slíkri ferð, bæði varðandi leyfi, útbúnað, alla tilhögun ferðarinnar og gistingu. Menn eru sammála um að maður þarf að vera í góð formi líkmalega. Einnig þarf að gæta þess að fá sprautur við hinum ýmsu framandi sjúkdómum og að tryggingar séu í lagi svo fátt eitt sé nefnt og allt þarf þetta að gerast tímanlega.
Ekki má gleyna að sækja um og hafa meðferðis alþjóðlegt ökuskírteini sem Félag íslenskra bifreiðaeiganda sér um útgáfu á með sinni alkunnu lipurð og þjónustulund. Við Íslendingarnir héldum nokkra undirbúningsfundi. Á þeim stilltum við saman strengi, útdeildum verkum, fórum yfir öryggisatriði, tryggingamál og hvað hver og einn ætti að taka með af hinu og þessu sem er mikilvægt að hafa með í ferðalag sem þetta og þegar ýmislegt getur farið úrskeiðis.
Sjö glaðir meðlimir úr BMW-mótorhjólaklúbbi Íslands mættu í Leifstöð að morgni dags þann 20.febrúar síðastliðinn. Flogið var til London og þaðan í 14 klukkustundir í beinu næturflugi til Höfðaborgar.
Á flugvellinum í Höfðaborg biðu hermenn okkar farþegana með hitamæla að vopni til að fyrirbyggja að Covid-19 snit væru að berast til landsins. Allir sluppu í gegn með eðlilegan líkamshita og því gaf fátt hindrað ævintýrið sem var að hefjast.
Þátttakendur voru alls 32 á BMW-mótorhjólum, ásamt tveimur Suður afrískum fararstjórum á mótorhjólum og trússbíll sem flutti birgðir af vatni, varahlutum sjúkragræjum og auka mótorhjól. Hjólin voru ný eða mjög nýleg og flest af
Captain America Chopperinn úr Easy Rider |
Úr Kvkmyndinni Easy Rider Peter Fonda og Dennis Hopper |
Í þessari grein ætlum við ekki að upplýsa um allt það sem hægt er að Googla heldur nýju upplýsingarnar sem komu upp við þetta tækifæri.
Við ætlum ekki heldur að eyða plássi í allar vangavelturnar sem hafa komið fram á síðustu 50 árum, en stutta sagan er sem sagt að það voru smíðuð tvö Captain America hjól sem Peter Fonda var á og tvö Billy bike sem leikarinn og leikstjórinn Dennis Hopper var á.
Sagan segir að einhverntímann eftir að búið var að taka myndina upp '68, en áður enn hún var sýnd '69 hafi einhver brotist inn hjá umsjónarmanni hjólanna sem var stunt leikari Peters og stolið þremur þeirra, en annað af Captain America hjólinu var krassað í lok myndarinnar svo það var skilið eftir. Slátrið af því var gefið einum af leikurum myndarinnar Dan Haggerty. Sagan segir að hann hafi endurbyggt hjólið ( meira að segja er talað um að hann hafi gert annað eins, en við látum aðra um að tala um það).
Það sem er aðdáunarvert, sérstaklega fyrir þá sem elska gömul hjól og sögu þeirra og virðingu fyrir þeim sem smíðuðu þau, er að Fonda skrifaði bréf til uppboðshaldaranna í nóvember eftir að hjólið fékk alla þessa athygli eina ferðina enn. Í bréfinu hrósaði Fonda hugmyndasmiðnum í hástert og uppljóstraði 46 árum eftir að hjólið ver smíðað hver það var.
Þessi uppljóstrun kom ekki alveg öllum á óvart því auðvitað hafa alvöru grúskarar komist að þessu fyrir löngu, einn þeirra Paul d'Orleans, hann komst að því að Cliff Vaughs og Ben Hardy hefðu verið hugmyndasmiðir hjólanna. En þetta var sem sagt ekki gert opinbert fyrr en með bréfi Fonda.
Það hefur allt verið opinvert að hjólin voru keypt fyrir lítinn pening af lögregluembætti í Los Angeles á uppboði, en hvernig þau urðu að frægustu hjólum heims var alltaf á huldu. Ýmsar getspár voru við hafðar, eina var sú að Fonda hefði sjálfur gert þau, önnur að Haggerty hefði gert þau, en í bréfinu uppljóstrar Fonda að Cliff hafi algjörlega séð um málið. Hann segir í bréfinu ,, við Dennis erum honum svo þakklátir, við vissum ekki einu sinni að hægt væri að kaupa ódýr hjól á uppboði af löggunni". ,,Með undraverðum hætti ( að okkar Dennis mati) keypti hann 4 hjól á 500$ stykkið og hannaði og smíðaði þau svo fyrir 1250$ stykkið, við vorum hæstánægðir með þá Ben. Og svo gerðu þeir bara tvö af hverju eins og ekkert væri".
Fonda víkur líka að í bréfi sínu að Cliff hafi verið rekinn úr verkefninu og þar með aldrei fengið ,,kredit" fyrir hönnunina og smíðinni. ,,En það er ekki of seint að uppljóstra um þátt þeirr Cliffs og Bens fyrir þessi einstöku hjól sem áttu stórann þátt í frægð myndarinnar''.
Billy bike |
Ben var mjög þekktur meðal mótorhjólamanna, Sérstaklega svartra, en líf Cliffs var enn áhugaverðara, hann var framarlega í réttindabaráttu svartra og gerði heimildarmyndir um öryggi mótorhjólafólks í umferðinni.
Ben dó 1994 án þess að hljóta nokkurn tíma viðurkenningu fyrir hans þátt í smíði hjólanna. en Cliff lifir enn og d'Orleans fékk hann í liðs við sig þegar hann skrifaði bókina ,,The Chopper, The Real story'' Þar er öll sagan sögð.
Einar "Malboro" Ragnarson er þekktur í mótorhjólaheiminum á Íslandi sem frumlegur mótorhjólasmiður og hefur hann smíðað nokkur afar áhugaverð hjól.
Eitt af þeim er Budale sem er einhverskona samtíningur tveggja ólíkra hjóla í eitt.Hjólið sem um ræðir er upphaflega af gerðinni Buel Firebolt XB9 árg 2005 sem Einar fékk í pörtum og þar sem vantaði annann framdemparann fór hann að finna út hvað hann gæti notað í staðinn, og datt þá í hug að breyta hjólinu í off road ferðahjól.
Einar tók sem sagt framenda af Cannondale krossara og setti á hjólið tók svo afturgaffalinn og lengdi hann, það var eftir prufuaktstur sem það var ákveðið því hjólið var ókeyrandi með orginal afturgaffalinn eftir að krossgaffalinn var kominn að framan.Drifbúnaði þufti líka að breyta og varð reimdrifbúnaðinn að fara og var sett keðja í staðinn og afturfelga af Buell Raceing 1125R racehjóli.
Einnig var skipt út barkakúplingu og sett vökvakúpling.
Ljósfering og mælaborð voru færð upp um uþb. 7,5 sentimetra og petalabrakket færð niður fyrir þægilegri ásetu.
Útkoman
Að sögn Einars þá heppnaðist faratækið bara mjög vel. "Er bara alger draumur. Akstureigineikarnir er ágætir og virkar vel á slóðum en það er engin torfærugræja enda of þungt til þess".
"Ég stefni á að setja betri bremsur og breiðara framdekk á það til að gera það enn betra sagði Einar að lokum "
Skráðu þig á Póstlista Tíunnar og ekki missa af neinu í hjólunum.
Tommi mölvar vegginn sem hjólið var á bakvið |
Hjólið er líklega af gerðinni Göricke Bielefeld Domino (ILO-FP-50 1955 |
Hjólið er víst fyrsta mótorhjólið sem Heiðar Þ Jóhannsson (Heiddi #10) átti og er af gerðinni Göricke Bielefeld.
Hann gaf það vini sínum Þórarinn Sigurbjörnsyni hjólið árið 1967 en þá var Heiddi 14 ára en Þórarinn 11 ára. En þá bjó Þórarinn í húsinu sem hjólið var steypt inn í. Svo flutti hann úr bænum, og svo þegar hann kom að vitja hjólsins þá var búið að steypa hjólið inni með öllu sem því fylgdi.
Göricke Bielefeld 50cc |
Hjólið komið inn á safn. |
Heimildir og myndir af frétt Ruv í kvöld.
Baráttan í dag stóð aðalega um annað sætið enda beindust myndavélarnar aðalega að þeim, því Jack Miller sem ekur Ducati hélt sér í þriðja sætinu nánast alla keppnina þar til í lokin þar sem laumaði sér framúr Franco Morbidelli (Yamaha) sem hafði verið með annað sætið frá upphafi.
Þriðja sætið dugði Franco Morbidelli (Yamaha) til að verða annar í heildarstigum eftir heimsmeistaranum Joan Mir (Suzuki)
Topp 3 í dag.
1 | ![]() | KTM | ||
2 | ![]() | Ducati | 3.193 | |
3 | ![]() | Yamaha | 3.298 |
Lokastaðan